14 LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 2003 Fréttir I>V Krafa um að starfslokasamningar hérlendis séu gagnsæir": Forstjóri General Electric fékk Htla" 13 milljarða - auk þotu og þyrlu - Starfslokasamningar vekja athygli víðar en hérlendis Á síðustu misserum hafa þekktir for- stjórar í atvinnulífinu hætt störfum á góðum" aldri, þ.e. um eða fyrir sex- tugsaldur, bæði af sjálfsdáðum eða eru boðnir starfslokasamningar. Þetta er þó í samræmi við það sem almennt er þekkt í nágrannalöndunum. Margir sem hætta í sínu fastastarfi, sem mætt hefur kannski á þeim í áratugi, eru ekki að hverfa af vettvangi atvinnulífsins held- ur snúa sér að öðru. Þar má nefna Hörð Sigurgestsson hjá Eimskip, sem enn er í starfi, t.d. sem stjórnarformaður Flug- leiða, Þórarin V. Þórarinsson hjá Sím- anum, Friðrik Pálsson hjá SH, sem er stjórnarformaður SÍF, Geir Magnússon hjá Olíufélaginu og Keri, Ólaf Thors hjá Sjóvá/Almennum, sem er stjórnarfor- maður fjárfestingafélagsins Strauma, Axel Gislason hjá VÍS, sem áfram starfar sem framkvæmdastjóri And- vöku og Samvinnutrygginga gt., og Val- ur Valsson hjá íslandsbanka. Ari Edwald, forstjóri Samtaka at- vinnulífsins, segist ekki átta sig á þvi hvort það sé einhver þróun hérlendis í þá átt að starfslokasamningar séu gerð- ir við forstjóra og hvort forstjórar hætti orðið almennt störfum fyrr en áður tíðk- aðist. Engin athugun hafi verið gerð á þviafhálfuSA. Þessir forsrjórar eru kannski í þeim hópi sem hefur hugað með mikilli fyrir- hyggju að sínum lífeyrisréttindum og því sé ekki um að ræða neina sérstaka starfslokasamninga heldur hafi þeir möguleika á því að hætta. Ég held að það verði almennari regla þegar fram í sækir að menn sitji ekki í forstjórastól- um fram til 65 ára aldurs, jafnvel leng- ur, og eru þá yfirleitt ekki sestir í helg- an stein en hafa meiri tíma til að sinna hugðaremum sem ekki gafst mikill tími til áður. Það á eftir að færast í vöxt að menn brjóti upp sinn starfsferil vegna þess að menn eru farnir að sýna almennari fyr- irhyggju í sínum lífeyrismálum. Þróun- in verður einnig i þá átt að ekki þurfi sérstaklega að taka á þeim þætti af hálfu fyrirtækjanna heldur muni þeir sjá um sína lífeyrismöguleika á grundvelli þeirra möguleika sem bjóðast á markað- inum. Viðskiptalífið er lika að breytast þannig að þar er meira kallað eftir reynslumiklum mönnum í sérstök verk- efni, s.s. stjórnarsetur og tímabundin verkefni. Því muni margir þeir sem láti af störfum sem framkvæmdastjórar stórra fyrirtækja enn um sinn hafa tölu- verð umsvif," segir Ari Edwald forstjóri Samtaka atvinnulifsins. VÍS sagt greiða 250 milljónir króna Umræðan um stórkostlega starfsloka- Fréttir vikunnar Starfslokasamningar og tryggingakjör Þingmenn velta því fyrír sér hvort verðmyndun á tryggingum VÍS sé eölileg og hvort tryggingafélagiö og dótturfyrírtæki þess hafi efni á liölega 200 milljóna króna starfslokasamningi fráfarandi forstjóra félagsins. samninga í þjóðfélaginu hefur verið nokkuð þrálát, enda eðlilegt að venjuleg- um launamanni ofbjóði að t.d. fyrrver- andi forstjóri Byggðastofnunar skuli fá við starfslok eftir stutta veru í forstjóra- sætinu 4 ára laun. Er það verjandi í op- inberri stofhun? Á miðvikudag var utandagskrárum- ræða um starfslokasamninga á Alþingi. Málshefjandi, Lúðvík Bergvinsson, sagði þá m.a. að það væri einkennilegt að heyra að samingar um starfslok Ax- els Gíslasonar, forstjóra VÍS, sé trúnað- armál sem komi ekki öðrum við. Hér sé þó um að ræða 250 milljóna króna skuldbindingu. Það sé því eðlilegt að velta því fyrir sér hvort verðmyndun á tryggingum félagsins sé eðlileg og hvort tryggingafélagið og dótturfyrirtæki þess hafi efhi á þessu. Spurningin sem vaknar er sú hvaða áhrif það muni hafa á trú almennings og fjárfesta á þeim verðbréfamarkaði sem hér hefur verið að myndast ef srjórn félags, sem skráð er í Kauphöll ís- lands, kemst upp með það að gera starfs- lokasamning upp. á tugi eða hundruð milljóna króna án þess að þurfa að gera Kauphöll íslands grein fyrir gerningn- um," sagði Lúðvik Bergvinsson. Lúðvik benti á frægan starfsloka- samning sem gerður hafi verið við fram- kvæmdasrjóra General Electric í Banda- ríkjunum, Jack Wells, sem hafði unnið mjög gott starf fyrir fyrirtækið. 1 samn- ingi hans var m.a. ákvæði um matar- Geir A. Guösteinsson blaðamaöur Fréttaljós innkaup, þvotta, fatahreinsun, blóm, miða á íþróttaviðburði, þjóna á heimil- ið, áskriftir að blöðum og timaritum, fjögur heimili með gervihnattamóttöku, greiðslu veitingahúsareikninga, þotu, þyrlu, fjölda glæsibíla til viðbótar þeim 16,9 milljónum dollara eftirlauna, eða 13,2 milljörðum íslenskra króna, sem honum voru ætlaðar. Við lestur á slíkum samningi blikna að vísu þeir samningar sem gerðir hafa verið við íslenska forstjóra. Lúðvík benti á að í Bandaríkjunum væri umræðan um það hvort starfsloka- samningar væru sanngjarnir og hvort viðkomandi hefði unnið fyrir hlunnind- unum og hvort hluthafarnir séu sáttir við hann eða ekki. Þar er fjárfestum og hluthöfum þegar ljós sá kostnaður sem fyrirtækin hafa af starfslokasamningn- um. Einnig hvort samningurinn hefur áhrif á það verð sem greitt er fyrir hlutabréf í viðkomandi fyrirtæki. Hér- lendis komast fyrirtæki í flestum tilfell- um upp með það að greina ekki frá þess- um samningum og telur Lúðvík það ein- sýnt að slíkt grafi undan trausti á mark- aðnum sem geti haft mjög alvarlegar af- Full bm í afspennandi vörum 4 ^ 1 Útsalan í fullum gangi!!! Ektapelsará 75 pús. Ekta mokkajakkar á 15pús. Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin. Sigurstjarnan í bláu húsi við Fákafen, sími 588 4545. leiðingar fyrir emahagslífið. Sú varð raunin í Bandaríkjunum þegar upp komst um svik Enron og fleiri stórfyrir- tækja. Kauphöllin vill gagnsærri" upplýsingar Viðskiptaráðherra, Valgerður Sverr- isdóttir, sagði af þessu tilefni það eðli- lega kröfu að upplýsingar um fyrirtæki sem væru á verðbréfamarkaði væru gagnsæjar" og það itarlegar að fjárfest- ir gæti tekið upplýsta ákvörðun um fjár- festingu í viðkomandi fyrirtæki. Við- skiptaráðherra upplýsti að Kauphöll ís- lands væri að vinna að nýjum reglum um upplýsingar um kjör æðstu stjórn- enda í félógum og samkvæmt þeim verð- ur skylda að greina frá ráðningarsamn- ingum við æðstu stjórnendur. Þá verður einnig skylda að greina frá óvenjulegum samningum við æðstu stjórnendur skráðra félaga. Því megi álíta að eftir mitt þetta ár verði skylt aö greina frá starfslokasamningum æðstu stjórnenda íslenskra fyrirtækja á verðbréfamark- aði. Lög um ársreikninga, hlutafélög og kauphallir fela m.a. í sér upplýsinga- skyldu um starfslokasamninga á hlut- hafafundi eða í ársreikningi en ekki að þeir séu lagðir fram um leið og þeir eru gerðir. Skráð félög eiga því ekki að fela þessa þætti fyrir eigendum sínum eða almenningi sem á viðskipti við fyrir- tækin. Útför í starf slokasamningi En starfslokasamningar vekja athygli víðar en hérlendis, eins og áðurnefndur ofursamningur við forsrjóra General El- ectric ber með sér. Dick Cheney, vara- forseti Bandaríkjanna, gerði starfsloka- samning við olíufyrirtækið Halliburton Co. skömmu áður en Bush tilkynnti að hann mundi verða hans varaforsetaefhi, Starfslokasamningurinn hljóðaði upp á 1,6 milharða islenskra króna. Fráfar- andi forseti Keníu, Daniel arap Moi, sem gegnt hefur forsetaembættinu í ald- arfjórðung, verður ekki á flæðiskeri staddur. Hann fær 80% af núverandi launum, sex bíla, þar af tvær límósínur, og sjö einkabílstjóra, 34 skrifstofumenn og 9 öryggisverði, 12 herbergja lúxusset- ur, fullt af húsgögnum, þrjá kokka og tvo þjóna eða hreingerningalið", íþróttasal, fullan af tækjum, sundlaug, sánabað og tennisvöll. Til viðbótar þessu er læknisaðstoð fyrir Moi og hans fjölskyldu og allur ferðakostnaður inn- anlands sem utan. Þegar hann geispar svo golunni í fyllingu tímans fer útförin fram á kostnað rikisins með mikilli við- höfn. Aðeins fyrsta mánuðinn kostar þessi starfslokasamningur" Nígeríufor- seta skattgreiðendur litla 70 milljarða króna. Ljóð og Þingvellir Ingibjörg Haraldsdóttir hlaut ís- lensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir ljóða- bókina Hvar sem ég verð. í þakkar- ræðu sinni hafnaði Ingibjörg því að ljóðið væri á undanhaldi. I flokki fræðirita og rita almenns efhis vann bókin Þingvallavatn - Undaheimur í mótun en ritstjórar þess eru Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson. Bókin var aldarfjórð- ung í vinnslu og og leggja um 50 fræðimenn til efni í hana. Eining í Framsókn Framboöslistar Framsóknar- flokksins í báð- um kjördæmum Reykjavíkur voru ákveðnir á þriðjudaginn og rikti eining um skipan listanna eftir að Guðjón Ólafur Jónsson gaf eftir annað sætið. Halldór Ásgrimsson leiðir listann í Reykjavikurkjördæmi- norður, í öðru sæti er Árni Magn- ússon og í þvi þriðja er Guðjón Ólafur Jónsson. Jónina Bjartmarz skipar fyrsta sætið í Reykjavíkur- kjördæmi-suður, í öðru sæti er Björn Ingi Hrafnsson og í þriðja er Svala Rúna Siguröardóttir. Halldór Ásgrímsson. I Matarkarfan lækkar Matarkarfa DV hefur lækkað um 9% að meðaltali frá því i janúar í fyrra. Verðkönnun DV var gerð samtímis i níu verslunum og var verð ellefu vörutegunda kannað. Bónus var með lægsta verðið en mesta lækkunin milli ára var í Nettó. Sama karfa hækkaði um 17% milli áranna 2001 og 2002. Hótað vegna stóriðjubaráttu Öflugasta tals- manni srjóriðju- framkvæmda á Austurlandi, Smára Geirssyni, hefur ítrekað verið hótað af umhverfisvernd- arsinnum og Smári Gelrsson. ekki síst í Reykjavík. Hon- um hafa borist hringingar sem hann telur hafa verið skipulagðar. Náttúru ekki raskað Jón Kristjánsson, settur um- hveríisráðherra, hefur úrskurðað í ellefu kærum sem borist hafa vegna Norðlingaölduveitu. Ráð- herra sagðist hafa fengið verkfræð- ing til að kanna tæknilegar út- færslur og niðurstaða þeirra leiði í ljós að mögulegt sé að minnka Norðlingaöldulón þannig að það nái ekki inn á friðlandið og raski hvorki náttúru né grunnvatnsstöðu í Þjórsárverum. Þingvellir á heimsminjaskrá Þingvellir voru tilnefndir á heimsminjaskrá UNESCO í vik- unni. Staðirnir 730 á heimsminja- skránni eru taldir sameiginleg arf- leið mannkyns og eru allir einstak- ir. Niðurstöðu er að vænta sumarið 2004. -dh