Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 4
4 Fréttir FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 Með ólíkindum hart gengið fram vegna gamalla deilna - handrukkari á vettvangi: Keðjusög í gangi, hnífur, skófla og hafnaboltakylfa - hnífstungumaður og rukkarinn sem barði með skóflu dæmdir í fangelsi Butterfly-hnífur, gargandi keðju- sög, steypuskófla, haíhaboltakylfa og handrukkari - hnífstunga sem ofli mikifli blæðingu í kviðarholi eins manns og lifshættulegir áverkar ann- ars eftir átök sem spruttu af deilum í „vinahópi". Allt þetta kemur við sögu í máli Rikissaksóknara gegn tveimur ungum mönnum sem dæmd- ir voru í 18 mánaða (15 skilorðs- bundnir) og 12 mánaða fangelsi (9 skilorösbundnir) i héraðsdómi í gær. Hér var um að ræða fyrirsát sjö til átta ungra manna um tvo menn fyrir utan hús í Trönuhólum í lok mars. Fatlaður maður sem varð fyr- ir því að maður barði hann með steypuskóflu hélt því fram að sá sem skóflunni sveiflaði væri hand- rukkari - „félagamir hefðu fengið hann þarna upp eftir til þess að ganga í skrokk á sér og hefði hann tekið 50.000 krónur fyrir. Vissu þeir það allir strákamir að hann hefði verið „að stunda þessar handrukk- anir og berja fólk gegn peningum““, svo vísað sé orðrétt í texta dómsins þar sem vitnis- burður þess sem barinn var er tí- undaður. Mað- urinn hélt því síðan fram að skóflu- maðurinn hefði sagt við sig og fé- laga hans að hefðu „þeir ekki haft þetta“ - hníf, þá hefði hann lamið þá báða. Þessi maður er engu að síður fundinn sekur um lífshættulega hnifstungu þegar hann lenti í átök- um við skóflumanninn - sem hann segir vera handrukkara. Ekki þótti ástæða til að fallast á sýknukröfu með hliðsjón af því að maðurinn hafi verið að verja sig fyrir meint- um rukkara - hins vegar var litið til þess að honum hafi verið veitt eins konar fyrirsát. En hvers vegna þessar deilur þar sem öllum þess- um vopnum og verkfærum er beitt með mis- munandi hætti? Fyrr um nóttina, aðfaranótt 25. mars, var samankominn hluti gam- als „vinahóps" úr Árbæjarhverfl. Ágreiningsefni - sem ekki var til- tekið fyrir dómi - hefði borið á góma í samkvæmi en það tengdist því að erjur hefðu verið innan hóps- ins. Framangreindur maður sem beitti hnífnum sagði deilurnar aðal- lega hafa verið vegna sin og tveggja annarra manna. Hann kvaðst hafa sagt viö annan þeirra að nú væri nóg komið og mál til komið „að þessi vitleysa stoppaði". Til að leggja áherslu á orð sín hefði hann beint butterfly-hnífnum að öðrum mannanna og verið geti að hann hafi haldið honum nálægt hálsi hans. Eftir þetta yfirgaf hnífsmaður- inn samkvæmið ásamt félaga sín- um. Þegar komið var í Trönuhóla var ljóst að fyrirsát, meðal annars með keðjusög, var gerð og framan- greind átök áttu sér stað. „Handrukkarinn" - sá sem barði hnífsmanninn er dæmdur til að greiða honum 419 þúsund krónur í skaðabætur en 5 mifljóna króna bótakröfu þess fyrmefnda á hendur hinum fyrir lifshættulega hnífs- tungu er vísað frá dómi. -Ótt dómssalnum Óttar Sveinsson blaöamaöur DVWYND E.ÓL. Skáld á flugi Einar Már Guömundsson tók skáldfákinn til kostanna á efri hæö Dubliners í Hafnarstræti ígærkvöld þar sem mörg kunnustu Ijóöskáld samtímans lásu úr verkum sínum ásamt ungum og óreyndari höfundum. Þaö voru liösmenn Ijod.is sem stóöu aö Ijóöakvöldinu og var fjölmennt á þessari þekkilegu hátíö Ijóösins í skammdeginu. Norskt blað um ummæli utanríkisráðherra um fjárfestingu í sjávarútvegi: Veikir samninga við ESB Umhverfisráðherra: Sölubann á rjúpu breytir engu um rjúpnarækt Samkvæmt landslögum þarf að útvega leyfl til þess að ná í is- lenska rjúpu í þeim tilgangi að stunda rjúpna- rækt. Slík beiðni um eldi á rjúpu þarf að berast umhverfisráðu- neytinu og eftir að hún berst þarf ráðuneytiö að leita umsagn- ar villidýra- nefndar, Um- hverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar íslands. Ef slíkar umsagnir reynast já- kvæðar þarf að gefa út starfsleyfi og líklega þarf landbúnaðarráðu- neytið að koma að útgáfu þess. „Ef einhverjir hafa áhuga á því að rækta rjúpu er ég síður en svo á móti því að það sé gert ef viðkom- andi uppfyllir eðlilegar kröfur í þvi sambandi. Væntanlegt sölu- bann á rjúpu næsta haust, sem gilda á i 5 ár, breytir engu þar um enda eru þar engin ákvæði um að bannað sé að flytja inn rjúpur en við þyrftum að skoða vel sölumál á þeim rjúpum sem þannig koma á markaðinn. Þær þyrftu að vera sérmerktar. Lög um sölubann eru liður í því aö vemda íslenska rjúpnastofninn fyrir veiðum og takmarka þær en um 10% veiði- manna veiða meira en helming allra þeirra rjúpna sem skotnar eru á hverju hausti. Við höfum heldur ekkert að athuga við það að menn flytji inn rjúpur frá öðrum svæðum, t.d. frá Grænlandi, en það þarf að vera hægt að rekja uppruna þeirra rjúpna til söluað- ila á Grænlandi og þannig tryggja m.a. að ekki sé verið að selja ís- lenskar rjúpur sem grænlenskar," segir Siv Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra. -GG Það er gott að gefa vatn! Hjálparstarf \3H kirkjunnar 1 1 www.htlp.is Norska blaðið Nationen fullyrðir að íslendingar hafi veikt samnings- stöðu Norðmanna gagnvart Evrópu- sambandinu með því að gera minna en áður úr andstöðu sinni við er- lenda fjárfestingu í sjávarútvegi. Sem kunnugt er krefst Evrópu- sambandið þess að íslendingar og Norðmenn leyfi erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi í skiptum fyrir áfram- haldandi friverslun með sjávaraf- urðir við lönd Mið- og Austur-Evr- ópu sem eru á leið í ESB. Sú frí- verslun yrði að óbreyttu úr sögunni með inngöngu þessara ríkja. í frétt í Nationen í fyrradag segir að svo virðist sem íslendingar séu að gefa eftir í þessu máli. Þessu til stuðnings vitnar blaðiö í viðtal við Fundur í trúnaðarráði Eflmgar stétt- arfélags hefur mótmælt harðlega boð- uðum iðgjaldahækkunum brunatrygg- inga. Vátryggingafélögin hafi á undan- fómum árum géngið á undan í ið- gjaldahækkunum á almenning. Þessi fyrirtæki búi ekki við eðlilega sam- keppni á markaði og nýti sér þessa stöðu sína hvað eftir annað til stór- hækkana á iðgjöldum. Tryggingafélögin em að skila hagn- aði og safna í bótasjóði sem bólgna út ár eftir ár. Halldór Ásgríms- son utanríkisráð- herra í Morgun- blaðinu 24. nóv- ember síðastlið- inn. Þar sagði Halldór ljóst að við inngöngu í ESB yrðu íslend- ingar að gangast inn á frelsi til fjárfestinga í sjávarútvegi. Og hann bætti við: „Þaö er ekki sú sama hindrun í dag og ég taldi fyrir tíu árum. Ég tel að við höfum öðlast það mikla burði á þessu sviöi að ekki sé ástæða til að óttast það með sama hætti, enda eru íslensk fyrirtæki að fjárfesta í Trúnaðarráð Eflingar krefst þess aö tryggingafélögin fafli frá boðuð- um hækkunum nú þegar. Ljóst sé að þessi hækkunaráform muni kynda undir verðbólgu og geta eyðilagt þann árangur sem Efl- ing telur að verkalýðshreyfmgin hafi náð í verðlagsmálum á undan- fómum mánuðum. Auk þess þyngja verðhækkanimar skuldabyrði heimilanna sem eru allt of skuldsett fyrir. Sveitarstjómir og ríkisstjóm hafa ríkum mæli erlendis.“ í Morgunblaðinu í gær er vitnað í Nationen og þess getið að þar komi fram það álit að íslendingar séu að linast i andstöðu sinni. Ekki kemur fram í frétt blaðsins hvað Nationen telji vera til marks um þetta - þ.e. að það séu ummæli Halldórs Ás- grímssonar í Morgunblaðinu sjálfu. í frétt blaðsins visa heimildar- menn í utanríkisráðuneytinu á bug fullyrðingum um að afstaða íslend- inga sé að breytast, enda hafl is- lensk stjórnvöld sagt að erlend fjár- festing í sjávarútvegi kæmi ekki til greina nema i samhengi við hugsan- legar aðildarviðræður að ESB. Ekki náðist í Halldór Ásgrímsson vegna málsins. -ÓTG einnig boðað miklar verðlags- og skattahækkanir sem munu koma hart niður á launafólki á næstunni. Efling stéttarfélag lýsir fullri ábyrgð á hendur stjómvöldum og fyrirtækjum sem ganga fram fyrir skjöldu með verðhækkunum á þess- um tíma. Ljóst er að vítahringur verðbólgunnar getur hafist að nýju ef þessi áform ná fram að ganga. Trúnaðarráð Eflingar stéttarfélags varar við afleiðingunum af þessum ákvörðunum. -GG Siv Friðleifsdóttir. Trúnaðarráð Eflingar stéttarfélags: Burt með iðgjaldahækkanir Halldór Ásgrímsson. Innlifun Jón Þór, söngvari Sigur Rósar lifir sig ákaflega inn í eitt laga sveitar sinnar sem heillaöi gesti Háskólabíós í gærkvöld. Grúppan spilar öðru sinni á Melunum í kvöld en ný piata hennar hefur verið rómuö af gagnrýnendum heima og erlendis. Platan hefur veriö lengi á íslenska topp 20 söiuiistanum. Dregur úr áramótaferðum Um 1.500 erlendir ferðamehn komu hingað til lands um áramótin 2001/2002 til þess að njóta íslenskrar náttúru, norðurljósa og flugeldasýn- inga, auk þess að borða íslenskan mat. Ema Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ferðamenn um áramótin 2002/2003 verði færri nú, kannski um 1.200, og þar af koma um 400 ferða- menn fyrir jól og dvelja hér á aðfanga- dag og jóladag á þremur hótelum, og sumir jafnvel fram yfir nýár. Bretar eru langflestir þessara 1.200 ferðamanna og koma flestir í skipu- lögðum hópum. Æ fleiri leita hælis Sá fjöldi útlendinga sem sest hér að til lengri eða skemmri tíma á ári hveiju hefur margfaldast á siðasta áratug. Þeim dvalarleyfum sem gefln eru út á ári hveiju hefur ijölgað um 235% á fimm árum og þeim sem var veittur ríkisborgararéttur á hverju ári fjölgaði á sama tíma um 250. Hæl- isleitendum hefur flölgað hér á landi um nærri 800% á síðustu flmm árum, en á árinu 2001 lögðu 52 ein- staklingar fram umsókn um hæli sem flóttamenn á íslandi, flestir frá Albaníu eða 8 talsins og fimm frá Al- sír, íran, Makedóníu, Rúmeníu og Slóvakíu. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Útlendingaeftirlitsins segir að fram til þessa hafl sú litla umræða sem verið hafl uin hælisleitendur „einkennst af upphrópunum sem oftar en ekki eru byggðar á misskilningi eða rangtúlkun- um.“ Og hann bætir við: „Umræða um málefni útlendinga þarf að fara fram á skynsamlegan og yfírvegaðan hátt tfl þess að árangur megi nást í þessum mikilvæga málaflokki." Ráðherra á CNN Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN flallaði á miðvikudagskvöld um slæma stöðu sjávarútvegs í ESB-löndunum, en eins fram hefur komið í fréttum hefur framkvæmdastjóm ESB lagt til að þorskkvótinn verði skertur um 79%. í umflöllun sinni lagði fréttaskýrandinn áherslu á að þessi staða væri þó ekki al- gild í Evrópu þar sem ísland væri und- antekning. Rætt var við sjávarútvegs- ráðherra íslands, Áma M. Mathiesen sem lagði áherslu á að sjávarútvegurinn hér á landi byggi við stjómkerfl sem grundvallast á hagnýtingu líftræðflegr- ar þekkingar en lyti jafnframt lögmál- um markaðarins. Samkvæmt upplýsing- um CNN í Washington horfa á milli 900 og 1000 mflljónir manna á CNN Intemational í 210 löndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.