Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 27 I>V Sport Undirbúningurinn fyrir Makedóniuleikinn stendur sem hæst: „ Það verður altt vitlaust í Prilep“ - segir Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþj álfari í handbolta íslenska landsliöið í handknattleik kom til Þessalóniku í Grikklandi seint i gær en þar dvelur liðið fram að fyrri leiknum við Makedóníu í forkeppni heimsmeistaramótsins. Leikurinn verður háður í borginni Prilep á sunnudagskvöldiö en síðari leikurinn verður viku síðar í Reykjavík. Sigur- vegari þessarar viöureignar tryggir sér sæti í heimsmeistarakeppninni í Portúgal í janúar nk. Æft og leikiö í Grikklandi fram á laugardag íslenska liðið verður fram á laugar- dag í Grikklandi en þaðan heldur það til Prilep. í dag og á morgun leikur lið- ið við Grikki og verður annar leikur- inn opinber landsleikur. Leikmenn sem leika í þýsku úrvalsdeildinni komu til móts við liðið í Amsterdam þaðan sem haldið var til Þessalóníku. Guðmundur Guðmundsson landsliðs- þjálfari valdi í gærmorgun endan- legan hóp fyrir leikina gegn Makedón- íu. Hann þurftu að skera nokkuð nið- ur hópinn sem keppti á fjögurra landa mótinu í Belgíu þar sem liðið hafiiaði í þriðja sæti. Markmenn í hópnum eru Guð- mundur Hrafnkelsson, Conversano, og Bjami Frostason, Haukum. Homa- menn og línumenn em Sigfús Sigurðs- son, Val, Róbert Sighvatsson, Dússel- dorf, Guðjón Valur Sigurðsson, Essen, og Gústaf Bjamason, Minden. Útileik- menn eru Dagur Sigurðsson, Wakunaga, Rúnar Sigtryggsson, Haukum, Heiðmar Felixsson, KA, Snorri Steinn Guðjónsson, Val, Gunn- ar Berg Viktorsson, Paris St. Germa- in, Ragnar Óskarsson, Dunkerque, Ólafur Stefánsson, Magdeburg, Sig- urður Bjamason, Wetzlar, og Patrek- ur Jóhannesson, Essen. Guðmundur Guðmundssoh lands- liðsþjálfari sagði i samtali við DV í gær að valið á liðinu hefði verið mjög erfitt, eins og alltaf. „Það vom 2-3 leikmenn mjög ná- lægt því að verða valdir en það liggja ýsmar ástæður að baki þvi að ég hef valið þetta lið sem tekur þátt í undir- búningnum fyrir leikina við Makedóníumenn. Við verðum að taka andstæðinginn mjög alvarlega og búa okkur af kostgæfni undir leikina. Þessir komandi leikir skipta miklu máli upp á framhaldið enda verður allt kapp lagt á það aö koma liðinu á heimsmeistaramótið í Portúgal," sagði Guðmundur. Guðmundur sagði það mikilvægt í undirbúningum að fá vera með liðið í Grikklandi fyrir leikinn í Prilep á sunnudag. Hann sagði enn fremur að þótt ekki hefðu ailir verið með á mót- inu í Belgíu um síðustu helgi hefði mótið nýst vel. „Ég gat þar þjálfað ákveðna þætti og stillt m.a. upp í 6-0 vöm með þá Sig- fús Sigurðsson og Rúnar Sigtryggsson. „Það var mjög gott að hafa þá Sig- fús og Rúnar saman í vöminni en þeir hafa ekkert leikið saman síðan á Evr- ópumótinu í Svíþjóð. Þaö sama verður sagt um Ólaf Stefánsson og Patrek Jó- hannesson sem ég hef ekkert séð frá EM í Svíþjóð. Þessir dagar, sem nú fara í hönd, verða nýttir til að rifja upp leik liðsins frá Evrópumótinu. Okkur veitir ekkert af þessum tíma, sem er í styttra lagi, en það þarf að púsla ýmsum þáttum saman fyrir svona mikilvægan leik. Það er búið að vara okkur við leiknum í Prilep en við vitum að það veröur allt vitlaust á leiknum enda áhangendur þar frægir fyrir stuðning við sína menn. Það verður allt lagt undir til að komast sem best frá leiknum í Prilep," sagði Guðmundur Guðmundsson. Makedóníumenn hafa svipuðu liði á að skipa og undanfarin ár. Guð- mundur hefur tvo leiki frá leikjum Makedóna undir höndum frá þvi í jan- úar og sagði hann þá mjög sterka á heimavelli. Allir leikmenn liðsins sem léku með sínum liðum um liðna helgi komust heilir frá leikjunum. Þess má geta að það verða spænskir dómarar sem dæma leikinn í Prilep á laugar- dag. -JKS i-.y Egill Valsson á KTM og Þorvaröur Björgúlfsson á Honda CRF í samhliða stökki. Þaö voru 35 hjól sem mættu í meistaraflokk þannig aö atgangurinn var mikill í ræsingu. Góð byrjun hjá Ragnari Inga - í fyrstu MotoCross-keppni sumarsins Fyrsta umferðin af fjórum í KFC og DV-Sport íslandsmótinu í Moto-Cross fór fram í blíðskaparveðri í Vest- mannaeyjum um liðna helgi. Keppnin var haldin af Vélhjólaíþróttaklúbbnum VÍK og Vélhjólaíþróttafélagi Vest- mannaeyja, VÍV, og höfðu heimamenn veg og vanda af brautarlagningu og skipulagi á keppnissvæðinu. Keppnisbrautin liggur i nýja hraun- inu og er um 1000 metra löng með glæsilegum stökkpöllum, erfíðum beygjum og svokölluðum þvottabrettis- köflum. 35 keppendur voru skráðir til leiks í meistaraflokki og 12 keppendur í B-flokki. í meistaraflokki eru eknir þrír riðlar „moto“ í 18 til 20 mínútur, en B-flokkur ók tvo riðla „moto“ 15 til 18 mínútur. Það var vitað að hörðust yrði keppn- in í meistaraflokki á milli íslandsmeist- arans Ragnars Inga Stefánssonar sem ekur Kawasaki og þeirra Viggós Am- ars Viggóssonar á TM, Reynis Jónsson- ar á Honda og Einars Sigurðarsonar á KTM. Það var magnþrungin spenna þegar meistaraflokksökumennir röð- uðu sér upp á ráslínu fyrir fyrsta riðO en það voru þeir Einar Sigurðarson, Helgi Valur Georgsson á KTM og Valdi- mar Þórðarson á Kawasaki sem voru fyrstir í gegnum fyrstu beygju. Einar tók þó fljótt forustuna og hélt henni til loka en annar varð Ragnar Ingi og þriðji Reynir. f öðrum riðlinum var það Ragnar Ingi sem tók forustuna í byrjun en Ein- ar fylgdi honum eins og skugginn allt þar til 3 hringir voru eftir að hann komst fram úr og sigraði, Ragnar Ingi hélt öðru sætinu en Reynir varð þriðji. í þriðja og síðasta riðlinum ætlaði Einar sér að klára þrennuna en féll af hjólinu á fyrsta hring og var hörkubar- átta á milli Ragnars Inga, Reynis og Helga Vals fyrstu 4 hringina, Helgi Val- ur hafði ekki úthaldið sem þurfti og Reynir lenti í óhappi og féll af hjólinu. Ragnar Ingi sýndi yfirvegun og sann- kallaða meistaratakta er hann kom fyrstur í mark, Viggó Viggósson varð annar en þriðji varð Eyjamaðurinn Sig- uður Bjami Richardson á KTM sem hefur tekið miklum framfórum og gam- an verður að fylgjast með í sumar. f B- flokknum var hörð og skemmtifeg bar- átta en sigurvegari dagsins var heima- maðurinn Benóný Benónýsson á Kawa- saki og sýndi hann góðan akstur enda vel kunnur staðháttum. Bland í polca Bandariski kylfingurinn Jim Furyk vann glæsilegan sigur á stórmóti i Bandaríkjunum um liðna helgi. Furyk lék holurnar 72 á 14 höggum undir pari og tryggði sér sigurinn með hreint frábæru golfi á síðustu holunum. Þetta var fyrsti sipr Furyks á bandarísku mótaröðinni síðan 2001. David Peoples og John Cook urðu í þriðja sæti, tveimur höggum á eflir Furyk. David Duval hafnaði í fjórða sæti og er þetta I fyrsta skipti á þessu ári sem hann kemst í hóp tíu efstu manna. Tiger Woods náði sér engan veginn á strik á mótinu og var átta höggum á eftir Furyk. Los Angeles Lakers slapp fyrir hom í fjórða leik sínum gegn Sacramento Kings í úrslitum vest- urstrandar í NBA-deildinni. Kings var lengst af vel yfir í leiknum, 20-40 eftir fyrsta hluta og 51-65 í leikhléi. Það var Robert Horry sem tryggði Lakers sigur, 100-99, í blá- lokin með þriggja stiga skoti en leikið var í Los Angeles. Staðan er nú jöfh, 2—2. Shaquille O’Neal skoraði 27 stig og tók 18 fráköst fyrir Lakers en Kobe Bryant var með 25 stig og Robert Horry 18 stig og 14 fráköst. Þess má geta að O’Neal náði að skora úr sex síðustu vítaskotum sínum í leiknum. Vlade Divac skoraði 23 stig fyrir Kings, Mike Bibby 21 stig, Chris Webber 20 og Hidayet Turkoglu 18 stig og 12 frá- köst. Næstu tveir leikir fara fram í Sacramento. _§K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.