Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 DV _______23 Tilvera 4> Billy Bob sér eftir Angelinu Nú sér Billy Bob Thornton mikið eftir því að hafa yfirgefið unnustu sina, engilfríðu leikkonuna Angelinu Jolie. Og þess vegna rær kappinn að því öllum árum að ná stúlkunni aftur til sín. Billy Bob yfirgaf konuna og ungan dreng sem þau höfðu nýlega ættleitt frá Kambódíu af því að honum fannst hann falla í skuggann af konu sinni. Hann leitaði huggunar hjá gömlum kærustum, nú síðast liðlega tvítugri íyrirsætu, Danielle Dotzenrod. En Billy Bob karlinn var aldrei al- mennilega ánægður og hugurinn leit- aði æ meir til gömlu góðu daganna sem hann vill nú endurheimta. Jennifer Lopez er alls staðar Vestanhafs eru ýmsir farnir að hafa áhyggjur af því að latínubomb- an Jennifer Lopez sé hreinlega of mikið í sviðsljós- inu og að þetta kunni hreinlega að verða frama hennar skaðlegt þegar til lengri tíma sé litið. Jennifer kemur að sjálfsögðu fram í nýjasta myndbandinu með eigin tón- list, í auglýsingunni tyrir nýju mynd- ina sem hún leikur í, auk þess sem hún hefur verið gestur í öllum helstu kjaftaþáttum í amerísku sjónvarpi. Og ekki má gleyma því að hún sést oft í fylgd með unnusta sínum, stórleikar- anum Ben Afíleck. Enda þótt Jennifer hafi ekki alltaf fengið lofsamlega dóma fyrir frammi- stöðu sína á hvíta tjaldinu eða í hljóð- veri hefur hún engu að síður siglt hraðbyri upp á stjörnuhimininn þar sem hún skín nú einna skærast amer- ískra stjarna. Jack Nicholson segist frelsaöur Hollywood-töffarinn Jack Nichol- son, sem þekktur er fyrir allt annað en hreinlífi, segir aö hann eigi í sífellt meiri erfiðleikum með að ná „litla manninum" upp og að með sama áframhaldi stefni í algjört getuleysi. Hann segist þó ekki haldinn neinni ör- væntingu og sér finnist þetta ekkert skelfilegt. „Það eina sem ég óttaðist var fyrirsjáanleg einsemd i bælinu en nú er ég farinn að venjast þessu og lík- ar bara vel að sofa einn. Ég er breytt- ur maður á sextugsaldri og hef ekki sömu reisn og áður. En þetta er bara gangur lífsins sem maður verður að sætta sig við. Áður gat ég ekki hugsað mér að leggjast upp í nema hafa eitt- hvað mjúkt að nudda mér upp við. Það er af sem áður var, en ég lít frekar á þetta sem frelsun,“ segir Jack. Ljósadýrð í kirkjugörðunum - ljósakrossar verða sífellt vinsælli Svokallaðir ljósakrossar til að setja á leiði hafa tíðkast í nokkrum mæli hér á landi enda góð leið til að lýsa upp dimmasta tíma ársins og minnast um leið látinna ástvina. Með hverjum jólum hefur ljósakrossum verið að fiölga en Kirkjugarðar Reykjavikur hafa boðið upp á þessa þjónustu síð- astliðin 10 ár og hafa verið með samn- inga við tvö verktakafyrirtæki um að leiða rafmagn í krossana svo verði ljós. Það er Rafþjónustan Ljós sem sér um þjónustuna í Gufunesi en fyrir- tækið Heim ehf. sér um þjónustuna í Fossvogskirkjugarði. Björn Sveins- son, skrifstofustjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, segir að einungis sé hægt að hafa hvít ljós í Gufunesinu en hægt sé að velja um margs konar ljós í Fossvogskirkjugarði. Eftirspurnin eftir ljósakrossunum hefur aukist og samkeppnin hefur því harðnað. Fyrirtækið Búrek ehf., í samvinnu við vinnustaði Öryrkjabandalags ís- lands, býður einnig upp á ljósakrossa á leiði fyrir jólin. Ljósakrossamir eru hvítir plast- krossar og, eins og búast má við, með ljósi. Búrek sér um framleiðslu rör- anna sem notuð eru i krossana en starfsfólk vinnustaða Öryrkjabanda- lagsins sér um að setja þá saman og útvega ljós og tengingar. Ljósakrossarnir eru tvenns konar. Annars vegar krossar sem tengja má við venjulegt rafmagn í kirkjugörðum en aðstandendur leggja þá sjálfir til krossana. Hins vegar er um að ræða krossa sem fá rafmagn frá venjulegum rafhlöðum sem er nýjung á markaðn- um. Fjórar perur (díóður) lýsa kross- inn upp og endast rafhlöðumar í allt að 20 daga. Krossamir kosta um 6.000 krónur út úr búð og rafhlöðumar kosta rúmar 1.000 krónur. -ss Ljósakross Þeim fjölgar hratt Ijósakrossunum <-* sem settir eru á leiöi enda falleg birta í skammdeginu. mia Brauðrist hvít eða blá með afþíðingu, stopphnappi og myisnubakka. H1 Electrolux Vandaðurtvískipturkæli-og frystiskápur með glertiillum. 222 lítra kælir og 88 lítra frystir með þremur skúffúm. HxBxD: 175x59,5x60 ZANUSSI ___________Baikalausþurrkarafbestugerö. Krumpuvöm og tímastillir. Kerfi fyrir viðkvæman þvott Stór og aðgengileg taulúga. Radettegrillmeð6 Stál hraðsuðuketill 2,2 litrar. Si Þ&»lfX'g%g\í\ ^U990 Eldhúsvog með skál. ffija Rafmagnstannbursti með ""q4burstum. Kaffivél 12-15 bolla Nuddtæki með innrauðu Ijósi og titringi. Frábær jólagjöf! ■* 1 Innbyggðurveggofn með fjölkerfa blástursofni, undir- og yfirhrta ásamt grilli og grillmótor. Ferðagufustraujám Stafnæn baðvog með þykkum glerfleti. LCD skjár. 1500W ofurkraflmikil ryksuga með fýlgihlutum. Stillanlegur sogkraftur og stálrör. Suðurlandsbraut 16 »108 Rvk • Sími 5880500 «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.