Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
Skoðun DV
Tekurðu vítamín?
Erik Qvick tónlistarmaöur:
Já, ég tek týsi.
Linda Pálsdóttir nemi:
Já, ég tek lýsi, C-vítamín og
fjötvítamín.
Dögg Hjaltalín nemi:
Nei, ég fæ svo mikiö af vítamínum
úr fæöunni, ég boröa svo
hollan mat.
Guölaug Pálsdóttir markaðsfulitrúl:
Já, ég tek inn Futura, fyrir hár
og neglur.
Gísli Marteinn Baldursson Hanna Birna Kristjánsdóttir Dagur B. Eggertsson
„Gefa baráttunni mestan lit í borgarstjórnarkosningunum“.
Þverpólitískar borgar
st j órnarkosningar
Friörik Jónsson
skrífar:
Manni sýnist að þeim sé orðið
vernlega heitt í hamsi, forsvars-
mönnum stærstu fylkinganna sem
berjast um að ná meirihluta í borg-
arstjóminni í Reykjavík. Ekki er
svo sem algjör samstaða um þessar
tvær fylkingar því í heildina eru í
boði sex framboðslistar. Þótt hliðar-
framboðin fjögur vegi ekki þungt í
heildina þá er þarna um að ræða at-
kvæði sem skila sér ekki til sjálf-
stæðismanna eða R-listans. Og það
sem meira er: Nú er greinilega um
að ræða þverpólitískar borgar-
stjórnarkosningar, það sér maður
og heyrir á mörgum sem segja að nú
kjósi þeir ekki sama lista og síðast -
og á það bæði við um lista sjálfstæð-
ismanna og R-listann.
Manni sýnist þó þessa dagana að
atkvæðin muni fremur renna til
sjálfstæðismanna, enda hefur slag-
síðan R-lista-megin aukist talsvert
við þann málflutning sem haldið
„Nú er greinilega um ad rœða
þverpólitískar borgarstjómar-
kosningar, það sér maður og
heyrir á mörgum sem segja að
nú kjósi þeir ekki sama lista
og síðast. - Og það á bæði við
um lista sjálfstæðismanna og
R-listann.“
hefur verið á lofti af hálfu D-lista-
manna. Ég man t.d. eftir sjónvarps-
viðtölum fyrir stuttu þar sem nýr,
frambærilegur og einkar málefna-
legur frambjóðandi sjálfstæðis-
manna, Hanna Bima Kristjánsdótt-
ir, atti kappi við m.a. Stefán Jón
Hafstein á R-lista og endaði með því
að hann varð að lúta í lægra haldi.
Sl. sunnudag komu svo þeir Gísli
Marteinn Baldursson og Dagur B.
Eggertsson í Silfur Egils-þáttinn, og
þar bókstaflega brilleraði Gísli
Marteinn svo af bar meö því aö
hrekja framburð Dags um ótak-
markað peningaflæði í kosningabar-
áttu sjálfstæðismanna. Sagði Gisli
(sem líklega verður að telja rétt) að
þama sé um að ræða svokallaða
„maður-á-mann“-baráttu frekar en
nokkuð annað. Sú aðferð hefur líka
oft gagnast vel í kosningabaráttu
sem hér um ræðir - að ógleymdum
sannfærarandi málflutningi efsta
manns listans, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, Bjöms Bjamasonar,
og öðrum frambjóðendum sem
leggja listanum lið með snörpum
innskotum í formi blaðagreina og
viðtala víðs vegar um borgina.
Án þess að ég ætli að spá nokkru
um úrslit kosninganna finnst mér
þrenningin Gísli Marteinn Baldurs-
son, Hanna Bima Kristjánsdóttir og
Dagur B. Eggertsson vera þau sem
gefa baráttunni í borgarstjórn-
arpólitíkinni mestan lit þessa dag-
ana. Og það mun áreiðanlega vega
þungt að umræðan og skoðanir
fólks eru þverpólitískari nú en oft-
ast áður.
Stuðandi stöðumælavarsla
íbúi í Garðabæ
hríngdi:
Camille Marmie neml:
Já, ég tek C-, D- og K-vítamín.
Charlotte nemi:
Já, ég tek multi vítamín.
„Stöðumælaverðir eru í mínum
augum eins og álfar og aðrar huldar
vættir þessa lands. Þeir bókstaflega
spretta upp úr jörðinni þegar
minnst varir - eða kannski koma
þeir af himnum ofan til að geta
komið sektarmiða á bílana í mið-
borg Reykjavikur. Það er engu lík-
ara en að þeir liggi í launsátri og
bíöi eftir að stöðumælirinn detti.
Um daginn átti ég örsnöggt erindi
inn á skrifstofu við Tjamargötu.
Viti menn, þegar út var komið sá ég
í afturendann á hróðugum stöðu-
mælaverði, sem var nýbúinn að
skrifa mig upp, nákvæmlega þegar
rann út af mælinum. Jæja, það var
ekkert viö þessu að gera. Daginn eft-
„Eg vil að félagsmálaráðu-
neytið fjalli um stöðuverði
og valdsvið þeirra. Hnjúka-
listinn á Blönduósi fékk ell-
efu mínútumar felldar nið-
ur eins og kunnugt er. Ég
vil að ökumenn fái smáveg-
is ráðrúm til að verjast
stöðumœlavörðunum. “
ir er ég á Skólavörðustíg, man eftir
sektarmiðanum, og fer inn í Spari-
sjóðinn til að borga sektina. Þar var
einhver bið - en þegar ég kem út er
stöðumælavörður mættur og búinn
að setja sektarmiða á bílinn. Ég
varð satt að segja bálillur. Það er
sárt að eyða peningunum í þessa
vitleysu.
Mér sýnist að stöðumælavarsla sé
nánast að ganga af gömlu miðborg-
inni dauðri. Svo rosaleg er þessi
varsla að stöðumælaverðimir eru
mættir á stundinni þegar rauða
spjaldið kemur upp á mælinum.
Liðlegheit eru ekki framarlega í
orðabókinni hjá þessu fólki, aldrei
er hægt aö semja um eitt eða neitt
við það.
Ég vil að félagsmálaráðuneytið
fjalli um stöðuverði og valdsvið
þeirra. Hnjúkalistinn á Blönduósi
fékk ellefu mínútumar felldar niður
eins og kunnugt er. Ég vil að öku-
menn fái smávegis ráðrúm til að
verjast stöðumælavörðunum.
Hugleiðing um norskan bónda
Garra bárust nýverið þær fréttir úr norskum
blöðum í gegnum málgagn samtaka íslenskra
bænda, að Evrópusambandið sé með í smíðum
reglugerð sem bannar að bændum að aka drátt-
arvél lengur en í 7 klukkustundir á dag. Norskir
bændur em sagðir uggandi um sinn hag, enda
ekki unnið samkvæmt stimpilklukku við árstíða-
bundin verk sem vinna þarf á skömmum tíma;
plægingu, sáningu, áburðardreifingu og slátt og
hirðingu.
Þau verða m.ö.o. þung sporin sem norski
bóndinn gengur af akrinum frá ókláruðu verki,
þegar sjöunda klukkustundin rennur sitt skeið á
enda. Spuming er hvort reglugerð Evrópusam-
bandsins geri ráð fyrir að honum verði leyft að
aka i bæinn til að lyfta sér upp.
Góðu áformin
Ekki þarf að efast um góðan vilja embættis-
mannsins sem átti hugmyndina að nýju regl-
unni. Kannski var hann með hugann við slysin
sem verða við vinnuvélar til sveita. „Þeim verð-
ur að fækka,“ hefur hann líklega hugsað með
sér.
Stjómmálamenn - og embættismenn - em
uppfullir af góðum vilja. Þeir eru svo ofsalega
góðhjartaðir og vel meinandi að bannlistinn
lengist og lengist. „Leiöin til ánauðar er vörðuö
góðum áformum," sagði austurriski hagfræðing-
urinn og nóbelsverðlaunahafinn F.A. Hayek.
Reglurnar
Reglur kalla á fleiri reglur. Hljótum við til
dæmis ekki að leyfa þeim norska að taka fjórar
tveggja tíma tamir í dráttarvélinni með góðum
hléum á milli? Hvað ef hann sest ekki upp í vél-
ina fyrr en um kvöldiö? Kemst hann fram hjá
reglunni með því að færa fimm klukkustundir til
bókar á mánudagskvöldi og þrjár til viðbótar að-
faranótt þriöjudags? Breytist kvótinn ef um næt-
urvinnu er að ræða eða í hlutfalli við hvíld
bóndans næstu nótt á undan? Gilda sömu mörk
um einfóld verk og flókin?
Fleiri reglur kalla á hert eftirlit. Garra er ekki
kunnugt um hvernig löggæslumálum er háttað í
norskum sveitum. í þeirri sveit sem hann þekkir
eru lögreglumenn sjaldséðir. TU þess að fylgja
eftir góðum áformum embættismannsins í Brus-
sel þyrfti því sennUega að beita öðrum ráðum.
Ánauðin
Hugmyndin að pappalöggum á að vísu rætur
sínar í sveitum og kallast þar fuglahræður.
Bændahræður myndu hins vegar ekki duga á þá
allra vinnuglöðustu.
SennUega væri því best að setja upp eftirlits-
myndavélar í dráttarvélum. Eða setja einhvers
konar búnað i þær sem slekkur á vélinni ef sami
maður ekur henni lengur en í sjö klukkustundir.
Slíkum búnaði þyrfti að fylgja annar búnaður,
sem greinir norska bóndann frá syni hans.
Fingrafaralesari eöa eitthvað slikt.
Án eftirlits af þessu tagi er reglan marklaus.
Og hið góða starf embættismannsins unnið fyrir
gýg. Góðu áformin verða að ná fram að ganga.
Það er öUum fyrir bestu. Norski bóndinn mun
örugglega skUja það þegar
hann verður eldri. Cs/Xff i
Þyria lendir við Landspltalann
í Fossvogi
Flugvöllur ekki í myndinni.
Án flugvalla
Þyrluflugma&ur skrifar:
Talsvert er rætt í yfirstandandi
kosningabaráttu um staðsetningu
ReykjavíkurflugvaUar og ýmislegt
tínt tU sem þykir styðja ýmist veru
hans eða brotthvarf. Þar er m.a. talað
um sjúkraflug og fuUyrt að UugvöUur-
inn verði að vera í nágrenni sjúkra-
húss. Þetta er af og frá. í dag eru flest
sjúkraflug sem slíku naíhi má netna,
framkvæmd með þyrlum. Aðeins
sjúklingar sem ekki þarfhast bráðrar
umönnunar eru fluttir með áætlunar-
flugi eða flugi sem pantað er sérstak-
lega. Sem betur fer eru þyrlur æ
meira nýttar tU sjúkraflugs þegar
mikið liggur við og þær lenda svo tU
við dyr sjúkrahúsanna. Sjúkraflug
sem slíkt er því ekki endUega tengt
nálægð flugvaUar, þótt það skaði ekki
að þannig hagi tU.
Frábært útspil
forsætisráðherra
Kristinn Slgurðsson skrifar:
Nýleg skoðanakönnun sem forsæt-
isráðherra lét gera sýnir að ef fólk er
upplýst um kosti og gaUa Evrópuað-
Udar eru það 70-80% sem hafna aðUd.
Furðulegt er að GaUup skuli aUs ekki
tala um eða vUja ræða kosti og gaUa
aðUdar að bandalaginu, því þá kemur
vUji fólks best í ljós þegar spurt er. Ég
er líka gáttaður á því að Satnfylkingin
skuli haUast að aðUd. Dæmi um „mik-
U“ áhrif smáþjóða var að danski fuU-
trúinn í sjávarútvegsnefnd vUdi
minnka veiðar í Norðursjó. Daninn
var rekinn úr nefndinni að kröfu
Spánar og ekki var hlustað á mómæli
dönsku stjómarinnar.
Fleiri sendiráð óþörf
Björn Magnússon skrifar:
Það er furðu-
legt að það skuli
oftast vera ein-
hverjir í opin-
bera geiranum
sem koma með
tiUögur um
meiri eyðslu,
viðameiri opin-
berar fram-
kvæmdir og útþenslu á bákninu. Nú
síðast kom lektor einn í stjómmála-
fræði við Háskólann með þá tiUögu að
sendiráðum Islands í Evrópu yrði
fjölgað verulega. Þetta lagði hann tU
íslandi tU handa í tUefni Evrópudags-
ins 9. maí sl. Og nefndi tU sögunnar
bæði PóUand og Ungverjaland. Einnig
Spán og Portúgal. EinkennUegt með
opinbera starfsmenn, þeir halda að
hægt sé að taka endalaust úr sameig-
UUegum sjóði okkar, bæði með beinni
eyðslu og óbeinni, þ.m.t. sjálftöku
sumra í launaauka, eins og nú er ofar-
lega í fréttum
Leiðarljós heimsins
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Að undanfómu hefur mikið verið
rætt um Evrópumálin. Aðallega um
hvemig staða íslands verði á næstu
árum og áratugum gagnvart Evrópu
og Ameríku. Það er greinUegt að Evr-
ópa og Ameríka (les: Bandaríki Norð-
ur-Ameríku) em að fjarlægjast, jafnvel
slíta sundur hin nánu tengsl sem hald-
ist hafa fram að þessu. Hvemig væri
að ísland gerðist eins konar mUliliður
eða tengiliður mUli heimsálfanna
tveggja, og þá með það fyrir augum að
græða þau sár sem myndast hafa. ís-
land gæti svo sannarlega orðið leiðar-
Ijós heimsins í þessum skUningi.
Sendiráöshúsiö
í Ósló
Ekki fleiri
sendiráö.
BE
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahlíö 24, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.