Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 DV Utlönd 11 Bandaríkjamenn halda áfram að beita þrýstingi: Höfum öruggar sannanir fyrir vopnaeign íraka - segir Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði í gær að bandarisk stjómvöld hefðu fyrir því nægar hald- bærar sanncinir að Saddam Hussein hafi yfir gjöreyðingarvopnum að ráða, þrátt fyrir að hann haldi sjálfúr fram því gagnstæða. Fleischer neitaði þó að gera nánari grein fyrir því um hvaða sannanir væri að ræða og sagði að umrædd gögn yrðu send vopnaeftirlitinu í írak. „Hvorki Bush Bandarikjaforseti né Rumsfeld vamarmálaráðherra myndu svo eindregið halda því fram að írakar hefðu yfir gjöreyðingar- vopnum að ráða ef þeir hefðu ekki fyr- ir því nægar öruggar sannanir og ef það væri ekki satt,“ sagði Fleischer í gær eftir að Tariq Aziz, aðstoðar for- sætisráðherra íraks, hafði fuilyrt það í viðtali í fyrradag að Irakar hefðu hvorki yfir sýkla- og efnavopnum eða kjarnavopnum að ráða. Varðandi ásakanir Bandaríkja- Leitarhlé í írak Hlé vargert á vopnaeftirliti í írak í gær og dag af tillitssemi vegna Eid al-Fitr-hátíðahaldanna í lok föstu- mánaðarins Ramadan. manna um það gagnstæða sagði Aziz að hugsanlega mætti líta svo á að hægt væri að nota sum sakleysisleg tæki og tól í tvennum tilgangi og hugsanlega til hemaðar, en þar væri ekki um að ræða gjöreyðingarvopn. Viðbrög Fleischers vom að þetta væri í samræmi við fyrri fullyrðingar íraka. Þeir hefðu áður logið til um vopnaeign sína og gerðu það áfram. Háttsettur íraskur embættismaður sagði í gær að írakar myndu afhenda vopnaeftirlitinu vopnaskýrslu sina á morgun, degi áður en frestur Öryggis- ráðsins rennur út, en hlé var gert á vopnaeftirlitinu í gær og dag af til- litssemi við Eid al-Fitr-hátíðahöldin í lok föstumánaðarins Ramadan. Saddam Hussein íraksforseti ávarp- aði þjóð sína í sjónvarpi í gær eftir langt hlé og hvatti fólk til þess að gefa vopnaeftirlitsmönnum tækifæri til þess að sinna störfum sínum í aðgerð- um sem hann kallaði „óréttlátan hroka“ af hálfu Bandaríkamanna. REUTER&MYND Naktí kúrekinn í snjókomu Götulistamaðurinn Robert Burck, sem gengur undir nafninu „nakti kúrekinn“, lét snjókomuna í New York ekki aftra sér frá því að spila og syngja á hinu fræga Times Square í heimsborginni. Busck, sem kemur frá Cincinnati í Ohio, þvertók fyrir að sér væri kalt, enda „logandi afástríðu". Mikil snjókoma setti annars allt á annan endann á austur- strönd Bandaríkjanna í gær og létust tugir manna af hennar völdum, beint og óbeint. Samkomulag um nýja heimastjórn á Grænlandi Tveir stærstu stjórnmálaflokk- arnir á Grænlandi, jafnaðarmanna- flokkurinn Siumut og hinn vinstri- sinnaði Inuit Ataqatigiit (LA), náðu samkomulagi um myndun nýrrar heimastjórnar í nótt, að því er fram kemur í skeyti frá dönsku fréttastof- unni Ritzau. Því má ljóst vera að sjálfstæðismálin verða ofarlega á baugi næsta kjörtímabil. Kuupik Kleist, sem situr á danska þinginu fyrir IA og er nýkjörinn til setu á því grænlenska, sagði í nótt að hann gerði ráð fyrir að nýja stjómin yröi kynnt síðdegis í dag. Siumut er stærsti flokkurinn á grænlenska þinginu eftir kosning- amar á þriðjudag og fékk tíu menn kjörna. IA fékk átta menn kjöma og flokkarnir hafa því stuðning 18 þingmanna af 31 á grænlenska þinginu. Flokkamir lýstu því báðir yfir i kosningabaráttunni að þeir vildu aukið sjálfstæði Grænlands frá Danmörku. Fasteignakaup forsætisráðherrarfrúar: Dæmdur svindlari aðstoðaði Cherie Cherie Blair, eiginkona Tonys Blairs, forsætisráð- herra Bretlands, hefur við- urkennt að hafa notið að-' stoðar dæmds svindlara, Peters Fosters, við kaup á fasteignum í Bristol. Jafn-| framt hefur hún beðist af-j sökunar á því að hafa vald-| ið misskilningi um við skipti sín við Foster. Áður höfðu blaðafulltrúar forsætisráðherrans sent frá sér yfirlýsingu þar sem því var vísað á bug að Foster hefði nokkuð komið nálægt kaupunum. Breskir fjölmiðlar fara mikinn í dag vegna máls þessa og gagnrýna forsætisráðherrafrúna harkalega. Cherie, sem er þekktur málflutn- ingsmaður í Bretlandi, sagði að Cherle Blalr Frú í vanda. Foster hefði ekki fengið neina greiðslu fyrir ómakið og að hann hefði ekki samið um afsláttarkjör fyrir kaup á tveimur íbúðum, eins og jhaldið hefur verið fram í fjölmiðlum í Bretlandi. Foster, sem var dæmdur í september 2000 fyrir að falsa skjöl til að fá lán til að markaðssetja megrun- arpitlu, var kærasti Carole Caplin, einkaþjálfara forsæt- isráðherrafrúarinnar. Euan, sonur Blair-hjónanna, býr í annarri íbúðinni en hann stundar háskólanám í Cardiff. Cherie Blair sagði í yfirlýsingu sinni að sér hefði ekki verið kunnugt um einstök at- riði í fortíð Fosters sem nú væru á almanna vitorði. v. Munið að slökkva á kertunum Vandið til alls frágangs á jólaskreytingum, sérstaklega þeim sem bera kerti. f JjL 1 If 6»tsU Í\.Ó«COl w NEYÐARLÍNAN ORYGGISNET SEC <ÍET Rauði kross íslands Ríkislögreglustjórinn LÖGGILDINGARSTOFA SÍ'ÍT' SLÖKKVILIÐ HÖFUÐBORGARSVitÐlSlNS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.