Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 Sport f Ímeistaradeildin ™ J*----------—------------- A-riðill Úrslit Barcelona-Newcastle.....3-1 1-0 Daniel Garcia Dani (7.), 1-1 Foluwashola Ameobi (24.), 2-1 Patrick Kluivert (35.), 3-1 Thiago Motta (58.). Staóan Inter Milan 2 2 0 0 7-3 6 Barcelona 2 2 0 0 5-2 6 Leverkusen 2 0 0 2 3-5 0 Newcastle 2 0 0 2 2-7 0 C-riðill Úrslit R. Madrid-L. Moskva.......2-2 1-0 Raul Gonzalez (21.), 1-1 James Obiorah (47), 1-2 Bennett Mnguni (74), 2-2 Raul Gonzalez (75.). B. Dortmund-AC Milan......0-1 0-1 Filippo Inzaghi (49.). Staöan AC Milan 2 2 0 0 2-1 6 Dortmund 2 1 0 1 2-2 3 L. Moskva 2 0 1 1 3-4 1 R. Madrid 2 0 1 1 2-3 1 D-riðÍll Úrslit Man. Utd-Deportivo............2-0 1-0 Ruud Van Nistelrooy (7.), 2-0 Ruud Van Nistelrooy (55.). Juventus-Basel ................4-0 1-0 David Trezeguet (3.), 2-0 Paolo Montero (34.), 3-0 Alessio Tacchinardi (43.), 4-0 Alessandro Del Piero, víti (51.). Staóan Man. Utd 2 2 0 0 5-1 6 Juventus 2 1 1 0 6-2 4 Deportivo 2 0 1 1 2-4 1 Basel 2 0 0 2 1-7 0 -ósk Evrópukeppnin 2008: Austurríki/Sviss sigurstranglegustu umsækjendurnir í dag kemur í ljós hver verður gestgjafi Evrópukeppninnar í knattspymu árið 2008 en þá mun framkvæmdastjóm Knatt- spymusambands Evrópu ákveða hver hinna sjö umsækjenda er hæfastur. Sameiginleg umsókn Austur- ríkismanna og Svisslendinga þykir vera sigurstrangleg en for- svarsmenn þeirrar umsóknar em þó ekki famir að fagna. Allt getur gerst „Við munum enn hvað gerðist fyrir fjórum árum þegar Portú- galar hirtu keppnina árið 2004 fyrir framan nefið á Spánverj- um, eingöngu af því að samband- ið vildi styrkja knattspymuna í Portúgal og taldi hana hafa meiri þörf fyrir keppnina heldur en Spánn. Þetta veltur allt á þvi hvaða stefnu Knattspymusam- band Evrópu tekur,“ sagði Pi- erre Beniot, talsmaður sviss- neska knattspymusambandsins. Skotar og írar eru einnig bjartsýnir en írar sendu staðfest- ingu í gær þess efnis að þeir myndu hafa tvo velli klára ef þeirra umsókn yrði fyrir valinu. í gær voru umsóknirnar kynntar í síðasta sinn en að þeim loknum fóru meðlimir framkvæmdastjómar Knatt- spymusambands Evrópu inn á hótelherbergi þar sem þeir munu dvelja án samneytis við aðra þar til kosið verður. Eggert situr hjá Sex stjórnarmenn, þar á meöal Lennart Johansson, forseti sam- bandsins og Eggert Magnússon, formaður KSÍ, munu sitja hjá í fyrstu umferð vegna tengsla viö umsókn Norðurlandanna en þeir munu koma inn í aðra umferð þar sem kosið verður á milli tveggja eða þriggja efstu um- sóknanna. -ósk DV Fimm leikir fóru fram í meistaradeild Evrópu í gærkvöld: Eintómt Bas(e)l - svissneska liðið tapaði öðrum leiknum í röð, nú fyrir Juventus, 4-0 Hollendingurinn Ruud Van Nistelrooy fagnar hér ööru marki sinu gegn Deportivo La Coruna í gærkvöld en Van Ni- stelrooy hefur skorað fjögur mörk í siöustu tveimur leikjum Manchester United í meistara- deildinni. Reuters t Svissneska liðið Basel er í tómu basli í meistaradeild Evrópu og tap- aði í gær, 4-0, fyrir Juventus í C- riðli í snjókomu í Tórinó á Ítalíu. Franski framherjinn David Trezeguet, sem er búinn að vera lengi frá vegna hnémeiðsla, var fljótur að setja mark sitt á leikinn. Hann skoraði fyrsta mark leiksins á 3. mínútu og sagði eftir leikinn að það hefði verið mikil ánægja. Ótrúlega ánægður „Þetta var fyrsta markið mitt í langan, langan tíma og ég er ótrú- lega ánægður. Raunir mínar eru á enda því að ég finn ekkert til í hnénu. Ég er nú reyndar frekar þreyttur enda á ég langt í land með aö komast í fullt leikform en ég ætla mér að æfa vel í jólafríinu og koma í toppformi eftir það,“ sagði Trezeguet. Marcelo Lippi, þjálfari Juventus, var ekki síður ánægður með að vera búinn að endurheimta þennan snjalla framherja. „Ég er mjög ánægður með að hann skuli vera byrjaður að spila á ný. Það er mikilvægt fyrir mig að hafa alla leikmenn heila og endur koma hans og markið gaf liðinu mikið sjálfstraust," sagði Lippi og bætti við að liðið væri á réttri leið. „Þessi sigur gerir það að verkum að við erum tveimur stigum á eftir Manchester United en við erum á réttri leið. Við þurfum bara að halda áfram að spila eins og við gerðum í kvöld,“ sagði Lippi. Christian Gross, þjálfari Basel, blés til sóknar í leiknum og uppskar ekki neitt nema fjögur mörk í sitt eigið mark. „Við erum að fá á okkur allt of mörg mörk eins og staðan er í dag en við erum sóknarlið, spilum alltaf sóknarleik og þá er alltaf hætta á að fá sig mörk,“ sagði Gross og var ekki vonsvikinn. „Við skulum muna það að við höfum átt frábært ár og þetta er í fyrsta sinn sem við spilum gegn bestu liðum Evrópu,“ sagði Gross. Gjörsamlega óstöðvandi Hollendingurinn Ruud Van Ni- stelrooy virðist vera gjörsamlega óstöðvandi í meistaradeildinni. Hann skoraði bæði mörk Manchest- er United í sigri á Deportivo, 2-0, á Old Trafford í gærkvöld og hefur því skorað fjögur mörk í tveimur fyrstu leikjum þessarar umferðar í meistaradeildinni. Alex Ferguson, knattspymustjóri Manchester United, var ánægður með pilt að leik loknum og reyndar alla sína menn. „Hann (Ruud Van Nistelrooy) var stórkostlegur og ógnaði vörn Deportivo allan leikinn. Það sem ég er samt ánægöustur með er að liðið allt spilaði vel sem ein heild. Sókn- arleikurinn var mjög góður og varn- arleikurinn batnaöi eftir því sem leið á leikinn. Ég held að það hafi gert gæfumuninn þótt annað mark- ið hjá Ruud hafi einnig gert lífið auðveldara fyrir okkur,“ sagði Ferguson en hans menn hafa fullt hús stiga á toppi C-riðils. Tíu sigrar í röö Barcelona jafnaöi í gærkvöld tíu ára gamalt met AC Milan þegar lið- ið vann sinn tíunda sigur í röð í meistaradeildinni á þessu tímabili. Fómarlambið var vængbrotið lið Newcastle sem var án Alan Shearer og Craig Bellamy. Leikmenn Newcastle áttu við ramman reip að draga en Bobby Robson, knatt- spymustjóri liðsins, hrósaði sínum mönnum fyrir baráttu og sagði að þriðja mark Barcelona, sem var frekar skrautlegt, hefði gert út um leikinn. „Við töpuðum leiknum á furðu- legu marki í seinni hálfleik þegar við vorum 2-1 undir. Mér fannst hornspyman fara beint inn en ég veit ekki hvort Shay Given (mark- vörður Newcastle) missti af boltan- um eða Kieron Dyer hreinlega sofn- aði á stönginni," sagði Robson um markið sem Thiago Motta skoraði fyrir Barcelona. „Við vomm samt alltaf að reyna, börðumst eins og ljón og ég er stolt- ur af strákunum. Barcelona er meö stórkostlegt lið sem skapaði fjöl- mörg færi en við stríddum þeim líka,“ sagði Robson, sem fékk kon- unglegar móttökur frá stuðnings- mönnum Barcelona fyrir leikinn en hann stýrði liðinu á árunum 1995-1997. Sex leikir án sigurs Það gengur lítið hjá Evrópumeist- urum Real Madrid í meistaradeOd- inni þessa dagana. I gær lék liðið sinn sjötta leik í keppninni í röð án sigurs þegar það gerði jafntefli, 2-2, gegn rússneska liðinu Lokomotiv Moskvu á heimavelli. Úrslitin hefðu getað farið á verri veg ef ekki hefði komið til framlag Raul Gonzalez sem skoraði bæði mörk Madridar- liðsins og jafnaði metin fimmtán mínútum fyrir leikslok. Vincente Del Bosque, þjálfari Real Madrid, er þó ekki búinn að gefast upp. „Það er nóg af stigum eftir i pott- inum og það væri Qjótfæmi aö segja að við værum að berjast um annað sætið. Það skal reyndar viðurkenn- ast að við erum vanir að hafa Qeiri stig í meistaradeildinni á þessum tíma árs og því er þetta ný staða fyr- ir okkur en ég trúi því aö reynslan í liðinu og sigurviljinn muni Qeyta því yflr þennan hjalla þegar keppni hefst að nýju í febrúar," sagði Del Bosque eftir leikinn en liðið tapaði fyrsta leik sínum í D-riðli gegn AC Milan, 1-0. TQ að bæta gráu ofan á svart fyr- ir Evrópumeistarana meiddust þeir Ronaldo, Claudio Makalele og Fem- ando Hierro í leiknum en óvíst er hvort þeir verða lengi frá. Enn mark frá Inzaghi Framherjinn Filippo Inzaghi, sem leikur með AC MQan, hélt upptekn- um hætti í meistaradeQdinni í gær en hann hefur verið óstöövandi í keppninni í ár. Hann skoraði sigur- mark AC MQan gegn Bomssia Dort- mund í gærkvöld og hefur nú skor- að níu mörk fyrir AC MQan sem er með fuQt hús stiga í D-riðli. Carlo Ancelotti, þjálfari ACMQ- an, hrósaði Inzaghi eftir leikinn og sagði að hann væri „maður hinna mikQvægu augnablika“. „Inzaghi liRr fyrir svona leiki og enn einu sinni kom hann okkur tQ bjargar á mikQvægu augnabliki," sagði Ancelotti. „Mér Qnnst liðið vera í sífeUdri framför og þetta var stórt skref sem við stigum með þessum sigri. Við spQuðum frábæra vöm og það var lykQlinn að þessum sigri. Við vor- um agaðir og þá er erQtt að brjóta okkur á bak aftur,“ sagði Ancelotti eftir leikinn. Mathias Sammer, þjálfari Bor- ussia Dortmund, var öskureiður út í sína leikmenn eftir leikinn. „Við getum kennt sjálfum okkur um það hvemig fór. ACMQan er með frábært liö en með fullri virð- ingu fyrir þeim þá áttum við að geta sigrað þá. Við reyndum bara ekki nógu rnikið," sagði Sammer og bætti við að frosinn vöUurinn hefði ekki hjálpað tU. „Það er ekki auðvelt að spUa á móti liði sem hugsar bara um að verjast á frosnum veUi. Ég man bara eftir einu færi sem þeir fengu og það er pirrandi að við skyldum ekki nýta færin sem gáfust. Það góða við þetta er þó að við ráðum enn okkar eigin örlögum en ef við æQum áfram þá þurfum við að spUa mun betur heldur en í kvöld," sagði Sammer eftir leikinn. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.