Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 DV 27 Skákþátturinn_______________ Umsjón Sævar Bjamason Helgarblað Minningarmótið um Capablanca Ekki gengur okkar mönnum sem best í Havana. Of mikill hiti, kveisur og skákblinda hrjá þá. Hannes Hlífar hefur 3 vinninga aö loknum 7 umferðum og er í 7.-8. sæti í „elítuflokknum". Kúbönsku stórmeistaramir Reinaldo Vera (2537) og Lazaro Bruzon (2569) leiða með 41/2 vinning. Helgi Áss Grétarsson hefur 31/2 vinning að loknum 9 umferðum í úrvalsflokki I og er í 8.-11. sæti. Spænski alþjóðlegi meistarinn Salvador del Río (2495) leiðir með 71/2 vinn- ing. Jón Viktor Gunnarsson hefur 31/2 vinning að loknum 9 um- ferðum í úrvalsflokki II og er í 9.-11. sæti. Kúbanski stórmeistar- inn Irisberto Herrera (2474) leiðir með 6 vinninga. Þessir 2 flokk- ar eru um það bil jafnir að meðalstigum. Og Fidel Castro er t.d. þokkalegur skákmaður og hefur teflt við margan slyngan meistar- ann. En á íslenska Alþinginu situr öflugur her skákmanna með Friðrik Ólafsson í broddi fylkingar. Gunnar Birgisson, Einar Már Sigurðarson, Lúðvík Bergvinsson, Halldór Blöndal, Össur Skarp- héðinsson og Davíð Oddsson eru allir miklir skákáhugamenn og eflaust gleymi ég einhverjum að vanda. En í Karíbahafínu er Jón Viktor Gunnarsson að veiðum og tefl- m af hreinni snilld á köflum. Svo mikilli snilld að að minnsta kosti 2-3 vinningar hafa gossað í hafið og eru á leiðinni til landsins með Golfstraumnum! En hann ætlar ótrauður á annað mót á Kúbu á meðan stórmeistararnir hyggjast snúa heim að minningarmótinu um meistarann mikla loknu. Capablanca var útnefndur sendi- herra víðrar veraldar á sínum tíma enda var hann giftur dóttur einhvers stjómmálaskörungsins á Kúbu í byrjun aldarinnar. Já það er viða teflt: Hvítt: Omar Almeida (2484). Svart: Jón Viktor Gxumarsson (2395). Volgubragð. Minningarmót um Capablanca, Havana (9), 14.05.2002. 1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. d5 g6 4. c4 b5 Þetta er nú oftast kallað Benköbragð og kennt við ungversk-franska-bandaríska stórmeist- arann Pal Benkö. Benkö þessi var staddur hér í Reykjavík 1956 á Stúdentaskákmótinu þegar ungverska byltingin eða andspyrnan gegn Sovétinu var gerð og baðst pólitisks hælis hér og fékk. Hann dvaldi hér ekki nema í nokkra mánuði og fór síðan vestur um haf. Ég kynntist honum fyrir rúmum 2 áratugum og þá kunni hann ennþá hrafl í íslensku. Hann varð seinna (eftir 1956) þekktur stór- meistari, náði næstum því sama styrkleika og Friðrik Ólafsson og komst áfram úr Portoroz-millisvæðamótinu 1958, eins og Friðrik og Bobby Fischer, í kandídatskeppnina sem Mikael Tal heitinn vann og töframaðurinn frá Riga lagði síðan Botvinnik í einvígi um sjálfan heimsmeistaratitilinn. Benkö átti síðan sinn þátt í því að Fischer varð heimsmeistari, hann gaf Fischer eftir sæti sitt á Millisvæðamótinu i Palma á Mallorca 1970 en Fischer átti ekki í raun rétt á að tefla á því móti. Skáksagan er full af skrýtnum mót- sögnum og nafnið á þessari byrjun er ein þeirra. í siðari heims- styrjöldinni voru bestu skákmenn Sovétríkjanna fluttir austur á Volgubakka og á einhverju mótinu þar í stríðinu fundu þeir upp þessa byrjun. Ég lærði sem unglingur nafnið Volgubragð eða byrj- un en Benkö byrjaði um það leyti að „praktísera" þessa byrjun og fékk nafn sitt kennt við hana i Vesturheimi. Nú býr Benkö að mestu í Búdapest aftur, ekki slæmt að geta eytt ellinni þar eft- ir viðburðaríkt líf. En nóg um það, svartur fómar peði sem í þessari skák er ekki þegið fyrir athafna- frelsi á drottningarvæng. 5. cxb5 a6 6. b6 d6 7. Rc3 Dxb6 8. Rd2 Bg7 9. e4 Rbd7 10. Be2 0-0 11. 0-0 Hb8 12. a4 Bb7 13. Rc4 Dc7 14. a5 Ba8 15. Bg5 Hb4 16. Dd2 Hfb8 17. Ha2 Skákin hefur teflst eftir 'hefðbundnum leiðum en nú býður Jón Viktor upp á peð öðru sinni sem er óhollt að þiggja. Eftir 18. Bxe7 kemur annaðhvort Hxc4 19. Bxc4 Re5 eða 19. - f6. Hollast er að láta peðið eiga sig! 18. f4 Bd4+ 19. Khl Ref6 20. Bd3 Rxe4 Mannsfórnin er skemmtileg, svartur fær nokkur peð fyrir manninn. Hann Jón Viktor er „taktíker" eða brellumeist- ari af guðs náð! 21. Rxe4 Bxd5. Hótar riddaranum á c4 og skemmti- legt er síðan að sjá hinn öfluga þrýsting sem svart- ur fær á b-línunni. 22. De2 Bxc4! 23. Bxc4 Hxb2 24. Dd3 e6. Svartur virðist hafa náð undirtökunum og fljótt á litið er besta vömin 25. Hxb2 Hxb2 26. Bxe6 fxe6 og siðan að íhuga hvort drepa eigi á d6 með drottn- ingu eða riddara. En þegar skákmenn hafa manni meira reyna þeir oft að láta hann af hendi fyrir frum- kvæði! 25. Dh3 d5 26. f5! Skammt er stórra högga á milli. Ekki er besti leikurinn alltaf bestur, þetta er skemmtileg tilraun og er betri en hvítur gerir sér grein fyrir! Hér gekk ekki að leika 26. -gxf5 þvf eftir 27. Bf4 e5 28. Bh6! vinnur hvítur! En eftir 26. -De5 getur hvítur leikið 27. fxg6! fxg6 28. RÍ6+! Rxf6 29. BxfB Dd6 30. Bxd4 cxd4 31. Hxb2 Hxb2 og óljóst er hversu miklar bætur svartur hefur fyrir manninn. Alla vega 3 peð sem dugar í flestum tilfellum. En dugar það hér? Og hversu langt sé ég eiginlega?! En hvítum hefur vafalaust verið órótt yfir hve „veikur“ hann er i borðinu! Og það verður honum að falli! 26. -De5! 27. Bf4? Dxe4 28. Hxb2 Eftir 28. Bxb8 á svartur sleggju- leik, Hbl!. Guðsmaðurinn á d4 er öflugur. Hvíta stað- an hrynur nú með glamri miklu. 28. -Hxb2 29. Bd3 Hb3!! Endataflið er gjör- unnið vegna peðanna sem svartur hefur fyrir skipta- muninn. 30. Bxe4 Hxh3 31. gxh3 dxe4 32. £xe6 fxe6 33. Hhl e5 34. Bh6 Kf7 35. Kg2 Ke6 36. Hb7 c4 37. Hc7 Rc5 38. Bf8 Kd5 39. Kfl c3 40. Bxc5 Bxc5 41. Ke2 Kc4 42. Hxh7. Peðafloti svarts er tvistraður en það einfaldar aflabrögðin! 42. - e3! 43. Hh4+ Bd4. 0-1. Re8 ST0000RLÆKKAÐ VERÐ OPNUM KL. 12:00 Á ÞRIÐJUDAGINN MEÐ RÝMINGARÚTSÖLU. ALLT Á AÐ SELJAST LOKAÐ ALLA DAGA FRAM AÐ ÚTSÖLU. EKKIMISSA AF ÓTRÚLEGU VERÐI. Klstlan werð frá Bastkfstlar kr.3.990 kr.1.490 VERÐ AÐUR: 6.900 VERÐ ÁÐUR: 1.990 Stóll kr.3.800 Borð .4.900 VERÐ ÁÐUR: 5.900 Allt settið k19.900 \ - :,L ' Altt settið kr.24.900 VERÐ ÁÐUR: 39.900 4borð .r 14.500 VERÐ ÁÐUR: 19.900 UEm aÐUR: 29.900 y£HD ADUR: 4.900 Ruggustóll Barstóll Klappstóll kr.8.900 kr.3.900 kr.990 Stóll kr.9i900 VERD ÁÐUR: 16.900 V£R3 ÁBUR: 14.800 VERO ÁÐUR: 5.900 VERO AÐUR: 1.490
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.