Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 24
24 Tilvera FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 DV SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ I I BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breyting- um á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík: Reitur 1.172.1 Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Laugavegi, Vatns- stíg, Hverfisgötu og Frakkastíg. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgar- ráði 3. desember 2002. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reiturinn verði fyrst og fremst styrktur með nýbyggingum, heimilt verði að fjar- lægja hús og ný byggð í staðinn. Heimilt verður að byggja verslunarhæðir á baklóðir frá Laugavegi og Hverfisgötu og tengja saman eftir þörfum. Á Laugavegi er lagt til aö heimilt verði að rífa hús nr. 33, 35, 41 og 45. Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að byggja í skarðið á lóðinni nr. 60 við Hverfisgötu og jafnframt verði heimilt að rífa nr. 58 og byggja nýtt í staðinn. í tillögunni er m.a. áréttað aó á götuhæð jarðhæða húsa á Laugaveginum gildi skilmálar um landnotkun sem sam- þykktir voru með breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, sem staðfest var í júlí 2000. Jafnfram að óheimilt verði að reka næturklúbba á reitnum. Reitur 1.172.2 Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Laugavegi, Frakkastíg, Grettisgötu og Klapparstíg. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 3. desember 2002. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að áfram verði blönduð byggð og götumynd verði styrkt með m.a. að heimilt verði að rífa hús nr. 22a, 28b og 38 við Laugaveg og reisa þar ný- byggingar, einnig á auðri lóð nr. 40. Á Laugavegi 28, 28b, 30, 38, 40 og 40a verður leyfilegt að byggja jarðhæð og kjallara að lóðarmörkum. Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir hækkun á Laugavegi 32b, bakhúsi, í 3 hæðir, á Laugavegi 34a og 36 heimild til ný- byggingar á baklóð og 38b heimild til niðurrifs og nýbygg- ingar. Bílastæði milli Grettisgötu 9 og 11 haldast óbreytt. í tillögunni er m.a. áréttað að á götuhæð jarðhæða húsa á Laugaveginum gildi skilmálar um landnotkun sem sam- þykktir voru með breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, sem staðfest var í júlí 2000. Jafnframt að óheimilt veröi að reka næturklúbba á reitnum. Reitur 1.180.2 Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Hallveigarstíg, Bergstaðastræti, Spítalastíg og Ingólfsstræti. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 3. desember 2002. Öll hús á reitnum njóta verndar (VB) að undanskildu Bergstaðastræti 10a og Hallveigarstíg 10, þ.e. þeim hluta sem byggður var 1962. Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir að byggja megi eina hæð ásamt risi ofan á Hallveigarstíg 10, Bergstaðastræti 10 og 10b og stórri viðbyggingu við Bergstaðastræti 12 og á Spítalastíg 1 er heimilt að byggja einnar hæðar hús með kjallara á baklóð, einnig er heimilt að fjarlægja skúrbygg- ingu á norðurhluta lóðar Ingólfsstrætis 23. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingar- sviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 13.12. 2002 - til 24.01.2003. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skrif- lega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 24.01. 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 13.12. 2002. Skipulagsfulltrúi I Kanada Sönghópurinn ásamt Hjálmari VJ. Hannessyni sendiherra. MYND SIGURÐUR SIGMUNDSSON Gunnar á Hlíðarenda kominn út á geisladiskum: Með söng í stað vopna r Gunnarshólmi Myndin á diskinum er málverk Ásgríms Jónssonar af Gunnari og Kolskegg. „Rangæingar eru svo áhugasam- ir um Njáls sögu aö þeir leggja hvað sem er á sig til að útbreiða hana,“ segir Arthúr Björgvin Bollason, for- stöðumaður Sögu- setursins á Hvols- velli. Tilefni orð- anna er nýútkom- inn diskur með söngleiknum „Gunnar á Hlíðar- enda“ sem fluttur hefur verið á Sögu- setrinu tvö undan- farin sumur og byggður er á ljóða- bálki Guðmundar Guðmundssonar, skólaskálds, Gunn- ar og Njáll og tón- list Jóns Laxdals. Að sögn Arthúrs Björgvins er disk- urinn gefinn út að frumkvæði flytj- endanna sem allir búa í Rangár- þingi. Reyndar er um þrjá mismun- andi diska að ræða, íslenskan, ensk- an og þýskan. í hefti sem fylgir með er texti eftir Arthúr Björgvin um ís- lendingasögurnar, Njálu, söngleik- inn og höfunda hans. „Við lögðum mikla vinnu á okkur til að fólk vissi hvað það væri með í höndunum þegar það fengi diskinn," segir hann. I flottasta leikhúsi Ottawa Ævintýrið hófst fyrir tveimur árum þegar söngleikurinn var frum- fluttur í Sögusetrinu, upphaflega hugsaður fyrir enskumælandi ferðamenn. Fljótlega var orðið við beiðni Þjóðverja um að fá textann líka á sinu tungumáli og í fram- haldinu var flytj- endunum boðið til Þýskalands. „Þeir vöktu gríðarlega athygli, þessir syngjandi bændur og í þýsku blöðun- um stóð að nú væru víkingarnir komnir úr norðri með söng í stað vopna,“ segir Arthúr Björgvin brosandi. í kjölfarið kom boð frá Gimli sem ákveðið var að þiggja og Hjálmar W. Hannesson, sendiherra í Ottawa, spurði hvort ekki væri hægt að koma til Ottawa í leiðinni. „Hjálmar er þvílíkur eldhugi að hann tekur ekki nei gilt sem svar og er óþreytandi að kynna sögu okkar og menn- TMfc SACA SINtifcHS rKfcSfcNT ingu,“ segir Arthúr Björgvin og heldur áfram. „Við áttum von á góð- um viðtökum frænda okkar í Winnipeg en í Ottawa bjuggumst ________________ við ekki við að eiga neitt bak- land. Þó sýndum við tvö kvöld í flottasta leikhúsi borgarinnar, nánast fyrir fullu húsi.“ Með alvæpni í flugvél Arthúr Björg- vin segir leik- myndina þægi- lega I meðförum og vopna- safninu hafi tekist að koma í gegn, þrátt fyrir strangt eftir- lit. „Við sendum Gunnar á Hlíðarenda í öll- um herklæðum með vopnin til varð- anna, rýtinga, sverð, atgeira og spjót. Þeir spurðu hvort hann ætlaði með þetta í flugvélina. Já, hann sagðist þurfa að nota þetta. Þeir spurðu til hvers. „Við notum þetta til að drepa menn,“ svaraði Gunnar og setti upp sína frægu ygglibrún. Ég tel okkur vera einu mennina í heiminum sem höfum fengið að fara um borð í flugvél með alvæpni eftir 11. september," segir Arthúr Björg- vin og hlær „og hef enga aðra skýr- ingu á því en að verðirnir hafi orð- ið svona hræddir." Sungið á vöktum í haust hélt hópurinn til írlands og söng þar meðal annars á götu- homum. „Fólk flykktist að og það er mjög auðvelt að fá fjölmiðla til að Qalla um svona viðburði því það er ekki á hverjum degi sem bændur fara syngjandi um heiminn. Svo eru þetta hörku söngvarar," segir Arth- úr Björgvin. Hann bætir við að mik- il blessun sé líka fyrir Rangæinga að hafa tónlistarmann eins og Hall- dór Óskarsson undirleikara sem sé bæði flinkur og áhugasamur. Einnig upplýsir hann að skömmu eftir áramót sé fyrirhuguð ferð til Þýskalands í samvinnu við Flug- leiðir og jafnvel önnur til Minneapolis. - En standa kýr og kindur ekki málþola heima meðan bændur eru á þessu flippi? spyr blaðamað- ur. „Þar höf- um við slegið varnagla," segir Arthúr Björgvin hróðugur. „Aðalleikar- arnir, sem eru í hlut- verkum Gunnars, Njáls og Kol- skeggs, eru reyndar ekki með hefð- bundinn bú- skap en aftur á móti nokkrir í kórnum og til að gera þetta mögu- legt erum við með tvo hópa í gangi þannig að það er eiginlega sungið á vökturn!" -Gun DV-MYND HAR Arthúr Björgvin „ Viö lögöum mikia vinnu á okkut til aö fólk vissi hvað þaö væri meö í höndunum, “ segir hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.