Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 32
I I mm » ora Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz (ÍÍD Loforð er loforð FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is Velferðarsjóður barna á íslandi: Vill setja 50 millj ónir f hjúkrunar- heimili barna - undir forystu fyrrverandi heilbrigðisráðherra & r Jl Undanfarið hafa staðið yflr viðræð- ur milli Velferðar- sjóðs bama á ís- landi og heilbrigð- isráðuneytis um að koma á laggim- ar hjúkrunarheim- ili fyrir langveik börn. Hugsunin með slíku heimili er að þangað geti böm komið til til endurhæflngar eða hvfldarinnlagnar. „Þetta mál er langt komið og ég vænti þess að hægt verði að ganga frá samn- ingum innan tíðar,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir, fv. heilbrigðisráðherra, sem er er framkvæmdastjóri sjóðsins. Ingibjörg Pálmadóttir. Sjóðurinn góði var stofnaður snemma á líðandi ári og fékk hann i heimanmund 500 milijónir króna frá Is- lenskri erfðagreiningu. Þegar hefur fjármunutn verið úthlutað til verkefna af ýmsum toga. Ingibjörg segir sjóðinn tilbúinn að leggja 50 milljónir króna til þessa „... og er fólk að horfa til þess að hægt verði að nýta eina af álmum gamla Kópavogshælisins til þessa. Þau húsakynni henta mjög vel og ég hlakka tfl þess að sjá þetta verkefni ganga upp,“ segir ráðherrann fyrrverandi i viðtali við DV-Magasin sem kemur út í dag. Þar er ítarlega rætt við Ingibjörgu um líf að loknum ráðherradómi - og þau verkefiii sem hún er að fást við í dag. -sbs DV-MYND HiLMAR POR Spenningur Þessi litla snót var aö skoöa sig um i Kringiunni. Þaö er margt aö sjá í jóla- tíöinni og án efa margargjafir sem hana langar í. Hún gafsér þó tíma til aö líta upp eitt andartak áöur en hún hétt áfram aö skoöa þaö sem fyrir augu bar. Jónas Bach Dick Ringler, þýðandi Jónasar Hall- grímssonar á ensku, sagði í fyrirlestri við Háskóla íslands að í uppbyggingu kvæða sinna og flókinni samtvinnun hefðar og byltingarkenndra nýjunga væri Jónas sambærilegur við þýska tónskáldið Johann Sebastian Bach. Og Ringler veit hvað hann syngur því hann hefur um margra ára skeið rannsakað verk þessara tveggja höf- uðsnillinga. -SA Sjá frásögn af fyrirlestrinum á bls. 15. Spennandi tilboö alþjóðlegra verktaka í Kárahnjúka opnuð á morgun: Fjórir berjast um 40 milljarða verk dagar til jóla Yfir 150 fyrirtæki KrtKCi(e<j\ Fjögur tilboð í gerð Kára- hnjúkastíflu og aðrennslisganga að virkjun verða opnuð eftir há- degi á morgun i stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg. Hér er um að ræða stærstu til- boð sem um get- ur á íslandi, trú- lega um eða yfir 40 milljarða framkvæmd. Föstudaginn 13. desember er síð- an ætlunin að samninganefndir setji upphafsstafi sína við samn- Stefán Friðfinnsson. Þorstelnn Hilmarsson. ‘9 tn/i !R HÍR/RUI ÍÍRIR IðLIN inga bandariska álrisans Alcoa og Landsvirkjunar um orkukaup frá væntanlegri stórvirkjun eystra. Sú undirskrift þýðir að ekki verður til baka snúið. Tilboðsgjafar hafa að uhdan- fórnu verið að ganga úr skaftinu án þess þó að það skipti máli varð- andi tilboðin. Síðast í gær barst Landsvirkjun bréf sænsk/norska borverktakans NCC þar sem til- kynnt er að fyrirtækið verði ekki með íslenskum aðalverktökum hf. og þýska risafyrirtækinu Hochtief í tilboðinu. „Þetta eru alvörumenn og auð- vitað hefðum við viljað samstarf við þá,“ sagði Stefán Friðfinnsson, forstjóri íslenskra aðalverktaka hf„ í morgun. „En þrátt fyrir að NCC gangi úr skaftinu uppfyllum við öll skilyrði Landsvirkjunar. Við munum áfram njóta þeirrar, vinnu sem NCC vann,“ sagði Stef- án. NCC er sérfræðingur í borun og er með á sínum vegum tvo risa- bora, milljarða verkfæri, sem fara um heiminn og eru leigð út til sér- stakra verktaka. Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, sagði í morgun að vissulega hefði verið betra að hafa NCC með í hópnum. Kárahnjúkar syöri. Fyrirtækin innan hópsins hefðu ekki náð saman um tilboðið rétt eins og gerist. Hins vegar væri mikils virði að aðilarnir hefðu að- gang að gögnum og athugunum NCC sem væri vissulega til hags- bóta. Átta verktakafyrirtæki víða um heim voru í forvali en eftir eru 4 sem hafa leyfi til að bjóða i verk- hlutana tvo, 190 metra háan stíflu- garð sem verður 700 til 800 metra þykkur neðst og 40 kílómetra að- rennslisgöng sem verða 7 metrar í þvermál en sá hluti verksins mun trúlega verða dýrari. -JBP SAU PB\R LIKA TVÖFALT? Skipulagsbreytingar hjá Eimskip: Nýtt flutningafyrirtæki og nýtt merki Um áramótin hefst nýr kafli í sögu Eimskipafélagsins. Samkvæmt nýju skipulagi verður til nýtt flutningafyr- irtæki, Eimskip ehf. sem verður eitt af þremur sjálfstæðum fyrirtækjum innan móðurfélagsins - Hf. Eimskipa- félags íslands. Þá verður tekið upp nýtt merki fyrir félagið. Eimskip ehf. annast rekstur flutn- ingastarfseminnar. Erlendur Hjalta- son, framkvæmdastjóri utanlands- sviðs, mun taka við starfi fram- kvæmdastjóra hins nýja einkahluta- félags, Eimskips ehf. Innan Eimskips verða þrjár meg- inrekstrareiningar sem verið hafa grunneiningar í rekstrinum á und- anfómum árum, sölu- og mark- aðssvið, rekstrar- svið og ut- “essi eimskip ar* fr£un- kvæmdastjórum. Höskuldur H. Ólafsson mun áfram leiða rekstrar- svið og Guðmundur Þorbjömsson sölu- og markaðssvið. Nýr fram- kvæmdastjóri utanlandssviðs verð- ur Garðar Jóhannsson. Einnig verða þrjár stoðeiningar; fjármál, starfsþróunarmál og upplýsinga- tækni. Stefán Ágúst Magnússon, for- stöðumaður fjárhagsdeildar, mun taka við stöðu fjármálastjóra. Jón- ína Sanders hefur verið ráðin sem starfsmannastjóri. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu 1 stöðu upplýs- ingatæknistjóra. Samhliða þessum breytingum tekur Eimskip upp sérstakt merki og slagorð. Slagorðið „Greið Ieið“ endurspeglar loforð um skjóta og góða þjónustu í flutningum um all- an heim, eins og segir i fréttatil- kynningu frá félaginu. -HKr. Kjötfjallið sjaldan verið hærra Offramleiðsla á nánast öllum teg- undum kjöts heldur áfram og því hækkar kjötfjallið og hækkar. Slátur- leyfishafar héldu stjórnarfund í gær og þar barst þessi vaxandi vandi land- búnaðarins að sjálfsögðu í tal. Jón Helgi Bjömsson á Húsavík er formað- ur samtakanna. Hann segir að slátur- leyfishafar hafi áhyggjur af offram- leiðslu kjöts í landinu en ekki voru lagðar fram á fundinum neinar lausn- ir á vandanum. Offramleiðslan sé mest á kjúklingum og svínakjöti en nokkur stöðugleiki í framleiðslu nautakjöts en einnig sé of mikið af dilkakjöti vegna samdráttar í sölu. Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtakanna, tel- ur að kjötfjallið í landinu sé ekki óskaplega mikið enn sem komið er en eins og spáð er um aukningu á kjúklingaframleiðslu muni vandinn aukast og kjötbirgðir þar með. Hver framleiðslugrein hafi áhrif á aðra þannig að ef ekki sé gripið til ráðstaf- ana mun vandi svínakjötsffamleið- enda einnig aukast sem og sauðfjár- bænda, en þeirra vandi er kannski ffernur sá að dregið hefur úr neyslu á lambakjöti. Helst er von til þess að jöfnuður verði í framboði á nauta- kjöti, en ekki er von til þess að úr svínakjötsffamleiðslu dragi fyrr en kemur fram á vor. -GG Blindrafélagið fékk tvöfalt Meirihluti fiárlaganefndar leggur til fyrir þriðju og síðustu umræðu um fjár- lög, sem verður í dag, að 5 milljóna króna framlag til Blindrafélagsins verði fellt niður. Ástæðan er ekki skyndfleg andúð þingmanna á félaginu heldur er um að ræða leiðréttingu á mistökum sem urðu við gerð fjárlaganna. Á Qár- lagaliðnum „Félagasamtök, styrkir", þar sem lagðir eru til styrkir til tuttugu og átta félagasamtaka, var Blindrafélag- ið nefnilega talið upp tvisvar: fyrst í 15. lið með 5 milljóna króna framlag og aft- ur í 22. lið með 8,5 milljóna framlag. Nú er lagt til að fyrra framlagið - hið lægra - falli niður og komi í staðinn til viðbót- ar þeirri upphæð sem er óskipt í fjárlög- unum. -ÓTG Sjálfvírk slökkvítæki fYrir sjónvörp Sími 517-2121 H. Blöndal ehf. Audbrekku 2 - Kópavogi Innflutningur og sala - www.hblondal.com mamsmm VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 | www.securitas.is /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.