Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 14
14
__________________________ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002
Skoðun jjrsr
...
Spurmng dagsms
Áttu erfitt með að vakna á
morgnana?
Svanhvít Helga Ríkharösdóttir nemi:
Bæöi og, ég mæti þó aldrei of seint
á morgnana.
Kjartan Guömundsson atvlnnulaus:
Já, mjög svo, ég vakna í kringum há-
degi og þykir þaö snemmt. Svo mæti
ég oftast of seint í vinnu.
Elísabet Moúra móöir:
Já, mjög, ég er meö tvo 3 og hálfs-
mánaöar drengi sem sjá um lítinn
nætursvefn.
Krlstján Orn Ijósmyndari:
Já, mjög erfitt, ég sef oft yfir mig á
morgnana, þaö er vonlaust aö vekja
mig á morgnana.
Leifur Björnsson bílstjóri:
Nei, ekkert mái aö vakna, ég fer aö
sofa um kl. 11.
Ellen Rós Hansdóttir, 11 ára:
Já, ég á mjög erfitt meö aö vakna,
þaö er erfitt að vekja mig og
mamma er ailtaf aö kvarta.
Ellilífeyrisþegar
hlunnfarnir í launum
Jónatan Árni Aðalsteinsson
skrifar:
Ofanritaður er nú orðinn einn í ykk-
ar hópi. Ég varð gamall á síðasta ári.
Mér brá heldur í brún um áramótin þeg-
ar ég fékk alla rukkunarseðlana, t.d.
fasteignagjöld sem hafa stórhækkað svo
og tryggingargjöld. Ég á mjög lítið par-
hús og álögð fasteignagjöld eru samtals
112.450 kr.
Ástæðan fyrir því að ég fór að skrifa
þetta núna er undrun mín yfir því hve
einstakir menn geta ráðið miklu hér á
landi. Líklega auðmenn sem leika sér að
hlutabréfabraski skattfrítt og fyrirtæki
sem moka inn peningum frá verslunum
sem auglýsa verðlækkun, en svo þegar
maður kemur út í búð kemur annað
upp á stokkinn. Ekki má gleyma fisk-
vinnslunni og kvótabraski. Háttvirtur
utanrikisráðherra sá um að búa til kvót-
ann á sínum tíma.
Mikið hefur verið gumað af stöðvun
rauðu strikanna. Vonbrigði mín með
ASÍ-menn eru mikil, og fer best á því að
segja sem minnst um þá. Þeir ASÍ-menn
hafa trúlega gott kaup, en það er sorg-
legt hvað forysta stéttarfélaganna er
orðin gagnslitil, kannski hafa allir orðið
svona gott kaup (það er vel).
Ég vil þakka Ólafi Ólafssyni, form.
eldri borgara, og Benedikt Davíðssyni
fyrir þeirra góða innlegg í DV. Þar kem-
ur fram hversu ömurlega er komið fram
við ellilífeyrisþega.
í samanburði við launavísitölu hafa
ellilífeyrisþegar verið sviptir 7059 kr. á
mánuði og 17.176 kr. miðað við lág-
markslaun. Fáir eru þó á þeim launa-
taxta. Miðað við lágmarkstaxta hefur
því ellilífeyrir rýmað um 206.112 kr. á
ári miðað við febrúar 2002. Þetta lífeyr-
issjóðakerfi er náttúrlega meingallað.
Tökum sem dæmi mann sem fær sæmi-
lega greiðslu úr lifeyrissjóði. Þá minnk-
ar greiðsla frá Tryggingastofnun ríkis-
„í samanburði við launa-
vísitölu hafa ellilífeyrisþeg-
ar verið sviptir 7059 kr. á
mánuði og 17.176 kr. miðað
við lágmarkslaun. Fáir eru
þó á þeim launataxta. Mið-
að við lágmarkstaxta hefur
því ellilífeyrir rýmað um
206.112 kr. á ári miðað við
febrúar 2002. Þetta lífeyris-
sjóðakerfi er náttúrlega
meingallað. “
ins. Það frnnst mér gallaö kerfi. Svo er
það skattahliðin; þar sem virðist ekki
mega hafa meira en um 70.000 kr. á
mánuði. Þessu verður að breyta í
100.000 kr skattfijálst. Ég treysti á Bene-
dikt, að hann taki rögg á sig og geri eitt-
hvað í okkar málum. Hann hefur nú
starfað um árabil að lífeyrissjóðakerf-
inu. Vonandi stendur hann sig.
Rikið segist ekki hafa peninga, en það
vantar ekki peninga í sukkið tii dæmis
í öll nefndarstörfm sem greidd eru for-
stjóra Samkeppnisstofnunar og skrif-
stofustjóra i viðskiptaráðuneytinu. Þeir
þiggja báðir hundruð þúsunda króna í
árslaun fyrir að sitja i stjóm ílutnings-
jöfnunarsjóðs olíuvara.
Ég datt nýlega ofan á fyrsta maí-grein
eftir Pétur Sigurðsson, forseta Alþýðu-
sambands VestQarða. Þar segir hann
einsdæmi, að á sama tima og 10% skatt-
ur sé af arði auðmanna, fyrirtækja og
hlutabréfa sé öryrkjum, ellilifeyrisþeg-
um og verkafólki gert skylt að greiða
38,4% skatt af mánaðartekjum umfram
68.000 kr. Og bætti við, að aldrei hefði
verið meiri þörf fyrir sameinaða verka-
lýðshreyfingu sem þyrði að beita óhefð-
bundnum aðferðum í kjarabaráttu
sinni. - Það er sannarlega rétt mælt.
Félagar í Samfylkingunni, athugið
„Eða vita menn ekki að um 12
millljónir manna eru atvinnu-
lausar innan ESB? Og sameigin-
legur vinnumarkaður þýddi að
tugþúsundir myndu streyma til
íslands í leit að störfum og kom-
ast inn í tryggingakerfið. - Vilj-
um við þetta, viljið þið þetta,
samfylkingarfólk?“
Kristinn Sigurðsson
skrifar:
Því miður virðist það svo að margir í
Samfylkingunni séu nú allt að því í
bandi hjá öflunum sem stýrðu Alþýðu-
flokknum, og þar sjá þeir ekkert annað
en Evrópubandalagið og tala um að
smáþjóðir hafi svo mikil áhrif að íslandi
beri að sækja um aðild, þó svo að yfir-
ráð fiskimiða Islendinga yrðu auðvitað í
Brussel, ásamt öðrum yfirráðum.
Sem dæmi um „mikil“ áhrif smá-
þjóða má nefna að Dani var formaður
stjómarskrámefndar ESB og tillaga
hans var sú að veiðar í Norðursjó yrðu
minnkaðar um 50%. Spánveijar urðu
óðir og neituðu að fallast á tillöguna.
Sjálfur Jose Maria Asnar hringdi i
Prodi og útkoman varð sú að Daninn,
sem var formaður nefndarinnar, var
rekinn. Danska stjómin mótmælti
harkalega en án árangurs.
Svona em „áhrif' smáþjóða. Nefni-
lega engin.
Vonandi er ykkur ljóst, ykkur sem
haldið að ísland verði áhrifaríki innan
ESB, að sllkt er borin von. Stóru ríkin
ráða öllu og það mun verða þannig um
ókomna framtíð. Ég skora á fyrrverandi
alþýðubandalagsfólk innan Samfylking-
arinnar að opna augun og láta ekki
blekkjast um að með aðild séu gull og
grænir skógar fram undan. Eða vita
menn ekki að um 12 millljónir manna
em atvinnulausar irrnan ESB? Og sam-
eiginlegur vinnumarkaður þýddi að tug-
þúsundir myndu streyma til íslands í
leit að störfum og komast inn í trygg-
ingakerfið. - Viljum við þetta, viljið þið
þetta, samfylkingarfólk?
Húmanísk innrás
Garri er tækjafrík. Ef hann kemst inn í raf-
tækjabúð þá reynist oft erfitt að ná honum þaðan
út. Þess vegna keypti hann sér talstöðvaskanner
þegar hann fór tii Bandaríkjanna i fyrrasumar.
Hann vissi að slíkt tæki væri ólöglegt en lét sig
það litlu skipta og kom honum því fyrir í vand-
aðri Fiat Uno-bifreið sinni frá árinu 1988. Síðan
hefur Garri getað fylgst með samtölum lögreglu-
manna. Ekki hefur það haldið honum vakandi um
nætur enda islenskir glæpamenn allt annað en
hugmyndaríkir. Oftar en ekki hefur Garri því
bara stillt yfir á Létt 96,7 sem miðað við lögreglu-
rásina gæti talist rás ofbeldis og átaka.
Alvöru aðgerö
Garri var þvi nánast búinn að leggja tækinu
þegar hann fyrir rælni kveikti á því um kafiileyt-
ið síðasta miðvikudag. Tveir menn voru á tali.
Hér að neðan fer hljóðrit af samtalsbrotunum.
Hl: Halló, halló, er þetta H2?
H2: Já já, Ástþór, þetta er Metúsalem héma.
Hvemig hefurðu það? Er ekki bara friður?
Hl: Æi, uss. Þú mátt ekki nota nöfnin okkar,
H2. Við erum í alvöru aðgerð hérna.
H2: Æi, fyrirgefðu.
Hl: Vorum við ekki búnir að æfa þetta? H2, ha?
H2: Jú jú. Og ég var búinn að biðja þig fyrir-
gefningar. Búinn að bjóða hinn vangann.
Hl: Ókei. Hver er staðsetning þín?
H2: Ertu að tala við mig, Hl?
Hl: Já, auðvitað!
H2: Nei, þú sagðir ekki dulnefnið mitt, Hl. Ég
vissi ekki alveg hvert þú varst að fara.
Hl: Sorrí, H2. Hver er staðsetning þín, H2?
Horfi ekki á ofbeldismyndir
H2: Ég er héma, Hl. (H2 vinkar í H1 sem stend-
ur 4 metra frá honum á bílastæði við Skipholt).
Hl: Ekki vinka. Það gæti komist upp um okkur,
H2. Þú ert ekki alveg að meika þetta kombat, er
það? Sástu ekki Black Hawk Down?
H2: Ég legg nú ekki í vana minn að horfa á of-
beldismyndir, Hl.
Hl: Christ!
H2: Ertu að tala við mig, Hl?
Hl: Skiptir engu, H2. Við skulum ráðast til inn-
göngu í stúdíó Silfursins. We’re going for the red-
haired dude.
H2: Væri þér sama þótt þú slettir ekki svona
mikið, Hl?
Hl: Þegar ég segi þrír ráðumst við inn, H2.
H2: Heldurðu að það sé opið, Hl?
Hl: Opið?
H2: Ja, það stendur héma að staðnum sé lokað
klukkan 18. Verðum við ekki bara að koma aftur
á morgun?
Hl: Á morgun? Þá er þátturinn búinn!
H2: Æi, það koma alltaf kosningar aftur, er það
ekki? Við höfum þá önnur fjögur ár til að ná vopn-
um okkar og finna sundskýlu í réttri stærð. Æi,
við skulum bara koma seinna.
(XtKfrl
Leiðinleg
Evróvisjónlög
Friðrik Helgason skrifan
Þessi síðasta
Evróvisjónkeppni
var átakanlega leið-
inleg. Nú eru líka
komin inn ný ríki,
flest frá Austur-Evr-
ópu, og þau eigin-
lega valta yfir hin
gamalkunnu. Mér
fannst hins vegar
franska lagið lang-
best samið og flutt.
Þetta var þó lag sem
veitti manni svona
Sandrine
Franpoise söng
fyrir Frakka
Besta lagiö aö
mati Friöriks.
tónlistarfíling. Lögin frá Eistlandi og
Litháen voru afar keimlíf og sungin á
ensku. Furðulegt hve þessi ríki taka
fljótt við töktunum að vestan á ailan
hátt. En þetta skýrist við samanburð.
Við þurfum ekki að fara langt - lítum í
eigin barm. Sendum nú lag næst svo við
þurfum ekki að sitja afskipt og ekkert
að hlakka til í útsendingunni.
Hagkaup
á Eiðistorgi
Eirikur Stefánsson hringdi:
Ég fer mjög oft í Hagkaup á Eiðis-
torgi. Þetta er ágæt verslun með fjöl-
breytt úrval neysluvara - mætti þó
bjóða tilbúna rétti, a.m.k. steikta heila
og hálfa kjúklinga seinni hluta vikunn-
ar. En það kemur kannski. Annað er:
Það er orðið ansi hvimleitt hve margir
„sölumenn" eru famir að taka sér stöðu
- og setu - við inngang verslunarinnar
og t.d. á fóstudagskvöldi, eins og t.d. þvi
síðasta, verður varla þverfótað fýrir
sölufólki. Það er að selja hitt og þetta,
aðallega merki fyrir einhver samtök,
íþróttasamtök, SÁÁ eða önnur. Allt góð
málefiii en of mikið af öllu má þó gera
og það er fremur óþægilegt að ganga
fram hjá án þess að kaupa þótt maður
hafi engin efni á því.
Klámstöðin
Sjónvarp
Elsa Guðmundsdðttir skrifar
Mér varð
brugðið við að
horfa á tvær af
kvikmyndunum
sem Sjónvarpið
bauð okkur upp
á sl. helgi. Ann-
ars vegar var
það myndin
Ósiðlegt tilboð sl.
fóstudagskvöld
og fjallaði hún
um auðkýfing
sem bauð ungum
hjónum í fjár-
þröng háa fjár-
hæð fyrir að sænga hjá konunni og var
uppfull af samfarasenum af grófara tag-
inu. Ekki beinlinis afþreying fyrir fjöl-
skylduna. Hin var sl. sunnudagskvöld
og var enn þá ógnvænlegri en sú fýrri
því hún var kínversk og átti að gerast í
menningarbyltingunni í Kína. Þar var
hreinlega um raðsamfarir að ræða við
unga stúlku. Hvemig dettur forráða-
mönnum Sjónvarps að bjóða fólki slíkar
myndr í skylduáskrift? Leggur t.d. út-
varpsstjórinn sjálfur blessun sína yfir
svona hroða? Eða þá útvarpsráð og
menntamálaráðherra sem er æðsta
valdið? Má ekki kæra þennan mslvam-
ing til hans (líkt og skemmdar vörur í
verslun)? Ég skora á alla sómakæra
nauðungaráskrifendur Sjónvarpsins að
láta í sér heyra um þá atlögu sem Sjón-
varpið gerir nú ítrekað inn á heimili
landsmanna. Ég fæ ekki annað séð en
Ríkissjónvarpið sé að verða meinsemd í
þjóðfélaginu sem vart verður flokkuð
undir annað en eins konar klámrás. Og
svo hneykslast fólk á súlustöðum sem
enginn er þó nauðbeygður til að greiða
aðgang að líkt og Sjónvarpið!
Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn I síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíö 24, 105 ReyHjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Skemmtun án
skyldugjalds
Og svo
hneykslast fólk
á súlustöðunum!