Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 1
SEMUR LOG OG HELDUR TÓNLEIKA. BLS. 46 DAGBLAÐIÐ VISIR 289. TBL. - 92. ARG. - MANUDAGUR 16. DESEMBER 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK Mikið framboð jólatrjáa þegar 8 dagar eru til jóla: ísland auðugt ísland er næstefst á lista yfir ríkidæmi ferskvatns í 147 rikjum í heiminum. Breskir vísinda- menn hafa birt listann í tilefni af Ári vatnsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Finnland, kemur í fyrsta sæti, þá Kanada og Noreg- ur á eftir íslandi, allt vatnsauðug lönd, en Bandaríkin aðeins í 33. sæti á listanum. Fimmti hver íbúi jarðarinnar glimir við neysluvatnsskort. -JBP NV-kjördæmi: Vilhjálmur kærir Vilhjálmur Egilsson. Vilhjálmur Egilsson alþing- ismaður fer fram á það i dag við stjórn kjör- dæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins í Norðvestur- kjördæmi að hún ógildi próf- kjör flokksins í kjördæminu vegna annmarka sem á því voru. Vilhjálmur sagðist í samtali við DV í gærkvöld hafa undirbúið formlegt erindi þessa efnis ásamt greinargerð um helgina og að þessi gögn yrðu væntanlega send stjórninni í dag. Þórólfur Halldórsson, formaður kjördæmisráðsins, segist ekkert geta sagt um hvernig stjórnin bregðist við erindi Vilhjálms. Spurður um hvort það þýði að stjórn ráðsins verði kölluð til fundar segir Þórólfur: „Ég reikna ekkert frekar með því.“ Ágúst Þór Bragason, sem situr í stjórn kjördæmisráðsins, sagði við DV fyrir viku að kæra frá VO- hjálmi hlyti að kalla á fund í stjórninni. „Það er sjálfgefið að stjórnin verður kölluð saman til að fjalla um kæru Vilhjálms," sagði Ágúst Þór og bætti við að stjómin hefði aldrei tekið afstöðu til þess hvort prófkjöriö væri lög- mætt. Sem kunnugt er komst mið- stjóm Sjálfstæðisflokksins að þeirri niðurstöðu í liðinni viku að hún gæti ekki fjallað um lögmæti prófkjörsins nema ágreiningur væri um það í stjórn kjördæmis- ráðs. Þórólfur Halldórsson sagðist ekki vilja tjá sig um ummæli Ágústs Þórs. -ÓTG Stefnir í verðstríð Mikið framboð er nú á jólatrjám í landinu og töldu ýmsir seljend- ur, sem blaðið hafði samband við, líklegt að verð lækkaði þegar nær liði jólum. Einn sölustaða, Garð- list, lækkar verðið þegar í dag um 30%. Jólatrjáakaupmenn ætla greinilega ekki að brenna sig á sama soðinu og í fyrra þegar öll tré seldust upp á Reykjavíkur- svæðinu og farið var í skógarhögg í ýmsum nærliggjandi trjáreitum. Normannsþinur er vinsælaStur jólatrjáa, enda barrheldinn. Mikið af honum kemur frá Danmörku. Þó eru íslensk tré að sækja á og þeir sem á annað borð hafa prófað þau virðast halda við þau tryggð, að sögn sölufólks. DV gerði lauslega könnun á verði jólatrjáa í Reykjavík. Þar var aðeins litið á eina gerð og eina stærð, normannsþin í stærðinni 1,26-1,50 m, sem er tré í minni kantinum. Það skaí tekið fram að gæðin voru ekki könnuð og ekki er sama tré og tré, jafnvel þótt normannsþinur heiti. Ýmsir gæðaflokkar eru til af þessari teg- und og úr þeim hafa verslanir að velja þegar þær gera sín innkaup. Einungis sex sölustaðir voru heimsóttir eða haft samband við þá símleiðis. Það voru Blómaval, Garðheimar, Europris, Flugbjörg- unarsveitin, Landakot (í Skeif- unni við Verkfæralagerinn) og Garðlist við Umferðarmiðstöðina. Lægst var verðið í Garðlist, 2.500, en hæst hjá Flugbjörgunarsveit- inni, 3.600. „Við tökum ekki þátt í verðstríði enda erum við að safna fé til góðra mála,“ sagði sölumað- ur flugbjörgunarsveitarinnar. í Garðlist var verðið að lækka um 30% og sá afsláttur á að gilda til jóla. -Gun , •> Bergrún Lilja og Ingunn Eva voru föður sínum, Reyni Einars- syni, hjáipiegar við val á jólatrénu í gær- kvöid. GRÓTTA/KR KOMIÐ í 8-LIÐA ÚRSLIT: Reiðarslag fyrir Danina JÓLAGETRAUN DV: Stórglæsi- legir vinningar í boði Tjónaskoðun • Bílaréttingar ■ Bílamálun Þú færð bílaleigubíl á \ meðan viðgerð stendur yfir Sími 554 2510 Nýbýlavegi 10 • Kópavogi Víð hliðina á Toyota umboðinu ■ www.bilasprautun.is BÍLASPRAUTUN OG RÉTTINGAR ^ AUÐUNS m Tókum pað með. . . trukki Landi SAMSKIP Aóalskrifstofa: Skútuvogi 8 104 Reykjavík Sími 569 8400

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.