Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 32
Demantar,
°9
skínandi
gull
Laugavegi 35 • ReyRjavík • 552 0020
Viðbótarlífeyrissparnaður
■ Allianz (M
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ - Loforð er loforð
I I MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 Sími; 533 5040 - www.allianz.is
Spilaglaðir íslendingar:
Eyða yfir 2,5 millj-
örðum í spilakassa
- fyrir utan veltu af öllum smávinningum
Islendingar eru sannarlega spilaglöð
þjóð ef marka má svar Sólveigar Pét-
ursdóttur dómsmálaráðherra við fyrir-
spum Rannveigar Guðmundsdóttur al-
þingismanns um tekjur og rekstrar-
kostnað af spilakössum Islenskra söfn-
unarkassa sf. og Happdrættis Háskól-
ans. Þar kemur fram að skráðar tekjur
af þessari spilamennsku eru rúmir 2,5
milljarðar króna árið 2001 og yflr 2,2
milljarðar árið 2000.
Töluverð umræða hefur verið um
það undanfarin ár hvort takmarka
eigi rekstur spilakassa vegna þess að
'þeir ýti undir spilafíkn. Fjölmargir
hafa farið illa út úr slíku og jafnvel
eytt aleigu sinni í spilakössum. Þá
hafi spilafikn splundrað fjölskyldum
með tilheyrandi angist og tjóni. Allt
er þetta þó gert í nafni göfugra sam-
taka. íslenskir söfnunarkassar sf. eru
t.d. í eigu Rauða kross íslands, Slysa-
vamafélagsins Landsbjargar og SÁÁ.
Þá rekur Happdrætti Háskólans spila-
kassa undir nafninu Gullnáman og
renna þeir fjármunir inn í starfsemi
Háskóla íslands.
í fyrirspurn Rannveigar var spurt
um brúttótekjur þessara tveggja
rekstraraðila spilakassa árin 2000 og
2001. Þá var spurt um rekstrargjöld og
hverjar heildarvinningsfjárhæðir
hvors fyrirtækis hefðu verið.
Hjá Gullnámu Happdrættis Há-
skóla íslands eru þeir peningar sem
koma inn tekjufærðir. Aftiu á móti
em þeir peningar sem greiddir em
úr spilakössunum á staðnum í formi
smærri vinninga ekki tekjufærðir.
Það sama á við um tekjuskráningu
íslenskra söfnunarkassa sf. Er því
ljóst að heildarveltan í spilakössun-
um getur veriö mun meiri en fram
kemur f bókháldi fyrirtækjanna og
umtalsverðar fjárhæðir skipt þar um
hendur. -HKr.
DVA1YND GVA
20 dagar til jóla
Þaö styttist til hátíöar Ijóss og friöar og fólk á öllum aldri fariö aö huga aö
undirbúningi hennar. Hjónin Asa Hrefna Jónsdóttir og Jón Magnússon voru
aö velja sér skrautfugla á jólatréö þegar Ijósmyndara bar aö garöi í Blómavali
í Reykjavík og mátti ekki á milli sjá hvor fuglinni var fegurri.
Færeyskur sjómað-
ur fannst látinn
Færeyskur sjómaður fannst lát-
inn í höfninni í Grindavík síðdegis
í gær. Að sögn lögreglu var maður-
inn, sem var 35 ára, í áhöfn fær-
eysks skips sem liggur við festar í
Grindavíkurhöfn. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins mun síðast hafa sést
til mannsins á veitingahúsi í bæn-
um í fyrrakvöld. Hann skilaði sér
ekki um borð og hófst leit að honum
í kjölfarið. Lík mannsins fannst í
sjónum skammt frá skipinu.
Talið er að maðurinn hafi fallið
milli skips og bryggju einhvern
tíma í fyrrinótt en veður var afar
slæmt á þeim tíma. Lögreglan í
Keílavík verst fregna af málinu en
VELDU ÖRYGGI (STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
Kaupmenn óhressir með hækkun mjólkurvara um áramót:
Óttast skriðu verð-
hækkana á nýju ári
- telja óásættanlegt að einokunarfyrirtæki ríði á vaðið
„Þessi fyrirtæki, sem ekki eru í
neinni samkeppni, ryðja veginn
og það er ekki í fyrsta sinn sem
þaö gerist. Þau eru í raun skjól
fyrir marga aðra. Fyrst að þessi
fyrirtæki sjá sig tilneydd til
hækkana á þessum viðkvæma
tímapunkti þá er alveg ljóst að
það verða sambærilegar hækkan-
ir frá mjög mörgum öðrum. Það
er engan vegin ásættanlegt að fyr-
irtæki sem eiga ekki í neinni sam-
keppni og eru vernduð á alla vegu
stýri vísitölum landsmanna,"
sagði Finnur Árnason, forstjóri
Hagkaupa, við DV í morgun.
Mjólkursamsalan og Osta- og
smjörsalan hafa tilkynnt hækkun
á sínum vörum frá og með ára-
mótum og nemur hækkunin um 3
prósentum. Kaupmenn sem DV
hefur rætt við óttast mjög að þess-
ar hækkanir komi af stað skriðu
hækkana á nýju ári, menn fái
þarna þá afsökun sem þeir þurfi
til að hækka. Þessar hækkanir
Vegur þungt
Matvara skiptir sköpum í
heimilisbókhaldi og veröhækkanir á
henni vega því þungt.
kæmu þá í kjölfar vörulækkana
sem einkennt hefðu síðustu vikur
en landsmenn hafa aldrei haft
tækifæri til að halda eins ódýr jól.
Offramleiðsla er á kjöti í landinu
og hefur jólasteikin aldrei verið
ódýrari. Þannig er hangikjöt
15-20 prósentum ódýrara en fyrir
síðustu jól og lægra verð á ham-
borgarhrygg hefur ekki sést.
„Það er náttúrlega til skammar
að þessi fyrirtæki skuli ríða á
vaðið með hækkanir því við get-
um ekki farið neitt annað með
okkar viðskipti. Við þurfum að
kyngja þessari hækkun hvað sem
tautar og raular. Það er hlálegt til
þess að hugsa að þingmenn hafa
verið ,með árásir á matvöruversl-
unina og þóst hafa verið að velta
við steinum til að fá umræðu um
verðmyndun en eru um leið að
skapa aðstæður fyrir hækkanir
eins og þessar," sagði Guðmund-
ur Marteinsson í Bónusi við DV í
morgun. -hlh
Krabbameinssjúku börnin
studd vegna innbrots
Vegna fréttar DV í gær um að
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
bama hefði nánast lamast eftir að
nýjum tölvum hafði verið stolið það-
an, nú í upphafi fjáröflunarvertíðar
- hafa þrjú fyrirtæki og fjöldi fólks
haft samband í þeim tilgangi að
reyna að bæta skaöann en jafnframt
að lýsa vanþóknun sinni á því hve
innbrotsþjófar leggjast lágt - að
stela frá krabbameinssjúkum böm-
um.
BT-búðin og Smart-auglýsingar
ákváðu að gefa félaginu ágóða af
sameiginilegum sms-leik fyrirtækj-
anna - 150 þúsund krónur. Hugbún-
aðarfyrirtækið Hugur hyggst síðan
gefa Styrktarfélaginu nýjar tölvur
og aðstoða við að koma tölvukerfmu
upp að nýju. Mikið þakklæti ríkir á
meðal félagsmanna en enn er vonast
eftir að þjófarnir sjái að sér og skili
a.m.k. búnaði úr tölvunum sem
stolið var þar sem í þeim voru ómet-
anleg gögn sem nýtast engum öðr-
um en starfsemi hinna krabba-
meinssjúku barna sem síst allra
mega við slíku.
Lögreglan heldur áfram að rann-
saka innbrotið sem var framið í
húsnæði félagsins í Hlíðasmára að-
faranótt laugardags. Einni nótt síð-
ar er talið að sömu menn hafi verið
á ferð, einnig í Hlíðasmára, en þá á
stað þar sem nýtt fyrirtæki var að
koma sér fyrir, m.a. með tölvur i
kössum. -Ótt
Ríkisfjármál::
Stefnt er að
milljarði í afgang
Stefnt er að því að afgangur af
rekstri ríkissjóðs á næsta ári verði
um einn milljarður króna að frá-
dregnum tekjum af sölu eigna, seg-
ir Einar Oddur Kristjánsson, vara-
formaður fjárlaganefndar Alþingis.
„Ég tel þaö allt í lagi; þetta eru
mjög passíf fjárlög, enda erum við
í jafnvægisstöðu í næstum öllum
þáttum þessa þjóðlífs," segir Einar
Oddur.
Þegar fjárlagafrumvarpið var
lagt fram í haust var gert ráð fyrir
að tekjuafgangurinn yrði 2,2 millj-
arðar fyrir utan 8,5 milljarða
óreglulegar tekjur. Þriðja og síð-
asta umræða um fjárlagafrumvarp-
ið verður á'Alþingi á föstudaginn.
Einar Oddur svarar gagnrýni á
eyðslusemi þingmanna í ýmis
„gæluverkefni" í yfirheyrslu DV í
dag og segir að í stórum dráttum
sé mjög rangt að halda því fram að
þingið spreði peningum af ábyrgð-
arleysi. -ÓTG
Nánar á bls. 6.
Kj örnefndarf ulltrúi:
Taldi listann vera
frágenginn
„Já, það stemmir, ég var í kjör-
nefndinni," segir Sigurrós Þorgríms-
dóttir stjómmálafræðingur, en þessi
sama kjörnefnd lagði um nýliðna
helgi til að Sigurrós skipaði 6. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur-
kjördæmi.
„Ég var reyndar ekki í nefndinni
þegar gengið var frá lokatillögu henn-
ar því að ég fór til útlanda á mánudeg-
inum. Ég hélt að þá hefði verið lokið
við listann, en svo var hringt í mig
daginn áður en nefndin átti að skila af
sér og ég beðin að taka sæti á honum.
Eftir miklar fortölur sagðist ég tilbúin
til þess,“ segir Sigurrós.
Hún segist almennt telja það óheppi-
legt að kjömefndarfólki sé sjálfu stillt
upp á framboðslista. Hennar nafn hafi
hins vegar ekki verið til umræðu í
nefndinni nema fyrst þegar hún hóf
störf, og þá hafi hún aftekið með öllu
að taka sæti á listanum. -ÓTG
Sjálfvírk slökkvitæki
ir sjónvörp
1517-2121
H. Blöndal eht
Auðbrekku 2 ■ Kóp
Innflutningur og sala
dal.com
Yfir
dagar til jóla
150
fyrirtæki
ER m/nu FYRIR JÚLIN
Ky"th,et(cj\
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i