Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 18
26 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 Skoðun Svanfríður Jónasdóttir þingmaður Kjallari Það reyndist erfiðara að manna framboöslista fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar nú í vor en oftast áður. Mikilvæg störf sveitarst j órnarmanna Bætt lýðræði í borginni Það er snúin staða fyrir sveitarstjómir víða um landið að vinna úr þeirri stað- reynd að samhliða vaxandi kröfum, bœði frá ríkisvaldinu og íbúunum, minnka tekjur og umsvif. margs konar aðferðir hafa verið þróaðar til að koma til móts við þessa kröfu. Reykjavíkurlistinn hefur í sinni valdatíð í borginni eflt svokallað hverfalýðræöi, með tilkomu tveggja hverfamiðstööva, Vestnrgarðs í Vesturbæ og Miðgarðs 1 Grafarvogi. í þessum hverfum hafa íbúar bein áhrif á skipulag og ákvarðanir borg- arinnar og þjónustan er fyrst og fremst byggð upp með þarfir neyt- enda hennar í huga. En Reykjavík- urlistinn hyggst halda áfram á þess- ari braut og nú hefur verið ákveðið að skipta borginni upp í fjóra borg- arhluta og átta hverfi með þessa hugmyndafræði í huga. Við það er miðað að hver borgarhluti myndi heildstæðan þjónustukjama og að hvert hverfi innan borgarhlutanna myndi eðlilegan ramma um þarfir og daglegt líf íbúanna. í hverjum borgarhluta verður svo starfandi hverfisráð sem verður samstarfs- vettvangur borgarfulltrúa og hverf- isbúa. Vakandi fyrir nýjum leiðum Það er nauðsynlegt að stjómvöld séu jafnan vákandi fyrir nýjum leið- um í stjómsýslunni til að gera hana lýðræðislegri og þannig úr garði gerða að hún starfi í þágu borgar- anna. Ella er hætta á að stjómsýsl- an staðni og fari að vinna gegn því sem henni er ætlað að þjóna: lýð- ræðinu og þörfum fólksins. í tíð Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur sem borgarstjóra hefur Reykjavíkurborg sýnt kjark og áræði i þessa átt og ásýnd borgar- innar hefur verið breytt stórlega til hins betra. Ég styð Ingibjörgu Sólrúnu áfram til góðra verka og hvet alla borgar- búa til að gera hið sama. vinna beint við sjávarútveg. Störf tengd landbúnaði og sjávarútvegi, sem og ýmiss konar opinber þjónusta, hefur flust í stærra þéttbýli. Og það hefur fækkað á flestum stöðum utan höfúðborgarsvæðisins, ekki síst hin- um minni sem eiga allt sitt undir frumframleiðslu í landbúnaði og sjáv- arútvegi. Á sama tima hafa verkefni sveitarfélaganna aukist og kröfur sem gerðar em til þeirra að sama skapi. Það er snúin staða fyrir sveitarstjóm- ir viða um landið að vinna úr þeirri staðreynd að samhliða vaxandi kröf- um, bæði frá ríkisvaldinu og íbúun- um, minnka tekjur og umsvif. Störfin víða vanmetin Störf sveitarstjómarmanna eru víða vanmetin og erfið, einkum í millistóm sveitarfélögunum, þar sem nálægðin er mikil og kröfur uppi um sambærilega þjónustu og fæst í hin- um stærri sveitarfélögum. Umbunin er oft lítil því víðast er lítið greitt fýr- ir vinnu sem sífellt verður þó flóknari og gerir meiri kröfur. Lítið er um við- urkenningarorð frá kjósendum ef þró- unin hefur orðið sú að íbúum hefur fækkað og samdráttur orðið í atvinnu, jafnvel þó um sé að ræða atriði sem sveitarstjóm gat ekki haft nokkur áhrif á. Og það er oft lítið um hvatn- ingu ef skuldir hafa aukist eða ekki hefur orðið af vinsælum framkvæmd- um á kjörtimabilinu. Það getur sem sagt verið vandlifað fyrir ýmsa þá sem taka að sér að stýra málum hinna minni sveitarfélaga þar sem metnað- ur hefur verið til þess að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu og atvinnu. Eftir- spumin eftir hlutverki sveitarstjóm- armannsins er i samræmi við það. Hvað er til ráða? Það þarf að endurmeta tekju- skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þró- unin bendir eindregið í þá átt að mjög halli á sveitarfélögin í þeim samskipt- um. Það þarf líka að halda áfram að sameina sveitarfélög þannig að til verði stærri einingar sem ráða betur við þau verkefhi sem þegar eru á verksviði þeirra og þau verkefni sem þangað munu færast. Flestir eru sammála um að öll nær- þjónusta við íbúana, máleftii fatlaðra, hjúkrun aldraðra og heilsugæsla eigi að vera á verksviði sveitarfélaganna. Ég tel líka eðlilegt að framhaldsskól- amir séu á verksviði sveitarstjóm- anna og þar með verði viðurkennt að aðgangur að menntun sé einn af hom- steinum velferðarkerfisins. Fjölmennari sveitarfélög, með fjöl- breyttari verkefni, hljóta að vera framtíðin hér eins og annars staðar á Norðurlöndunum. Fjölmennari sveit- arfélög geta teflt fleira fólki fram til að takast á við verkefnin. Þau hafa líka efni á því að greiða sæmilega fyrir þá vinnu sem það krefst að vera i sveit- arstjóm. Þannig er lýðræðinu betur borgið. Bryndís Hlööversdóttir þingmaöur I kosningabaráttunni um borgina hefur veriö tæpt á ýmsu en eitt er þaö sem ekki hefur farið hátt, en það eru þær miklu umbætur sem unn- ar hafa verið á stjórn- kerfi borgarinnar í tíð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Ný hugsun hefur verið tekin upp í stjórnun borgarinnar þar sem áhersla er lögð á lýðræðislegri stjómarhætti, að færa þjónustuna nær borgarbúum og innleiða þjón- ustuhugsun í borgarkerfið. Verka- skipting stjómmálamanna og stjómsýslu hefur verið skýrð til muna og dreifstýring tekin upp í stað miðstýringar. Hlutur kynja hefur verið jafnaður i stjómunar- stööum þar sem helmingur yfir- stjómenda er nú konur. í tíð sjálf- stæðismanna í borginni voru aðeins 13% stjómenda borgarinnar konur; karlar voru tæp 87%. Borgin hefur með þessum breytingum fengið á sig aút aðra ásýnd sem byggist á jafnrétti, gegnsæi og lýðræðislegum stjómarháttum. Nær íbúum Eitt af því sem nútíma stjómar- hættir kalla á er að færa valdið og ákvarðanatökuna nær íbúunum og Þau eru fjölmennari, sveitarfélögin þar sem enginn listi er í kjöri, og býsna mörg þar sem einungis kom fram einn listi og er því sjálfkjöriö. Upplýsingar mínar herma að sums staðar hafi menn reynt að koma sam- an listum en ekki tekist. Annars stað- ar mat fólk stöðuna þannig að vegna þeirrar vamarbaráttu sem byggðin ætti í væri of mikil áhætta tekin með þvi að íbúamir skiptust upp í átök um lista. Vaxandi kröfur Það hafa orðið miklar breytingar í aðstöðu og möguleikum byggðanna um allt landið á siðasta hálfum öðram áratugnum. Mikill samdráttur hefur átt sér stað i landbúnaði og tækni- breytingar hafa fækkað þeim sem Skerum upp, ekki niður Ásgeir Hannes Eiríksson verslunarmaður Kjallari Gamall sæhundur sigldi um höfin sjö á fraktskip- um í áratugi og sagðist ekki hafa komið í svo las- burða höfn að þar væri ekki boðið upp á bæði danska skinku og kaldan bjór. Útflutningur Dana nær inn í hvert krummaskuð enda vel að honum stað- ið með sendiráð og ræðismenn heims- horna á milli til að styðja við bakið á sölumönnum. í dag eru danskir hins vegar að slá af nokkur sendiráð i fjar- lægum homum til að spara peninga og selja húseignimar til að fá peninga. Með þvi móti tefla þeir í tvísýnu for- skoti sínu í þeim heimshlutum. ís- lendingar skulu forðast að feta i fót- spor Dana í spamaði, í þetta sinn að minnsta kosti. Utanrfkisþjónusta íslenska rikisins byggist á sendiráðum í helstu sam- skiptaborgum þjóðarinnar og neti kjörræðismanna í haldminni plássum. Ræðismenn þiggja ekki laun heldur njóta vegsemdanna sem nafnbótinni fylgja og er það afbragðsgott kerfi fyr- ir ríkissjóð. Hægt er samt að stórauka hlut sendiráða í utanríkisþjónustunni án frekari kostnaðar fyrir ríkissjóð og efla útflutning þjóðarinnar að sama skapi. Bjóða skal íslenskum athafnamönn- um titil sendiherra og samning um að reka sendiráð fyrir eigin reikning á betri verslunarstöðum heimsins. Nýju sendiráðin einbeiti sér að íslenskum útflutningi og þiggi sölulaun frá selj- endum til að mæta kostnaði. Áfram er því hægt að halda kostnaði utanríkis- þjónustunnar í skefjum enda kemur spamaður þjóðarbúinu vel um þessar mundir. Og ekki nóg með það: Rekstur sendiráðanna er ekki bundinn við ís- lenska ríkisborgara og vel má semja við erlenda kaupmenn á feitum versl- unarstöðum um sendiráðin og titilinn. Jafnframt má fjölga kjörræðismönn- um verulega og þétta með þeim bilin á milli sendiráðanna. Nafnbætur af þessum toga opna samkvæmisljónum eftirsóttan selskap í betri heimsborg- um svo varla mun skorta umsækjend- ur. Á þessum nótum er hægt að ríða þétt net sjálfbærra sölumanna, eins og þeir kalla það, um aila heimsbyggðina án frekari ríkisútgjalda. Lærum af Rússum Skilmálar af þessum toga em engin nýlunda í heiminum og hafa tíðkast víða um lönd í margar aldir. Stór- merkileg viðarrista er til í Rússlandi frá sextándu öld af skrúðklæddum Moskóvítum með fjölbreytt höfuðfot á leið með trúnaðarbréf sín til Maximil- ians R Austurríkiskeisara. Á eftir diplómötunum fylgir hópur kaup- manna með loðskinn í sekkjum til að greiða kostnaðinn af rekstri sendi- ráðsins, enda átti rússneska utanríkis- þjónustan ekkert reiðufé eins og fleiri. En nýju sendisveitimar verða líka gömlu utanrikisþjónustunni að liði á nýjum timum. Ný viðhorf blasa við landsmönnum með þenslu Evrópusamfélagsins í all- ar áttir og íslendingar verða að fylgj- ast vel með framvindu mála á fasta- „Áfram er því hœgt að halda kostnaði utanríkisþjón- ustunnar í skefjum enda kemur spamaður þjóðarbú- inu vel um þessar mundir. “ - Á íslenskri sjávarút- vegssýningu áríð 2000. landinu. Stöðugt fjölgar NATO-lönd- um í álfunni sem íslendingar eiga saman við að sælda. íslensk fyrirtæki leita samvinnu og markaða um allar trissur og þurfa stundum opinberar nafnbætur tO að opna dyr sem annars standa þeim læstar. Nauðsynlegt er því að hafa einn diplómat hið minnsta í hverju sendiráði í Evrópu og víðar til að leggja við hlustir og stunda sam- kvæmislífið. Utanrikisþjónustan getur ýmist greitt sjálf kostnað af starfi diplómatans eða fellt kostnaðinn inn i samninginn um sendiráðið. Rúss- neska vöruskiptaleiðin góða er líka í fullu gildi. Danir iiggi í því Islendingar hafa stundum apað ýmsa ósiði eftir Dönum og átt mis- jöfhu láni að fagna. Látum Dani eina um að skera niður að svo komnu máli og skerum sjálf upp á erlendum mark- aði með nýrri uppfærslu á gamalli hugmynd. Markmiðið er að íslenskur útflutningur sé boðinn í hverju krummaskuði þar sem danska ölið freyðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.