LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 Fréttir I>V Skákfélagið Hrókurinn: Gnðarsterk mot i febrúar og mars Dagana 18. til 27. febrúar nk. fer fram stórmót Hróks- ins og verður teflt á Kjar- valsstöðum. Mótið er líkast til þriðja sterkasta skákmót, á eftir heimsbikarmótunum, sem haldið hefur verið á ís- landi með meðalstigin 2617 skákstig. Alls tefla 10 skák- menn og meðal keppenda ir gríðarlega fallegan sókn- arstíl; Victor Korchnoj, sem er goðsögn í skákheiminum, enda hefur hann verið í fremstu röð í hálfa öld. Aðr- ir keppendur eru m.a. Etienne Bacrot, Bartomiej Macieja, núverandi Evrópu- meistari í skák, Ivan Sokolov, Luke McShane, eru Micheal Adams, sem er HraTn Jökulsson. Hannes H. Stefánsson, Helgi stórstjarna í skákheiminum, fremsti skákmaður Englendinga undanfarin ár og stigahæstur allra meistara Vestur-Evrópu; Alexei Shirov, sem hefur teflt um heims- meistaratitilinn og er einn vinsæl- asti skákmaður heims og dáður fyr- Ass Grétarsson og Stefán Kristjáns- son. í tengslum við skákveislu Hróksins á Kjarvalsstöðum verður gefið út mjög veglegt litprentað mótstímarit. Alþjóðlegt atskákmót til minning- ar um Guðmund J. Guðmundsson verður haldið í Borgarleikhúsinu 3. til 5. mars. Mjóg vegleg verðlaun eru í mótinu og hafa margir af sterkustu skákmönnum heims skráð sig til leiks. Mótið er öllum opið svo al- mennum skákáhugamönnum gefst frábært tækifæri til aö komast í ná- vigi við meistarana. Stigahæsti skák- maður mótsins er Búlgarinn Veselin Topalov, sem er með 2743 Elo-stig, og Michael Adams með 2734 stig. Alls er gert ráð fyrir að tuttugu og fimm stórmeistarar keppi á mótinu og er vonast til þess að sem flestir af ís- lensku stórmeisturunum verði með. Skákfélagið Hrókurinn stendur fyrir skákmótinu í samvinnu við Eddu út- gáfu. -GG Vestfirðingar bjóða umhverfissinnum til samstarfs: Kalla eftir 700 störfum - þar sem stóriðjuframkvæmdir eru ekki fyrirhugaðar Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á ísafirði, segir að umhverfissinnar hafi treyst sér til að skapa sama fjölda starfa fyrir austan með sínum aðferð- um og skapist við byggingu Kára- hnjúkavirkjunar og álverksmiðju í Reyðarfirði, eða um 700 störf, og hann vilji bjóða þeim til samstarfs á Vest- fjörðum þar sem ekki eru fyrirhugaðar neinar stóriðjuframkvæmdir. Hér er mikið af óspilltri náttúru. Það er það sem þeir vilja og þeir ætl- uðu að skapa atvinnu með það að leið- arljósi á Austurlandi. Andstæðingar Kárahnjukavirkjunar nefndu ekki hvaða störf þetta væru en nú hafa þeir tækifæri til að sanna að þeir voru ekki að fara með fleipur. Halldór segir að nú þegar hafi hann fengið meiri viðbrögð en hann hafi órað fyrir og umhverfls- sinnar hafi boðað í samtölum við hann að þeir vilji koma véstur til viðræðna. Dagsetning bess fundar er þó ekki ákveðih. Bæjarstjóri segir þetta vera m.a. Ósk Vilhelmsdóttur, fram- Halldór Halldorsson. Arnl Finnsson. kvæmdastjóra bakvarðasveitar hálend- isbaráttunnar, Guðnýju Valdimarsdótt- ur, framkvæmdastjóra Landverndar, Guðmund Pál Ólafsson verkfræðing, Áslaugu Jensdóttur og Árna Finnsson, framkvæmdastjóra Náttúruverndar- samtaka íslands. Möguleikar kannaðir Þetta er tækifæri sem umhverfis- sinnar mega ekki láta sér úr greipum ganga og það verður gaman að sjá eftir sjö ár, þegar Kárahnjúkavirkjun er fullbyggð, hvort þeir hafi náð sama ár- angri í sköpun atvinnutækifæra. Ef þeir geta unnið með okkur að því að byggja sterkara samfélag og stuðla að fjölgun íbúa og starfa með sinni hug- myndafræði hafa þeir sannað að þeir höfðu rétt fyrir sér. Árni Finnsson, formaður Náttúru- verndarsamtaka íslands, segir að hann muni fara vestur á firði og kanna alla möguleika og þeir muni í samstarfi við aðila, eins og World Wildlife Fund, kanna hvaða möguleikar séu í stöð- unni. Þrekvirki Ég veit ekki hvort það mun leiða til fjölgunar starfa en ég vona að það geti styrkt það starf sem þegar hefur átt sér stað á Vestfjörðum, sérstaklega At- vinnuþróunarfélag Vestfjarða, þar sem unnið hefur verið þrekvirki í því að finna leiðir varðandi vistvæna ferða- mannaþjónustu, og það má halda áfram á þeirri leið og ná töluvert meiri árangri," segir Árni Finnsson. -GG Skipt um rútu við akstur Foldarskólanemenda: Rútan ekki á slitnum dekkjum Ólöf Bóasdóttir, framkvæmda- stjóri Hópferðamiðstöðvarinnar, segir það rangt að rúta á vegum Hópferðamiðstöðvarinnar hafi verið send óskoðuð norður að Reykjum í Hrútafirði með sex tugi barna og auk þess á lélegum hjólbörðum. Engar rútur eru í eigu Hópferða- miðstöðvarinnar heldur eiga sjálfir hluthafarnir þær en fyrirtækið er með samning við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur um allan akstur á hennar vegum. Ólöf segist ekkert hafa séð athugavert við þetta í upp- hafi en skipt hafi verið um rúru til að styggja ekki foreldrana. Þetta var rúta sem er með skrán- ingarnúmer sem endar á tölustafh- um 0 sem þýðir að hún átti að koma í skoðun í október sl. Frestur er síð- an veittur út janúarmánuð. Um- rædd rúta er í fvulkomlega tækni- lega góðu standi - ekkert að henni, og hún fór með þessa krakka í Foldaskóla að Reykjum. Við fengum athugasemd frá foreldrum og þá ákváðum við að skipta um rútu svo ekki þyrfti að hafa áhyggjur af þvi og sendum aðra rútu norður til að sækja krakkana. Við sögðum niðri á Fræðslumiðstöð að það hefði auðvit- að verið mjög gott að rútan hefði verið skoðuð í október sl," segir Ólöf Bóasdóttir. - Hvað segir þú um þá fullyrð- ingu Halldórs Theódórssonar, föður eins barnsins, að rútan hafi verið á mjög lélegum hjólbörðum? Ég tek ekki undir það. Bíllinn var ekki á neinum Yul Brynner- dekkjum." -GG íbúar á Auðnum á Vatnsleysuströnd einir í húsinu: Vilja ekki vera í sama húsi og byssumaðurinn íbúar og leigjendur á neðri hæð hússins á Auðnum á Vatnsleysuströnd hafa gist heima hjá sér síðustu nætur eftir að hafa hugleitt að leita gistingar annars staðar, t.d. hjá ættingjum eða kunningjum. Davíð Ragnar Bjamason segir að það gefi augaleið að þau búi ekki áfram í sama húsi og maður sem hefur verið að skjóta í allar áttir með sterkum riffli, 223 kaUbera, á efri hæð hússins. Leigjandi efri hæðar hússins var á laugardag uppvis að því að skjóta úr sterkum riffll á dauða hluti á efri hæð- inni en kona og barn leituðu skjóls á neðri hæðinni. Hann hafði yfirgefið húsið en var stöðvaður af Kefiavíkur- lögreglunni mjög ölvaður og veitti ekki viðnám. Maðurinn er nú laus. Davíð Ragnar hitti manninn á þriðjudag og þá lofaði hann því aö dveh'a ekki í ibúð- inni meðan þau væru þar. Við það hef- ur hann staðið. Davíð Ragnar segir að þótt hann lofi bót og betrun geti hans fjölskylda ekki treyst á það enda sé enn töluverð hræðsla i þeim eftir þessa skelfilegu reynslu. Auk Davíðs býr í íbúðinni kona hans, Unnur Inga Karlsdóttir, dóttir þeirra og lítið barnabarn. Þetta er mikið óöryggi sem við búum við og svo virðist sem eftirmálin ætli að verða erfið. Við erum vinnandi fjölskylda og okkar krafa er að fá að lifa í friði og við verðum að geta farið til vinnu á morgnana án þess að lifa í ótta við að eitthvað komi fyrir dóttur- ina og barnið hennar en hún er heima i barnseignarfrii. Þess vegna viljum við. koma okkur í annað húsnæði. Við vilj- um alls ekki vera í sama húsi og þessi maður. Húseigandinn hefur sjálfur haft það á orði að segja manninum upp húsaleigunni en ég veit ekki hvað verð- ur úr því," segir Davíð Ragnar Bjarna- son. Davíð segir að þau leiti að íbúð í Hafnarfirði eða Reykjavík. -GG KLIPPTUÚT OG MÁTAÐU BÍLANA í SÍNU NÁTTÚRULEGA UMHVERFI. > VOLKSWAGEN TOUAREG - NYR AUDI A6 QUATTRO SKODA OCTAVIA KOMBI 4X4 VOLKSWAGEN GOLF VARIANT 4MOTION £<-----------. S.1 MITSUBISHI PAJERO - NÝR