Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 27. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003

Fréttir

I>V

Mál manns sem varð öryrki af völdum asbestmengunar eftir 40 ár starf í Áburðarverksmiðjunni:

Dánarbúi dæmdar 1,2

milljónir í skaðabætur

- fordæmi fyrir fólk, haldið asbestmengun

Áburðarverksmiðjan í Gufunesi

hefur verið dæmd tÚ að greiða dán-

arbúi manns sem varð öryrki af

völdum asbestmengunar í verk-

smiðjunni 1,2 milljónir króna í

miskabætur. Hann lést í fyrra, 76

ára, en hafði síðustu misserin sem

hann lifði farið fram á 11,5 miIJjón-

ir í bætur vegna tjóns sem hann

varð fyrir á 40 ára starfsferli í

Áburðarverksmiðjunni.

„Þetta er stefnumarkandi dómur

á sínu sviði, enda í fyrsta skipti hér

á landi sem vinnuveitandi er dæmd-

ur til að greiða starfsmanni skaða-

bætur vegna tjóns sem rakið er til

asbestmengunar," sagði Kristján B.

Thorlacius, lögmaður mannsins, við

DV. „Ég tel mjög líklegt að dómur-

inn muni hafa fordæmisgildi fyrir

þá sem orðið hafa fyrir asbestmeng-

un við vinnu sina á undanförnum

árum eða áratugum, enda asbest

víða verið notað hér á landi."

Kristján segir að ekki sé víst að

fólk átti sig alltaf á að það hafi orð-

Aburöarverksmiöjan

/' Gufunesi

ið fyrir asbestmengun og hafi ein-

kenni vegna hennar. „Umbjóðandi

minn var t.d. í 20 ár talinn vera með

mæði og önnur einkenni vegna

hjartasjúkdóms en reyndist svo

vera með asbest í lungum."

Frá árinu 1982 hafði maðurinn

verið meðhöndlaður sem hjartasjúk-

lingur. Það var ekki fyrr en hann fór

til lungnasérfræðings árið 1999,

læknis sem nýkominn var frá

Bandaríkjunum, sem hann greindist

með réttan sjúkdóm, það er lungna-

sjúkdóm sem stafaði af asbestmeng-

un úr Áburðarverksmiðjunni.

Ef að hefði...

í dóminum kemur í raun fram að

hefði maðurinn ekki látist á meðan

mál hans var rekið fyrir dómi hefði

útreikningur bóta verið grundvall-

aður á varanlegri örorku. Því verði

hún ekki grundvölluð á útreikning-

um tryggingafræðinga sem lágu fyr-

ir i dómsmálinu.

Héraðsdómur segir að ráða megi

að maðurinn hafi orðið fyrir mikl-

um þjáningum af völdum sjúkdóms

síns eftir árið 1992. Sjúkdómurinn

hafi á ýmsan hátt raskað högum

hans eftir að hann komst á eftir-

laun. Hann hafi þurft að nota súr-

efni heima og á ferðalögum. Hann

hafi mæðst mjög á göngu og átt

erfitt með að ganga upp stiga.

„Fallast má á að öndunarerfið-

leikar stefnanda vegna asbestsjúk-

dóma hafl valdið honum verulegum

miska síðustu 10 æviár hans," sagði

dómurinn sem byggði niðurstöð-

una, að dæma Áburðarverksmiðj-

una til að greiða dánarbúi manns-

ins 1,2 milljónir, á miskaþætti.

Ótt

SÚRA GRJÓNA

PUNGA, TAKK!

Afkoma Bakkavarar Group hf.:

Ríflega 2,1 millj-

aröur í hagnað

Hagnaður Bakkavarar Group fyr-

ir skatta á árinu 2002 var rúmlegar

2,1 milljarður króna. Þetta er 296%

aukning hagnaðar milli ára, en

hagnaður félagsins fyrir skatta árið

2001 var 533 milljónir króna. Er

þetta langbesta afkoma félagsins

frá upphafi.

Rekstrartekjur félagsins jukust

um 200%, eða úr 6.114 milljónum

króna í 18.286 milljónir króna. Þá

jókst veltufé frá 616 miTJjónum

króna árið 2001 í 2.089 milljónir

króna árið 2002, eða um 239%.

Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-

magnsliði (EBITDA) var 3.120 millj-

ónir króna og jókst um 233% milli

ára.                                       -HKr.

London í mars

#1

Fótboltafár!

Knattspymuvellir Englands iða af lífi í mars. Lág fargjöld

lceland Express gera þér kleift að skreppa og standa með þínum

mönnum. Kannaðu stöðuna, á þoðstólum verða m.a. leikir

Tottenham-Liverpool, Arsenal-Roma og Chelsea-Man.City. Þú gætir

einnig hoþpað uþp í lestina og séð Man. Utd. taka á móti Leeds!

London

tra

www.soccernet.com

www.ticketmaster.co.uk

1 £1

þáðar leiðir með flugvallarsköttum

O'

lceland Express

Gildir ef bðkaö er á Netinu. Takmarkaö sætafr

www.icelandexpress.is ssooé


DV-MYND GVA

Skálaö í kínversku hrísgrjónavíni á þorrablóti pottfélaga

Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráöherra, skenkir hér af kínversku

hrísgrjónavíni á þorrablóti nokkurra félaga í heita pottinum viö Laugardals-

laug. Þorrablótiö er oröinn fastur liöur í lífi þeirra félaga. Sömu sögu er að

segja af hrísgrjónavíninu góða. Upphafið má rekja til þess tíma er Steingrím-

ur var forsætisráöherra. í heimsókn tii Kfna fékk hann gefíns einn kassa af

þarlendu hrísgrjónavíni. Tók hann síðan upp þann sið aö skenkja afbirgðun-

um á þorrablótum félaganna. Eftir að þrigðirnar þraut hefur Steingrímur samt

haldið uppteknum hætti og útvegað sérstaklega hrísgrjónavínið frá Kína til

að þrjóta ekki þessa merkilegu hefð.

Sjóntækjafræðingar í áralangri baráttu viö kerfið:

Fá ekki viðurkenn-

ingu á sínu fagi

- ætla samt að hefja sjónmaelingar á mánudag

Félag íslenskra sjóntækjafræð-

inga mun á mánudag styðja félags-

menn sína í að hefja sjónmælingar á

stofum sínum þrátt fyrir að hafa

ekki fengið viðurkenningu með lög-

um á að þeim sé það heimilt. Sjón-

tækjafræðingar hafa árum saman

barist fyrir þessum rétti sínum sem

viðurkenndur er í flestum Evrópu-

rikjum utan íslands. Hérlendis hef-

ur einungis menntuðum augnlækn-

um verið heimilt að stunda slíkar

mælingar.

Dögg Pálsdóttir hrl. er lögfræð-

ingur Sjóntækjafélagsins og hefur

hún gert samantekt á stöðu þessara

mála í sögulegu samhengi sem birt

er á nýjum vef félagsins, optiker.is.

Þá hefur Dögg skoðað réttarstöðu

sjóntækjafræðinga gagnvart ávísun

á sjónhjálpartæki. Setning laga um

sjóntækjafræðinga nr. 17/1984 tókst

ekki fyrr en í þrioju tilraun.

Tvívegis dagaði uppi frumvörp til

laga um gleraugnafræðinga og sjón-

fræðinga 1976 og 1977. í bæði skipt-

in fengu frumvörpin ekki brautar-

gengi, væntanlega vegna ákvæða

þeirra um aö sjónfræðingar gætu

starfað eftir eigin sjónlagsmæling-

um á sjúklingi, með ákveðnum tak-

mörkunum þó. Segir Dögg að svo

virðist sem augnlæknar hafl beitt

sér gegn þessum ákvæðum og að

það hafi stöðvað frumvörpin í bæði

skiptin.

Kristinn Kristinsson, stjórnar-

maður í Félagi íslenskra sjóntækja-

fræðinga, segir að þar á bæ séu

menn orðnir langþreyttir á sinnu-

leysi yfirvalda gagnvart umleitun

sjóntækjafræðinga. Ekki verði beð-

ið lengur og því muni sjóntækja-

fræðingar hefja mælingar á mánu-

dag hvað sem löggjöf líður.

-HKr.

Stuttar fréttir

Magnús Þór leiðir listann

í sjö efstu sætun-

um á lista Frjáls-

lynda flokksins í

Suðurkjördæmi

fyrir komandi al-

þingiskosningar

eru:

Magnús Þór Haf-

steinsson, fiski-

fræðingur, búfræðingur og frétta-

maður, Akranesi; Grétar Mar Jóns-

son skipstjóri, Sandgerði; Arndís

Ásta Gestsdóttir leikskólakennari,

Selfossi; Hanna Birna Jóhannsdótt-

ir stuðningsfulltrúi, Vestmannaeyj-

um; Stefán Brandur Jónsson raf-

virkjameistari, Höfn í Hornafirði;

Kristín María Birgisdóttir nemi,

Grindavík, og Benóný Jónsson líf-.

fræðingur, Hvolsvelli.

Vaðlaheiöargöng

Bæjarráð Akureyrar hefur sam-

þykkt að bærinn tæki þátt í stofn-

un undirbúningsfélags vegna fyrir-

hugaðra Vaðlaheiðarganga. Óskað

er eftir að bæjarráð taki afstöðu til

stofnunar undirbúningsfélags með

aðild allra sveitarfélaga á svæðinu

og nokkurra lykilfyrirtækja.Umboð

bæjarstjóra felur í sér heimild til

að skrá Akureyrarbæ fyrir hlutafé

í félaginu.

Árekstrahrina í hálku

Um 30 árekstrar urðu í Reykja-

vík í gær en engin alvarleg slys á

fólki. Starfsmenn Reykjavíkurborg-

ar voru að saltbera í allan gærdag

en vegna þess að hitastig sveiflað-

ist stundum niður fyrir frostmark-

ið myndaðist stöðugt ný svell-

himna á götunum. Gera má ráð

fyrir að í einhverjum tilvikum hafi

bifreiðar verið á sumardekkjum.

Nokkrir árekstrar urðu einnig á

Akureyri í gærdag og gærkvöld af

sömu ástæðu.

Undrandi ráðherra

Iðnaðarráðherra,

Valgerður Sverris-

dóttir, segir að það

veki upp spurning-

ar af hverju Lands-

virkjun hafi ekki

komið auga á

möguleikann á því

að ráðast í fram-

kvæmdir við Norðlingaölduveitu

án þess að skerða friðlandið. Iðnað-

arráðherra segir tillögu setts um-

hverfisráðherra, Jóns Kristjánsson-

ar, afar mikilvæga út frá umhverf-

issjónarmiðum.

Framleiðsluauking

Gúmmívinnslan á Akureyri jók

framleiðslu sína á stálbobbingum

um 40% á síðasta ári og það sem af

er þessu ári hefur salan tvöfaldast.

Metár hjá Tanga

Á síðasta ári tók Tangi á Vopna-

firði á móti meiri uppsjávarafla en

nokkurn tíma áður eða samtals

83.915 tonnum. Þar af fóru 6.600

tonn af síld og loðnu til frystingar.

Kraftlyftingamót

fslandsmeistaramót Kraftlyft-

ingasambands íslands verður hald-

ið í dag í sýningarsal B&L á Grjót-

hálsi. Gert er ráð fyrir miklum

átökum og spennu á þessu fyrsta

kraftlyftingamóti ársins, en að

sögn mótshaldara stefnir Magnús

Ver að nýju íslandsmeti, eða 260

kg. Mótið stendur frá kl. 14 til 16

og er öllum opið.                      -GG

í-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
34-35
34-35
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72