Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 4
Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 DV Bæjarstjóraskipti yfirvofandi í nokkrum sveitarfélögum: Minnst átta bæjarstjórar víkja - talan mun líklega hækka þegar myndun meirihluta er lokið Eftir nýafstaðnar sveitarstjóm- arkosningar eru eins og gefur að skilja nokkur hreyfing á bæjar- stjórum. Nú þegar liggur fyrir að átta bæjarstjórar munu láta af störfum og þessi tala mun að öllum líkindum hækka á næstu dögum þegar nýkjömir bæjarfulltrúar fara að ræða saman um meirihlutasam- starf. Alls fjórir bæjarstjórar í helstu byggðarkjömum landsins höfðu ákveðið það fyrir kosningar að þeir ætluðu ekki að halda starfinu áfram. Þetta voru Sigurgeir Sig- urðsson á Seltjarnamesi, Ellert Ei- ríksson í Reykjanesbæ, Ólafur Kristjánsson í Bolungarvík og Guð- jón Hjörleifsson í Vestmannaeyj- um. Eins og staðan er núna er ljóst að aðrir fjórir bæjarstjórar munu missa starfið vegna kosningarúr- slita í bæjarfélögum þeirra. Þeir sem era að missa starfið vegna þess að flokkur þeirra missir meiri- Sigurgeir Ellert Sigurðsson. Eiríksson. Magnús Ásgeir Logi Gunnarsson. Asgeirsson. hluta eru Magnús Gunnarsson í Hafnarfirði og Ásgeir Logi Ásgeirs- son á Ólafsfirði. Þá er líklegt að Ólafur Guðjón Kristjánsson. Hjörleifsson. Jóhann Karl Sigurjónsson. Björnsson. hreinn meirihluti sjálfstæðis- manna í Mosfellsbæ verði til þess að Jóhanni Sigurjónssyni bæjar- stjóra þar verði sagt upp en hann var ráðinn til starfsins sem ópóli- tískur bæjarstjóri fyrir átta árum. Nýr meirihluti Samfylkingarinnar í Árborg hefur ákveðið að auglýsa starf bæjarstjóra en því starfi hefur Karl Bjömsson gegnt. Hann er því að missa það starf nema að hann ákveði að sækja um það aftur og verði ráðinn. Störf nokkurra fleiri bæjarstjóra eru í hættu og mun framvinda þeirra koma í ljós þegar nýir meiri- hlutar liggja fyrir. Það er t.d. enn óljóst hvort bæjarstjóramir á Ak- ureyri og í Kópavogi halda starf- inu. Sérstök óvissa er um hvemig málum er háttað í þeim bæjarfélög- um þar sem meirihlutinn er fallinn en ópólitískur bæjarstjóri hefur verið ráðinn. Þetta á m.a. við um Siglufjörð, Skagafjörð, Fjarða- byggð, Seyðisfjörð og Hveragerði. Líklegra verður þó að teljast en hitt að í þessum tilvikum missi bæjar- stjórarnir störf sin. -HI Fjaröabyggö: Framsókn og Fjaröalisti í viðræðum Engar formlegar viðræður eru hafnar í Fjai'ðabyggð um myndun nýs meirihluta en eins og kunnugt er féll meirihluti Fjarðalistans í kosningunum á laugardaginn. Þor- bergur N. Hauksson, efsti maður á lista Framsóknarflokks, viður- kenndi þó í samtali við DV i gær- kvöld að Framsóknarflokkurinn íhugaöi samstarf við Fjarðalistann. „Við höfum átt fundi með for- svarsmönnum Fjaröalistans en ekk- ert hefur verið ákveðið. Það þarf að ræða ýmis mál ofan í kjölinn áður en hægt er að hefja formlegar við- ræður,“ sagði Þorbergur í gær- kvöld. Hann sagði jafnframt að við- ræðunum yrði haldið áfram í dag og væntanlega yrði það tilkynnt á morgun hvort efnt yrði til formlegra samningaviðræðna við Fjarðalist- ann. -jká Ragnhelóur Ríkharösdóttir. S j álf stæðisf lokkurinn: Besti árangurinn í Mosfellsbæ Ragnheiður Ríkharðsdóttir, oddviti Sjálfstæð- isflokksins í Mos- fellsbæ, sem náði bestum árangri sjálfstæðismanna á landinu i kosningunum á laugardag, sagði í samtali við DV aö hún væri fyrst og fremst þakklát kjósendum en lofaði jafnframt samstarfsmenn sína í há- stert: „Þessi sigur sýnir einfaldlega að við höfum kynnt stefnuskrá okk- ar framúrskarandi vel. Þessi sam- henti og ákveðni hópur hefur unnið markvisst að þessum árangri frá því í febrúar og það geislar af okkur einhver ólýsanlegur kraftur." Að- spurð segist Ragnheiður ekki geta sagt til um á þessari stundu hvort hún ætlar sér að setjast í bæjar- stjórastólinn. „Það verður þó ekkert beðið með þá ákvörðun og á ég von á að hún verði tekin á allra næstu dögum,“ sagði Ragnheiður. Árangur sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ á laugardag er einkar glæslilegur, en flokkurinn náöi þar aftur meeirihluta sínum eftir átta ára samfelldan meirihluta vinstrimanna og framsóknarmanna í bænum. Fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ í kosningunum um helgina nam 13,7 prósentum og er hún með því mesta sem flokkur bætti við sig í kosningunum. Aðeins Samfylkingin í Árborg bætti meiru við sig. - Vig. Meirihlutaviðræður D-lista og B-lista á Akureyri: Skilyrði að KHstján verði bæjarstjóri Eitt af skilyröum sjálfstæðis- manna fyrir meirihlutasamstarfi með framsóknarmönnum er að Kristján Þór Júliusson verði áfram bæjarstjóri. Þetta hefur DV eftir heimildum úr innsta hring annars flokksins og er talið að framsóknar- menn muni ganga til samninga á þeim grunni. Kristján Þór vildi ekkert tjá sig um þetta atriöi eða viðræður flokkanna í samtali við DV en sagð- ist telja ólíklegt að niðurstaða næð- ist fyrr en á morgun. Umræður voru síðdegis í gær milli hlutaðeig- Kristján Þór Jakob Júlíusson. Björnsson. andi og munu að líkindum halda áfram í dag. Jakob Bjömsson, oddviti fram- sóknarmanna, er fyrrverandi bæjar- stjóri á Akureyri. Líklegt er talið að hann verði formaður bæjarráðs en eins og Kristján Þór vildi hann ekki tjá sig um viðræðumar fyrr en að fenginni niðurstöðu, Oddur Helgi Halldórsson, oddviti L-lista, vann kosningasigur og bætti við sig manni. Hann lýsir óánægju með að hafa ekki átt kost á meiri- hlutaviðræðum. Ef að líkum lætur verða 7 fulltrú- ar B- og D-lista í meirihluta en 4 í minnihluta. Þar á Samfylking einn mann, Vinstri grænir eirrn mann og L-listinn tvo menn. -BÞ Hallarbylting í Dalvíkurbyggð: Óheiðarleg vinnubrögð - segir oddviti vinstri manna Þrátt fyrir að meirihluti fram- sóknarmanna og vinstri manna hafi haldið velli í Dalvíkurbyggð era allar líkur á nýjum meirihluta. Sjálfstæðismenn era á leið í sam- starf með framsóknarmönnum ef viðræður flokkanna skila árangri. Þeir ræddu saman í gærkvöld og hyggjast halda viðræðunum áfram. Sigurður Valdimar Bragason, oddviti framsóknarmanna, sagði í samtali viö DV að ástæða þess að framsóknarmenn sneru sér frá I- lista vinstri manna að Sjálfstæðis- flokki væri að hluta til útkoma kosninganna. Vinstri menn hefðu tapað fylgi til sjálfstæðismanna og hann liti svo á að Framsóknar- flokkurinn hefði aöeins verið bund- inn til fjögurra ára í meirihluta með I-listanum. Þeim tima væri nú lokið og önnur fjögur ár framund- an. Ingileif Ástvaldsdóttir, skóla- stjóri í Dalvíkurbyggð og oddviti I- lista vinstrimanna, sagðist ekki telja vinnubrögð framsóknar- manna heiðarleg þar sem samstarf- ið hefði byggst á heilindum og eng- inn ágreiningur orðið í meirihluta- starfinu. Hún liti svo á að meiri- hutinn hefði haldið velli og það hefði komið henni í opna skjöldu þegar framsóknarmenn tilkynntu henni að þeir hygðust ganga til við- ræðna við sjálfstæðismenn. Ingileif sagði það sjálfsagða kurteisi að fyrst hefði verið fundað formlega milli I-lista og B-lista en framsókn- armenn hefðu ekki boðið upp á slíkt. Það væru óeðlileg vinnu- brögð. -BÞ Samfylking í Árborg: Fylgið jókst um 50% — hlutfallslega stærsti sigurinn í kosningunum á laugardag „Við erum vel stemmd og ánægð með þennan árangur sem er vonum framar," sagði Ásmundur Sverrir Pálsson, oddviti Samfylk- ingarinnar í Árborg, sem vann tímamótasigur í sveit- arstjómarkosningunum, hlaut 40,8% greiddra at- kvæða, okkar um 50% frá síðustu kosningum," sagði Ás- mundur. Hann þakkar samhentum lista og þrot- lausri vinnu þeirra sem stýrðu kosningabarátt- unni árangurinn ásamt góöri stefnuskrá listans. „Hvernig sem litið er á þetta er um að ræða stór- Ásmundur Þetta er mesta fylgis- Sverrir Pálsson. sigur vinstri aflanna í Ár- aukning Samfylkingarinnar á borg,“ sagði Ásmundur. landinu, við erum að auka fylgi Árið 1998 var sameiginlegur listi vinstri manna í Árborg en nú ákváðu Samfylking og Vinstri grænir að bjóða fram aðskildir. Hefðu fylkingamar boðið saman fram og fengið sameiginlega at- kvæðamagn beggja listanna hefði það dugað til að ná hreinum meiri- hluta í bæjarstjóm. „Það er spum- ing hvernig þessi atkvæði hefðu fallið á sameiginlegan lista. Það er líka ágætt fyrir flokkana að mæla sitt fylgi á þennan hátt,“ sagði Ás- mundur Sverrir Pálsson. -NH Oktavía Valgeröur Jóhannesdóttir. Bjarnadóttir. Útstrikanir: Fjórði hver strikaði Oktavíu út Oktavía Jóhannesdóttir, oddviti Samfylkingar á Akureyri, fékk lang- flestar útstrikanir eða 234 alls. Þá vildu margir kjósendur færa hana niður um sæti en alls mótmæltu 297 stöðu hennar á listanum. Um 100 manns vildu færa Hermann Tómas- son sem var í 2. sæti upp í 1. sætið. Alls var átt við 26,5% allra atkvæða Samfylkingar. Hjá sjálfstæðismönnum reyndist Þórarinn B. Jónsson umdeildastur, var strikaður út 116 sinnum. Bæjar- stjórinn Kristján Þór Júlíusson hlaut 13 útstrikanir. Hjá framsókn- armönnum eru tveir efstu menn listans umdeildastir. Jakob Bjöms- son hlaut 115 athugasemdir alls og þar af 93 útstrikanir. Gerður Jóns- dóttir sem skipaði annað sætið fékk 50 útstrikanir en alls 70 breytingar. Alls 49 strikuðu Valgerði Bjarna- dóttur út, efsta mann Vinstri grænna, en hún hlaut alls 60 at- hugasemdir á kjörseðlum. Mesta einurðin var um Lista fólksins. Aö- eins 1 strikaði Odd Helga Halldórs- son, leiðtoga L-listans, út og lítið var um önnur mótmæli. í Hafnarfirði liggja ekki fyrir ná- kvæmar tölur um útstrikanir. Að sögn Ingimundar Einarssonar, for- manns kjörstjómar, var látið ógert að telja saman breytingar á kjör- seðlum. „Þetta var í samkomulagi við umboðsmenn flokkanna," sagöi Ingimundur. Heimildir blaðsins herma að oddviti framsóknar- manna, Þorsteinn Njálsson, hafi fengið flestar útstrikanir og gerðar hafi verið breytingar á allt að þriðj- ungi atkvæða Framsóknarflokksins. Þorsteinn náði ekki kjöri. Þá munu þeir Magnús Gunnarsson, Sjálfstæð- isflokki, og Lúðvík Geirsson, Sam- fylkingu, hafa fengið einhverjar út- strikanir, sá fyrrnefndi sýnu fleiri. „Útstrikanir og breytingar á kjör- seðlum voru mjög fjarri þvi að hafa áhrif á úrslit kosninganna og þess vegna var ekki þörf á að taka þess- ar upplýsingar saman," sagði Ingi- mundur Einarsson. -BÞ/aþ Árborg: Margrét ekki bæjarstjóri Margrét Frí- mannsdóttir, þingmaður Sam- fylkingar á Suð- urlandi, kveðst ekki vera á leið í bæjarstjórastól í Árborg eins og orðað hefur ver- ið. „Mér finnst vænt um að ein- hverjir skuli nefna mig við þetta emætti, en ég ætla að halda mig við þingstörfin og hyggst leiða minn flokk í nýju Suðurkjördæmi í þingkosningun- um að ári,“ sagði Margrét i samtali við DV í morgun. Hún sagði árangur Samfylkingar- innar á Suðurlandi í bæjarstjómar- kosningunum vera góðan og einkar ánægjulegan. Þá ekki síst í Árborg þar sem flokkurinn fékk fjóra menn kjörna í bæjarstjóm. Því sé sjálfgef- ið að flokkurinn hafi tögl og hagld- ir í vali á nýjum bæjarstjóra í Ár- borg verði ákveðið að fá nýjan mann í starfið i stað Karls Bjöms- sonar. „Við eigum góða bæjarfulltrúa í Árborg og ég tel hvert þeirra sem er geta tekið bæjarstjórastarfið að sér komi til þess,“ sagði Margrét. -sbs Margrét Frímannsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.