Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002
Rafpostur: dvsport@dv.is
- keppni í hverju orði
Sigur gegn Grikkjum
íslenska landsliðið í handknattleik
bar sigurorð af Grikkjum, 28-25, i æf-
ingaleik í Þessalóníku í gærkvöld. Stað-
an í hálfleik var 15-10, íslendingum í
vil.
Ólafur Stefánsson átti frábæran leik
með íslenska liðinu og skoraði 11 mörk,
Einar Öm Jónsson skoraði 4 mörk,
Patrekur Jóhannesson og Ragnar Ósk-
arsson skoruðu 3 mörk hvor, Dagur Sig-
urðsson, Sigurður Bjamason og Guðjón
Valur Sigurðsson skoruðu 2 mörk hver
og Róbert Sighvatsson skoraði eitt mark
-ósk
Olafur Þorðarson, þjaifari
Islandsmeistara Skagamanna.
hefur um margt aö hugsa þessa
dagana en Skagamenn töpuöu
þriöja leik sinum i röö i gær.
DV-mynd Pjetur
Ólafur Þórðarson, ÍA:
Skandall
„Það er alveg ljóst að þetta var al-
gjör skandall að tapa þessum leik
svona illa. Menn vom steinsofandi í
byrjun leiks og engan veginn tilbún-
ir til að taka á móti þeim og þeir
keyra einfaldlega yfir okkur á
grimmdinni.
Við emm svo aðeins að komast
aftur inn í leikinn þegar mark núm-
er tvö kemur og það setur okkur
enn þá meira út af sporinu og við
sáum aldrei til sólar í þessum leik.
Við náðum reyndar að setja á þá
mark en engu að síður verður að
segjast eins og er að frammistaðan
var fyrir neðan allar hellur.
Slakur liösandi
Mér sýnist að liðsandinn í dag sé
ekki til fyrirmyndar en það er von-
andi að það lagist. Við reiknuðum
með að þetta yrði mjög erfitt tímabil
og við erum búnir að missa sjö leik-
menn frá síðasta ári en fáir virðast
gera sér grein fyrir því. Fyrir þetta
unga lið, sem vann titilinn í fyrra,
er þetta mjög stórt skarð sem
hoggið var og við verðum einfald-
lega að gefa okkur tíma, vera þolin-
móðir og líta björtum augum á
framtíðina," sagði Ólafur Þórðar-
son, þjálfari ÍA, eftir leik. -esá
Olafur sá besti
annaö áriö í röð
Ólafur Stefánsson er
besti leikmaöur þýsku
Bundesligunnar tvö síö-
ustu tfmabil, aö mati
Handball Magazin. Hann
fékk 74 stig, 23 stigum
fleiri en næsti maður.
IA (4-3-3)
Ólafur Þór Gunnarsson ... 4
Sturlaugur Haraldsson .... 2
Reynir Leósson .........2
Gunnlaugur Jónsson......2
Sturla Guðlaugsson......1
(57., Hermann G. Þórsson . 3)
Baldur Aðalsteinsson....1
Grétar Rafn Steinsson .... 4
Guðjón Sveinsson .......2
(57., Garðar Gunnlaugsson . 2)
Ellert Jón Bjömsson ....3
(63., Jón Pétur Pétursson .. 2)
Rjörtur Hjartarson .....1
Jóhannes Gísiason.......2
Dómari: Bragi Bergmann
(2).
Áhorfendur: 1252.
Gul spiöld:
Gunnlaugur,
Hermann (ÍA) -
Vignir
(Grindavík).
Rauð spiöld:
Engin
Skot (á mark):
17 (5) - 11 (8)
Horn:
4-5
Aukaspyrnur:
9-14
Rangstöður:
3-2
Varin skot:
Ólafur 5 - Atli 4.
Grindavík (4-4-3)
Atli Knútsson ........4
Ray A. Jónsson........3
Guðmundur A. Bjamas. . 2
Ólafur Öm Bjamason ... 5
Gestur Gylfason ......4
Óli Stefán Flóventsson ... 2
Paul McShane..........4
Vignir Helgason .......3
(85., Eysteinn Hauksson .. -)
Grétar Ólafur Hjartarson . 5
Sinisa Kekic .........4
Scott Ramsay..........4
Maður leiksins hjá DV-Sport:
Grétar Hjartarson, Grindavík
Gæöi leiks
Ólafur Stefánsson,
handknattleiksmaður
hjá Magdeburg, var
annað árið í röð val-
inn besti leikmaður
þýsku deildarkeppn-
innar af þjáifurum og
fyrirliðum liða í deild-
inni.
Auk þjáifaranna og
fyrirliðanna greiða
landsliðsþjálfarar
Þjóðverja í karla- og
kvennaflokki atkvæði
i valinu sem þýska
tímaritið Handball
Magazin stendur fyrir.
Ólafur fékk 74 stig í
kjörinu, 23 stigum
fleiri en Svíinn Stefan
Lövgren hjá Kiel sem
hreppti annað sætiö.
Sænski landsliðsmark-
vörðurinn og leikmað-
ur Nordhorn, Perter
Gentzel, varð þriðji
með 23 stig. Fjórði var
Oleg Velykky hjá
Essen með 16 stig og
Glenn Solberg hjá
Nordhorn fékk 11 stig.
í fyrra fékk Ólafur 79
atkvæði og vann þá
með 36 stiga mun.
Ólafur var lykilmað-
ur liðs Magdeburg sem
varð meðal annars
Evrópumeistari meist-
araliða en hann
varð fimmti
markahæsti
leikmaður
deildarinnar,
gerði 217
mörk í 34
leikjum.
Auk þess
átti Ólafur
351 stoðsend-
ingu í þess-
um 34 leikj-
um og
Ólafur þvi að
16,7 mörkum
að meðaltali
leik í þýsku d
inni í vetur.
Fyrsta mark leiks ÍA og Grindavíkur kom eftir aðeins 12 sekúndur:
Aftur brenna
- Grétars Hjartarsonar sem sá um Skagamenn - íslandsmeistararnir enn án stiga
„Ég vaknaði snemma i morgun og
horfði á leikinn frá síðasta sumri,
bara rétt til að koma mér í rétta gír-
inn,“ sagöi markaskorarinn Grétar
Hjartarson eftir að hafa endurtekið
leikinn þegar hann skoraði þrennu
gegn Skagamönnum, þá í Grindavík.
Þeim leik lauk með 3-0 sigri heima-
manna og aftur nú skoraöi Grétar öll
mörk manna sinna en annar Grétar,
sem er Steinsson, klóraði í bakkann
fyrir Skagapilta.
Fyrsta markið var ekki flókið.
Gestirnir byrjuðu á miöju. Hár bolti
barst til Sinisa Kekic sem fleytti bolt-
anum áfram inn fyrir varnarlínu ÍA
og þar var Grétar mættur og vippaði
yfir Ólaf.
Næsta mark kom eftir góðan undir-
búning Rays Jónssonar og aðeins 10
mínútum síðar. Við það færðist örlítil
ró yflr leikinn og eftir rúman hálf-
tímaleik fóru heimamenn að komast
betur inn í leikinn með þremur fær-
um sem Ellert Jón Bjömsson skapaði.
Fyrir og eftir hálfleikinn komst
Scott Ramsay í góð færi en ekkert
varð úr þeim. Þegar Ólafi Þórðarsyni,
þjálfara ÍA, leist ekkert á blikuna í
byrjun hálfleiksins skipti hann
tveimur mönnum inn á og breytti
leikkerfmu í 4-4-2. Þá kom enn eitt
kjaftshöggið. Grétar skoraði þriðja
markið en Skagamenn vom þó fljótir
að svara fyrir sig með finu skalla-
marki Grétars Rafns.
Það sem eftir lifði leiks fengu bæði
lið nokkur færi sem þau nýttu ekki.
Sérstaklega fengu Grétar og Óli Stef-
án úr Grindavík góð færi sem þeir
hefðu að öllu jöfnu átt að hafa nýtt.
Grindvíkingar komu greinilega
ákveðnir til leiks og era vel stemmd-
ir þrátt fyrir að hafa aðeins uppskor-
ið 2 stig úr fyrstu tveimur umferðun-
um. Þeir léku fimavel og hættan sem
þeim tekst að skapa með sóknartríói
sínu er stórhættuleg. Skagamenn
vom hins vegar varla skugginn af
sjálfum sér og var áberandi hvað lyk-
ilmenn hðsins vora slakir. Grétar
Rafn og Ólafur í markinu vora lang-
bestu menn hðsins.
„Leikurinn breyttist um leið og
fyrsta markið kom svona snemma,
því að þá þurftum við aö fara að verja
þrjú stig,“ sagði Ólafur Öm Bjama-
son. „En sem betur fer féhum við
ekki í þá gryfju og héldum áfram að
sækja. Skagamenn skorti hins vegar
sjálfstraust og þótt þeir séu kannski
ekki að spha verr en í fyrra þá vant-
aði allan sigurglampa í augu þeirra.
Og nú er það okkar að fylgja eftir
þessum stigum sem við fengum í
kvöld, annars var sigurinn í kvöld
einskis virði,“ sagði Ólafur Örn.
-esá
0-1 Grétar Hjartarson (12 sek., skot utan teigs, skallasending Sinisa Kekic).
0-2 Grétar Hjartarson (11., skot úr teig, fyrirgjöf Rays A. Jónssonar).
0-3 Grétar Hjartarson (59., skot utan teigs, sending Vignis Helgasonar).
1-3 Grétar Rafn Steinarsson (66., skalli innan teigs, aukaspyma Sturlaugs H.)
m x
* SÍMA
DEILDIN
Keflavík 3 2 1 0 6-3 7
Grindavík 3 1 2 0 6-4 5
Þór, Ak. 2 1 1 0 5-4 4
Fylkir 3 1 1 1 5-4 4
KR 3 1 1 1 44 4
ÍBV 3 1 1 1 2-3 4
FH 3 1 1 1 5-7 4
KA 2 0 2 0 2-2 2
Fram 3 0 2 1 3-4 2
ÍA 3 0 0 3 2-7 0
Markahæstir
Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak....3
Grétar Hjartarson, Grindavik .... 3
Sigurvin Ólafsson, KR........ 3
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV . 3
Næstu leikir
KA-Þór Ak.......Fim. 30. maí 20.00
ÍA-FH ............lau. 1. júní 14.00
Grindavik-lBV .... lau. 1. júní 14.00
Þór Ak.-Keflavík .. sun. 2. júní 19.15
KR-KA.............sun. 2. júni 19.15
Fylkir-Fram .... mán. 3. júní 19.15
-Grindavík 1-3 (0-2)