Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 15 DV Lítil dýr, mikill gauragangur DV-MYND E.ÓL. Brynhildur Þórarinsdóttir Lúsastríðið er bannað fyrir eldri en fjórtán - ekki láta fullorðið fólk komast í bókina. í Lúsastríðinu eftir Brynhildi Þórarinsdóttur segir frá lúsafar- aldri í 6. bekk M.G. Þó að flest- um finnist lýs vera andstyggileg kvikindi sem best sé að eiga sem minnst samskipti við hafa börnin í bekknum aðra skoðun. Þau sjá nefnilega fram á að hægt sé að kría út frí ef lúsafarald- urinn verði nógu skæður. Því grípa þau til þess ráðs að hjálpa lúsunum að dreifa sér - með þeim afleiðing- um að skólanum er lokað og þau fá vikufrí til að leika sér og láta illa. Bókmenntir Lúsastríðið segir einkum frá höf- uðpaurunum í þessari aðgerð. Sögumaður er Inga Þóra sem er með eindæmum uppátækjasöm stúlka. Hún og félagar hennar tveir, Benni og Maggi, standa fyrir faraldrinum og halda stanslaus bekkjarpartí á meðan skólinn er lokaður. Þá sjá þau fram á að geta grætt á því að selja lýs í aðra skóla en börnin þar átta sig auðvitað á þeirri snilld að fá frí út á lýsnar. Lúsastríðið er hefðbundinn farsi. Uppátækjum Ingu Þóru og félaga hennar virðast engin takmörk sett og stund- um gengur fullmikið á. Börn flissa mikið yfir þessari sögu en fullorðnir fyllast þreytu enda er sjónarhornið alltaf hjá Ingu Þóru sem þráir athygli foreldra sinna og verður þvi nánast óþolandi á köflum. Segja má að hún skilji eftir sig rjúkandi rúst hvar sem hún kemur og léttir móður hennar þegar skólinn byrjar að nýju er fullkomlega skilj- anlegur! Þannig verður hamagangurinn stundum fullmikill en oft er bókin líka mjög fyndin. Skiðaferðin nið- ur stigaganginn er t.d. atriði sem sameinar gauragang og fyndni. Þá eru lúsalýsingarnar ískrandi fyndnar og gróteskar í senn. At- burðarásin nær að vera nokkuð spennandi lengst af en endirinn á sögunni er léttvægur og veldur vonbrigðum. Inga Þóra sjálf er ótrúlega óð stúlka en sem aðalhetja í sögu er hún ekki mótuð af nægri dýpt. Benni og Maggi eru trúverðugri persónur þar sem Benni er plottari en Maggi trúr fylgismaður. For- eldrar Ingu Þóru eru hins vegar bestu persónurnar; þau elska jepp- ann sinn, parketið og aðra muni eins og börnin sín en finnst Inga Þóra óttalega erfið - þangað til þau þurfa að snúast henni til varnar. Þetta minnir á marga foreldra sem gleyma börnunum sínum þangað til í óefni er komið en eru þá af- skaplega aum, enda búin að átta sig á því hvað skiptir máli. Lúsastríðið er læsileg saga, skrifuð af léttleika og gleði. Gaura- gangurinn verður fullmikill á köfl- um og lausnin ristir ekki nógu djúpt. Þó lofar Lúsastríðið góðu sem frumraun höfundar á þessu sviði og mun örugglega vekja kátínu margra barna. Katrín Jakobsdóttir Brynhildur Þórarinsdóttir: Lúsastríöiö. Mál og menn- ing 2002. Hljómdiskar Leikrænar tónsmíðar Eötvös Þeir sem velt hafa vöng- um yfir þróun tónlistar- innar hin síðari ár, segj- um frá falli Berlínarmúrs- ins og til vorra daga, hafa verið nokkuð sammála um að framlag austur-evr- ópskra tónskálda hafi þar haft meira að segja en flest annað. Víst er að fá tónskáld í samtímanum hafa verið eins mikilvirk og áhrifamikil og þau Part, Schnittke, Gubaidul- ina og Kancheli. En nú er Schnittke ekki lengur meðal vor og hin tónskáld- in farin að reskjast. Þá velta menn fyrir sér hvort þeir eigi sér arftaka þama fyrir austan, tónskáld sem séu þess umkomin að auka við tónmál forver- anna eða jafnvel að um- turna því með eftirtektarverðum hætti. í því sambandi nefna menn æ oftar nafn ungverska tóns'káldsins Peter Eötvös, sem fæddur er 1944, jafnvel þótt tónverk hans hafi ekki verið Bókmenntir flutt ýkja oft á Vesturlöndum. Helstu verk Eötvös hafa ný- lega verið gefin út á fjórum smekklega útlitandi diskum frá BMC, ungversku tón- verkamiðstöðinni, og sannast sagna opna þeir gáttir inn í afar óvenjulegan tónheim. Rætur Eötvös liggja bæði í leikhús- og tónlistarlífi í Ung- verjalandi, og þvi er dramat- ískur textaflutningur honum mikið hjartans mál, jafnvel þótt textinn sé á hrognamáli og snúist á köflum upp í óhljóð eða elektróník. Úrval söngverka eða „radd- verka“ eftir Eötvös á einum þessara diska rekur ákveðna þróun í tónsmíðum hans. í elstu verkunum (1968) bregð- ur fyrir tilviljunum, el- ektónískum effektum og áhrif- um frá austurlenskri tónlist; verk sem nefnist „Harakiri“ er til dæmis byggt upp sem tilbrigði við búddíska helgisiði. Það vantar heldur ekki dramatikina í hreinræktuð elektrónisk verk Eötvös frá 8. áratugnum sem finna má á öðrum diski frá BMC. Eitt þeirra er raunar útlegging á leikriti eftir Beckett. Tilviljanir leika stórt hlutverk í þessum verkum en hljóðin sem tekin eru upp við ýms- ar aðstæður eru að stórum hluta endurunnin og keyrð saman við hefðbundin hljóðfæri, t.d. orgel, saxófón, ungverskan zítar og gamaldags lírukassa. Við þetta verða til margradda sam- ræður fremur en heildstæðar hljómkviður, þar sem hver rödd er skýrt og skilmerkilega útlistuð. Það er hins vegar með hljómsveitarverkun- um frá síðasta áratug sem Eötvös hefur stimplað sig inn í veröld nútímatónlistar fyr- ir alvöru, verk á borð við „zero points", „Atl- antis“, „Psychokosmos" og „Shadows". í þeim fer lítið fyrir mannsröddinni en þeim mun áhrifameiri eru ástríðufull skoðanaskipti hljóðfæranna og sá skýri tónræni rammi sem þessum samræðum eru sett. Þessi verk eru einnig með hugnanlegu persónulegu ívafi; til dæmis er fyrsti kafli „zero points“ tekinn upp með þar til gerðu suði, í minningu gömlu LP- platnanna sem tónskáldið hlustaði á i æsku. Sem sagt; Peter Eötvös er tónskáld sem vert er að fylgjast með. Aðalsteinn Ingólfsson Peter Eötvös Tónskáld sem vert er að fylgjast með. Af hræddum manni Handan við regnbogann eftir Stefán Sigur- karlsson er Reykjavikursaga en þó harla frá- brugðin þeim sögum af svipuðum slóðum sem mest er hampað þessa dagana. Það liggur reyndar við að lita megi á hana sem sögulega skáldsögu, svo fjarri eru sögusvið og persónur Reykjavík nútímans. Ósjálfrátt kom upp í hugann að þessi saga Stefáns væri jafnfjarri samtíman- um og BrekkukotsannáR Laxness var á sínum tíma. Þó er ekki ætl- unin að fara þar út í frekari sam- anburð nema að geta þess að Handan við regnbogann er einnig uppvaxtarsaga þó frem- ur teljist hún stöðnunar- en þroskasaga. Söguhetjan og sögmnaður- inn Marteinn hefur sögu sina við tiu ára aldur og rekur hana fram á miðjan aldur. Frásagnar mátinn ber þess merki að hann segi sögu sína á efri árum, hún hefur nokkum minninga- keim og stundum bregður óþægilega fyrir þeim illa fanti Plús Ex sem áðurnefndur Nóbelshöfundur taldi verstan gest í skáldsögu - sögumanninum sem fer að sletta sér fram í frásögnina. Marteinn er viðkvæmúr drengur og óframfærinn en þessi viðkvæmni hans snýst upp í dáð- og fram- kvæmdaleysi, einkum vegna aðsteðjandi fjöl- skylduvanda. Sagan verður því þegar fram vindur saga . af hræddum manni, manni sem forðast að taka ákvarð- anir og forðast samneyti við annað fólk. Slikar persónur eiga að sjálfsögðu fullt erindi í skáldskap, líkt og þeir sem framfærnari eru, en hættan er sú að kringum þá gerist harla fátt og sjálfhverfa þeirra er lítt til fallin að vekja áhuga á sálar- striði þeirra eða örlögum. Það verður því miður að segjast að höfundi tekst ekki að láta umhverfi og persónur lifna í návist daufmgjans Marteins. Hann er svo inniluktur í eigin vesaldómi að hvorki um- hverfi né annað fólk virðist snerta hann að ráði. Stríðsárin líða hjá án þess að þjóðfélags- breytinganna verði vart hjá honum, hann gæti þess vegna verið grafinn niður í snjó- skafl. Aðrar persónur verða einnig furðu lit- lausar og er þar skýrasta dæmið unnustan Solla. Því nær það eina sem lesandinn kemst að varðandi þá góðu stúlku er að hún er ljós- hærð og starfar sem flugfreyja. Flétta sögunn- ar er einfold og lausnin blasir við lesandanum löngu áður en Ijós kviknar hjá söguhetjunni, og þá er lika áhugi lesandans á skelfingum og örlögum Marteins löngu slokknaður. Það er nokkur skaði því Stefán Sigurkarlsson er um margt fær höfundur sem nýtur sín best í ljóð- rænum náttúrulýsingum en miður þegar kem- ur að átökum manna og samskiptum þeirra, og þess geldur þessi saga. Geirlaugur Magnússon Stefán Sigurkarlsson: Handan við regnbogann. Ormstunga 2002. _____________________Menning Umsjön: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Jólabasar í kvöld kl. 20 verður opnaður Jólabasar í Nýlistasafninu þar sem tækifæri gefst til að finna aldeilis sérstakar jólagjafir handa vin- um og vandamönnum - eða bara manni sjálf- Stjórn Nýlistasafnsins hefur ákveðið að nota neðra rými safnsins við Vatnsstíg undir markað fram til jóla þar sem listamenn og hönnuðir verða með ýmsa muni til sölu, tón- list, bækur, plaköt, sýningarskrár, póstkort, gamalt og nýtt í bland. Þá verða ýmsar uppá- komur í safninu, m.a. koma jólasveinar í heimsókn í kvöld. í kvöld verður opið til kl. 24 og síðan í takt við verslanir í bænum allt til jóla. Brot af því besta Á notalegri stund í forsal Borgarleikhússins kl. 20 í kvöld lesa rithöfundamir Arnaldur Indriðason, Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Minervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjám úr nýj- um bókum sínum og ljúfir tónar KK fá að hljóma. Skáldalestur Upplestrarmaraþon verð- ur á efri hæð Dubliners í Hafnarstræti í kvöld kl. 20. Þar lesa: Baldur Óskarsson, Bjami Bernharður, Einar Már Guðmundsson, Hall- berg Hallmundsson, Hrafn Jökulsson (sem les úr Flug- um Jóns Thoroddsens), Ingibjörg Haraldsdóttir, Isak Harðarson, Kristján Eiríksson (sem held- ur fyrirlestur), Norma E. Samúelsdóttir, Sig- tryggur Magnason, Sigmundur Ernir Rúnars- son, Steinn K. og Þorsteinn frá Hamri. íslendingasögur hinar nýrri Bókin Er æxlið illkynja? I íslendingasögur hinar I nýrri eftir Jóhannes Ragn- I arsson í Ólafsvík er nýkom- in út. Hún inniheldur 17 smásögur og 18 örsögur. I sögunum er komið víða við | J 1 og tjöldunum svipt á | óvenjulegan og nýstáriegan if| hátt ofan af ýmsum leynd- armálum sem gerast að tjaldabaki samfélags- ins og þjóðarsálarinnar - leyndarmálum sem þola dagsljósið misjafnlega illa en flestir þekkja samt mætavel úr hversdagslífmu. Útgefandi er Þorbjörn tálkni ehf. Tálknafirði. Gúmmí-Tarsan JPV útgáfa hefur sent frá sér nýja útgáfu af hinni sí- gildu sögu Gúmmí-Tarsan eftir Ole Lund Kirkegaard í þýðingu Þuríðar Baxter. Hún kom fyrst út á ís- lensku árið 1978 og á vin- sældir hennar hefur aldrei fallið skuggi. Segja má að hann sé forveri allra þeirra „öskubuska" sem hafa komið sér áfram með yfimáttúrulegum hætti í bamabókum síðan. Gúmmí-Tarsan heitir réttu nafni ívar Ólsen og hann er bæði lítill og mjór og ólaglegur að auki. Honum gengur illa að læra að lesa og hann kann ekki að spila fótbolta, hvað þá að hann geti spýtt í stórum boga eins og stóru strákarnir. Hann er heldur ekki vitund sterk- ur og getur ekki lumbrað á neinum. En dag nokkurn rekst ívar á ósvikna galdranorn og allt i einu getur hann óskað sér hvers sem hann vill - en bara í einn dag ... Curnmí- Tarsan Sæludagar meö Jamie i Aðdáendur kokks án klæða geta glaðst þessi jól því PP forlag hefur gefið út þriðju bókina með frumleg- um og spennandi uppskrift- um Jamie Oliver. Hún heit- ir Sæludagar með kokki án klæða og Sigrún Davíðs- dóttir meistarakokkur þýðir hana. Að venju er bókin listilega (lystilega) myndskreytt; ljós- myndimar tók David Loftus. iver Bókahappdrætti Dregið hefur verið í happdrætti bókatíðinda fyrir 12.des.: 61.905.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.