Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 40
3Þ . j* V 'j Demantar, skínandi Tré trúa að komið sé sumar „Ef þessi hlýindi haldast svona áfram um einhvem tíma er viðbúið að trjágróður fari að lifna við og trúa að komið sé sumar,“ segir Hreinn Óskarsson skógfræðingur í samtali við DV. Einmuna hlýindi eru á landinu þessa dagana og í gærmorgun var tO dæmis sex til átta stiga hiti víðast hvar um land- ið. Samkvæmt veðurspá má þess vænta að hitatölur verði áfram á þessu róli næstu daga - og sannkall- að sumarveður. „En haldi þetta eitthvað áfram þá missa trén frostþolið," segir Hreinn. „Það mun aftur valda skemmdum á trjánum, þau fara úr vetrardvalan- um. Þá er hætt við frostskemmdum þegar aftur kólnar eins og hefur komið fyrir. Hlýindi á þessum tíma árs eru alls ekkert einsdæmi. Skemmdirnar komu þá i ljós með vorinu." Hreinn Óskarsson segir ástæðu- laust að óttast að þessi næsta óvenjulega sumarveðrátta í svartasta skammdeginu valdi skemmdum á jólatrjám. Vel sé hægt að geyma trén utan dyra um langan tíma án þess að sjáist neitt á þeim. Hins vegar verði fólk að fara var- lega þegar trén séu komin inn í hús. Til að mynda sé ráðlegt að setja rauðgrenið þegar það sé komið skreytt inn í stofugólf í vatn. Hita- stigið undanfarið hefur einnig þau áhrif að varlega þarf að fara þegar rjúpur eru látnar hanga utan dyra. Hitinn getur skemmt þær. Gjaman eru rjúpumar látnar vera uppi i rjáfri í svona eina til þrjár vikur, það fer eftir því hve fólk vill hafa villibráðarbragðið af þeim sterkt. „Þetta kalla veiðimenn að láta fugl- inn ryðja sig, það er að losna við storknunina í blóðinu," segir Eggert Skúlason veiðimaður. „Flestir kjósa að láta fuglinn hanga í aðeins fáeina daga en elstu Vestfirðingar vilja bragðið hins vegar mjög sterkt - láta fuglinn kannski hanga í þrjár vikur en slíkt tel ég varhugavert eins og hlýindin hafa verið undan- farið.“ -sbs FINT BRAGÐ S05UNA! Skoðanakönnun DV: Viðunandi staða Steingrímur J. Sigfússon. „Þetta er við- unandi staða I ljósi þess sem er í gangi í stjómmál- um þessa dagana, en við ætlum okkur að sjálf- sögðu tvo menn í báðum Reykja- víkurkjördæm- unum, eigum næsta mann inni í norðurkjördæminu," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfmgarinnar græns framboðs um úrslit skoðunarkönnunar DV sem gerð varí gærkvöld. „Þetta er umtalsverð fylgisaukning frá síðustu þingkosn- ingum, sem er fagnaðarefni, en það er enn langt til kosninga. Samfylk- ingin hefur notið mikillar fjölmiðla- athygli síðustu daga. Það skýrir eitt- hvað hennar fylgi,“ segir Steingrím- ur J. Sigfússon. -GG Ákveðin vísbending „Þessi niður- staða er í sam- ræmi við það sem hefur verið að gerast allt þetta ár en Sam- fylkingin hefur verið að eflast þótt allar skoð- anakannanir eigi að taka með fyrirvara. Þetta er þó ákveðin vísbending en það er ekki nokkur vafi að framboð Ingi- bjargar Sólrúnar og umræðan um það hefur styrkt Samfylkinguna enn frekar í Reykjavík. Við höldum keik inn í næsta ár,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. -GG Beyndís Hlöðversdóttir. zlagar til jóla Opið til kl. 22.00 til jóla KriKCi(cu\ E! NEI/IUI FYRIR llLII DV-MYND SIGURÐUR JÖKULL Á frumsýningu „Stella er fyrst og fremst verulega fyndin kvikmynd, “ segir Sif Gunnarsdóttir í gagnrýni á Stellu í framboði sem frum- sýnd var í Háskólabíói í gærkvöld fyrir fullu húsi áhorfenda sem hlógu mikið. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðný Hall- dórsdóttir leikstjóri, aðalleikararnir, Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og Edda Björgvinsdóttir, og Halldór Þorgeirsson, framleiðandi myndarinnar og eiginmaður Guðnýjar. __________________________________Sjá bls. 24.______________________________ Mikið særðir laxar lónandi við Árbæjarstífluna í Elliðaánum: Dæmigerður sveppalax - segir Gísli Jónsson, sérfræðingur í fisksjúkdómum „Mér virðist þetta vera dæmigerð- ur sveppalax," sagði Gísli Jónsson, sérfræðingur í fisksjúkdómum á Keldum, eftir að hafa skoðað mynd- ir af laxi sem DV tók i Elliðaánum í gær. Fiskamir, sem voru í stóra lón- inu fyrir ofan Árbæjarstifluna, voru illa til reika. Þeir voru greinilega mikið særðir á baki, aftur á sporð og fram á trjónu. Þeir voru slappir og lónuðu mikið uppi við stífluvegginn. Það var árvökull útivistarmaður sem benti DV á fiskana. Hann kvaðst fyrst hafa veitt þeim athygli sl. þriðjudag. Þá sá hann tvo sem voru svona illa útleiknir. Daginn eft- ir sá hann tíu særða fiska, tvo við brúna en átta í lóninu við dæluhús- ið. í gær þegar blaðamenn DV fóru með honum á vettvang sáu þeir samtals fimm laxa sem svo var ástatt um. Gísli bað veiðivörð í Elliðaánum síðdegis í gær að fanga að minnsta kosti einn flsk og færa hann til rannsóknar á Keldum. „Ef við höfum séð slappan eða jafnvel deyjandi flsk í Elliðaánum þá höfum við tekið hann til rann- sóknar,“ sagði Gísli. Hann sagði enn fremur að liklega stöfuðu þessir áverkar á fiskinum af Dapurlegt ástand Það var dapurlegt að sjá þann tigna fisk, sem laxinn er, lóna um, særðan og illa haldinn í Elliðaánum í gær. Hann virtist svo slappur að hann rótaði sér varla þótt hann yrði fyrir áreiti. Á innfelldu myndinni má sjá stífluvegginn sem nokkrir laxar lónuðu við í gær. því að hann hefði gengið nærri sér við hrygningu. Eftir hana væri fisk- urinn yfirleitt mjög viðkvæmíur. El- liðaárnar væru vatnslitlar á köflum og ef laxinn lenti á grynningum væri viðbúið að hann gæti skaddast. Ef það gerðist kæmust sveppir og bakteríur, sem liíðu í umhverfmu, í sárin og bærust út um flskinn, með- al annars í ugga og uggafestingar. Sveppirnir ætu sig smátt og smátt inn í sárin og holdið og fiskurinn dræpist að lokum. í góðu árferði gæti hann þó lifað vikum saman með sýkinguna. „Þessi sýking er ekki smitandi, heldur bundin við einstaka flska," sagði Gísli. „Hún er eðlilegum fiski algjörlega hættulaus." Hann bætti við að nú væru kjörskilyrði fyrir um- hverfissýkla, fremur hlýtt í veðri og vatnshitinn vel yflr meðallagi. -JSS Skoðanakönnun DV: Ekki sáttur „Þetta er mjög sérkennileg nið- urstaða, og aukn- ing á fylgi Sam- fylkingarinnar með miklum ólík- indum. En það segir manni kannski allt um hræringarnar síð- ustu daga kring- um framboð borg- arstjórans i Reykjavík, og er mjög at- hyglisvert og ekki síst ef Framsókn fær engan þingmann og formaður Framsóknarflokksins kemst ekki á þing. En ég er ekki sáttur við fylgi okkar sjálfstæðismanna, og það er varla raunhæft, enda held ég að þessi niðurstaða sé stundarfyrir- brigði. En við sjálfstæðismenn eig- um greinilega verk að vinna fram að kjördegi næsta vor,“ segir Guðmund- ur Hallvarðsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks i Reykjavík. -GG Mikil tíðindi „Fylgisaukning Samfylkingar vekur verulega athygli á kostnað Framsóknar- flokksins sem kemur formann- inum ekki að. Það eru mikil tíð- indi. Við þessu mátti búast eftir að tilkynnt var um framboð Ingibjargar Sólrúnar. Ég bjóst reyndar við að Samfylking- in tæki einnig fylgi frá Vinstri-græn- um. Ég er ekki hissa á okkar fylgi því við erum ekki komin af stað og höfum ekki kynnt neinn framboðs- lista," segir Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins. -GG Margrét Sverrisdóttir. hr Rafport rottier nerkivélii. fyrirfagmenB ogfydrtæHi, Mmiliog sHöta, fyrir rtf ð ogregiu,mig ngbgiauegi 14 • sfei 554 4443 • If.ls/rafport Sjálfvirk slökkvitæki fyrir sjónvörp Sími 517-2121 H. Blöndal ehf. Audbrekku 2 - Kópavogi Innflutnlngur og salo - www.hbtondal.com VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 | www.securitas.is EINN EINNTVEIR NEYÐARLÍNAN ^ LÓGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ j i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i í i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.