Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 26
- 26 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 Kristján Kristján Brooks, framlínumaður, gekk í raðir úrvalsdeildarliðs Fram í knatt- spymu í gær. Kristján lék á síðasta tíma- bili með Breiðabliki en þar áður með Keflvíkingum og ÍR. Kristján hafði upp- haflega ætla sér að taka frí frá knatt- til Fram spyrnuiðkun í sumar en snerist hugur þegar Framarar settu sig í samband við hann. Kristján hefur sýnt að hann er skæður framherji þegar hann nær sér á strik. I þannig formi mun hann eflaust nýtast Framliðinu vel í sumar. -JKS róa mann niður. Mitt starf býður upp á það að ég þarf ekki að vera í frontinum og bera ábyrgð á öllu saman. Það gefur manni tækifæri á að velta þessu meira fyrir sér og ég hef þegar lært býsna mikið á þeim tíma sem ég hef verið hér úti. Mitt starf byggist á því að ég hef ábyrgð á einstaklingnum og er í ráðleggingum hvemig hann geti bætt sig og orðið betri leikmaður í okkar leik. Fyrir utan það að vera á æfmgum með þjálfaranum og aðstoða hann. Þetta er þroskandi og mjög gaman að takast á við þetta.“ Einbeiti mér að starfinu - Er þetta stökkpallur í eitthvað enn stærra? „Ég er ekkert að hugsa um þá hluti. Ég gerði við félagið tveggja ára samning í þessu starfi sem þeir kalla aðstoðarþjáifari og samhliða því sé ég um varalið félagsins sem leikur í 3. deUd. Ég hef einbeitt mér að því að standa mig i því starfi sem ég sinni í dag. Það em engin áform um að fara eitthvað ofar.“ - Sérðu það fyrir þér að þú eigi eftir að Uengj- ast í Noregi? „Maður veit aldrei hvað gerist í þessum efn- um. Knattspymuþjálfun er ekki vemdaður vinnustaður þannig að ég læt hveijum degi nægja sína þjáningu. Mér liður ágætlega í Nor- egi og fæ að fara tU íslands með ákveðnu milli- bUi og svo fæ ég heimsóknir." - Finnst þér þú njóta þín betur í knattspym- unni í Noregi en heima á íslandi? „Það er sama hvað varðar þjálfara og leik- menn að aðstöðumunurinn er feikUega mikUl. Ég hef fundið það lengi að það á vel mig að stunda knattspymuþjálfun. Það er mikUl mun- ur fyrir mig að vera hér og getað stundað eitt starf heldur en að þurfa kannski að kenna fúila kennslu á daginn og þjálfa síðan á kvöldin. Of- an á þetta bættist jafnvel síðan að lýsa leikjum uppi á Stöð 2. Þannig að oft var dagurinn ansi langur, farið út klukkan hálfátta og ekki komið heim fyrr en klukkan hálftólf um kvöldið. Að því leytinu tU er það ákveðinn draumur." Hugurinn hjá félagsliðunum - Heldur þú að Norðmenn eigi eftir að draga einhvem lærdóm af leiknum við íslendinga? „Þeir hafa verið að reyna að draga lærdóm af leikjum sem þeir hafa leikið undanfarið. Þeir gerðu þrjú mörk gegn Japönum og þá héldu þeir að vandinn við að skora væri að baki. Ég held að eftir leikinn við íslendinga séu þeir komnir niður á núilpunkt aftur en aftur á móti eiga Norðmenn að vera með sterkari einstaklinga en áður. Það sem vantar hins vegar í þetta er, eins og Atli Eðvaldsson komst að orði í norsku blöð- unum, að ef norska liðið hefði leikið með hjart- anum eins og það íslenska hefði það eflaust skorað 4-5 mörk. Hluti af skýringunni er að það er ekki eins gaman að vera í norska landsliðinu núna og það var á meðan hluti leikmanna var að koma sér fyrir hjá bestu liðum í Evrópu. í dag er hugurinn meira þar og þeir verða að hugsa meira um Manchester United, Leeds og Liverpool. Það em ýmis teikn á lofti um það að þeir séu famir að velja sér verkefni með lands- liöinu og fá félög sín til að senda inn meiðsla- vottorð þegar leikir em. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra. Ég get nefnt það að fýrir stuttu, eða í leiknum á undan Japan, vom 11 af 18 leik- mönnum sem tilkynntu forfóll vegna meiðsla. Félagi minn og gamall landsliðsmaður og knatt- spymusérfræðingur hjá norska sjónvarpinu, Jan Age Fjortoft, sagðist ekki vera viss um að þeir hefðu allir verið meiddir þessir piltar ef þeir hefðu verið að fara að leika gegn Argent- ínu,“ sagði Logi Ólafsson í spjallinu við DV. -JKS Logi Ólafsson, aðstoðarþjálfari hjá norska lið- inu Lilleström, segir að Norðmenn séu mjög daprir með jafnteflið við Islendinga í Bodö í fyrrakvöld. Norðmenn segja niðurstöðuna i raun sorglega og knattspyman sem landslið þeirra leikur sé alls ekki árangursrik og þá sér- staklega gegn þjóðum eins og Islendingum sem draga lið sín mjög til baka á vellinum. Norð- menn töldu sér trú um að þeir væru hrokknir i gang eftir stórsigur á Japönum i síðustu viku en þegar á reyndi hafi það alls ekki gefið rétta mynd af liðinu. Logi Ólafsson gerðist aðstoðarþjálfari Lille- ström fyrir yfirstandandi tímabil og ætti því að hafa nú þegar nokkum samanburð á íslensku og norsku knattspymunni. Jafntefliö óásættanlegt „Það má segja ótrúlegt að Norðmenn skuli ekki fá meira út úr leik sinum. Þeir státa af fimm framlínumönnum sem em mjög góðir og landsliðsþjálfarinn lætur undan pressu að leika 4-4-2 og hætta að leika 4-5-1.1 raun skiptir engu máli hvað þeir kalla þetta; á meðan þeir spila svona fótbolta þá skiptir uppröðunin á vellinum engu máli að mínu mati. Leikmennimir hjá okkur i Lilleström, sem horfðu á leikinn í fyrra- kvöld, segja það hreinan skandal hvernig norska liðið leikur. Þeir nái að jafna gegn ís- lenska liðinu sem í eru sumir leikmenn sem eiga ekki fast sæti með sínum liðum i Noregi. Þeir nái bara ekki upp í þetta, því miður. Við getum í þessu sambandi bent á aö Bjami Þor- steinsson, Ólafur Stígsson, Gylfi Einarsson, Ind- riði Sigurðsson og Jóhann Guðmundsson em menn sem ekki eiga fast sæti í sínum félagslið- um í Noregi. Þeir séu að leika gegn norskum leikmönnum sem margir hverjir era að leika með toppklúbbum í Evrópu. Þegar þetta er haft til hliðsjónar finnst Norðmönnum jafnteflið við íslendinga algjörlega óásættanlegt. Á hinn bóg- inn getum við hrósað okkar mönnum," sagði Logi. - Hvemig er norski boltinn í samanburði við þann íslenska að þínu mati? „Munurinn liggur fyrst og fremst í aðstöð- unni en hér í Noregi er mönnum gert kleift að æfa og spila við mjög góðar aðstæður. Enn frem- ur gera leikmenn í efstu deild í Noregi ekkert annað en að spila fótbolta. Frá því í janúar fram í mars vorum við hjá Lilleström í sex vikur á Spáni og þess á milli vora knattspyrnuhallimar nýttar sem era hér úti um allt. Áðstöðumunur- inn, sem snýr að því að verða betri knattspymu- maður, er allur mun betri í Noregi. Leikmenn þurfa ekki að hugsa um að fara til vinnu klukk- an átta á morgnana og mæta síðan á æfingar kllukan fimm að afloknum vinnudegi. Hjá öllum liðum í efstu deild eru menn hreinir atvinnu- menn í íþróttinni. Hvað annað áhærir er meiri hraði í norska boltanum og menn fá minni tíma með boltann. Það era enn fremur fleiri sterkari einstaklingar sem skipa liðin hér en heima. Við getum auðvitað fundið leiki heima í íslensku deildinni sem jafnaðist á við það sem gerist í norsku deildinni. Ég hef lengi haft þá skoðun að við getum ekki flutt út heilt lið í norsku deild- ina til að standa sig vel. Ég er líka klár á því að margir leikmenn á íslandi myndu standa sig vel í norsku deildinni sem einstaklingar. Það hefur komið í ljós að leikmönnum sem koma frá íslandi finnst æfingaálagið meira í Noregi, en reyndin er að hér í Lilleström erum við að æfa 10-12 sinnum í viku. íslensku leik- mennirnir hafa haft þá tilhneigingu að verða þreyttir og um leið að meiðast eins og reyndar norsku leikmennimir lenda einnig í. Það tekur yfirleitt svona um eitt ár fyrir íslensku leik- mennina sem hingað koma að aðlagast aðstæð- um hér. Indriði Sigurðsson, Lilleström, sem ekki lék mikið á fyrsta ári, lítillega meira í fyrra, er nú orðinn fastamaður og í mikilli fram- för. Gylfi Einarsson var meiddur í fyrra og þeg- ar hann var orðinn klár var annar búinn að taka stöðu hans. Hannes Sigurðsson, Viking, er hins vegar að byrja hér mjög vel og svona mætti telja. Yfirleitt er það nú þannig að þegar maður kemur beint úr íslensku deildinni hingað þá er um eitt ár í aðlögun að ræða.“ Gefur manni ákveöin tækifæri - Hvað með sjálfan þig? Finnst þér þetta vera góður skóli og þá um leið þroskandi fyrir þig sem þjálfari? „Já, ég er klár á því að þetta er góður skóli. Að vera hér gefur mér ákveðin tækifæri til að Loga Ólafssyni líkar dvölin vel í Noregi en hann segir aö norska landsliöiö sé ekki aö leika árangursríka knattspyrnu nú um stundir. Logi Ólafsson, aðstoðarþjálfari Lilleström, ræðir um norska og íslenska knattspyrnu: Þroskandi og gaman að takast á við þetta - Norðmenn segja niðurstöðuna í leiknum við íslendinga í Bodö afar sorglega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.