Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 28
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
28
Sport DV
ISport - spáin í úrvalsdeild karla í sumar:
Lokaröð liðanna |f|| Grindavík Markið 0 Vörnin 0 Miðjan 0 Sóknin 0 Bekkurinn 0 Þjálfarinn 0 Að auki 0 Stig 30
ÍA 0 0 0 0 0 0 0 29
Fylkir 0 0 0 0 0 0 0 29
w FH 0 0 0 0 0 0 0 26
KR 0 0 0 0 0 0 0 26
Fram 0 0 0 0 0 0 25
m ÍBV 0 0 0 0 0 0 24
KA 0 0 0 0 0 0 0 19
Keflavík 0 0 0 0 0 0 0 18
íw 1^1 Þór Ak. 0 0 0 0 0 0 16
Úrvalsdeild karla hefst á mánudaginn:
Grindavíkursókn-
in með fulla gjöf
DV-Sport hefur í síöustu átta tölu-
blöðum talið niöur að úrvaisdeild
karla í knattspymu heíjist með því að
birta spá blaðsins, lið fyrir lið. Fyrsta
umferðin fer fram á mánudaginn,
annan í hvítasunnu, og stefnir í jafnt
og galopið íslandsmót.
Blaðamenn DV-Sports hafa spáð og
spekúlerað í styrkleika og veikleika
liðanna og út úr þeim rannsóknum
var búin til spá DV-Sports fyrir sum-
arið. Spána og einkunnagjöfma má sjá
í heild sinni í töflunni hér að ofan.
Við metum nokkra þætti hjá hverju
liði og gefum einkunn á bilinu 1 til 6
eins og sjá má sem hlið á teningnum
hér að ofan. Lokaröð liðanna er byggð
á heildarstigum þeirra í mati blaða-
manna DV-Sports.
Aðeins sex stig á milli fyrsta
og sjöunda sætis
Það munar aðeins sex stigum á lið-
inu í fyrsta og sjöunda sæti og fjögur
af þeim sjö liðum eru jöfh að stigum.
Þetta ætti að lýsa vel þeirri almennu
skoðun að mótið er og verður mjög
jafnt í sumar.
Grindvíkingum var spáð efsta sæt-
inu af þjálfurum, fyrirliðum og for-
ráðamönnum á dögunum og þeir
skipa einnig þann stall í mati DV-
Sports.
Grindvíkingar fara langt á gríðar-
lega sterkum sóknarleikmönnum sem
fá fulla gjöf eða sex stig af sex mögu-
legum en hvergi annars staðar hafa
blaðamenn DV-Sports metið að lið
eigi skilið fulla gjöf fyrir ákveðinn
þátt í leik sínum.
Ef litið er á hvaða lið skara fram úr
á ákveðnum stöðum samkvæmt mati
DV-Sport þá er markvarslan í bestu
máli hjá liðum ÍBV, ÍA og KR sem öll
fá fimm stig af sex mögulegum fyrir
markverði sína.
Vömin er sterkust hjá Fylki og ÍA
sem bæði fá þar fimm stig og miðju-
menn FH-inga skara fram úr. Þegar
kemur að sóknarleiknum fá Grindvík-
inar eins og fyrr sagði sex stig en Kefl-
víkingar eru þar í öðru sæti með
fimm stig. Mesta breiddin er hjá Fylki
að mati blaðamanna DV-Sports og
þeir Bjarni Jóhannsson, Grindavík,
og Ólafur Þórðarson, ÍA, fá hæstu gjöf
af þjálfurunum eða fimm stig hvor.
Síðasta atriðið sem er metið hjá lið-
unum er þáttur sem ber nafnið að
auki en þar er komið inn á þætti í um-
gjörð hvers liðs. Þar eru þættir eins
og hefð, stemning á staðnum, aðstöðu
liðsins, fjármagn og liðsanda og fá
fjögur lið þar fjögur stig en það eru
KR, Fylkir, Grindavík og ÍA.
-ósk/ÓÓJ
Gunnlaugur Jónsson, fyrirli&i íslandsmeistara Skagamanna, sést hér til vinstri
með íslandsbikarinn, þann hinn sama og tíu liö hefja keppni um á mánudaginn.
Gunnlaugur átti frábært tímabil á síöasta ári og auk þess aö taka viö
íslandsbikarnum sem fyrirliöi ÍA var hann valinn besti leikmaður mótsins af
leikmönnum úrvalsdeildarinnar. DV-mynd Hilmar Þór