Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 30. DESEMBER 2002 DV Sendu SMS .BOMBA" í 1415 (Tal) eða 1848 (Siminn) 99kr/stk. Nánar á www.landsbjorg.is Silfraðar þyrlur meö ýlum og hala sem þeytast hátt upp. Hraöirm eykst þegar á líöur. Stórskemmtileg og mjög falleg terta sem kemur verulega á óvart. Þyngd: 2,3 kg Tími: 46 sek ' fui&udamawadi* EJORGllttARSVElTAKMA AHUÐARENDA Silfurkulur sem aö sk/otast upp meö silfruöum hala og springa meö miklum hvellum, braki og glitrandi stjörnum, mögnuö terta. Þyngd: 5,75 kg Tími: 42 sek FUI&ELDAMAWADIR EjorgunarsveitAnna Sendu SMS „BOMBA" f 1415 (Tal) eöa 1848 (Síminn) 99kr/stk. Nánar á www.landsbjorg.is DV Fréttir Starf vegamálastjóra: Ráðuneytissfjórinn líklegur umsækjandi Embætti vegamálastjóra er aug- lýst laust til umsóknar. Skipað verð- ur í embættið til fimm ára frá 1. mars 2003. Laun eru samkvæmt úr- skurði kjaranefndar. Helgi Hall- grímsson vegamálastjóri verður sjö- tugur 22. febrúar nk. Starfssvið vegamálastjóra er að veita Vega- gerðinni forstöðu og stjómar hann framkvæmdum í vegamálum. Um- sóknir skulu sendar til ráðuneytis- stjóra samgönguráðuneytisins fyrir 15. janúar 2003. Halldór S. Kristjánsson, staðgeng- ill ráðuneytisstjóra samgönguráðu- neytis, hefur verið settur ráðuneytis- stjóri í samgönguráðuneytinu frá og með 1. janúar nk. til allt að sex mán- aða en Jón Birgir Jónsson ráðuneyt- isstjóri hefur fengið leyfi frá störfúm til sama tíma. Ragnhildur Hjaltadótt- ir skrifstofustjóri mun á sama tíma- bili gegna stöðu staðgengils ráðu- neytisstjóra. Þá hefur Unnur Gunn- arsdóttir lögfræðingur verið sett skrifstofustjóri á skrifstofu ráðherra og ferðamála og Ólafur Hilmar Sverr- isson viðskiptafræðingur verið sett- ur skrifstofustjóri á skrifstofu fjár- mála og póstmála. Þessar breytingar, þó sumar séu tímabundnar, benda til að Jón Birgir Jónsson verði umsækj- andi um starf vegamálastjóra. Fjöl- margir álíta einnig að Sturla Bööv- arsson samgönguráðherra hyggist sækja um starf vegamálastjóra. Ekki náðist i Sturlu til að bera þetta undir hann en eiginkonan, Hallgerður Gunnarsdóttir, segir það fjarri lagi að Sturla ætli að skríða í skjól sem embættismaður og hann muni alls ekki sækja um starfið. -GG DV-MYND EVA HREINSDÖTTIR Uti í Jólablíðunni Sigrún og Tryggvi sitja úti í blíöviöri á jóladag, hlýindin hafa veriö meö eindæmum. Klifurrós orðin græn og brumið komið fram Bragi í Eden var að sýna klifur- rós, sem er farin að vaxa upp með útidyrum' Edens, þegar forvitinn fréttaritara DV bar að. Veðrið þenn- an annan jóladag var með eindæm- um gott. Þau hjón Sigrún og Tryggvi, sem skroppið höfðu til Hverageröis í veðurblíðuna, fengu sér stóla og nutu blíðunnar úti við eftir að hafa keypt túlípanaskreyt- ingu inni í Eden. Á bak við þau, við dymar, sést klifurrósin, sem heitir pólstjama og blómstrar hvítum blómum á sumrin. -eh Reylq avíkurborg Skipulags- og byggingarsviö A KÓPAVOGSBÆR Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík og Kópavogi Reykjanesbraut við Mjódd, gatnamót við Stekkjabakka (Höfðabakka) Smiðjuveg og nágrenni, breyting á deiliskipulagi. í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi Reykjanesbrautar við Mjódd, sem samþykkt var í bæjarstjórn Kópavogs þann 7. september 2000 og borgarráði Reykjavíkur þann 10. október 2000. Breytingin varðar gatnamót við Stekkjabakka (Höfða- bakka) Smiðjuveg og nágrenni þeirra. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingum á gönguleiðum um gatnamót Reykjanesbrautar, Höfðabakka (Stekkjarbakka) og Smiðjuvegar og auk breytinga á hringtorgi við Smiðjuveg og tengingum þess m.a við húsagötu Smiðjuvegar 13, 15, 19, 21 og 23. Þá gerir tillagan ráð fyrir settjörn austan Reykjanesbrautar. Um breytingarnar vísast nánar til tillögunnar sjálfrar. Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð og á skrifstofu bæjarskipulags Kópavogs, Fannborg 6, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 30. desember 2002 til 10. febrúar 2003. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa Reykjavíkur eða bæjarskipulags Kópavogs fyrir 10. febrúar 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 29. desember 2002. Skipulagssfulltrúi Reykjavíkur Skipulagsstjóri Kópavogs Sambýliö Baröastöðum hlýtur styrk VGK verkfræöistofa hf. gaf Sambýlinu Barðastöðum í Grafarvogi veglega jóla- gjöf 22. desembersl. þegarhún styrkti sambýliö meö fjárframlagi aö verö- mæti 150 þúsund krónur. Var styrkurinn afhentur á fyrstu aöventuhátíö sam- býlisins þar sem mikil gleöi og sannkölluö jólastemning ríkti. Á myndinni sést Laufey Ólafsdóttir, forstöðukona sambýlisins, veita styrknum viötöku úr hendi Ragnars Kristinssonar, stjórnarformanns VGK. Ungmennum boðið til Japans Japönsk stjórnvöld hafa ákveðið að bjóða nokkrum íslenskum ung- mennum í tveggja vikna náms- og kynnisferð í mars. íslendingum á aldrinum 18-33 ára gefst kostur á að senda inn stutta ritgerð á ensku fyrir 20. janúar og verða nokkrir þátttakendur boðaðir í viðtal. Alls verður ungmennum frá 24 Evrópu- löndum boðið til ferðarinnar og fá þeir að kynnast uppbyggingu stjórn- og hagkerfis Japans og fá innsýn í menningu landsins. Ung- mennin munu búa á japönskum heimilum og hitta jafnaldra sína í ferðinni. Fjögur ritgerðarefni eru í boði og fást nánari upplýsingar hjá Sendiráði Japans með því að senda tölvupóst á netfangið jap- an@itn.is. -hdm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.