Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Blaðsíða 9
9 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 ÐV Fréttir Nafn: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Aldur: 47 ára Heimili: Reykjavík Staöa: Borgarstjóri Efni: Borgarstjórnarkosningar Hvað kostar kosningabarátta Hvað kostar kosningabarátta ykkar og hver borgar hana? Áætlun okkar hljóðaði upp á 25 miiljónir. Mér finnst trúlegt að niður- staðan verði nær 30 milljónum, því ég veit hvemig'hlutimir gerast á síðustu dögunum í kosningabaráttu. Drýgsta tekjulindin er happdrætti sem við frambjóðendur og flokkamir seljum. Flokkamir hafa síðan lagt til eina miiljón hver; við frambjóðendur höf- um sjálfir lagt fram allnokkra fjár- muni; og svo sækjum við til einstak- linga og fyrirtækja og miðum við að þau framlög fari að jaöiaði ekki yfir fimm hundmð þúsund. Yfirleitt em þetta mun lægri upphæðir. Fólksfjölgun hefur veriö margfalt meiri í nágrannasveitarfélögunum á þessu kjörtimabili. Er það ásætt- anlegt? Hlutfallslega hefúr hún verið það. Síðast liðin fimmtíu ár hafa jaflian 37- 39% landsmanna búið í Reykjavík og þannig er það einnig nú. Það sem mér finnst skipta máli er hvaða land er heppilegast að nýta á hveijum tíma. Kópavogur hefúr t.d. búið að landi sem liggur mjög miðlægt á svæðinu. Garða- bær á síðan ábyggilega eftir að vaxa talsvert hraðar næstu ár en Kópavogur því þeir eiga land sem er miðlægt miili Kópavogs og Garðabæjar. Það er eðli- legt að byggja upp í þessi göt í byggð- inni og að þannig sé mismikill gangur í þessu eftir því hvemig landið liggur. Hver er að þínu mati mesti vandi sem Reykjavík stendur frammi fyrir? Ég horfi ekki á verkefni sem vanda- mál. Ég held að stærsta verkefnið sem Reykjavik stendur frammi fyrir - og skiptir verulegu máli að takist vel til á komandi árum - sé að Reykjavík geti keppt við aðrar borgfr í nágrannalönd- unum. Fólkið okkar hefúr meiri tæki- færi en áður til að setjast að hvar sem er; valið ræðst ekki síst af þeim lífs- gæðum sem bjóðast. Við verðum að bjóða þau eins og þau gerast best. Hver ber að þínu mati mesta ábyrgð á þeirri miklu þorf sem er fyrir ný hjúkrunarheimili fyrir aldraða í Reykjavík: ríkisstjómin, heilbrigðisráðherra eða borgar- sfjóm? Ólafur Teitur Guönason blaöamaöur Síðustu tvö kjörtímabil hafa þrjú ný hjúkrunarheimili komið til sögunnar í Reykjavík: Skógarbær í Seljahverfi sem Reykjavíkurborg reisti í sam- vinnu við Rauða Krossinn; Sóltúns- heimilið sem ríkið ákvað að fara með í einkaframkvæmd; og Víðines, sem hef- ur verið breytt í hjúkrunarheimili í samstarfi borgar og ríkis.Auðvitað hefði maður gjaman viljað sjá örari uppbyggingu, en borgin geftn ekki stjómað ferðinni heldur aðeins þrýst á það. Það er alltaf ríkið sem ákveður hvort fjárframlög fást til að reka heim- ilin. Það er stóra málið. Ég vil ekki vísa ábyrgðinni alfarið frá borginni en við gerum ekkert nema ríkið sé tilbúið til þess, eins og umræðan síðustu daga hefúr sýnt okkur í hnotskum. Þið hafið sagt að viljayfirlýsing borgarinnar og heilbrigðisráðherra um fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða sé í samræmi við gildandi heilbrigðisáætlun. Felst þá ekki í henni htil tíðindi? Áætlunin, sem var samþykkt ein- róma á Alþingi eftir þvi sem ég best veit, felur í sér stefiiumótun af hálfú ríkisins um að biðtími eftir rýmum verði ekki lengri en 3 mánuðir. Tíðind- in í yfirlýsingunni em fyrst og fremst þau að menn hafa sett sér sameigin- lega verk- og fjárhagsáætlun um hvemig þetta eigi að gerast og hvar. Það er verið að breyta stefnumótun í verkáætlun. Þetta er viljayfirlýsing frá vald- höfum síðustu átta ára, bæði hvað varðar borg og ríki. Hvers vegna kemur hún ekki fyrr en nú, rúmri viku fyrir kosningar? Fyrir tveimur mánuðum kynnti heilbrigðisráðuneytið úttekt á þessum málum. Við höfum verið í viðræðum við ráðuneytið, það sagðist ætla að bíða eftir niðurstöðu úttektarinnar. í kjölfar hennar fór sameiginlegtu' vinnuhópur yfir það hvemig viö myndum vinna á vandanum. Yfirlýs- ingin er niðurstaða þeirrar vinnu, þannig að hún átti sér eðlilegan að- draganda. Heilbrigðisráðherra segir að yfir- lýsingin hafi verið oftúlkuð í auglýs- ingum R-listans. Ertu sammála því? Nei. Það segir hvergi í okkar auglýs- ingu að þetta sé samningur; það segir að þetta sé samkomulag. Ef eitthvað er oftúlkað í auglýsingunni þá er það að þetta sé samkomulag við ríkisvaldið. Þetta er greinilega ekki samkomulag við ríkisvaldið, ef marka má orð ráð- herra Sjálfstæðisflokksins, heldur bara við heilbrigðisráðherra. Og nú er spumingin: er rikisvaldið allt tilbúið til að gera hana að veruleika eða ekki? Það stendur í greinargerð með að- alskipulagi að þar verði starfsemi sem fellur undir skilgreiningu fyrir iðnaðarsvæði. Þetta er þvert á fúll- yrðingar í auglýsingum R-listans. Hvemig stendur á þvl? Til að taka af allan vafa í þessu efiii er fyrst rétt að undirstrika að Reykja- víkurlistinn hefur engin áform um að skipuleggja iðnaðarsvæði í Geldinga- nesi. Á landnotkunarkortinu, sem fylg- ir aöalskipulaginu, er til sérstakur flokkur sem heitir iðnaðarsvæði. Það er ekki á Geldinganesi heldur er þar annars vegar hafiiar- og athafnasvæði og hins vegar blönduð byggð. í textan- um kemur fram að á athafnasvæði geti verið iðnaðarstarfsemi. Það em kannski leifar frá þeim tima þegar sýnt var iðnaðarsvæði á Geldinganesi. Það kann að vera ósamræmi þama á milli en þá á einfaldlega að fella þetta út úr greinargerðinni, vegna þess að landnotkunarkortið er alveg skýrt: vestursvæðið er athafnasvæði. Austur- svæðið er blönduð byggð íbúða og at- hafhastarfsemi. En það kemur ekki til álita að á Geldinganesi verði óþrifaleg- ur eða mengandi iðnaður eins og Sjálf- stæðismenn hafa gefið í skyn. En á hafnar- og athafnasvæöi er samkvæmt skilgreiningu aðalskipu- lags ekki gert ráð fyrir neinum íbúðum, ekki satt? Þetta er rétt. Lína.Net, dótturfyrirtæki Orku- veitu Reykjavíkur, skuldaði um síð- ustu áramót 1,6 milljarða króna. Er Reykjavíkurborg með einhveijum hætti ábyrg fyrir þessum skuldum? Um Línu.Net gilda venjuleg hlutafé- lagalög þannig að hluthafar em ábyrg- ir í samræmi við hlutafé sem þeir hafa lagt inn. Orkuveitan er í venjulegri ábyrgð eins og hver annar hluthafi. Að öðra leyti er Reykjavíkurborg ekki í ábyrgð. Kenneth Peterson og aðrir talsmenn Columbia Ventures neita því að þeir hafi haft frumkvæði að óformlegum viðræðumum kaup á Linu.Neti, eins og Alfreð Þorsteinsson heldur fram. Hvað sýnist þér um þetta ósamræmi? Mér finnst þetta algjört aukaatriði. Það hefur aldrei verið leyndarmál að leitað hefúr verið að nýjum hluthöfúm. Fyrirtækið þarf að fá inn nýtt hlutafé og það þarf að breyta skammtímalán- um í langtímalán. Að því hefúr verið unnið. Það er aukaatriði hver talaði fyrst við hvem. Aðalatriðið er að ef Kenneth Peterson eða aðrir sýna áhuga og viðunandi verð fæst, þá em menn að leita að nýju hlutafé. Þér finnst ekki að verið sé að búa til ímyndaðan áhuga á þessu fyrir- tæki - gefa til kynna að hann sé meiri en hann er í raun? Nei, það finnst mér ekki. Stefán Jón Hafstein hefúr sagt um hugsanlegan sigur Sjálfstæðis- flokksins í borginni að hann fæh í sér hægri-sveiflu sem jafna mætti við frönsku hægri matröðina. Ertu sammála þessu? Ég ætla nú ekki að líkja Sjálfstæðis- flokknum við flokk Le Pen í Frakk- landi. Það sem ég hygg að Stefán Jón hafi átt við er það, að ákveðið andvara- leysi í samfélaginu geti gert það að verkum, að menn vakni upp við vond- an draum daginn eftir kjördag. Það getur auðvitað gerst í Reykjavík að ýmsir, sem hafa ekki alveg haft and- varann á sér, vakni upp við það dag- inn eftir kjördag að Sjálfstæðisflokkur- inn fari með stjóm í borginni. Ef F-listi nær inn manni felur það líklega í sér að þú missir sæti þitt sem aðalmaður í borgarstjórn. Hefði það áhrif á stöðu þina innan R-listans, þ.e. sem borgarstjóraefnis hans? Já, það hefði það. Það er engin til- viljun að ég sit í áttunda sæti og geri það í þriðja sinn. Þetta er okkar bar- áttusæti. Ég er að leita eftir stuðningi og trausti borgarbúa til þess að gegna starfi borgarstjóra. Ef ég næ ekki kjöri inn í borgarstjóm Reykjavíkur hef ég ekki þann stuðning og traust sem ég tel mig þurfa að hafa sem veganesti til þess að gegna þessu starfi. í stöðunni 7-7-1 yrðir þú sem sagt ekki borgarstjóri. Ég yrði ekki borgarstjóri, nei. Það hefiir ekki ríkt ládeyða í kringum Reykja- víkurlist- ann und- anfama daga. Borgarstjóri er spurður um endur- jjármögnun LínuJVets, viljayfirlýsingu um hjúkrunar- heimili, auglýs- ingar um Geld- inganesog fleira. Borgarstjóra- starfið veltur á baráttusætinu Stjórnmálamaðurinn Ingibjörg Sólrún Hvers vegna ertu í pólitík? Ég held að það eigi sér mjög langan aðdraganda. Mér er sagt að allt frá því ég var bam hafi ég verið afskiptasöm um mitt umhverfi og viljað hafa áhrif á það. Að vissu leyti stjómsöm. Ég vii hafa áhrif - ásamt með öðm fólki - á hvemig samfélagið þróast og hvemig framtíðin verður og þar með líka búa í haginn fyrir bömin mín. Ég vil stuðla að því að samfélagið verði betra og jöfnuður meiri. Hver er þinn stjómunarstíll? Ég hugsa að ég stjómi talsvert í gegnum samræður. Ég eyði miklum tíma í samræður við borgarstjórnarflokkinn, þá sem vinna í stjómsýslu borgarinnar og borgarbúa. Ég held að það eigi ríkan þátt í því að við höfum náð svona vel sam- an í Reykjavíkurlistanum. Við verjum miklum tíma í að hlusta á hvert annað. Hver er fyrirmynd þín í stjómmálum? Ég á mér enga sérstaka fyrirmynd í stjómmálum. Fyrstu pólitísku samtökin sem ég geng til liðs við - og raunar þau einu sem ég hef starfað í - voru Kvenna- framboð og Kvennalistinn. Þegar við hófum okkar starf var ekki auðvelt fyrir konur að finna sér fyrirmyndir í stjómmálum. Fyrirmyndir mínar em helst fólk sem ég kynnist og met mikils af samskipfinn mínum við. Svo hugsa ég líka til langömmu minnar, en ég er fædd sama dag og hún og heiti í höfuðið á henni; hún skipti sér mikið af málum í sinni sveit og gaf ekki sinn hlut gagnvart valds- mönnum. Sögur af henni hafa fylgt mér í gegnum tíðina og hún hefúr að vissu leyti verið mér fyrirmynd. Hver er helsti styrkleiki þinn í stjómmálum og hver helsti veikleikinn? Ég held að styrkur og veikleiki séu tvær hliðar á sama peningnum. Stundum birtast eiginleikar manns sem styrkur og stundum sem veikleiki. Það fer eftir að- stæðum og hvemig maður spilar úr þeim. Ég held aö þaö sé styrkur minn í póli- tík að ég hlusta á annað fólk og rök þess. Og ég er tilbúin til að endurmeta af- stöðu mína ef leidd era fram rök sem ég tel sterk. Það tel ég vera styrk. Það get- ur á hinn bóginn líka verið veikleiki því að í pólitík getur það stundum komið sér vel að keyra áfram ákvarðanir og hlusta ekki á röksemdir sem trufla fram- gang þeirra. Hver er höfúðandstæðingur þinn í póhtík? Ég persónugeri ekki höfúðandstæðinginn. Ég hef tekist harkalega á við ýmsa menn, t.d. Davíð Oddsson og núna Bjöm Bjamason en þeir em ekki höfuðand- stæðingar mínir sem persónur. En Sjálfstæðisflokkurinn er sá pólitíski höfuðand- stæðingur sem ég tel vera hlutverk mitt að kljást við. Ég gerði það upp við mig sem unglingur að hugsjónir mínar og stefna og starfshættir Sjálfstæðisflokksins ættu ekki samleið. Það stendur enn. Finnst þér kosningabaráttan hafa verið heiðarleg? Bæði og. Báðir aðilar hafa lagt fram sina stefnu og sínar hugmyndir. Sá hluti baráttunnar hefur verið heiðarlegur. Hins vegar fmnst mér að sjálfstæðismenn hafi líka beitt blekkingum sem em meiri en ég tel leyfilegt, jafiivel þótt menn séu í kosningabaráttu. Ég nefni sérstaklega þrívíddarauglýsingu um skuldir borgar- innar, auglýsinguna um Geldinganes og ummæli á borð við þau að 700 fyrirtæki hafi flutt úr borginni og að 42 þúsund fermetrar verslunarhúsnæðis séu til sölu eða leigu í miðborginni o.s.frv. Þama er verið að blekkja kjósendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.