Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 11
b ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 DV ______n Landið Landvinnslan er stöðugt að eflast - framleiðsluverðmæti síðasta árs milljarður og vex mikið í ár Landvinnsla FISK á Sauöárkróki hefur stöðugt verið að eflast síðustu misserin. Ekki eru mörg ár siðan útlitið var þannig að dagar land- vinnslu voru nánast taldir. Þá þurfti að fækka fólki verulega en með breyttri stefnu að framleiða upp í fyrirframgerða samninga hef- ur tekist að byggja vinnsluna upp og nú starfa við hana 50-60 manns. Hlutur vinnslunnar í landi er sífellt að stækka í veltu fyrirtækisins. Á síðasta ári voru framleiðsluverð- mæti tæpur milljarður en áætlað er að á þessu ári verði þau um 1.300 milljónir. Að sögn Tómasar Árdals, verk- stjóra hjá FISK, eru unnin að með- altali um 95 tonn í frystihúsinu í viku hverri. Stærstur hluti hráefn- isins kemur af Hegranesinu en við lagfæringar á skipinu er það mjög vel búiö til ísfiskveiða. Hráefnið er DV-MYND ÞÖRHALLUR ÁSMUNDSSON Slá ekkl slöku við Konurnar í frystihúsi FISK slá ekki slöku viö. Hjá þeim er landvinnslan aftur á uppleiö en /á ár eru síöan menn töldu aö hún mundi leggjast af. snöggkælt um borð og stærðarflokk- að og kemur því ferskt í vinnsluna. Yfirleitt líöa ekki nema 10 dagar frá því það kemur þangað þar til það er komið út úr húsi á leið til kaupand- ans. Ekki hefur verið hráefnisskort- ur í frystihúsi FISK síðustu fimm árin, ef undan er skilið sjómanna- verkfallið á síðasta vori þegar vinnsla féll niður i fimm daga. „Við erum með mjög góðan kjama starfsfólks í vinnslunni. Það hefur markvisst verið unnið að hag- ræðingu á síðustu árum og mikil áhersla lögð á pökkunarþáttinn. Við erum að framleiða upp í samninga sem gerðir eru 3 til 12 mánuði fram í tímann og það hefur gengið mjög vel að uppfylla óskir kaupenda," segir Tómas Árdal, verkstjóri í Fiskiðjunni. Á þessu kvótaári er áætlað að vinna 4.400 tonn af þorski, 200 tonn af ufsa og pakka 300 tonnum af karfaflökum sem unnin eru í frysti- húsinu í Grundarfirði og um borð í Málmey. -ÞÁ Kirkjuhvammshreppur hinn forni: Flmm bestu búin í hreppnum Samkvæmt skýrsluhaldi Bænda- samtaka íslands eru nokkur afurða- mestu fjárbú landsins í Húnaþingi vestra. Af tíu hæstu búunum yfir landið, þar sem skýrslufærðar ær eru fleiri en eitt hundrað, voru funm í Kirkjuhvammshreppi hinum foma. Það er alveg einstakt að svo mörg toppbú séu í sömu sveitinni. Þegar landið er allt tekið lenti Ellert Gunn- laugsson á Sauðá í öðru sæti. Hann er með 350 ær, 36,2 kíló eftir á og 1,96 lömb eftir ána. í þriðja sæti er Tryggvi Ellertsson í Gröf með 196 ær, 35,7 kg eftir á, 1,86 lömb eftir ána og í því fjórða er Ingólfur Sveinsson á Syðri-Kárastöðurn með 140 ær, 35 kg eftir á, 1,86 lömb eftir ána. „Þetta er alveg einstaklega glæsi- legur árangur sem bændur í þessari sveit hafa náð. Þetta er ekkert að byrja á árinu 2001 því þeir hafa ver- ið í fremstu röð í nokkur ár. Þama spila nokkrir þættir saman: Féð er gott, vel ræktað og frjósamt. Það er rúmt í högum og þeir mjög góðir og öll meðferð fjárins til fyrirmyndar. Svo hygg ég að það sé einhver keppni milli manna hvað afurðimar snertir og það er ágætt innan hæfi- legra marka," sagði Jón Viðar Jón- mundsson, sauðfjárræktarráðunaut- ur Bændasamtaka íslands, þegar fréttamaður spurði hann út í þessar frábæru afurðir sem bændur á þessu svæði ná. í þessu sambandi er rétt að fram komi að afurðamesta fjárbú landsins 2001 er Félagsbúið Lundur á Austur-Héraði, með 36,9 kg eftir ána. Það bú hefur einnig verið í fremstu röð hvað afurðir snertir undanfarin ár. -ÖÞ Gott á grá- lúðunni við miðlínu Sléttbakur EA-304, nýr frystitog- ari Útgerðarfélags Akureyringa, sem nýlega var keyptur frá Rúss- landi, var á föstudag í sinni fyrstu veiðiferð í blíðuveðri um 90 mílur vestur af Bjargtöngum, skammt frá miðlínu milli íslands og Grænlands, að sögn Magnúsar Kristjánssonar stýrimanns. Skipið er á grálúðu- veiðum og hafa þær gengið ágæt- lega síðasta hálfa mánuðinn. Skipið hefur komið mjög vel út. Magnús segist oft hafa verið á grálúðuveið- um á þessum slóðum og telur hann að veiðin í ár sé ekki ósvipuð þvi sem hún hefur verið undanfarin ár. Núna eru sex skip á grálúðuveiðum á þessu hafsvæði, en auk Sléttbaks EA eru það Margréti EA, Sigurbjörg ÓF, Hrafn Sveinbjamarson GK og Björgvin EA. Sléttbakur var i mjög góðu síma- sambandi í gærmorgun, sem er óvenjulegt á þessum slóðum. Magn- ús segir að það gerist einstaka sinn- um þegar veðuraðstæður séu eins og nú, þ.e. að háþrýstisvæði sé ríkj- andi. Nú þegar er Sléttbakur búinn að veiða um 340 tonn af grálúðu upp úr sjó. Reiknað er með að skipið komi inn til löndunar 28. mai nk. úr þessari fyrstu veiðiferð undir merkjum ÚA. -GG DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON Vel ræktað fé / fjárhúsunum á Bergsstööum í Húnaþingi vestra. Fjárstofninn þar er vel ræktaöur og búiö meö þeim afuröamestu á landinu. Húsgögn eftir þínum þörfum hornsófar stakir sófar stólar hvíldarstólar svefnsófar veggeiningar borðstofuhúsgögn og fl h ú s g ö g n Höfðatúni 12 105 Reykjavlk Slmi 552 5757 www.serhusgogn.is mm Nýju brauðin og sósurnar hafa slegiö í gegn ert þú búin(n) aö smakka? sSUBWRY* Esso-stöðinni Reykjavíkurvegi Hfj. • Kaupvangsstræti Akureyri • Hafnargötu Keflavík • Varnarstöðinni Keflavíkurflugvelli

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.