Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 27 * Roy Keane, fyrirliöi Manchester United og irska landsliösins, er skaphundur mikill. Pjálfari landsliösins fékk nóg af Keane og hann er kominn heim og leikur ekki á HM meö írum. Reuter McCarthy fékk nógaf Landslið írlands varð fyrir mjög miklu áfalli í gær þegar fyrirliði liðs- ins, Roy Keane, var sendur heim til sín frá félögum sinum í landsliðinu. Keane mun því ekki leika með írum á heimsmeistaramótinu í Japan og Kóreu. Engum dylst hve Keane er snjall knattspymumaður þegar hann nær að hemja mikla skapsmuni sína. Hann er fyrirliði Manchester United og að sögn Sir Alex Fergusons, fram- kvæmdasljóra liðsins, besti leikmað- urinn í dag á Bretlandseyjum. Keane lenti í rifrildi við Mick McCarthy, landsliðsþjálfara íra, og lauk samskiptum þeirra með því að McCarthy sendi Keane heim til sin. Áður hafði Keane haft allt á homum Keane sér, sett út á allt og aila og þar á með- al æfíngaaðstöðu irska liðsins. Þessi kóngalæti Keanes munu líklega hafa þau eftirmál í fór með sér að hann hafi nú þegar leikið sinn siðasta landsleik fyrir íra. Roy Keane, sem er sem kunnugt er fyrirliði Manchester United, hefur á ferli sínum skapað sér miklar óvin- sældir fyrir grófan leik og mikið skap. Enn einu sinni hefur skapið hlaupið með þennan snjaila leik- mann í gönur og hann situr heima og horfir á HM í sjónvarpinu. Áfall írska liðsins er mikið og ljóst að möguleikar liðsins á að gera góða hluti á HM hafa minnkað verulega. -SK HM Draumadeild Lífís og DV opnuð í dag verður DraumadeUd Lífís opnuð en hún er í samstarfi við DV. GlæsUeg verðlaun em í boði fyrir þá sem eiga stigahæsta draumalið- ið, ferð á enska boltann, keppnis- treyjur og sjúkrapúðar í bUinn úr öryggisverslun VÍS. Þátttaka er ókeypis. Þátttakendur skrá sig á vefsvæð- inu www.draumadeUdin.is og em reglumar kynntar ítarlega þar en þær em svipaðar þeim sem þekkst hafa í draumaleikjum. Þátttakendur velja sér sitt draumalið úr leik- mannahópi allra 32 þátttökuþjóð- anna, 3 leikmenn mest úr hverju liði, og fá tU þess ákveðna hámarks- upphæð. Þátttakendur geta hafið leik hvenær sem en fá aðeins stig sem leikmenn vinna sér inn eftir að þátttakendur hafa skráð lið sín Þátttakendur geta farið inn á vef- svæðið og breytt liðum sínum, t.d. þegar útsláttarkeppnin hefst alveg fram að undanúrslitum. „Vefsvæðið draumadeUdin.is er einkar vel hannað og notenda vin- samlegt. Kaup og sölur á leikmönn- um ganga greiðlega fyrir sig og öU tölfræði er einkar skemmtUega sett fram,“ segir Guðmundur Þór Frið- riksson hjá Lífís. „Þetta er mjög skemmtUegur leikur og vinningam- ir eru glæsUegir og við vonum að fólk hafi gaman af að taka þátt í þessum leik. Sérstaklega er vert að benda fólki á að hægt er að stofna einkadeUdir þar sem vinnufélagar og kunningjar geta keppt innbyrðis. Við veitum þeim sem mynda 10 manna slíka hópa sérstök verðlaun auk þess sem fólk getur auðvitað bætt við sínum eigin verðlaunum tU að auka enn á spennuna. Nú er að- eins rúm vika þar tU HM hefst og því er um að gera að hafa hraðar hendur og fara að pæla í sinu draumaliði!" DV mun á næstunni flytja fréttir af gangi mála í DraumadeUdinni auk þess sem daglega er hægt að fylgjast með merkustu fréttunum á dvsport.is og í Netboltanum á Strik.is þar sem hægt er að skrá sig og fá sent fréttabréf daglega. Sport Rússland vann Italíu Rússland sigraði Ítalíu, 2-1, í undankeppni HM kvenna í knattspymu. Þjóðirnar leika í sama riðli og ísland og Spánn en þær mætast í Reykjavík 30. maí. Rússar era efstir í riðlinum með 11 stig eftir 6 leiki, Spánn og ítal- ía 6 stig eftir 5 leiki og ísland 5 stig eftir aðeins 4 leiki. Vassell hættur hjá KR Samningi Keith VasseU hjá KR í körfuknattleik hefur verið sagt upp. VasseU hefur leikið stórt hlutverk með KR frá 1998. -JKS Kosningavaka á KR-velli Símadeild karla föstudaginn 24. maí kl. 19.15 KR-ingar! Fjölmennum á völlinn og styöjum okkar liö Domino's pizzur verða til sölu frá kl. 17.45 mitre OPNA NÓATÚNSMÓTIÐ verður haldið laugardaginn 25. maí hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ. Fyrirkomulag 18 holu punktakeppni meðforgjöf. Rástímar frá 8:00 - 10:20 og 13:00 - 15:00. Glæsileg verðlaun fyrir 1 - 6 sæti og nándarverðlaun á 1/10 og 6/15 holu. 1 sæti úttekt. 35.000.- 2 sæti úttekt. 25.000.- 3 sæti úttekt. 20.000.- Mótsgjald 2.500.- 4 sæti úttekt. 10.000.- 5 sæti úttekt. 5.000.- 6 sæti úttekt. 5.000.- Skráning í síma 5667415 w r-i r/ Hvert námskeið tekur tvær vikur frá mánudegi til fimmtudags tvo tíma í senn. Námskeiðin hefjast mánudaginn 10. jíiní og eru á hálfsmánaðar fresti út ágúst. Fyrir hádegi. Kennsla frá kl. 9:30 - 11:30 mán. - fim. Eftir hádegi. Kennsla frá kl. 13:30 : 15:30 mán. - fim. Námskeiðið: Kennsla í akstri og meðferð gokartbíla. Farið er yfir öll öryggisatriði gokartsins og reisbrautarinnar. Kennt verður á virkni bílana og útskýrt hvernig bíllinn virkar í akstri. Kennt verður á 200cc Dino bíla 675 hestöfl. í fyrstu er farið rólega af stað. Nemendur aka í halarófu á eftir brautarstjóra sem fylgist vel með akstri nemenda/ framúrakstur er bannaður í þessum hluta námskeiðsins. Þetta námskerfi eru brautarstjórar Reisbíla búnir að nota frá því að brautin var opnuð 8. júlí 2000 og hefur gengið vel. Skránmg er tmím í Gjokari-sköla Relsbíla Árgáifliiif 1988 -1990 Áð'.lokJiu námUáaWir^ ^ ^fiýC&skfflaöír rieméíidur ^ • lokiö námskeiðs í akstri og meðferð Gokartbíla á Reisbílabrautinni, gjafabréf upp á 50 mín. í Gokart, og boðið verður upp á pizza-veislu og gos á útskriftardegi. Verð aðeins kr. 13.000.- Skráning er hafin í síma 893 1992 Stefán og 893 1993 Jóna. www.gokart.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.