Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 16
16 + 25 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jönsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahliö 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Boltinn rúllar Fyrsta umferð úrvalsdeildar í knattspyrnu karla er að baki. Sumarið er fram undan og stuðningsmenn helstu knattspyrnuliða landsins slá enn á ný skjald- borg um sitt lið - sumir með háværar kröfur um ár- angur. Síðustu ár hafa verið íslenskri knattspyrnu hagstæð í mörgu en erfið í öðru. Ljóst er að mörg félög hafa far- ið of geyst í sakirnar og standa fjárhagslega veikburða eftir. Knattspyrnan er hins vegar betri. Landslið karla hefur náð ágætum árangri og á stundum glæsilegum. Kvennalandsliðið hefur einnig vakið athygli fyrir ár- angur, nú síðast fyrir að ná jafntefli við Rússa á heimavelli þeirra fyrir nokkrum dögum. Ljóst er að kröfurnar sem gerðar eru til íslenskra knattspyrnumanna aukast ár frá ári. Með beinum út- sendingum af leikjum flestra bestu knattspyrnuþjóða heims hafa kröfurnar aukist enn frekar. Því miður eru islensk knattspyrnufélög ekki fjár- hagslega í stakk búin til að bjóða leikmönnum upp á þær aðstæður sem nauðsynlegar eru til að þeir fái að fullu notið sin og risið undir þeim væntingum sem gerðar eru til þeirra. íþróttir eru umfangsmikil atvinnugrein víða um heim, hvort heldur um er að ræða knattspyrnu, akst- ursíþróttir, körfubolta, golf eða frjálsrar íþróttir. Hvort sem mönnum líkar það vel eða illa hefur þessi þróun náð hingað til lands. Samþætting íþrótta og við- skipta hefur þegar átt sér stað. Áhugamennskan er þvi hægt en örugglega að víkja fyrir atvinnumennsku. íslendingar verða seint stórveldi á sviði íþrótta þó einstakir afreksmenn hafi gert garðinn frægan. En það er kominn tími til að yfirvöld - sveitarstjórnir og rík- isvald - viðurkenni íþróttir sem mikilvæga atvinnu- grein en ekki aðeins sem mikilvægan þátt í uppeldi þeirra sem yngri eru. Hundruð íslendinga hafa atvinnu af íþróttum, jafnt hér á landi sem erlendis. Verkefni komandi ára er að styrkja ytra umhverfi íþróttafélaga enn frekar þannig að þeim takist að þróast í takt við auknar kröfur. Þar getur skipt máli að gripa til skattalegra aðgerða sem gera það fýsilegan kost fyrir einstaklinga og fyrirtæki að fjárfesta í íþróttum. Sjálfstœtt ríki Síðastliðinn sunnudag rættist langþráður draumur ibúa Austur-Timors þegar Kofi Annan, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti landið sjálfstætt ríki. Nauðugm- viljugur hefur Xanana Gusmao, frelsishetja Austur-Tímors, tekið við embætti forseta en hans bíða gríðarleg verkefni, ekki aðeins að leiða landið inn í nýja tíma framfara heldur ekki síður að græða þau sár sem áralöng frelsisbarátta hefur skilið eftir. Austur-Tímor var hertekið af Indónesum árið 1975, skömmu eftir að landið fékk sjálfstæði frá Portúgal. Indónesar stjórnuðu landinu harðri hendi og bældu niður allar tilraunir til sjálfstæðis. Saga Indónesa á Austur-Tímor var blóði drifin eins og heimurinn hefur fengið að kynnast. Mikið verk er að vinna á Austur-Tímor og mikilvægt er að alþjóðasamfélagið styðji þétt við bakið á hinu unga lýðveldi. Þar geta íslendingar lagt sitt á vogar- skálarnar. Óli Björn Kárason DV ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002_ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002____________________ Skoðun Brjótum upp miðstýrt skólakerfi Skólamálin eru meðal mikilvægustu málaflokk- anna sem kosið verður um í borgarstjórnarkosn- ingunum 25. maí nk. Stefna okkar frambjóð- enda Sjálfstæðisflokksins er skýr í þeim málum. Við munum efna til stórátaks í menntamálum með því að tryggja reykvískum bömum i leik- og grunn- skólum bestu menntun sem völ er á. Skólinn er hjartað í hverju hverfi borgarinnar, miðstöð mennta og menningar. Skólahverfi og skólanefndir Samkvæmt lögum nr. 66/1995 um grunnskóla er skólahverfi sú eining sem stendur að einum grunnskóla eða fleiri. Sveitarfélag sem rekur tvo eða fleiri grunnskóla telst eitt skóla- hverfi en þó er heimilt að skipta sveitarfélagi í fleiri skólahverfí sam- kvæmt nánari ákvörðun sveitar- stjórnar. í hverju skólahverfi skal vera skólanefnd sem fer með málefni grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða og sveitarstjóm kann að fela þeim. Skólanefndin á að sjá um að öll skólaskyld böm í skóla- hverfmu njóti lögbundinnar fræðslu. Hún staðfestir áætlun um starfstíma nemenda ár hvert og fylgist með framkvæmd náms og kennslu í skólahverfinu. Þá gerir skólanefnd tillögur til skólastjóra um umbætur í skólastarfi og hún á að stuðla að tengslum og samstarfi leikskóla og grunnskóla. Færum stjórnkerfið Sveitarfélögin tóku við öllum rekstri grunnskólans haustið 1996 að undangengnum mikilvægum og nauðsynlegum undirbúningi. Bjöm Bjamason, þáverandi menntamála- ráðherra, lofaði öUum hlutaðeigEmdi aðilum að tryggja sátt um flutning- inn, lagði sig allan fram og stóð við gefið loforð. Markmið flutnings grannskóla frá ríki til sveitarfélaga var að dreifa valdi og færa yfirsfjóm skólanna nær borgurunum. Það markmið hefur ekki gengið eftir í Reykjavik og því er nauðsynlegt að gera breytingu á ytra stjómskipulagi grunnskóla Reykjavíkur, hverfa frá gamaldags miðstýringu og færa til nútímalegra horfs. Við viljum að foreldrar, skóla- stjómendur og kennarar hafi meiri áhrif þegar ákvarðanir eru teknar og ég tel það i rauninni forsendu fyrir framþróun í skólamálum borgarinn- ar. Það er með öllu ósættanlegt fyrir foreldra yfir 30 þúsund grunnskóla- bama að eiga einungis einn fulltrúa í skólanefnd (fræðsluráði) Reykjavik- ur. Við boðum gjörbreytt skipulag því við ætlum að skipta borginni í skólahverfi og í hverju þeirra verði skólaráð sem fari með málefni leik- og grunnskóla hverfisins. Þá leggjum við auk þess til að ailir fulltrúar í skólaráðunum, þ.m.t. fulltrúar for- eldra, kennara og skólastjóra, sitji þar með atkvæðisrétt auk málfrelsis og tillöguréttar. Samstarf leik- og grunnskóla Við leggjum höfuðáherslu á að efla innra starfið í leik- og grunnskólum. Við ætlum að þróa samstarfið á milli leikskóla og grunnskóla og brúa bil- ið á milli þessara tveggja skólastiga. Við ætlum að efla innra starf leik- skólanna með því að bjóða þar upp á valfog sem tengjast listsköpun, hreyf- ingu og tjáningu og með því að hefja undirbúningskennslu í grunnfogum á síðasta ári leikskólans. Kennarar í leik- og grunnskólum gegna lykil- hlutverki í þessu samstarfi sem verð- ur að vera stöðugt en ekki bundið við skólaheimsókn að vori. Þeir geta laðað fram það besta á hvoru skóla- stigi í þeim tilgangi að efla hitt. Við „Eins og málum er nú háttað eru það eingöngu ísaksskóli og Landakotsskóli sem bjóða 5 ára bömum kennslu. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að ekki hefur verið lögð nægilega mikil rækt við duglega nemendur og við viljum gera stórátak í því að koma til móts við afburða nemendur. “ viljum þróa samstarfið enn frekar og heimila grunnskólum að bjóða upp á nám fyrir 5 ára böm. Eins og málum er nú háttað eru það eingöngu ísaksskóli og Landa- kotsskóli sem bjóða 5 ára bömum kennslu. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að ekki hefur verið lögð nægi- lega mikil rækt við duglega nemend- ur og við viljum gera stórátak í þvi að koma til móts við afburða nem- endur. Bömin okkar eru ekki öll eins og þarfir þeirra ólíkar. Þess vegna eigum við ekki að steypa þau öll í sama mótið, heldur leyfa hæfi- leikum þeirra að blómstra. Sandkom Höfiindur íslands í splunkunýju hefti TMM (Tímarit um mannlíf og menningu) fer Hallgrímur Helgason rithöf- undur mikinn í langri grein sem stíluö er á Jón Baldvin Hannibalsson og ber yfirskriftina Vinstra megin við Washington. Þar lítiu- Hall- grímur yfir hiö pólitíska litróf á íslandi og kveð- ur m.a. upp þungan dóm yfir Samfylkingunni og segir: „Sjálfstæðisflokkurinn stal frá henni skyn- seminni og Vinstri-grænir hirtu það sem eftir var: Vitleysuna." Hallgrímur víkur líka að borg- armálum: „Á næsta kjörtímabili mun R-listinn sjálfsagt láta reisa Skuldasafn Reykjavíkur í Tryggvagötunni, við hliðina á Listasafni Reykja- víkur. Það verður gaman að sjá hvort þar verður frítt inn.“ Meginniðurstaða Hallgríms er að ís- lendingar búi í hinu fullkomna velferðarríki „handan við vinstri og hægri“, þar sem öll bar- átta sé afstaðin og öll mál í höfn. Óvissa ríkir um framtíð TMM en menn vona að það lifl nógu lengi til að Jóni Baldvini gefist ráðrúm til að svara Hallgrími. Nóatún - Þverholt Nýtt fyrirtæki, Blaðavinnslan ehf., var stofnað í síðasta mánuði með aðsetur að Þverholti 11, en þar eru Fréttablaðið og Frjáls fjölmiðlun einnig til húsa. Tilgangur félagsins er „rekstur prent- smiðju, útgáfustarfsemi, kaup og sala hlutabréfa og annarra verðbréfa, rekstur fasteigna og skyld- ur rekstur.“ Stofnandi er Saxhóll, eignarhaldsfé- lag Nóatúns-fjölskyldunnar. Framkvæmdastjóri Saxhóls er Einar Örn Jónsson, stjómarmaður í Frjálsri fjölmiðlun og æskuvinur Eyjólfs Sveins- sonar, útgáfustjóra og stjórnarformanns Frétta- blaðsins. Einar Örn vildi, aðspurður, ekkert tjá sig um Blaðavinnsluna og því allt á huldu um starfsemi hennar enn sem komið er. Fjölnota ráðskona Smáauglýsingar DV eru á köflum bráðgott les- efni enda kennir þar ýmissa grasa. Svohljóðandi auglýsing vakti athygli í síðustu viku: „Fjölnota ráðskona óskast til starfa á blönduðu búi í fal- legri sveit við Breiða- fjörð sem fyrst.“ Orðið „fjölnota" er ekki að finna í þeirri Orðabók Menningarsjóðs sem Sandkornsritari heftu- und- ir höndum. Líkast því er orðið „fjölnýtur" sem merkir „nothæfur til margs“. Eðlilegasta skýr- ingin er hins vegar að um sé að ræða andstæðu „einnota", þ.e. að nota megi e-ð oftar en einu sinni. Auglýsandinn var ekki viðlátinn þegar Sandkornsritari hringdi í uppgefið númer en þær upplýsingar fengust að einn hefði sýnt áhuga á starfinu - til þessa. Ummæli Franska martröðin „Ég finn það að fólki er talsvert bmgðið. Það fer að sjá fram á það að hugsanlega getum við vaknað upp við frönsku martröðina, þ.e.a.s. hægri sveiflu, i þessum kosningum. Og það viljum við alls ekki, mjög margir borgarbúar, þannig að ég held að þetta muni gefa okkar stuðn- ingsmönnum ansi mikið adrenalín síðasta sprettinn." Stefán Jón Hafstein um niöurstöóur skoðanakannana á Útvarpi Sögu Netið og nálægð tímans „Netið hefur þann stóra kost að geta brugðið sér í alira fjölmiðla líki. Dagblað getur aldrei orðið útvarp eða sjónvarp, útvarp ekki dagblað eða sjónvarp, en Netið getur verið í senn dagblað, útvarp og sjónvarp. Gildi Netsins sem fréttamiðils liggur vitaskuld í nálægðinni í tíma við at- burðina sem gerast. Útvarp og sjón- varp hafa að sönnu sömu nálægð þegar stórir atburðir gerast en að öllu jöfnu em fréttatímar í þeim miðlum á fyrir fram ákveðnum tíma þegar Netið er sívakandi og unnt að setja inn nýjar fréttir öllum stund- um, stórar sem smáar. Dagblöðin líða fyrir það að flytja gamlar fréttir í vaxandi mæli, fréttir sem fólk hef- ur séð eða heyrt annars staðar. Hlut- verk dagblaðanna hlýtur því smám saman að aukast á sviði fréttaskýr- inga.“ Gunnar Salvarsson á heimasíöu Aco-Tæknivals Óvenjulegar ógöngur [R-listinnj gerir heilbrigðisráð- herra, Jóni Kristjánssyni, þann óleik að gera hann ómerkan gagnvart sam- starfsmönnum sínum í ríkisstjóm. Ég veit það, sem fyrrverandi ráð- herra, að menn úr þeim hópi setjast ekki niður með pennann á lofti og skuldbinda ríkið með viljayfirlýs- ingu eða samningi nema hafa að minnsta kosti rætt það í ríkisstjóm og fengið vitneskju þar um, að gjöm- ingurinn mæti ekki andstöðu. Hvað sem líður einlægum vilja Jóns lét hann Ingibjörgu Sólrúnu og Helga Hjörvar leiða sig í óvenjulegar ógöngur með fyrirheiti um skuld- bindingar af hálfu ríkissjóðs til fjár- festinga í hjúkrunarheimilum fyrir aldraða [...] Bjöm Bjarnason á heimasíöu sinni Samkeppni í trúmálum „Vissulega má rökstyðja að það sé andstætt trúfrelsi að reka ríkiskirkju en það sem okkur býðst í stað henn- ar er miklum mun verra. Það sem við fengjum í staðinn væri sam- keppni í trúmálum; ekki kyrrlátar virðulegar kirkjur heldur kirkjustarf sem væri í stíl norska heimatrúboðs- ins eða sjónvarpstrúboða Bandaríkj- anna og í kaupbæti óskemmtileg fjár- plógsstarfsemi allra safnaða. Ég er vissulega að lýsa hér þeim veruleika sem íslenskir sértrúarsöfnuðir búa við og það er einmitt sá veruleiki' sem þeir vOja gera almennan i land- inu. Það segir okkur svolitið um sér- trúarsöfnuði í landinu að þrátt fyrir að þeim bætist stöðugt fólk þá fjölgar ekkert í þeim. Ástæðan er sú að afar fáir, utan prédikaramir, staldra við í þessum undarlega heimi ofstækis og alræðishyggju." Bjarni Haröarson í Sunnlenska frétta- blaöinu + Ingibjörg Sólrún eða Björn Á opnum fundi í vetur upplýsti Gísli Marteinn Baldursson, sem þá var notaleg sjónvarpsstjarna, að níu af hverjum tíu kosningum í Bandaríkjun- um ynnust af þeim sem eyddu í þær meiri peningum. íslendingar em í hjarta sinu lýð- ræðissinnar. Þeir hafa alltaf tahð að niðurstöður kosninga ættu að ráðast af málefnum en ekki fjármagni og ítökum í stórfyrirtækjum. Upplýs- ingar Gísla Marteins, sem nú er orð- inn frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins, vöktu því hroll með fólki þó fáir hafi líklega átt von á því að amer- íski stíllinn ryddi sér til rúms með- al íslenskra stjómmálaflokka. En lengi skal manninn reyna. Hryggileg þróun í Bandaríkjunum hafa stjómmál illu heilli þróast með þeim hætti að málefni og staðreyndir skipta ekki lengur mestu máli. Sannleikurinn er teygður og togaður, svo fremi það þjóni málstaðnum. Annað ein- kenni á bandarískri pólitík er að kosningabaráttan hefur að vem- legu leyti færst yfir í auglýsinga- tíma sjónvarpsins. Heilu auglýs- ingatímamir em keyptir upp og Nóaflóði af neikvæðri síbylju er sturtað yfir kjósendur. Þetta er hryggileg þróun, sem ís- lendingar eiga að forðast. Hún felur í sér að kosningar vinnast ekki lengur eða tapast á grandvelli mál- efna. Þær ráðast ekki af þvi hvort stefna framboðanna er góð eða slæm fyrir land og þjóð. Það era peningamir sem ráða niðurstöðu. Hér á landi höfum við alltaf litið svo á að það sé ein af burðarstoðum lýðræðisins að menn hafi þokka- lega jafna möguleika á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þessi burðarstoð brotnar ef aðgang- ur að fjármunum og stórfyrirtækj- um fær að ráða hvort rödd flokka og frambjóðenda nær að hljóma. Þróun af þessu tagi er skramskæl- ing á lýðræðinu. Hún flytur völd til fjármagnsaflanna á kostnað venju- legs fólks, kjósenda eins og okkur. Fjáraustur Sjálfstæðisflokks í þessu felst veruleg hætta fyrir lýðræðið. Hópar peningamanna og stórfyrirtækja, ekki síst í verktaka- iðnaði, geta með þessum hætti fjár- fest í stjómmálaflokkum og keypt sér aðgang að ákvörðunum. Þetta er andstætt hugsun og vilja ís- lenskra kjósenda. íslendingar hafa alltaf viljað að málefni, en ekki að- gangur að peningum, ráði úrslitum kosninganna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ssunt kosið að innleiða bandaríska mód- elið í íslensk stjómmál. Botnlaus fjáraustur og neikvæð kosningabar- átta einkenna framkomu hans í höf- uðborginni. Venjulegt fólk stendur agndofa andspænis ótrúlegu auglýs- ingamagni sjálfstæðismanna. Það er sama hvort opnuð er sjónvarps- stöð eða dagblað. Alls staðar er Sjálfstæðisflokkurinn að auglýsa fýrir fáheyrðar upphæðir. Ég full- yrði að Sjálfstæðisflokkurinn eyðir mörgum sinnum meira í kosninga- baráttuna en Reykjavíkurlistinn. Hvaðan kemur allt þetta fjár- magn? Vildarvinimir í forstjóra- stólunum skammta ekki naumt þegar mikið liggur við. ítök Sjálf- stæðisflokksins hjá stórfyrirtækj- unum era öflum kunn. Talað gegn Reykjavík Neikvæð kosningabarátta reyk- viskra sjálfstæðismanna hefur óneitanlega vakið eftirtekt. Reykja- vík er orðin að fallegri stórborg, með auðuga menningu, margbrotið atvinnulíf, og iöandi veitinga- og skemmtistaði fyrir fólk á öllum aldri. Útlendingar standa agndofa gagnvart hinum alþjóðlega blæ borgarinnar. Sjálfstæðismenn sjá hins vegar bara svart þegar Reykjavík er ann- ars vegar. Þeir finna höfuðborginni allt til foráttu. Bjöm Bjamason níð- ir skóinn af miðbænum og talar eins og þar sé ekkert að finna nema búllur og betlandi róna. Hann og fé- lagar hans á D-listanum tala eins og í Reykjavík ríki uppnám í leik- skólamálum, lóðaskortur, neyðar- ástand í málefnum aldraðra, og fjármálin séu í rúst. Ekkert er íjær sanni. Þurfa Reykvíkingar á svona fólki að halda í borgarstjóm? Við erum að eðlisfari bjartsýnt fólk. Okkur hentar ekki borgarstjóm sem aldrei sér til sólar fyrir svartsýni. Áræði og bjartsýni ísland þarf á alþjóðlegri stórborg að halda, sem getur keppt við stór- borgir heimsins mn ferðamenn og fyrirtæki. Árangur Reykjavikur á því sviði gagnast öllu landinu. Upp- bygging Reykjavíkur er þess vegna partur af jákvæðri byggðastefiiu. Til að byggja upp höfuðborgina þarf áræði, bjsirtsýni og fram- kvæmdagleði. Mér blandast ekki hugur um hvort þeirra Bjöms eða Ingibjargar Sólrúnar hefur þessa kosti í ríkari mæli. Frábært dæmi um framsýni Ingi- bjargar Sólrúnar er uppbyggingin á Nesjavöllum, ný orkuver, kaup á veitum í nágrenni Reykjavíkur, og hagsýni sem speglast í lægra orku- verði. Dæmin eru ótal mörg. Bjöm Bjamason hefur sér ýmis- legt til ágætis. Óbrotgjarnasti minnisvarðinn eftir ráðherratíð hans er þó Þjóðminjasafnið, sem enginn hefur séð áram saman, grip- ir þess liggja vandlega pakkaðir niður í kassa, og þetta gamla þjóð- arstolt íslendinga er nú öllum lok- að. Áætlanir um kostnað og opnun fyrir löngu roknar út í veður og vind. Vilja Reykvíkingar leiða slík vinnubrögð til öndvegis við stjóm borgarinnar? Festa í fjármálum Reykvíkingar þurfti trausta fjár- málastjóm eftir eyðsluskeið Sjálf- stæðisflokksins. Ingibjörg Sólrún tryggði hana. Hún kom festu á fjár- mál Reykjavíkur. Undir stjóm hennar dúxaði Reykjavík þegar fé- lagsmálaráðuneytið gaf sveitarfé- lögunum einkunnir fyrir fjármála- stjóm. Reykjavík fékk 8. Af kurteis- isástæðum nefni ég ekki einkunnir ýmissa sveitarfélaga sem Sjálfstæð- isflokkurinn stjómar. Ingibjörg Sólrún stöðvaði skuldasöfnun borgarinnar. Hún kom böndum á útgjaldaþensluna sem var arfleifð sjálfstæðismanna. Borgarsjóður er í dag rekinn með drjúgum rekstrarafgangi. í stíl við amerísku leiðina hans Gísla Mart- eins hafa sjálfstæðismenn þó eytt milljónum í auglýsingar um að fjármál Reykjavikur séu í ólestri. En eftirfarandi tölur segja allt sem segja þarf: Þegar Ingibjörg Sólrún varð borgarstjóri vora heildarskuldir Reykjavíkur 123% af skatttekjum borgarinnar. Sex árum síðar, árið 2000, höfðu skuldimar lækkað í 67%. Þarf meira til að skilja hin gagngera umskipti sem orðið hafa fyrir tilstilli Ingibjargar Sóhránar? Gleymdu ekki Þjóðminjasafni Frambjóðendur beggja lista era öflugir. Stefnur beggja liggja fyrir. Kosningar til borgarstjómar era hins vegar þess eðlis að við erum ekki síst að kjósa á milli tveggja borgarstjóraefna. Sumir velta því fyrir sér að kjósa Bjöm Bjamason af því Ingibjörg Sólrún er þegar búin að vera borgarstjóri í átta ár. En viö vitum hvers konar borgar- stjóra við höfum í henni. Hún hefur reynst frábær. Hugsaðu þig þvi vel um áður en þú kýst annan en Ingi- björgu. Gleymdu ekki Þjóðminja- safhinu. Bjöm Bjamason lét pakka því niður í kEissa fyrir nokkrum árum. Þar liggur það enn. „Til að byggja upp höfuðborgina þarf árœðni, bjartsýni og framkvæmdagleði. Mér blandast ekki hugur um hvort þeirra Bjöms eða Ingibjargar Sólrúnar hefur þessa kosti í ríkari mœli.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.