I LAUGARDAGUR l. FEBRÚAR 2003 H&lCf O f' tj> ld C7 JL9\f 17 í I í Mér er ekki lengur illa við sjónvarpsmynda- vélarnar. Mér er þó enn illa við þessar venjulegu myndavélar sem ná andartakinu." Mér þótti 1 athyglin erfið Kolbrún Björnsdóttir stjórnar við annan mann einum vinsælasta sjónvarpsþætti á Islandi, Djúpu lauqinni á Skjá einum. Kolbrún segir íviðtali við Helgarblað DV frá feimnu stúlkunni úr Árbænum, börnunum sínum tveimur og óraunveruleika íslenskra skemmtistaða. Sjá næstu opnu I i- Hver ertu? Ég fæddist á Siglufirði árið 1974 og bjó þar fyrstu tvö ár ævi minnar. Svo fluttum við austur á Neskaup- stað og bjuggum þar í tvö ár. Síðan hef ég búið í Ár- bænum. Ég er ósköp venjuleg stelpa, var í Árbæjarskóla og fór í Versló. Ég var óskaplega feimin og bæld mann- eskja - langaði helst að ganga með poka á hausnum fyrsta árið mitt í Versló. Ég lét samt mana mig út í félagslífið þar og síðasta árið mitt var ég svo komin i stjórn nemendafélagsins. Ég get samt ekki annað en hlegið þegar ég skoða myndirnar frá þessu tímabili - með perlueyrnalokka og með tösku í stíl við skóna! Nú er ég í gallabuxum; orðin venjuleg tveggja barna heimilisleg móðir sem býr í blokk í Árbænum. Stundum er gert ráð fyrir því að leiðin úr Verzlun- arskólanum liggi í viðskiptafræði eöa lögfræði; það hefur ekki höfðað til þín? Nei, eiginlega fór ég í Versló af því að mamma var þar, auk þess sem námið er mjög almennur og góður grundvöllur. Þar eru margar námsgreinar sem ætti að skylda alla skóla til að kenna: lögfræði, verslunar- réttur og auglýsingasálfræði sem nýtist mér vel í dag - og enska, mikil enska. Ég sé ekki eftir einni mínútu í Versló, það var frábær tími.