Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 15
15 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 3Z>V___________________________________________________________________________________________________Menning Leikhúsgaldrar Verkefnaval Islenskra leik- húsa er að jafnaði bundið við hinn engilsaxneska menningar- heim og því ávallt fagnaðarefhi þegar kynnt eru til sögunnar leikskáld frá öðrum málsvæðum. Fráfarandi leikhússtjóri Leikfé- lags Akureyrar, Sigurður Hró- arsson, kveður með slíkum gjömingi því síðastliðið fimmtu- dagskvöld var framsýnt í Sam- komuhúsinu verk eftir marg- verðlaunað rúmenskt leikskáld. Matéi Visniec er reyndar búsett- ur í Frakklandi og skrifar á frönsku og fékk t.a.m. heið- ursverðlaun franska Rithöfunda- og tónskáldafélagsins árið 1994 fyrir leikritið Saga um panda- bimi, sögð af saxófónleikara sem á kærastu í Frankfurt. SSSiú. Persónurnar sem koma við sögu í þessu verki eru tvær og sögusviðið er íbúð í París árið 2002. Leikurinn hefst á þvi að „hann“ vaknar við hlið íðilfag- urrar nakinnar konu sem hann man alls ekki hvemig hann hefur hitt, hvað þá að hann viti hvem- ig hann fékk hana með sér heim. „Hún“ gengst inn á að dvelja hjá honum í níu nætur svo þau geti kynnst og stendur við þaö loforð. Fljódega kemur í ljós að hún er meira en lítið dularfull persóna, ef ekki rammgöldrótt, og atburðarásin í samræmi við það. Það er ekkert sem sýnist og eftir því sem lengra líður verður veruleikinn sem birtist á sviðinu óræðari og dularfyllri. Áhorfendum er hins vegar látið eft- ir að túlka það sem fyrir augu ber og gera upp við sig i leikslok um hvað verkið raunverulega Qallar. Sigurður Hróarsson er bæði skrifaður fyrir prýðilegri þýðingu verksins og leikstjóm og er Saga um pandabimi hans fyrsta leikstjómar- verkefhi. Hann stenst þá frumraun með glans því uppsetningin er flókin þó verkið sé fámennt. ársins. Túlkun Þor- steins nú er ekki jafn eftirminnileg og í Slöv- vun! en persónusköpun hans var engu að síður sannfærandi og marg- þætt. Helsti galli Lauf- eyjar sem leikkonu er takmarkað raddsvið og setur það óneitanlega mark á túlkunarmögu- leika hennar. í meðfor- um Laufeyjar varð „hún“ því dálítið ein- hæf og dró það úr heild- aráhrifum sýningarinn- ar. Á móti kemur að Laufey býr yflr miklum líkamlegum þokka - sem dugir þó ekki til að gæða perónuna dýpt. í lok leiksins heyrast raddir utan sviðs sem hefði þurft að leggja meiri vinnu í að þjálfa því þær stóðust ekki kröfur sem gerðar eru til atvinnuleikhúss. Þrátt fyrir ofan- nefnda galla er Saga um pandabimi skemmtileg sýning og veisla fyrir skilningarvitin. Það er óhætt að taka undir með Sigurði Hróarssyni og vona að íslenskir leikhús- gestir fái að sjá Qeiri leikrit eftir þennan ágæta höfund. Saga um pandabimi er mikil leikhús- upplifun og, eins og öll góð leikrit, til þess fallin að vekja fleiri spumingar en það svarar. Halldóra Friðjónsdóttir Leikfélag Akureyrar sýnir í Samkomuhúsinu: Saga um pandabirni, sögö af saxófónleikara sem á kærustu í Frankfurt, eftir Matéi Visniec. Þýöing og leikstjórn: Sig- uröur Hróarsson. Leikmynd og búningar: Þórarinn Blön- dal. Lýsing: Ingvar Björnsson. Hljóö: Gunnar Sigur- björnsson. Aöstoðarlelkstjóm: Hrafnhildur Hafberg. Lelkgervi, föröun og hár: Linda B. Óladóttir og Hall- dóra Vébjörnsdóttir. Skemmtileg sýning og veisla fyrir skilningarvitin. Þorsteinn Bachmann og Laufey Brá Jónsdóttir í hlutverkum sinum. Ýmiss konar brellur og sjónhverfmgar gegna mikilvægu hlutverki og voru þær undantekn- ingarlítið vel lukkaðar. Lýsing sveipaði atburði nauðsynlegri dulúð og leikmyndin þjónaði sýn- ingunni vel líkt og hljóðmyndin sem var skemmtilega útfærð. Kvikmyndir virðast mjög i tísku í íslensku leikhúsi um þessar mundir og í Sögu um pandabimi er það Þorsteinn Bach- mann sem hefur unnið kvikmyndaefhið sem að hluta er fengið að láni frá pólska leikstjóranum Pawel Gula. Að sjálfsögðu er kvikmyndin ekki til skrauts heldur gegnir hún ákveðnu hlutverki innan leiksins og var vel heppnuð sem slík. Þorsteinn Bachmann og Laufey Brá Jónsdótt- ir hafa verið fastráðin hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur og komið að flestum uppsetningum leik- Tónlist Kúbverskir galdrakarlar á Broadway Tónlistarhópurinn Vocal Sampling frá Kúbu. Listahátíð stóð fyrir grísaveislustemningu um helgina þegar strákamir í Vocal Sampling frá HavEma mættu með heila hljómsveit í munn- inum og spiluðu á Broadway á þrennum tónleik- um. Meðlimir sönghópsins era allir sprenglærð- ir hljóðfæraleikarar. Munnleikfimin var í upp- hafi eins konar skemmtiatriði innan hópsins en eftir að belgískur umboðsmaður rakst á þá fé- laga af tilviljun í skólaporti 1992 hefur a capp- ella-listin verið þeirra aðalstarf. Þeir hafa flakk- að um heiminn, gefið út fjórar plötur og fengið mikið lof hjá heimspressunni og mönnum eins og Paul Simon, David Byme og Peter Gabriel. Á fostudagskvöldið var kúbverska vináttufé- lagiö mætt í heild sinni og síhressar kerlingar og karlar sperrtu eyrun þegar ballið byrjaði. Kúbverjamir vora tengdir saman með hljóð- kerfi og heyrðu hver i öðrum með fréttamanns- hátalara’í eyrunum. Enda eins gott því flutning- urinn er gífurlegt nákvæmnisverk. Lengst til hægri stóð „trommusettið" Ahel Sanabria og hélt hann öruggur takti með munni og lófum, en hann var sá eini sem fékk að klappa að staö- aldri. Við hlið hans stóð bassinn Oscar Porro og búmmaði bassalínur af miWum móð og hljóm- aði eins og færasti kontrabassaleikari. Hinir fjórir sáu um annan „hljóðfæraleik" og forsöng og skiptu ótt um karakter. Gitarar, slagverk, hljómborð og skærir lúðrar liðu úr munni þeirra og alltaf sá einn um forsöng meðan hinir hömuðust. Til að byrja með „váuðu“ gestir og glenntu upp glymumar yfir ótrúlegri fæmi og fáránlegu úthaldi Kúbverjanna en svo hætti maður að spá í að hljómsveitin kæmi öll úr kjöftunum og varð gegnsósa af salsastemmingu, enda tónlistin ýmist ægihress og upplífgandi eða ýtin og sefjandi. Á dagskrá vora lög eftir foringja hópsins, René Banos, flest af nýjustu plötu hópsins, Cambio De Tempo, sem strákamir vora óþreytt- ir við að kynna að fengist í fatahenginu. Hljóm- sveitin lagði mikið upp úr því að gera gott „sjó“ og hafði leikræna túlkun textanna í fyrirrúmi. Stundum setti hún meira að segja upp heilu leikþættina. í „E1 Cuarto de Tula“ vora þeir fé- lagar komnir í bæjarvinnuna í Havana og höm- uðust á ósýnilegum loftborum og steypuhræri- vél. Svo hrast á með ástarballöðu þar sem súkkulaðistrákurinn Renato Mora fór svo mik- inn að skraufþurrastu hunangskollur döggvuð- ust á ný. Laginu lauk á heljarinnar „ruslatunnu- endi“ sem hafði svo góð áhrif á miðtaugakerfi fullu kerlingarinnar fyrir framan mig að hún stóð upp fagnandi og baðaði út öngunum eins og hún ætlaði hreinlega að faðma sætakrúttið sem þó var marga metra í burtu. Skömmu síðar tók René þvílíkt munngítarsóló að Jimi Hendrix er öragglega enn þá að velta sér við í gröfinni af stuði einu saman. Allt í einu stóðu sex dranga- legir munkar á sviðinu og tóku „Svo mælti Zaraþústra“ af gríðarlegum krafti. Ég trúi því varla enn að þessar bassadranur hafi komið úr barkanum á Oscari. Hápunktur þessara stórskemmtilegu tónleika var þó þegar gestir voru virkjaðir til þátttöku I hinni glöðu sumarleyfislummu, „Mi Guantana- mera“. Þá stóðu allir á fætur og dilluðu sér og skóku klappandi og sönglandi, enda hefði maö- ur þurft að vera bæði daufdumbur og hlekkjað- ur niður til að sitja kjurr undir þessu magnaða fjöri. í lokin stóð trommusettið eitt eftir og tók svo yfimáttúrlegar rispur að maður var dauð- hræddur um aö hann færi úr kjálkalið. Til þess kom blessunarlega ekki og kúbversku galdra- karlamir komu aftur og tóku nokkur róleg upp- klappslög til að róa fólk. Dr. Gunni Gaman að lifa Alveg veit maður þessa dagana ná- kvæmlega hvemig kúnum líður þegar þeim er fyrst hleypt út á vorin. Þegar hlýir vindar blása um vanga manns eft- ir langan vetur þá fær maður eiginlega áfall. Getur virkilega vorað á íslandi? Laufgast trén? Verður júni snjóléttur eft- ir allt saman? Ekki spillir gleðinni aö hafa listahátlð í bænum með viðburðum um allan bæ. í Listaháskólanum lauk í gær stórri og glæsilegri útskriftarsýningu nemenda þar sem gestir gátu séð í sjónhending hvert íslensk myndlist stefnir. Þar er sófamálverkið orðið lifandi og/eða háskalega tælandi... Útskriftarsýningin er auðvitað árviss viðburður og ekki tengd listahátíð og það var blöðrasleppingin ekki heldur. En gaman var að vera á þéttskipuðu Ing- ólfstorgi þegar Ingibjörg Sólrún sleppti fordómum okkar upp í loftið i líki 3667 mislitra blaðra sem fuku upp í loftið eins og fuglager og bömin urðu galin af gleði. Þorlákur Ó. gengur aftur Á Árbæjarsafni var frumsýnd í gær svolítil „skemmtun fyrir fólkiö" í anda Þorláks Ó. Johnsons, athafnamanns og heimshorgara, í húsinu þar sem hann bjó sjálfur fyrir hundrað árum, Lækjar- götu 4. Þorlákur efndi til alþýðlegra skemmtana heima hjá sér sem Ámi P. Reynisson leikari og Ágústa Skúladóttir leikstjóri endurvekja nú í húsinu. Árni er Þorlákur, kynnir sig fyrir gestum sín- um og segir ofurlitil deili á sér og sínum, syngur, sýnir skuggamyndir og endur- segir ástarsögu Sire Ottesen og Dillons lávarðar. Þetta er skemmtileg hugmynd og er ætlun forsvarsmanna Árbæjarsafns að vekja íleiri þekktar persónur úr bæjar- lífinu í gamla daga með þessum hætti. Eftir „skemmtunina" dönsuðu svo starfsmenn safnsins við saltfisk úti í góða veðrinu, gestum til mikillar kátínu. Rómantísk söngkona í gær voru líka fyrri tónleikar June Anderson; hinir seinni verða annað kvöld. Umsögn Jónasar Sen birtist ekki hér í blaðinu fyrr en á morgun og ég vona að hann fyrirgefi mér framígripið en þessi kona er kraftaverk. Þegar hún hvíslar fyllir hún stóra salinn í Háskóla- bíói - án hljóðmögnunar af nokkru tagi - og þegar hún beitir röddinni verður salurinn strax of lítill. Þvilíkur kraftur og þvílík raddfegurð. Hún endaði á hinu dýrlega lagi, Youkali, eftir Kurt Weill. Það lag var sungið á Listahátíð 2000 í Salnum af Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur svo að seint gleymist, og gaman að segja frá því að Guðrún Jóhanna, sem nú stundar nám við óperudeild Guildhall-skólans í London, hlaut á fostudaginn var fyrstu verðlaun í Schubert-keppni sem er hald- in árlega við skólann. í fyrri umferð vora 35 keppendur en 30 slegnir út svo fimm söngvarar kepptu til úrslita. í dóm- nefnd sátu breski píanóleikarinn Roger Vignoles, einn þekktasti undirleikari heims, og kanadíska sópransöngkonan Nancy Argenta sem söng i óratóríunni Jósúa eftir Hándel í HaUgrímskirkju á kirkjulistahátíð árið 2001. Tók dóm- nefndin sérstaklega fram að sigurvegar- inn væri þeim sjaldgæfa hæfileika gædd - fyrir utan frábæra söngrödd - að túlka hvem texta eins og hann kæmi beint frá hennar eigin hjarta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.