Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002
íslendingaþættir_________________________________________________________________________________________________________PV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Fimmtugur
Halldór Kristjánsson
verkfræðingur í Hafnarfirði
1950, ljósmóðir
og hjúkrunar-
fræðingur í
Reykjavík, maki
Ingibjörn Haf-
steinsson kaup-
maður; Sigurð-
ur, f. 23.2. 1955,
barnalæknir í
Reykjavík, maki
Anna Daníels-
dóttir tann-
læknir; Hjalti, f.
23.11. 1958,
læknir á heilsu-
gæslustöðinni í
Vestmannaeyj-
um, maki Vera
Björk Einars-
dóttir hjúkrun-
arfræðingur;
Guðrún Þura, f.
28.1. 1966,
85 ára_________________________________
Gunnar Guðjónsson,
Hjarðarholti 2, Akranesi.
80 ára_________________________________
Hörður V. Vílhjálmsson,
Barðastöðum 9, Reykjavík.
Ólafur Tryggvi Jónsson,
Stóragerði 1, Hvolsvelli.
75 #ra_________________________________
Magnea Bergmann Franzdóttir,
Laufásvegi 6, Reykjavík.
Leifur Steinarsson,
Hofteigi 14, Reykjavík.
Iðunn Vigfúsdóttir,
Kirkjulundi 6, Garðabæ.
Reynir Ólafsson,
Bláskógum 13, Hveragerði.
70 áru_________________________________
Anna Margrét Jafetsdóttir,
Dalbraut 16, Reykjavík.
Fanney Sigurgeirsdóttir,
Grýtubakka 26, Reykjavík.
Sigríður Kristín Magnúsdóttir,
Miðvangi 41, Hafnarfirði.
Ólafur V. Sverrisson,
Sunnubraut 4, Grindavík.
60_ára_________________________________
Ingunn ívarsdóttir,
Fáfnisnesi 4, Reykjavlk.
Gústav Óskarsson,
Lindasmára 7, Kópavogi.
Stefanía Magnúsdóttir,
Markarflöt 22, Garðabæ.
Sigurður Guðmundsson,
Sviðugörðum, Selfossi.
50 ára_________________________________
Lára Ágústa Gunnarsdóttir,
Goðheimum 3, Reykjavík.
Sólveig Ingibergsdóttir,
Rofabæ 27, Reykjavík.
Gestur Halldórsson,
Dverghömrum 32, Reykjavík.
Arngrímur Brynjólfsson,
Jörvabyggð 4, Akureyri.
Páll Elíasson,
Sléttu, Kirkjubæjarklaustri.
40 ára_________________________________
Pétur Einar Pétursson,
Miklubraut 66, Reykjavík.
Ingunn Alda Sigurðardóttir,
Ásgaröi 145, Reykjavik.
Ingi Már Gunnarsson,
Lundarbrekku 4, Kópavogi.
Sighvatur Stefánsson,
Hlöðum III, Akureyri.
Jón Hákonarson,
Marbakka, Akureyri.
Henryk Jan Snarski,
Hlíðargötu 57, Fáskrúðsfirði.
Auðunn Árnason,
Böðmóðsstöðum 1, Selfossi.
Ellen Þóra Snæbjörnsdóttir, Stífluseli 8,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi fimmtud. 23.5.
Þórunn Lárusdóttir, frá Neskaupstað,
lést á hjúkrunarheimilinu í Víðinesi
mánud. 27.5.
Svanur Jónsson, Langholtsvegi 187,
Reykjavík, lést á Landspítalanum I
Fossvogi sunnud. 26.5.
Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir, frá
Þingeyri, lést á Droplaugarstöðum,
fimmtud. 23.5.
Elín Rut Kristinsdóttir, Tunguseli 7,
Reykjavik, lést af slysförum i Arisona,
Bandaríkjunum, föstud. 24.5.
Halldór Kristjánsson verkfræð-
ingur, Hraunbrún 52, Hafnarflrði,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist í Reykjavik.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1972 og prófi í rafmagnsverkfræði
frá HÍ 1976.
Halldór réðst til starfa hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur eftir há-
skólanámið og vann í verkáætlana-
deild til 1978. Hann hóf þá störf hjá
Smith og Norland og hafði þar um-
sjón með sölu og þjónustu síma-,
fjarskipta- og tölvukerfa.
Halldór stofnaði Tölvu- og verk-
fræðiþjónustuna 1986 en þetta
einkafyrirtæki hans hefur með
höndum námskeiðahaldi og hefur
veitt mörgum fyrirtækjum ráðgjöf
um tölvumál um langt árabil.
Halldór hefur kennt við Ht, bæði
í Reykjavík og á Akureyri, einnig
við endurmenntunarstofnun HÍ og á
fjölda námskeiða í eigin fyrirtæki
og hjá öðrum.
Halldór var formaður Lions-
klúbbins Ásbjarnar í Hafnarfirði
1982, var skipaður í umdæmisstjóm
hreyfingarinnar árið eftir og síðar
fjölumdæmisráð og var enn fremur
gjaldkeri Lionshreyfingarinnar í
tvö ár. Hann hefur gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstöfum fyrir Lions-
hreyfinguna og var m.a. umdæmis-
Jón Sæmundsson, Kirkjubraut 17
í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ,
varð áttræður þann 27.5. sl.
Starfsferill
Jón fæddist á Krakavöllum í
Fljótum í Skagafirði og ólst upp í
Fljótunum. Hann hefúr lengst af
verið til sjós, skipstjóri eða vél-
stjóri, á hinum ýmsu skipum, sín-
um eigin eða annarra. Þá vann
hann um árabil hjá Keflavíkurbæ,
var síðast gangavörður í Myllu-
bakkaskóla í Keflavík um árabil.
Eftir að Jón kvæntist bjuggu þau
hjónin fyrstu hjúskaparár sín í
Grímsey en fluttu til Siglufjarðar
1949 þar sem þau áttu heima til
1964. Þá fluttu þau í Kópavoginn og
ári síðar til Keflavíkur þar sem Jón
hefur búið síðan.
Fjölskylda
Kona Jóns var Bára Sveinbjöms-
dóttir, f. 16.8. 1924, d. 6.6. 1982, hús-
móðir. Hún var dóttir Sveinbjöms
Jóhannessonar bónda og Jónínu
Jónsdóttur húsfreyju.
Jón og Bára eignuðust fjögur
böm. Böm þeirra eru Guðrún Jóns-
dóttir, f. 15.12. 1942, kennari, gift
Gylfa Guðmundssyni skólastjóra og
eignuðust þau þrjú böm, Gylfa Jón,
stjóri 1997-98 og fjölumdæmisstjóri
1998-99. Hann er nú ritari Norður-
landasambands Lionshreyfingar-
innar, NSR og er kjörinn til þess
embættis til ársins 2004.
Halldór var formaður Skýrslu-
tæknifélags Islands um margra ára
skeið og átti sæti í stjórn Samtaka
norrænna skýrslutæknifélaga sam-
hliða. Hann var varaformaður Upp-
lýsingatæknistaðlanefndar og for-
maður Ráðgjafamefndar ríkisins
um upplýsingatækni eitt ár, hefur
setið i verkefnisstjórn um símennt-
un sem fulltrúi menntamálaráð-
herra í nær fimm ár og gegnt fleiri
trúnaðarstörfum.
Halldór er höfundur margra bóka
um tölvumál og hefur skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit um sama
efni auk þess að hafa gefið út tvö
tímarit um tölvur.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 6.9. 1975
Jennýju Ágústsdóttir, f. 6.9. 1953,
tannlækni. Foreldrar hennar: Ágúst
Guðmundur Sigurðsson skipa-
tæknifræðingur, og Guðrún Helga
Lárusdóttir, útgerðarmaður í Hafn-
arfirði.
Dætur Halldórs og Jennýjar: Val-
gerður Guðrún, f. 30.5. 1982, há-
skólanemi; Guðrún Helga, f. 29.11.
1991, nemi.
Systkini Halldórs: Hildur, f. 14.10.
Svein Gunnar er lést 1983 og Báru
Kolbrúnu; Kolbrún Jónsdóttir, f.
28.11. 1944, fulltrúi, gift Páli Jóns-
syni skipstjóra og eiga þau þrjú
börn, Jón Pálma, Báru Sif og Rúnar
Ágúst; óskírð stúlka, f. 21.2. 1948, d.
9. júlí sama ár; Hrafnhildur Jóns-
dóttir, f. 13.1. 1955, sjúkraliði, gift
Skúla Þórarinssyni vélfræðingi og
eru börn þeirra Tinna Ösp og Ró-
bert Orri.
Langafaböm Jóns eru níu.
Foreldrar Jóns voru Sæmundur
Dúason, f. í Langhúsum 10.11. 1889,
d. 1988, kennari og bóndi á Kraka-
völlum í Fljótum, og k.h., Guðrún
Valdný Þorláksdóttir, f. 11.5.1892, d.
13.5. 1980, húsfreyja.
Ætt
Sæmundur var sonur Dúa Krist-
jáns, b. og smiðs á Krakavöllum
Grímssonar, græðara yngri, b. í
Reykhúsum og að Minni-Reykjum í
Flókadal Magnússonar, græðara,
spitala- og klausturhaldara á
Möðruvöllum í Eyjafirði Grímsson-
ar, græðara eldri, b. á Espihóli í
Eyjafirði Magnússonar. Móðir
Magnúsar á Möðruvöllum var Sig-
urlaug Jósefsdóttir, b. að Ytra-
Tjarnarkoti Tómassonar, b. að
Hvassafelli, ættfóður Hvassafells-
sjúkraþjálfari og nuddari í Reykja-
vík.
Foreldrar Halldórs: Kristján Stef-
án Sigurðsson, f. 14.11. 1924, fyrmm
héraðslæknir á Patreksfirði og fyrr-
rnn yfirlæknir á Sjúkrahúsi Kefla-
víkur og Valgerður Guðrún Hall-
dórsdóttir, f. 20.4. 1929, húsmóðir.
Þau eru bæði látin.
Ætt
Kristján var sonur Sigurðar Sig-
urðssonar og Stefaníu Guðnadóttur
frá Hælavík á Homströndum. Rit-
ættar Tómassonar, ættfóður Kollu-
gerðarættar Sveinssonar.
Jósef var langafi Kristjáns, afa
Hriflu-Jónasar, Jóhannesar, afa Jó-
hanns Sigurjónssonar skálds,
Ingiríðar, langömmu Steins Stein-
ars, og Finns Jónssonar ráðherra,
afa Hallgríms Snorrasonar hag-
stofustjóra. Bróðir Jósefs var Jónas,
afi Jónasar Hallgrímssonar. Móðir
Sigurlaugar var Ingibjörg, systir
Gunnars í Upsum, föður Gunnars í
Laufási, afa Hannesar Hafstein.
Móðir Gríms á Minni- Reykjum var
Margrét Benediktsdóttir, vinnu-
manns á Höfða, Benediktssonar.
Móðir Margrétar var Halldóra Sig-
fúsdóttir, prófasts á Höfða Jónsson-
ar. Móðir Dúa Kristjáns var Ólöf
Ólafsdóttir, b. á Rifkelsstöðum Jós-
höfundamir Fríða og Jakobína Sig-
urðardætur em systur Kristjáns.
Jakobína er nú látin. Valgerður var
dóttir Halldórs Ámasonar, bónda í
Garði í Mývatnssveit, og k.h., Sig-
ríðar Jónsdóttur. Þura í Garði og
Jón Árnason, afi Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, voru systkini Halldórs
Árnasonar.
Halldór og Jenný halda daginn
hátíðlegan með fjölskyldu og vin-
um, í Hafnarfirði, á afmælisdaginn.
efssonar, bróður Sigurlaugar.
Móðir Sæmundar var Eugenía
Jónsdóttir Norðmanns, pr. á Barði í
Fljótum Jónssonar, frá Fomhaga í
Hörgárdal Guðmundssonar, bróður
Vatnsenda-Rósu. Móðir Jóns Norð-
manns var Margrét Jónsdóttir, pr.
og skálds á Bægisá Þorlákssonar.
Guðrún Valdný var dóttir Þor-
láks, b. og skipstjóra á Lambanes-
Reykjum í Fljótum Þorlákssonar, b.
þar Þorlákssonar, b. á Illugastöðum
Þorlákssonar, b. þar Bjömssonar, b.
þar Þorlákssonar, b. þar Ólafssonar,
Þorlákssonar, pr. á Miklabæ, Ólafs-
sonar. Móðir Þorláks, eldra á
Lamba-Reykjum var Anna Jónsdótt-
ir rika á Brúnastöðum, Jónssonar,
skólakennara í Noregi Jónssonar,
frá Löngmnýri í Skagafirði Rafns-
sonar á Skefilsstöðum í Laxárdal
Jónssonar, pr. í Hvammi í Laxárdal
Þórðarsonar. Móðir Þorláks skip-
stjóra var Guðrún Jónsdóttir, b. á
Lambanes-Reykjum Jónssonar, b. á
Lambanesi Þorfinnssonar, b. á
Lambanes-Reykjum Magnússonar,
b. á Kálfsá í Ólafsfirði. Móðir Jóns á
Lambanesi var Ingibjörg Bjama-
dóttir. Móðir Guðrúnar var Sigur-
laug Sæmundsdóttir frá Lambanesi.
Móðir Guðrúnar Valdnýjar var
Margrét Halldóra ljósmóðir, systir
Dúa Kristjáns.
Jón Sæmundsson
fyrrv. skipstjóri og vélstjóri
m
Jóhann Kr. Sæmundsson, áður til heim-
ilis á Fornhaga 11, Reykjavík, lést á
Hrafnistu, Reykjavík, mánud. 20.5. Út-
för hans fer fram frá Neskirkju mið-
vikud. 29.5. kl. 13.30.
Ágúst Ásgrímsson, fyrrv. leigubílstjóri,
Barðavogi 11, sem lést á Landspitalan-
um í Fossvogi sunnud. 19.5. verður
jarösunginn frá Áskirkju miðvikud. 29.5.
kl. 13.30.
Páll Ólafur Gíslason, Jökulgrunni 2, lést
laugard. 25.5. Jarðsungið verður frá Ás-
kirkju fimmtud. 30.5. kl. 10.30.
Baldur Reynir Baldursson, Skúlabraut
23, Blönduósi, lést á Heilbrigðisstofn-
uninni á Blönduósi föstud. 24.5. sl.
Jarðsett verður frá Blönduóskirkju
föstud. 31.5. kl. 14.
Útför Sesselju Pálsdóttur (Stellu) frá
Sléttu í Reyðarfirði, áðurtil heimilis í
Arahólum 2, Breiðholti, fer fram frá Bú-
staðakirkju föstud. 31.5. kl. 13.30.
Útför Steingríms Björnssonar, Garða-
byggö 6, Blönduósi, fer fram frá Blöndu-
ósskirkju laugard. 1.6. kl. 11.
Fertug
Halldóra Ingimundardóttir
bóndi í Brautartungu í Lundarreykjadal
Halldóra Ingimundardóttir, bóndi
í Brautartungu, Lundarreykjadal,
er fertug í dag.
Starfsferill
HaUdóra fæddist á Blönduósi og
ólst upp í Enni í Refsborgarsveit viö
Blönduós. Hún stundaði grunn-
skólanám á Húnavöllum og síðasta
árið á Blönduósi. Hún stundaði síð-
an nám við Húsmæðraskólann að
Varmalandi í Borgarfirði 1979-80.
Halldóra hóf sambúð á Akranesi
1981 með unnusta sínum, þar sem
hún stundaði almenn verkakvenna-
störf. Hún flutti þaðan í Brautar-
tungu í Lundarreykjadal 1990 og
hefur búið þar síðan.
Halldóra hefur verið formaður
kvenfélags Lunddæla frá 1999 og
syngur í Freyjukómum.
Fjölskylda
Hálldóra giftist 30.5.1997 Guðna
Eðvarðsyni, f. 20.7. 1960, bónda, en
þau hófu sambúð 1981. Guðni er
sonur Eðvarðs Péturs Torfasonar, f.
14.6. 1919, og k.h., Guðfinnu Torf-
hildar Guðnadóttur, f. 7.12. 1928.
Böm Halldóru og Guðna eru Ingi-
mundur Pétur Guðnason, f. 27.10.
1980, starfsmaður Norðuráls, búsett-
ur á Akranesi en sambýliskona
hans er Ríkey Björk Magnúsdóttir
og sonur þeirra er Aron Kristinn, f.
3.10. 1999; Einar Öm Guðnason, f.
31.7.1991; Guðfinna Sif Guðnadóttir,
f. 20.5. 1994.
Systkini Halldóru eru Jósteinn
Ingimundarson, f. 12.4. 1966, lager-
stjóri, búsettur í Reykjavík; Fjóla
Ævarsdóttir, f. 22.12. 1970, leiðbein-
andi og nemi, búsett á Skagaströnd,
gift Kristjáni Karlssyni sjómanni og
eiga þau þrjú böm; Ingibjörg Ingi-
mundardóttir, f. 17.2. 1972, kjötiðn-
aðarmaður, búsett í Enni og á hún
eitt bam en unnusti hennar er
Kristófer Máni Bogason.
Foreldrar Halldóru: Ingimundur
Ævar Þorsteinsson f. 1.3. 1937, og
k.h. Ingibjörg Jósefsdóttir 9.7. 1944,
bændur í Enni.
Ætt
Ingimundur Ævar er sonur Guð-
mundar Þorsteins Sigurðssonar,
bónda í Enni, og k.h., Halldóru Sig-
ríðar Ingimundardóttur.
Ingibjörg er dóttir Jósefs Sigfús-
sonar og Fjólu Kristjánsdóttur, þau
eru búsett á Sauðárkróki.
Halldóra og Guðni taka á móti
fjölskyldu og vinum þann 31. maí í
félagsheimilinu Brautartungu frá
kl. 20.00.