Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 46
50
Helcjctrblað JOV
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Sakamál
Hausinn af og
tryggingabætur
í vasann
Þau hittust ísöfnuði sem kennir kirkju sína
við musteri þarsem sálin er endurvakin og
ástin kviknaði við fgrstu sgn. Bæði höfðu
þau þörf fgrir að vera ísöfnuði og sækja
samkundur og íkirkjunni löðuðust þau
hvort að öðru. Natalie Vasguez var 18 ára og
Mattheu/ Mirabel þrem árum eldri. Þau
gengu íhjónaband og þar með voru ill örlög
þeirra ráðin.
í safnaðarkirkjunni í Nýju Mexíkó kynntust hjúin
sem annars voru af ólíku bergi brotin. Matthew var
sonur prédikara í Wyoming og hafði skrykkjóttan fer-
il að baki og hafði fyrir löngu flosnað upp að heiman.
Natalie bjó aftur á móti hjá foreldrum sínum, hafði
lokið menntaskólanámi með góðri einkunn og ætlaði
að heíja háskólanám. En ástin breytti öllum framtíð-
aráætlunum.
Foreldrar Natalie voru síður en svo ánægðir með
ráðahaginn en fengu engu um hann ráðið. En aðrir í
söfnuðinum voru því mjög hlynntir að safnaðarsystk-
in þeirra næðu saman. Sérstaklega var leiðtogi safn-
aðarins, Troy Hancock, því meðmæltur.
En þegar grunur féll á leiðtogann um að hafa mis-
farið með sjóði safnaðarins flutti hann ásamt nokk-
urm fylgjendum sínum í söfnuðinum til Colorado og
settist að í bænum Longmont, nærri borginni Bould-
er. Meðal þeirra sem fylgdu honum voru Matthew og
Natalie. Það var árið 1996. Safnaðarbrotið fékk auð-
veldlega vinnu í blómstrandi byggingariðnaði bæjar-
ins. Nokkru eftir flutninginn sneri kærustuparið til
Nýju-Mexíkó og gifti sig þar. Foreldrar Natalie voru
viðstaddir brúðkaupið þótt þau sættu sig aldrei við
mannsval dótur sinnar.
Að mati kunningjanna var sambúð ungu hjónanna
góð fyrst í stað. Matthew var nærgætinn við konu
sína, færði henni blóm á útborgunardögum og hjálp-
aði til við uppvaskið.
Enginn varð var við neinar misgjörðir á heimilinu
og móðir Natalie heimsótti dóttur sína nokkrum sinn-
um til Colorado til að missa ekki samband við hana
þótt hún hefði andúð á eiginmannium. Hún freistaði
þess að fá dóttur sína heim aftur og sótti jafnvel sam-
kundur hjá Troy Hancock til að vera samvistum við
dótturina.
Fj ölskyldulífið
En það lék ekki allt í lyndi hjá hjónunum og þau
fóru að safna skuldum og í árslok 1998 lýstu þau sig
gjaldþrota. Þá gat varla staðið verr á því Natalie var
barnshafandi. Eiginmaðurinn var lítið hrifinn af þvi
ástandi konu sinar og vildi ekkert með barn að hafa.
Svo var hann líka búinn að koma sér upp viðhaldi
og sáu nágrannarnir hann iðulega skjótast inn til
mágkonu sinnar, Lisu Mirabel, eftir að bróðir Matt-
hews, Marcus, var farinn til vinnu. Samt sem áður
var náið samband milli fjölskyldnanna og fóru þau
iðulega öll saman á kristilegar samkomur, í verslun-
arferðir og út að borða.
Laugardaginn 25. sept. 1999 var Natalie með eigin-
konu prédikarans sem hvatti þessar nánu fjölskyldur
Iljónin Nathalie og Matthew Mirabel halda hér á ný-
fæddri dóttur sinni daginu sem luin var skírð.
Matthew Mirabel sneiddi höfuðið af eiginkonu sinni og
krafðist milljón dollara tryggingarfjár fyrir afrekið.
til að gerast safnaðarmeðlimir. Hin þrjú mættu
einnig og var ákveðið að hittast daginn eftir til að
ræða inngöngu í söfnuðinn nánar. Buðu Mattew og
Natalie nokkrum kristilegum sálum heim til sín í
sunnudagsmatinn. Kl. 11 um kvöldið fóru bróðir og
mágkona Matthews heim en Natalie fór út til að
kaupa í matinn í verslun sem var opin næturlangt.
Matthew varð eftir heima til að líta eftir dóttur
þeirra, Mikelu sem þá var í heiminn borin.
Þá sofnaði hann og vaknaði aftur kl. 3 um nóttina,
að eigin sögn. Þá var konan hans ókomin heim og
ekkert af fólkinu i næturversluninni kannaðist við að
hafa séð hana. Matthew hringdi í neyðarlínuna og til-
kynnti að kona væri horfin. Honum var sagt að þar
sem engin vitneskja lægi fyrir um að glæpur hefði
verið framinn væri engin ástæða til að fara að leita
að manneskju sem ekki hefði skilað sér heim eftir
þriggja stunda fjarveru. Hann benti á að bíll þeirra
væri á bílastæði og vísaði á hann þar. Hancock pré-
dikari og nokkrir úr söfnuðinum hófu leit, og braut
prédikarinn upp bílinn með hnífi en í honum fannst
ekkert óvenjulegt eða neitt sem gaf vísbendingu um
hvað orðið hefði af Natalie. Síðar tók lögreglan bílinn
til nánari rannsóknar.
Aftakan
Skömmu fyrir hádegi fékk rannsóknarlögreglan
vitneskju um að höfuðlaust lík hefði fundist í gili
nokkra km vestur af Boulder. Þar var ljót aðkoma.
Natalie, eða það sem eftir var af henni, lá á bakinu og
var enn í pilsinu sem hún klæddist kvöldið áður.
Blóðug hvít blússa var rifin af henni og lá blóðmett-
uð á brjósti líksins. Höfuðið lá í um þriggja metra
fjarlægð.
Við krufningu kom í ljós að konan hafði fengið
þungt högg á aftanvert höfuðið og síðan verið kyrkt.
Höfuðið var skorið af í einu hnífsbragði og morðing-
inn hafði greinilega þurrkað af hnífsblaðinu á blúss-
unni.
Þegar Matthew var sagt að kona hans væri látin
svaraði hann að hann vissi ekkert hvað hann ætti til
bragðs að taka því þetta hefði aldrei komið fyrir sig
áður.
Hancock prédikari ráðlagði Matthew að hætta að
gefa lögreglunni upplýsingar en fá sér lögfræðing. En
ráöleggingin kom of seint. Hann var þá þegar búinn
að leyfa húsrannsókn og leit i bíl Natalie. Niður með
Móðurmóðir Mikela fékk umráðarétt vfir barninu
ineð dómi og heldur hér á henui sigri hrósandi.
Natalie var nýbúin að ala barn þegar eigininaður
liennar og barnsfaðir tók liana af lífi.
framsæti farþegans fannst blóðugur hanski og var gat
eftir hnífskurð á einum fingrinum. I farangursgeymsl-
unni voru blóðugar buxur með fingraförum Matthews.
í íbúðinni fundust gögn um að Natalie var líftyggð
fyrir 250 þúsvmd dollara.
Nokkrum dögum eftir morðið fannst veski Natalie
við hraðbrautina milli Boulder og Longmont. í því var
ökuskírteini hennar og 20 dollarar. En bíllyklarnir og
ávísanahefti var horfið. Þótti fullvíst að ekki var um
ránmorð að ræða og engu kynferðislegu ofbeldi var
beitt. En möguleiki þótti að bílþjófur hefði verið á ferð
og allt mistekist í höndunum á honum.
Þegar lögreglumennirnir sem rannsökuðu morðið
fréttu að Matthew héldi við mágkonu sína fóru hjólin
að snúast. Það var laugardagsmorguninn 23. október,
þegar hann sat í eldhúsi Lisu, eiginkonu bróður síns,
að lögreglumenn komu þar inn óboðnir og tilkynntu
honum að hann væri tekinn fastur, ákærður fyrir
morð.
Eftir handtökuna var það borin von að nokkur úr
söfnuðinum gæfi neinar upplýsingar sem varpað gætu
frekara ljósi á atburðarásina. Prédikarinn Troy
Hancock fyrirskipaði söfnuðinum að segja ekki orð við
útsendara yfirvaldanna sem kynnu að skaða bróður
þeirra í trúnni. En það var hvort sem var vafasamt að
nokkur úr söfnuðinum gæti gefið nánari upplýsingar
um morðið en þau sönnunargögn sem lögreglan hafði
þegar undir höndum.
Sönnunargögnin voru mörg. Blóðið á hanskanum
sem fannst í bílnum reyndist vera bæði úr Natalie og
eiginmanni hennar og morðingja. Rifan á hanskanum
passaði við sár á fingri Matthews sem hann var með
þegar hann var yfirheyrður rétt eftir morðið. Hann
skar hanskann og sjálfan sig þegar hann sneiddi höf-
uðið af konu sinni. Hann var búinn að leysa út 250 þús-
und dollara líftrygginguna en var neitað um milljón
dollara sem hann fór fram á við tryggingafélagiö að fá
eftir að konan var myrt. En hún dó rétt áður en líf-
tryggingin rann út.
Dómur og eftirmál
Réttarhöldin hófust áriö 2000 og kom fátt nýtt fram.
Mágkonan harðneitaði aö hafa átt í ástarsambandi við
mág sinn og var hún aldrei kölluð fyrir sem vitni þar
sem saksóknari taldi að framhjáhaldið byggðist aöal-
lega á sögusögnum nágranna sem aldrei sáu þau samt
gera dodo. Erfitt var að útskýra hvað kom manninum
til að afhausa konu sína þótt hann ætti von á líftrygg-
ingarfé eftir fráfall hennar. Sjálfur neitaði hann sakar-
giftum og verjandi hans hélt fast við þá kenningu að
bílaþjófur hefði verið að verki.
Kviðdómur taldi samt óyggjandi að Matthew hefði
myrt konu sína að yfirlögðu ráði, sem þýddi lífstíðar-
dóm án vonar um náðun eða skilorðsbundna lausn úr
fangelsi.
Við réttarhöldin mættu 35 fjölskyldumeðlimir
Natalie og klæddust bolum sem mynd af henni var
prentuð á. Andspænis þeim í réttarsalnum sat
Hancock prédikari með söfnuð sinn og ófriðvænlegt
var milli fylkinganna. Þegar skyldmenni Natalie fengu
tækifæri til að ávarpa réttinn úthúðuðu þeir Mathew
og voru ómyrkir í máli um kirkjudeildina eða söfnuð-
inn sem hann tilheyrði og hélt uppi vörnum fyrir
hann. Móðir hinnar myrtu tilkynnti að Hancock og
söfnuður hans þættist vera kristinn en samanstæði
ekki af öðru en djöflum.
Eftirmál urðu þau að ömmurnar báðar deildu hart
um að fá forsjá Mikelu, sem i fyrstu var í umsjá fóður-
ömmu sinnar, en móðir Natalie lét hvergi sinn hlut og
enduðu deilurnar með þvi að henni var dæmdur um-
ráðarétturinn, en móöir Matthews hefur takmarkaðan
rétt til að umgangast sonardóttur sína. Þó með því
skilyrði að enginn í söfnuði Troys Hancoks fær að
vera í námunda við barnið.