Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 36
36 Helga rblað X>"V LAUGARD AGU R 14. DESEMBER 2002 Það verður einhver að deyj Herjólfur er hættur að elska nefnist nij bók Sigtryggs Magnasonar. Hann talar um ástina, guð og óhamingjuna. „Herjólfur er hættur að elska er fyrst og fremst verk um ástina, hamingjuna og óhamingjuna," segir Sigtryggur Magnason skáld þegar hann er spurður um efhi bók- ar sinnar, Herjólfur er hættur að elska. „Verkið er blanda af ljóði, leikriti og sögu. Upphaflega skrifaði ég þetta sem leikrit og það verður sett upp í Þjóðleikhúsinu eftir áramót. Það má hins vegar segja að ljóð- skáldið hafi dregið leikskáldiö uppi.“ Af hverju skrifa menn leikrit í dag? Eru ekki tímar kvikmyndarinnar og skáldsög- unnar? „Því er haldið fram. Ég er hins vegar fyrst og fremst áhugamaður um leikhús. Ég held að ég hafi þá bakteríu ffá ömmu sem átti leikskrár frá öllum þeim sýning- um sem hún hafði séð. Og þær voru ófáar. Ég vann líka á stóra sviði Þjóðleikhússins ffá 1994-1997 og kynntist þar fólki og verk- um sem höfðu mikil áhrif á mig. Ég held að sjónarhom sviðsmannsins hafi haft mikil áhrif á verkið sem kemur nú út á bók. Ég fann hvernig sumar setningar urðu áleitnari eftir því sem ég heyrði þær oftar og þeirri klifún reyni ég að beita í Herjólfur er hættur aö elska.“ Hverjir heldurðu að séu helstu áhrifa- valdar þínir? „Það er flókið að greina það í sundur. Ljóðræna Dylans Thomas, abstrakt-orð- ræða Samuels Becketts og leikstjómarstill Rimasar Tuminas held ég að hljóti að hafa haft mikil áhrif á mig. Ég tel þó fullvíst að ef ekki væri fyrir vin minn, Andra Snæ Magnason, þá væri ég löngu hættur að skrifa. Hann hefúr ver- ið mér dýrmætt bakland." Orðið er eilíft Skúringakonan í verkinu segir: TO að ástin verði edíf verður einhver að deyja á undan ástinni. „Já, þær era góðar þessar skúringakonur. Það hefúr reyndar vakið athygli mína hversu margir virðast hjartan- lega sammála þessum orðum hennar. Kannski er ástin sem slík mest spennandi á tveimur stigum: í byijun ævintýrsins og svo undir lok þess. Það er oft spurt hvort ljóöið sé ekki í dauðateygjunum og álíka spumingar era bomar upp varðandi leikhúsiö. Trúin hefur líka verið sett á gjörgæslu. En það er eins með ljóðið og manninn að hann berst aldrei jafii hart fyrir lífi sínu og ann- arra og þegar dauðinn er sagður nálægur. Þess vegna liflr ást- in og ljóðið og leikhúsiö og trúin og maðurinn. Því þegar maðurinn deyr er ástin sett í orð i minningargreinum. Orðið er eilíft og í gegnum það lifir maðurinn áfram.“ Þú ert nýr í iðu jólabókaflóðsins, hvemig líkar þér það? „Það er hræðdegt. Þar td maður uppgötvar að þetta snýst ekki svo mikið um bókmenntir.“ Það hefúr verið talað um öld afþreyingarinnar. „Æi já. Þess vegna gleðst ég í hvert sinn sem ég hitti mann- eskju sem gefur sig í að lesa það sem ég skrifa. Það gíeður mig ósegjanlega þegar fólk segir mér að það hafi lesið eitt- hvað eftir mig. Tími fólks verður æ dýrmætari og afþreying- in er beint í æð allan sólarhringinn ef því er að skipta. Það sem ég hef skrifað er ekki metsöluefhi og ég sætti mig við það. Ég hef ekki skdgreindan markhóp þótt ég hafi sagt í ein- hverjum upplestri að markhópurinn væri óhamingjusamt fólk; það væri mjög stór og þakklátur hópur.“ Tengdó dæmir Hvað finnst þér um bókmenntagagnrýni? „Gagnrýni? Af hveiju era listamenn adtaf spurðir um gagnrýni? Það er svipað og að krefja lömb álits á starfi kjöt- iðnaðarmanna! Gagnrýni er þegar best lætur bókmenntaumræður og um- ræða um bókmenntir er af hinu góða. Hins vegar er aðstaða höfundarins erfið. Að gefa út bók er ekki ósvipað því að ala af sér bam. Þegar bamið verður átján ára verður það sjáif- ráða eins og bókin verður þegar hún kemur úr prentsmiðju. Sumir líta á gagnrýni eins og einhvem stóradóm. Bók er hins vegar eins og manneskja. Við myndum hrökkva við ef tekið yrði upp nýtt kerfi í makaleit. Ef ungur maðrn- sýndi ungri stúlku áhuga og hún segði: ég myndi vdja að mamma mín myndi kynnast þér fyrst. Ungi maðurinn setti sig í samband viö móður stúlkunnar og þau færa saman í vikuferð td Kaup- mannahafnar. Þegar þau kæmu td baka væri móðirin með greinargerð um unga manninn. Kannski myndi hún segja að hann væri ör og ákafur, ekki skemmtdegur með víni og hefði undarlegar hugmyndir þegar kæmi að kynlífi. Kannski myndi hún segja: hann er yndislegur! En tæki dóttirin mark á því? Ég er ekki viss.“ Þægilegt fyrir \iðkvæma Það er nokkuð fiölmennur hópur ungra höfunda að gefa út bækur í ár. „Já. Ég var mjög ánægður þegar einhver talaði um okkur sem nýja kynslóð þótt við séum aö fást við mjög ólíka hluti og séum sjálfstæð í útfærslu þeirra. Ég hef adtaf horft öfúnd- araugum td módemistanna. Þessi hreyfmg átti sameiginlegt baráttumál þótt listamennimir væra ólíkir innbyrðis. Það er þægdegt fyrir viðkvæma að finnast þeir tilheyra einhvetjum hópi alveg eins og það er meiri von fyrir alkóhólistann í AA félagsskapnum en einn með sjálfum sér inni á klósetti á heimdi sínu." Landakotsspítali í stað Landakotskirkju Ert þú Heijólfur? Ertu hættur að elska? „Ef svo væri þá værir þú annaðhvort að skrifa minningar- grein eða taka viðtal við mig um undursamleika geðdeyfðar- lyfia.“ Er þér ida við geðdeyfðarlyf? „Nei, ads ekki. Þau geta eflaust bjargað mannslífum. Ég held bara að þau séu ekki lausn á vanda fiórðungs þjóðarinn- ar. Geðdeyfðarlyf era eins konar staðdeyfmg á vandamálum; flóttaleið undan sjálfum sér og umhverfi sínu. Og vandinn mun að endingu draga slíka flóttamenn uppi.“ Sálfræðingurinn I bókinni á ekki mörg svör þegar Heijólf- ur leitar td hans. „Nei, því miður. Heimsókn Heijólfs td sálfræðings er þó tímanna tákn. Það er gott að fólk leiti td sálffæðinga. Áður leitaði fólk td guðs og hann var oftast upptekinn við drepsótt- ir og stríð og stóð ekki við tímapantanir. Hedbrigðiskerfið hefúr tekið við af honum; Landakotsspítali í stað Landakots- kirkju. Guð er orðinn að geðhedbrigðissviði." Það er mikid dauöi í þessari bók. „Já, líklega er það svo. En í dauðanum er líka mikd feg- urð: blómin blómstra áður en þau deyja. Mér hefúr adtaf fundist haustið fegursti tími ársins. Þegar myrkrið og kuld- inn taka völdin er brýnt að hiúa að sálinni. Þá kemur bóka- flóðið að góðum notum." Textinn er mín spennitreyja Hugsarðu mikið um dauðann? „Já.“ Af hverju? „Líklega af því hann er það eina sem er öraggt í þessu lífi. En ég þrái hann ekki. Dauðinn er grimmur og ég kviði komu hans. Grimmd dauðans er þó mest við þá sem eftir lifa. Og um það fiadar Herjólfúr er hættur að elska.“ I fyrri ljóðabók þinni, Ást á grimmum vetri, var líka mik- dl dauði. Af hveiju? „Kannski má segja að ég hafi mottó í skáldskap: það verð- ur einhver að deyja. Ég held ég hafi aldrei lokið verki þar sem enginn hefur dáið. Þessi frasi nær þó ekki út fyrir skrif- in. Textinn er mín spennitreyja." -PÁÁ a „Gagnrýni? Af hverju eru listamenn alltaf spurðir um gagnrýni? Það er svipað og að krefja lömb álits á starfi kjödðnaðarmanna!“ l)V-mynd Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.