Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 64
64 HelQarblað JOV LAUGARDAGU R 14. DESEMBER 2002 http://simnet.is/bomedecorl928/ - * Skoðið heimasíðuna okkar og kt'kið á tilboðin jólagjöffrá 1928 Þeir setn versla fyrir yfir 5000 krónurfá í gjöf kristalsvasa eóa skál í lit nteðan birgðir endast A horni Langavegar og Klapparstigs FLEIRI TOMMUR FVRIR KRQNUNA (JNITED UTU3028 28" Nicam Stereó sjónvarp með textavarpi og 2 Scart tengjum. Siónvarpsmldstöðin RAFTÆKJAUERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍIUII 5G8 9080 TT'FWlnlAlb INNRÉTTINGAR Síðumúla 13, sími 588 5108 Lampi m/skermi kr. 12.467 Blaðagrind kr. 6.244 Lampi m/skermi kr. 18.619 FELAG JÁRNIÐNAÐARMANNA Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir starfsárið 2003 til 2004. Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 30,108 Reykjavík, ásamt meðmælum a.m.k. 100 fullgildra félagsmanna. Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk þess tillögur um 21 til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra. Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 17.00 fimmtudaginn 16. janúar 2003. Stjórn Félags járniðnaðarmanna Klámsaga frá sautjándu öld Forleggjararnir Þorfinnur Skúlason og Örn Hrafnkelsson segjast ætla að leggja meiri áherslu á útgáfu handrita í fraintíðinni. „Næsta bók verður líklega safn handrita um höfuðbeinafræði og lófalestur." Eitt lítið ævintýri lystugt af þremur riddurum: „Kynlíf og kynferðismál hafa á öll- um öldum verið eins konar launhelg- ar. Eitthvað sem nauðsynlegt er að ræða undir rós, gefa í skyn eða færa í búning gamanmála,“ segja Þorfmnur Skúlason og Öm Hrafnkelsson í eftir- mála bókarinnar Eitt lítið ævintýri lystugt af þremur riddurum. Þorfrnn- ur og Öm reka Söguspekingastiftið í Hafnarfirði sem gefur bókina út en í henni er að finna klámsögu og fjögur önnur misjafnlega siðlát ævintýri frá sautjándu öld. Skrifað í skuldafangelsi Að sögn Amar er þetta fimmta bók- in sem Söguspekistiftið gefúr út. „Sú fyrsta heitir Einfalt matreiðslukver fyrir heldrimanna húsfreyjur, önnur Uppkast tii fomsagna um brúðkaups- siðu hér á landi, síöan kom Stuttur siðalærdómur fyrir góðra manna böm. í fyrra gáfum við út Víg Kjart- ans Ólafssonar, sem er sorgarleikur í einum þætti, og í ár er það Eitt lítið ævintýri lystugt af þremur riddurum. í nýju bókinni birtast í fyrsta skipti á prenti fimm ævintýri sem vom skrifuð og líklega þýdd af Jóni Egg- ertssyni frá Ökmm á meðan hann sat í skuldafangelsi í Kaupmannahöfn vet- urirrn 1686-1687. Tvö þeirra teljast til erótískra hókmennta en þar segir af kvensemi þriggja riddara og ævintýr- um smíðasveina. Tvær sagnanna em hefðbundin ævintýri og fjalla um unga menn sem eignast konungsríki og kóngsdóttur með hugviti sínu. Loks segir frá forboðnum ástum munks og abbadísar. Ævintýrin em í handriti í Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi og hafa ekki áður komist á prent. Ein- ar G. Pétursson, handritafræðingur við Stofhun Áma Magnússonar á ís- landi, bjó til prentunar og ritar inn- gang.“ Tuttugu og fjiigur eintök „Samstarf okkar hófst árið 1996 þeg- ar við slógum inn matreiðslukverið hennar Mörtu Maríu og gáfum það út í tuttugu og fjórum ljósrituðum eintök- um handa vinum og vandamönnum. í framhaldi af því sóttum við um styrk til Menningarmálanefndar Hafnar- fjarðar til að gefa textann út í stærra upplagi og eftir það fór boltinn að rúlla. Við sáum sjálfir um að búa fyrstu þrjár bækurnar til útgáfu en Helga Kress hjó Víg Kjartans Ólafsson- ar til prentunar og Einar á heiðurinn af nýju bókinni." Öm segir að i upphafi hafi þeir gef- ið út texta sem þeir höfðu gaman af en að nú sé útgáfustefhan skýrari. „Tvær af bókum okkar eru endurútgáfur á áður útgefnum bókum. Matreiðslubók Mörtu Maríu er eftir prentaðri bók sem kom út árið 1800 og það sama á við um Stuttan siðalærdóm sem kom út árið 1799. Hinir textamir, brúð- kaupssiðabókin, leikritið og klámsag- an, era útgáfúr á textum sem era að- eins varðveittir í handritum. Ég reikna fastlega með að við leggjum aukna áherslu á óútgeftn handrit í framtíðinni og fögnum því ef fólk kem- ur til okkar með hugmyndir að textum til útgáfu." Að sögn Amar er næsta bók þegar í sjónmáli. „Það er safn handrita um höfuðbeinafræði og lófalestur, okkur langar einnig að gefa út gömul lækn- ingahandrit en það er stærra verkefni og verður að bíða hetri tíma.“ -Kip „Fyrst þú ert so kvengjam“ Ævintýrið um riddarana þrjá er skemmtilega skrifað og bráðfynd- ið á köflum. Hér á eftir eru tvö stutt brott úr fyrstu sögunni, ann- að segir frá veðmáli sem einn riddarinn gerir við húsfreyju sína en í hinu ræða tvær konur um karlmennsku ungs riddara sem er nýkominn á bæinn. Mevjamar g;jöra hann kvildátan „Fyrst þú ert so kvengjam sem nú er reynt, getur þú þá sofið nakinn í sænginni eina nótt hjá tveimur af mínum vænstu jómfrúm, so að þú snertir þær ekki?“ „Já“, sagði hann. Hún sagði það væri ómögulegt. So kom þau veðjuðust enn um hundrað gyllin. Nú tekur hún tali sinar jóm- frúr og segir þeim þennan málavöxt og býður þær skulu leggjast tvær í sæng um kvöldið, og hann skuli liggja nakinn i millum þeirra beggja, og skuli þær fífla um hann og upp- æsa til lystisemi það besta kynni, og sjá til að hann kynni eigi sitja á sér; annars kvaðst hún tapa peningon- um. Þær sögðust gjaman vilja eftir lifa hennar befalningu, drógu síðan klæðin af sér og gengu til sængur og lögðust niður. Þar eftir kemur þén- arinn, dregur af sín klæði og leggst niður nakinn millum þeirra, en hans félagi gjörðist nokkuð óþolur. Tók harm því það til ráðs og batt hann fastan við sitt lær. Nú vildu meyjamar gjöra hann kviklátan og þreifuðu um hann mjúklega og veltu honum á allar síður, en hann leið það allt með þolinmæði og hrærði sig hvorgi. Og þegar jómfrúnnar fomumu þetta vildi eigi hjálpa, tóku þær hnif og skáru í sundur bandið það hcmn hafði bundið með. Og að því gjörðu, réði hann sjálfum sér valla og gjörði jómfrúnum full- nægju, skildist síðan frá þeim. En að morgni segja meyjamar frúnni allt hvomin til hafði gengið. Síðan heimti þénarinn veðféð af frúnni, en hún sagði hann hefði tap- að og vildi þar fyrir eigi greiöa hon- um féð. Nú hugsar þénarinn með sér, að hann skal eigi þar með láta sér nægja heldur framar til reyna. Og miödagsmáltíð þar frúin með sín- um manni sat til borðs, en þénarinn stóð fyrir borðum, þá tók þessi þén- ari til orða og mælti: „Náðugi herra og húsbóndi, eftir því að eg til foma hefi fundið náð hjá yður, þá dirfist eg enn nú með stæstu auðmýkt að framkoma fyrir yður með það efni sem mig stórlega um varðar yðar úrlausn, sem er: Eg reið út á landið fyrir nokkrum dögum, eftir míns herra befalningu, og sakir tilfallandi nauðsynja sté eg af baki nálagt einu akurlendi sem nýlega var sáð, og upp á það minn hestur skyldi ei gera skaða þá batt eg hann við eitt tré sem þar var all- nálægt. En á meðan eg var í brott, kom eim maður annar en akurlend- isins yfirráðandi og eignarmaður og skar bandið það minn hestur var bundinn með. Og að því gjörðu hljóp hesturinn inn í akurinn, sem sáður var og gerði þar skaða nokkum. Nú vill akurmaðurinn að eg skuli bæta skaðann sem hestur minn gjörði, en eg þykist saklaus þar af, - eða hvað dæmi þér herra?“ Þá sá eg hans standara „Alvara, mín allra kærasta vin- kona“, segir frúin. „Já, það er satt,“ sagði bóndans kvinna. „í gærkveldi þá þessi ungi gestur lagði sig í sæng og hann afklæddist, gægðist eg í gegnum eina hora sem á var veggnum og sá að hans skyrta var mjög í sundur slitin framan á húknum, og setti hann sig á sængurstokkinn, tók af sér skyrtuna og saumaði aö henni og það allnett. Þá sá eg hans standara, og vil eg sveija við hinn heilaga Thómas, að hann var vissulega tólf fingra langur og hand- fangsþykkur, en so hvítur og fagur að hind var að sjá, og stöðuvant þá raun af sér að standa fyrir. Það segi eg fyr- ir mig, eg segi yður í sannleika, min fra, hann var hjóðandi hinni ágætustu jómfrú sem finnast kann. Og hefðu þér séð það so sem eg, mundi yður meira um finnast en eg nú for- tel.“ Frúin svaraði: „Þér skemmtið mér mjög vel og formerki eg vel yðar meining. Og eftir því við tölum nú svo eins- lega þá segi eg yður upp á mína trú, mér lengist mikið eftir þessum unga manni, sem þér segið nú frá. Eg sver við hinn helga Dí- ónícíi. Eg hef nú í átta daga ekki smakkað þann rétt, þú mátt nærri geta, vinkona, hvað mér er boðið. Þá minn gamall maður leggur sig í sæng- ina hjá mér á kvöldtímanum, snýr hann sér strax frá mér, hóstar og skyrpir sem einn hryðjukall og hrærir eigi við mér hið minnsta. Hvornin kann ein ung og lystug frú umbera soddan? Hraðaðu þér nú heim það mesta þú kannt og seg að þessi ungi maður skyndi sér það mest mögulegt til mín. Þó vil eg að þú látir gjöra hon- um góð klæði áður, so þá hann kemur hingað í garðinn, mætti hann þess meira álit hafa hjá mínum manni. Hér era nægt af peningum sem sá gamli hefúr saman safnað. Eg vil taka þar af hundrað gyllin og senda honum að kaupa sér klæði með. Það er betur komið hjá einum ágætum ungum manni en að sá örvasa kall mygli þá undir sér, en eg vil gefa þér til þess að þú skalt vera í þessum trúnaðarmál- um með mér og honum tuttugu gyll- ini, og hefur þú vel til þeirra unnið. Og gjörðu honum vel til góða meðan hann er hjá þér.“ Hún játar því. Eitt lítið ævintýri lystugt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.