Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 29 Sport Einar Hólmgeirsson leikur með IR. Hann er nú þegar öflug vinstrihandarskytta og er tvímælalaust framtíðarmaður í tslenska landsliðinu. Snorri Steinn Guöjónssn leikur meö Val. Hann hefur nú þegar sannað sig sem einn besti leik- stjórinn í íslenskum handbolta þrátt fyrir ungan aldur. Guðlaugur Þór Hauksson, leikmaður Víkings. Hann átti marga mjög góða leiki í vetur og er mikil hægrihandarskytta. Framtíöarmaöur í landsliðinu. Halldór Sigfússon, leikmaöur KA. Hann sannaöi þaö í nýafstaðinni úr- slitakeppni hversu efnilegur hann er. Arkitektinn í landsliði framtíöar- innar ásamt Snorra Steini. Jónatan Magnússon, leikmaður KA. Einn af mörgum leikmönnum KA sem eiga bjarta framtíö fyrir sér í íslenskum handknattleik ef ekki erlendis. Framtíðin er björt í íslenskum handknattleik verði rétt á málum haldið: „Guttarnir" eru góðir og framtíðin er björt íslenska þjóöin fylgdist af mikilli athygli með árangri íslenska lands- liðsins í handknattleik á Evrópu- mótinu í Sviþjóð. Árangurinn var afar glæsilegur og betri en um langt skeið. Margir leikmanna ís- lenska liðsins áttu frábært mót og sýndu og sönnuðu að þeir eru i fremstu röð í heiminum. Það gleður íslenska íþróttaunn- endur fátt meira en að eiga hand- knattleikslandslið i fremstu röð. Þjóðin stendur á öndinni af hrifh- ingu þegar vel gengur. Allt snýst um handbolta. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að til að eiga landslið og leikmenn í fremstu röð í heiminum þarf að hugsa vel um starf yngri flokka. Uppeldið hjá félögunum er afar mikilvægt. Hjá félögunum er unnið það starf sem öll framtíðin byggist á. Og þetta starf virðast félögin hafa innt vel af hendi síðustu árin. „Guttarnir" eru góðir Þeir sem hafa fylgst með hand- boltanum hér heima á síðasta vetri hafa séð mikinn fjölda af efhilegum leikmönnum. Hver af öðrum koma þeir fram í sviðsljósið og margir famir að bera sin lið uppi þrátt fyr- ir ungan aldur og litla reynslu. Hér má nefna Snorra Stein Guðjónsson og Markús Mána Mikaelsson hjá Val, Amór Atlason, Halldór Sigfús- son, Jónatan Magnússon og Einar Loga Friöjónsson hjá KA, Guðlaug Hauksson hjá Víkingi og Ásgeir Þór Hallgrímsson í Haukum. Upp- talning sem þessi verður aldrei tæmandi og marga fleiri leikmenn mætti nefha tO viðbótar. Bjarka Sigurðsson í Val, Róbert Gunnars- son í Fram, Ragnar Óskarsson sem leikur í Frakklandi og marga fleiri. Eftir stendur að „guttamir“ em góðir og framtíðin til handa ís- lenskum handknattleik er björt sem aldrei fyrr. Stefán Kristjánsson íþróttafréttamaður Þjálfararnir Mér er til efs að fleiri efni- legir hand- knattleiks- menn hafi komið fram á sjónarsviðið á svo til sama tíma en á undanförnum misserum. Hver leikmaðurinn á fætur öðmm hefur skundað fram á sjónarsviðið og vakið undrun og áhuga þeirra sem séð hafa. Mikill er hlutur þjálfara liðanna sem hér eiga hlut að máli. Atli Hilm- arsson hefur til að mynda gert ótrú- lega hluti með KA og undir stjóm Geirs Sveinssonar hjá Val hafa ung- ir leikmenn orðið mun betri. Ekki er amalegt fyrir félögin og leikmenn sem em að byrja að fóta sig á hálu svelli meistaraflokkanna að eiga slíka meistara að. Margreynda lands- liðsmenn og atvinnumenn með lið- um erlendis. Nýliöin vertíð hand- knattleiksmanna var mikill sigur fyrir báða þessa þjálfara. Makedónía Fram undan eru mjög mikilvægir landsleikir gegn liði Makedóníu. Liðið sem betur stendur sig í tveimur leikjum öðlast keppnis- rétt á næsta heimsmeistara- móti sem fram fer í Portúgal. Efstu sjö þjóðirnar á HM öðlast síðan sjálfkrafa keppnisrétt á næstu ólympíuleikum í Aþenu 2004. Skýr markmiö Markmið HSÍ og landsliðsins er að komast í eitt af sjö efstu sætunum í Aþenu. Slíkum árangri fylgja mjög myndarlegir styrkir sem HSÍ munar mikið um. En árangurinn er það sem öllu máli skiptir enda styrkirnir tengdir árangri og hækka í samræmi við góða getu. Það að komast á ÓL í Aþenu er afar mikilvægt. Þá ættu margir af þeim leikmönnum sem hér eru nefhdir að verða í sviðsljósinu, orðn- ir fastamenn í landsliðinu og lykilleikmenn í sínum liðum. Allir þessir ungu leikmenn verða að halda vöku sinni. Margir íþrótta- menn hafa lent i því á sínum ferli að þykja efnilegir 'og síðan verið það alla sína tíð í íþróttunum. Vonandi hafa þessir ungu handknattleiks- menn skilning og þroska til að verða enn betri þegar fram líða stundir. Þá þarf forysta handboltans hér á landi ekki að kvíða framtíðinni. Markús Máni Mikaelsson í Val er orðinn einn af máttarstólpum liðsins. Hann er framtíðarmaður í landsliðinu. Ásgeir Örn Hallgrímsson í Haukum heur vaxið mjög undir stjórn Viggós Sgurösson. Ótrúlega efnilegur leikmaður. Síkin í Ferjukoti: Sáu yfir hundrað fiska við brúna „Veiðin hefur tekið verulegan kipp eftir að hlýna tók aftur og veiði- menn sem voru héma í gærkvöld af Akranesi veiddu fimm fiska á stuttum tíma. Þetta voru fískar frá hálfu pundi upp í þrjú, mjög góður fiskur," sagði Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti í Borgarfirði í gærdag, en mikið hefur verið af sjó- birtingi í veiðiám eins og Hvítá, Þverá og Grímsá núna í byijun sumars. „Ég fékk nokkra fiska héma í netin í fyrradag og það vom allt sjóbirt- ingar. Laxinn er örugg-' lega byrjaður að ganga núna, vatnið er gott í Hvítánni og hans tími er aðkoma. Stærsti sjóbirt- ingur sem hefur veiðst í Síkjunum núna er 3 pund. Veiðimenn hafa mikiö orðið varir við sjó- birting í veiðiánum eins og í Þveránni. Fyrir nokkrum dögiun töldu veiðimenn yfir hundrað fiska við brúna yfir Þverána. Þetta er óvenju- leg sjón að sjá svona mikið af sjóbirtingi, en það er verst að hann gæti étið laxaseiðin. í Grímsá sáust líka sjó- birtingar, svo hann er víða þessa dagana. Það væri kannski rétt að leyfa veiði á þessum fiski, nota veiðihúsin sem era mörg héma á svæðinu og taka hrollinn úr veiðimönnum. Núna er þurrt veður og vatn aðeins að aukast í ánum, eftir að það hlýnaði, svo þetta lítur vel núna,“ sagöi Þorkell. Ekki er ólíklegt að lax- inn sé að hellast inn í ámar. Netaveiði hófst á þessum tíma héma áður fyrr og þá veiddust alltaf einhverjir laxar. ÞorkeO hefur veriö ófeiminn við að koma með nýjar hugmyndir, fjósalykt á flöskum og safn í Ferjukoti, þar sem allt snérist um netaveiði og laxa fyrir tíu árum. Núna snýst allt um að finna nýjar hugmyndir og koma þeim í verk. - G.Bender Veiðivon Þrátt fyrir aö kjósa eigi á laugardaginn ætla veiðimenn ekki að setja það fyrir sig og ætia að fjölmenna upp af Norðurá og Grímsá í Borgarfiröi til að kíkja eftir fiski. Veiðin hefst í Norðurá á laugardaginn eftir viku. Veiöimenn hafa mikið kíkt og einn var þama um daginn og sá ekki neitt, sama hvað hann rýndi í strauminn á Norðurá fyrir nokkrum dögum. Hann labbaði upp í bQ og aftur til baka, en sá enn ekki neitt. Og aftur labbaði hann niður að ánni en sá ekki neitt. Hann gafst ekki upp þó hann sæi ekki neitt. Daginn eftir mætti hann snemma og ekki sá hann neitt. Hann er búinn að fara nokkrum sinn- um en hefur ekki séð neitt. Þetta kallar maður hörku. Margir cetla að leggja leiö sína að Fiskilækjar- vatni í Landssveit þegar vatnið verður opnað form- lega fyrir veiðimenn 1. júní um leið og Noröurá, Þverá og Straumarnir í Borgarfirði. Veiðin í vatn- inu hefur oft byrjað vel fyrstu dagana. Veiöimenn sem fóru í Skógá undir Eyjafjöllum fyr- ir skömmu veiddu vel af silungi og þá sérstaklega í lóninu. Þeir sem voru með fiugtma veiddu lítið en mest þeir sem voru með maðk og spún. Veðrið var mjög slæmt og erfitt að hemja fluguna.-G. Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.