Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 DV Fréttir R-listinn vinnur aftur á í nýrri 1200 manna skoðanakönnun DV: R-listinn með 51,1% en D-listinn 42,6% - F-listinn vinnur enn á. Ríflega fimmtungur tekur ekki afstöðu R-listinn er með 8,5 prósentustiga forskot á D-listann, mælist með 51,1 prósents fylgi á móti 42,6 prósentum D-listans. R-listinn nær 8 mönnum en D-listinn 7. F-listinn sækir stöðugt á, mælist með 5,3 prósenta fylgi, en er nokkuð frá því að ná inn manni. Önnur framboð eru samtals með um 1 prósents fylgi. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar DV sem gerð var í gærkvöld. Úrtakið i könnuninni var 1200 kjósendur í Reykjavík, jafnt skipt á milli kynja. Spurt var: Hvaða lista mundir þú kjósa ef borgarstjómar- kosningar færu fram núna? Af öllu úrtakinu sögðust 33 pró- sent mundu kjósa D-lista Sjálfstæð- Óákveðnir/svara ekki Kosið utan kjörfundar Einn þúsunda kjósenda sem kjósa utan kjörfundar í sveitarstjórnar- kosningunum 2002 skilar hér at- kvæöi sínu í kjörkassann. Þúsundir hafa greitt atkvæöi Þúsundir kjósenda hafa þegar greitt atkvæði sitt i sveitarstjórnar- kosningunum sem fram fara á morg- un. Kosning utan kjörfundar er hjá sýslumannsembættum um allt land og í Ármúlaskóla i Reykjavík. Þeir sem kjósa utan kjörfundar eru þeir sem ekki geta greitt atkvæði á kjördag í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga kosningarétt í stærstu sveitarfélögunum má bú- ast við að um 11-12 þúsund manns kjósi utan kjörfundar. Þeir sem kjósa utan kjörfundar í öðru sveitarfélagi en þar sem þeir eiga kosningarétt verða að tryggja að atkvæðið berist viðeigandi kjörstjórnum fyrir lok kjörfundar kl. 22 annað kvöld. Opið verður í Ármúlaskóla til klukkan 22 í kvöld og til klukkan 18 á morgun, kjördag. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði, Bæjarhrauni 18, annast utankjörfundaratkvæðagreiöslu i Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaða- hreppi. Þar verður opið til kl. 19 í kvöld og kl. 10-12 á morgun. Hjá Sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18, höfðu um 500 manns kosiö á sama tíma. Þar verður opið til kl. 19 í kvöld og kl. 10-12 á morgun. Hjá Sýslumanninum á Akureyri, Hafnarstræti 107, höfðu um 600 manns kosið utan kjörfundar upp úr hádegi í gær. Þar verður opið til klukkan 21 í kvöld og fram að lokun kjörfundar á morgun. -hlh isflokksins, 4,1 prósent F-lista Frjálslyndra og óháðra, 39,6 prósent R-lista Reykjavíkurlistans, 0,4 pró- sent A-lista Höfuðborgarsamtak- anna, 0,3 prósent Æ-lista Vinstri hægri snú en H-listi Húmanista- flokksins mælist ekki með fylgi. 11,3 prósent aðspurðra voru óá- kveðin og 11,3 prósent svöruðu ekki spurningunni sem þýðir að 22,6 pró- sent tóku ekki afstöðu í könnun- inni. Þetta er töluvert hærra hlut- fall en i könnun DV 15. maí þegar 15,7 prósent voru óákveðin eða svör- uðu ekki og í könnun DV 21. apríl þegar sama hlutfall var 18,3 prósent. Ef einungis er litið til þeirra sem afstöðu tóku fengi D-listinn 42,6 pró- senta fylgi, F-listinn 5,3 prósent, R- listinn 51,1 prósent og aðrir listar eins prósents fylgi. Þetta er mikil breyting frá könnun DV15. maí þeg- ar ekki reyndist marktækur munur milli D-lista og R-lista. Miðað við atkvæðafjölda listanna í könnuninni fengi R-listinn 8 borgar- fulltrúa kjöma en D-listinn 7. F-list- inn á nokkuð í land að ná inn manni. Jafnt meðal karla Þegar afstaða kynjanna er skoðuð vekur athygli að jafnt er með D-lista og R-lista meðal karla, munurinn er ekki marktækur. En R-listinn styrk- ir hins vegar stöðu sína verulega meðal kvenna. Ef afstaða karla er eingöngu skoð- uð fengi D-listinn 45,3 prósenta fylgi, F-listinn 6,2 prósent, R-listinn 47,4 og aðrir listar 1,1 prósents fylgi. Meðal kvenna er þessu öðruvísi farið. 39,7 prósent þeirra sögðust mundu styðja D-listann, 4,2 prósent F-listann, 55,1 prósent R-listann og eitt prósent aðra lista. Karlar eru mun áræðnari í svör- um en konur í þessari könnun. 19,8 prósent karla voru óákveðin eða svöruðu ekki en 25,3 prósent kvenna. Mun færri konur voru óá- kveðnar eða svöruðu ekki í síðustu Kosningar '98 Könnun DVjan '02 Könnun DV mars '02 Könnun DV april '02 Könnun DV 15. maí'02 Könnun DV 23. maí '02 F-listi Aðrir D-listi R-listi Fylgi framboöa í Reykjavík könnun DV eða 14,7 prósent. Þá varð mikil fylgissveifla í átt til D- listans meðal kvenna. Ef borgarfulltrúum er skipt mið- að við atkvæði frá körlum og kon- um yrði staðan 8-7 fyrir R-listann hjá körlum en 9-6 hjá konum. F-listi kæmi ekki að manni. -hlh ## Vestfirðingar íhuga að rifta sölu Orkubúsins: Oll þessi reiði kemur mér mjög á óvart - bæjarstjóri upphefur sig á minn kostnað, segir ráðherra „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að færa störf frá Vestfjörð- um,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Þetta segir hún vegna þeirrar miklu reiði sem gætir vestra út af hugsanlegum flutningi höfuðstöðva Orkubús Vestfjarða til Akureyrar. „Öll þessi reiði vegna málsins kemur mér verulega á óvart." Frambjóðendur sex framboða í ísafjarðarbæ tóku þetta mál á dag- skrá strax og fréttir bárust um sam- einingarhugmyndir á þriðjudags- kvöldið. Flest framboðin hafa brugðist ókvæða við þeim tíðindum að höfuðstöðvar OV verði við sam- einingu fluttar til Akureyrar. Full- trúar meirihlutaflokkanna í ísa- ijarðarbæ, Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks, virðast þó í nokkurri vöm i málinu, en þeir stóðu m.a. að samkomulagi við ríkið i vetur um sölu á hlut sveitarfélaganna í fyrir- tækinu. Halldór Haildórsson bæjar- stjóri var þó eigi að síður ósáttur við þessi áform þegar hann sagði: „Ekkert sem kemur frá þessum ráð- herra byggðamála kemur mér þó lengur á óvart.“ „Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Halldór reynir að upphefja sjálfan sig á minn kostnað," segir Valgerð- ur Sverrisdóttir. „Hann er búinn að vita það allan tímann að þessi fyrir- tæki yrðu sameinuð ef ríkið keypti Orkubúið eins og nú hefur verið gert. Það eina sem er nýtt í þessu er í rauninni það að höfuðstöðvar þess fyrirtækis gætu orðið á Akureyri í stað þess að vera í Reykjavík þar sem RARIK er nú. Það kemur mér verulega á óvart ef landsbyggðar- maður er fyrst og fremst að berjast gegn því.“ Fulltrúar A-lista, með Halldór Jónsson í fararbroddi, sendu frá sér yfirlýsingu í gær. Þar segir að nú reyni á þá fyrirvara sem gerðir hafi verið varðandi sölu Orkubúsins. Hefur framboðið óskað eftir aðgangi að gögnum með það að markmiði að hefla þegar vinnu við að rifta sölu Orkubúsins. Ráðherra segir að varðandi sam- einingu OV við RARIK, sem verði skoðuð til hlítar, þá sé ekki sé ljóst hvort Norðurorka verði með í hugs- anlegri sameiningu. Ástæðan sé m.a. sú að það geti mögulega þýtt Valgerður Halidór Sverrisdóttir. Halldórsson. hækkun orkuverðs á Akureyri. Val- gerður telur að ef samningar um sameiningu orkufyrirtækjanna nást þá ætti að vera hægt að ganga form- lega frá málinu um næstu áramót. „Ég geri mér fulla grein fyrir því hvað þetta fyrirtæki, Orkubú Vest- flarða, er Vestflrðingimi mikilvægt. Ef ég fæ einhverju ráðið þá mun ég beita mér fyrir því að veruleg starf- semi fari fram þar. Mér þykir mið- ur að nú sé verið að þyrla upp mold- viðri út af þessu í tÚefni kosning- anna. Ég tel reyndar meiri líkur á að störfum flölgi á Vestflörðum við hugsanlegan samruna en hitt.“ -HKr. Aðgengi fatlaðra tryggt Aðgengi fatlaðra verður tryggt á öllum kjörstöðum við borgarstjóm- arkosningar á laugardaginn. For- maður yflrkjörstjómar í Reykjavík, Eiríkur Tómasson, segir að fatlaðir ættu því að geta kosið á sínum hverflskjörstað. íslendingur boðinn upp Framhaldsuppboð á víkingaskip- inu íslendingi fer að óbreyttu fram hinn 18. júní nk. Fyrsta uppboð var i Reykjavík á miðvikudag. Ekkert getur komið í veg fyrir að skipið verði selt nauðungarsölu nema að gerðarbeiðandi, Lánasjóður Vestur- Norðurlanda, fari fram á frestun. Gunnar Marel Eggertsson, eigandi íslendings, skuldar 40-45 milljónir vegna íslendings, þar af 12 milljónir vegna siglingarinnar vestur um haf. Salmonella á 8 svínabúum Salmonellusmit greinist enn á 8 svínabúum á Suður- og Suðvestur- landi, að sögn Sigurðar Amar Hans- sonar aðstoðaryfirdýralæknis. Þeg- ar verst lét síðastliðinn vetur vom 11 svinabú smituð af salmonellu. - Mbl. greindi frá. Álfasala SAA Hin árlega álfasala til styrktar SÁÁ hófst í gær með því að Davíð Oddsson forsætisráðherra keypti álf af sölu- manni SÁÁ, Sunnevu Guðmundsdótt- ur. Álfasalan stendur yfir um allt land nú um helgina. Hagnaðurinn verður nýttur til að styrkja meðferðardeild fyrir 14-19 ára unglinga. Hættir formennsku í Baugi Hreinn Loftsson hefur ákveðið að láta af stjómarformennsku í Baugi á aðalfundi félagsins 30. maí. Hyggst hann einbeita sér að rekstri lög- mannsstofu sinnar á Höfðabakka 9 í framtíðinni. - Mbl. greindi frá. Brotist inn í Blómaval Brotist var inn í Blómaval við Sigtún um flmmleytið í morgun. Mað- urinn spennti upp hurð og komst þar með inn í búðina. Við það fór hins vegar þjófavamarkerfi í gang og voru lögreglumenn því fljótir á staðinn og handtóku manninn. Leitaði að ólæstum bílum Lögreglan í Reykjavík handtók mann á Njálsgötu um hálfsexleytið í morgun. íbúar höfðu gert lögreglu viðvart og hafði maðurinn ekkert annað upp úr krafsinu en að fá að gista fangageymslur. Engu var stolið. -HKr./HI/aþ \i •'i+A helgarblað Sólargeisli frá Kína ■ í Helgarblaði DV á morgun er viðtal við unga foreldra sem fóru til Kína með hópi íslend- inga nýlega og sóttu litla stúlku sem þau ættleiddu. Litla stúlkan fannst í pappakassa í almenningsgarði í Kína en er nú orðin íslendingur á Suðumesjum. í blaðinu er einnig rætt við dokt- or Amór Sigfússon um hættuna sem náttúruperlunni Þjórsárverum stafar af virkjunaráformum Lands- virkjunar. Amór telur vinnubrögð Landsvirkjunar forkastanleg. DV talar við Yakusho Kwong-Ros- hi um Zen-íhugun og afhverju hann kemur alltaf til íslands. André Bachmann tónlistarmaður segir frá undarlegri reynslu sinni í Ameríku en hann er nýkominn þaðan úr erf- iðri læknisaðgerð. Ámi Mathiesen sjávarútvegsráðherra rökstyður að- gerðir Islendinga í hvalveiðimálum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.