Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 21
21
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002
IDV
Tilvera
Keir Dullea 66 ára
Leikarinn Keir Dullea,
sem þekktastur er fyrir
að hafa leikið aðalhlut-
verkið í meistaraverkinu
2001: A Space Odyssey, á
afinæli í dag. DuUea sem
á sjöunda áratugnum
þótti mjög efnilegur, lék aðalhlutverk-
ið í nokkrum athyglisverðum kvik-
myndum, en öfugt við það sem hefði
átt að gerast fór stjama hans dvínandi
eftir 2001... og hefur hann nánasta að-
allega haldið sig við leikhúsið auk
smáhlutverka í kvikmyndum. Dullea
er fjórgiftur, lengst af var hann giftur
leikkonunni Susie Fuller, sem lést
1998. Þau áttu tvö böm.
Stjörnuspá
Gildir fyrir fímmtudaginn 30. maí
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.):
. Leiddu hugann að
sjálfum þér í dag og
sjáðu hvort ekki er
eitthvað sem mætti
betur fara .
Happatölur þinar eru 8, 19 og 35.
Fiskamlr (19. fehr.-?Q. marsl:
Þú átt auðvelt með
lað gera öðrum til
geðs í dag og fólk
kann vel að meta
starf þitt.
Happatölur þinar eru 3, 25 og 27.
Hrútuflnn (21. mars-19. anríH:
. Þér bjóðast óvenjulega
r mörg tækifæri i dag í
vinnunni en það
krefst þess hins vegar
að þú leggir töluvert á þig og
vinnir mikið.
Nautið (20. april-20. mail:
■ Þú ert of viðkvæmur
Wh fyrir gagnrýni og ættir
að reyna að taka
henni betur. Ferðalag
gæn vaidið vonbrigðum.
Happatölur þínar eru 8, 35 og 38.
Tvíburamlr (21. maí-21. iúníl:
V Atburður sem gerðist
fyrir nokkru gæti haft
_ i i áhrif á daginn. Þú
þarft að vera viðbúinn
breyttri dagskrá.
Happatölur þínar eru 2, 15 og 21.
Krabbinn (22, iúní-22. iúin:
Þú verður fyrir ein-
I hverri truflun í dag og
hún raskar deginum
aðeins. Það er aðeins
tímabundið og þú þarft ekki að
hafa neinar áhyggjur.
L)ónlð (23. iúlí- 22. áeústl:
, Ef þú ert sjálfsöruggur
í fasi áttu auðveldar
með að fá aðra til að
hjálpa þér við að fram-
kvæma hugmyndir þínar.
Happatölur þínar eru 7, 11 og 24.
Mevlan (23. áeúst-22. seoU:
ii* Fjármál fjölskyldunn-
<\\\^ ar fara batnandi.
þér finnst þú
^ f þurfa á hjálp að
halda skaltu ekki hika við að
biðja um hana.
Vogin (23. sent.-23. okt.C
Þú skalt gæta þín að
sökkva þér ekki í of
mikla vinnu. Taktu
þér hlé og vinnan
gengur betur á efdr.
Happatölur þinar eru 12, 20 og 31.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.):
j Þú gætir lent í vand-
ræðum með að fá fólk
(til að hjálpa þér við
| verkefni sem þú
vinnur af því að allir virðast
vera uppteknir.
Bogmaðurinn (22. nftv.-21. des.l:
.Fyrri helmingur dags-
'ins verður rólegur en
\ eitthvað óvænt bíður
____þin í kvöld, liklega í
sambandivið félagslifið.
Happatölur þínar eru 17, 23 og 29.
Steingeitin (22. des.-i9. ian.):
Þér gengur vel að ein-
beita þér í vinnunni í
dag og fá fólk á þitt
band en einkalífið
gengur ekki sem skyldi. Farðu
varlega í viðskiptum.
Söguþing í Odda fram á laugardag:
Allt snerist um heiðurinn
f
- segir Sólborg Una sagnfræðingur
jarðarhafið til viðmiðunar.
Ekki vill hún meina að óblíð
náttúra hafi haft mótandi
áhrif hér í norðrinu. „Ég álít
beggjaættarkerfið vera skýr-
inguna," segir hún.
Eggjuðu til dáða
„íslensku konurn-
ar virðast hafa verið
útilokaðar frá hinu
opinbera lífi og þess
vegna áttu þær oft
erfitt með að verja
heiður sinn. Þær máttu
ekki vera karlmannleg-
ar og grípa til vopna. Það
þótti ekki viðeigandi.
Samt gekk heiðurinn
út á blóðhefndir og
konurnar urðu að fá
sínu framgengt
gegnum karlmenn i
kringum sig. Þær
eggjuðu þá, not-
uðu orð og
tákn-
rænar athafnir sem þóttu leiða
til heiðurs fyrir fjölskyldur
þeirra," segir Sólborg Una.
Hún tekur þó skýrt fram að
staða íslensku konunnar á þess-
um tíma hafi ekki verið góð í
okkar merkingu og að almúga-
konur á íslandi hafi verið í
annarri stöðu en höfðingjakon-
ur. En voru karlmenn á þessum
tíma ánægðir með sterkar eigin-
konur? „Þetta er góð spurning,“
segir Sólborg Una, enda sannur
skörungur sem vill takast á við
eitthvað krefjandi. „Hetjan var
þannig að litið var upp til henn-
ar en hún gat líka rekist illa,
enda ávallt tilbúin að grípa til
vopna. Eins var það með kven-
skörunginn. Hún naut virðing-
ar en gat verið erfið í sam-
búð.“
Skírlífið ekki skilyrði
- Svo er það skömmin. „Já, í
öðrum fæðarsamfélögum er
skömmin eiginlega kvengerð.
Þar gengur allt út á að konan
sé skírlíf fram að giftingu og
haldi ekki fram hjá og þótt
hennar persónulegi heiður sé
enginn getur hún kallað
skömm yfir ljölskylduna. Mér
finnst hins vegar að á íslandi
hafi ekki verið lagt eins mikið
upp úr velsæmi kvenna og í
hinum fæðarsamfélögunum,"
segir Sólborg Una sem með
lestri íslendingasagnanna hef-
ur fengið út þessa mynd. Fyr-
irlestur hennar er í málstofu
um kynjafræði sem stendur
frá kl. 9-12.15 í fyrramálið í
Odda, stofu 101.
-Gun.
MYND E.ÖL
Sagnfræöingurinn
Sólborg Una kom frá Bret-
landi á Söguþingiö. Þar
stundar hún mastersnám
í notkun tölvu viö forn-
leifarannsóknir.
„Heiður á þjóðveldisöld var
ekki eins og við þekkjum hann í
dag. Hann var lífsstíll sem allt
snerist um. Kenningar eru um
að í svokölluðum fæðarsamfélög-
um hafi hann byggst á hinum
karlmannlegu gildum og konur
hafi aðeins átt hlutdeild í heiðri
eiginmannsins. Ég tel íslenska
samfélagið skera sig nokkuð úr
þar því við áttum kven-
skörimga innan um sem
ekki hugsuðu einungis
um heiður og hagsmuni
manns síns og heimilis
heldur einnig uppruna
fjölskyldu sinnar.“
Þetta mælir Sólborg
Una Pálsdóttir sagn-
fræðingur, einn fyrirles-
ara á forvitnilegu Sögu-
þingi sem hefst í Odda í
fyrramálið og stendur í
tvo daga. Erindi Unu
nefnist Heiður og
skömm. Hlutverk
kvenna í íslensku fæðar-
samfélagi. Það fjallar
um stöðu íslensku kon-
imnar á þjóðveldistim-
anum (930-1262), sem
hún telur hafa verið
betri en í ýmsum öðrum
fæðarsamfélögum og
hefur smáríki . á
Balkanskaga og við Mið-
Málþing um dauða og sorg í lífi barna í Bústaðakirkju í dag:
Gjald karlmennskunnar getur verið stórt
„Það sem ég ætla að tala um er
sorg, depurð og áhættuhegðun hjá
bömum og unglingum. Hvað ber að
varast og hvernig skal bregðast
við,“ segir Baldur Gylfason sálfræð-
ingur um erindi sitt á málþingi um
dauða og sorg í lífi bama sem hald-
ið er í Bústaðakirkju í dag. Þingið
hefst kl. 16 og er ætlað almenningi.
Heilbrigð sorg og hættuleg
Baldur hefur unnið með hópum
bama sem hafa misst foreldri og
það starf hefur gefið góða raun.
Hann segir sorgina hafa margar
birtingarmyndir enda kalli söknuð-
ur og missir fram flóð tilfinninga,
bæði við dauða og skilnað. „Mér
fmnst mikilvægt að greina á milli
heilbrigðrar sorgar og hættulegrar.
Eðlileg sorgarviðbrögð em grátur,
depm-ð og vansæld. Þau þekkjum
við flest sem höfum fundið tiL Það
er líka eðlilegt að röskun verði á
daglegu lifi. Fólk eigi erfitt með að
einbeita sér í einhvem tíma eftir
missi og sé slegið út af laginu. Sorg
getur líka leitt ýmislegt gott af sér
og þroskað fólk. Hún getur haft
græðandi áhrif á samband við eftir-
lifandi foreldri, systkini eða vini
sem syrgja sarnan."
„Reiði er eðlOeg viðbrögð við
sorg,“ heldur Baldur áfram. „Þegar
um skilnað er að ræða beinist hún
gegn ákveðnum einstaklingi og er
þá jafnvel viðurkennd. Ég má vera
reiður út í fyrrverandi kærustu eða
mömmu og pabba. Þess vegna er
mun erfiðara að finna til reiði þeg-
ar einhver deyr og tala um þá til-
finningu. Reiðinni fylgir mikil sekt-
arkennd og einangrun í framhaldi
af henni. Hún situr oft eftir og getur
þróast út í slæma hegðun."
- Áhættuhegðun? „Já, sem birtist
í almennu kæruleysi, mikilli
DV-MYND E.ÓL.
Sálfræöingurinn
„Þaö er erfitt aö finna til reiöi þegar einhver deyr og tala um þá tilfinningu, “ segir Baldur meöal annars.
drykkju, neyslu fíkniefna eða
hraðakstri, einhverju sem sýnir að
ungmenninu sé sama um allt. Það
er flótti frá raunveruleikanum."
Að þora að vera glaður
- Hverju á fullorðna fólkið helst
að fylgjast með ef bam eða ungling-
ur verður fyrir sorg?
„Það er einangrunin fyrst og
fremst og hana er mikilvægt að
rjúfa með því að tala opinskátt rnn
líðanina. Oft hafa strákar meiri til-
hneigingu til að byrgja með sér erf-
iðu tilfinningamar en stelpur. Þeir
vilja vera sterkir og hlífa öðrum en
gjald karlmennskunnar getur verið
stórt. Slysatíðni stráka 15-19 ára er
helmingi hærri en hjá stelpum og
þrisvar sinnum hærri hjá 20-24 ára.
Það segir mikið.
Það er líka mikilvægt að þora að
vera glaður mitt í sorgarferlinu ef
svo ber undir og skammast sín ekki
fyrir þá tilfinningu. Hins vegar setja
sumir upp grímur og þykjast sífellt
vera glaðir. Það getur verið hættu-
rnerki," segir Baldur og klykkir út
með heilræði: „Númer eitt tvö og
þrjú er að tala saman. Það hjálpar ^
öllum.“
-Gun. ~