Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 27. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						Helaa rbla<3 13 V

LAUGARDACUR   I.   FEBRÚAR  2003

Þegar ég kláraði Versló langaði mig að vinna við

fjölmiðla en það er ofboðslega erfitt að komast inn í

þann geira. Öll plön fóru líka fyrir ofan garð og neð-

an þegar ég varð ófrísk að dóttur minni. Ég var lengi

að átta mig á því hvað ég vildi gera og er ekki enn

búin að því. Ég veit ekki hvað ég geri þegar ég klára

þáttinn í vor; hvort það verður vinna á skrifstofu eða

í sjónvarpi eða hvort ég fer að skúra tannlæknastof-

ur á kvóldin."

Þú varst feimin þegar þú byrjaðir í Versló. Hvað

gerðist eiginlega þar?

„Ég er enn þá feimin. Mér fannst það svolítið lang-

sótt hjá mér að sækja um starf í Djúpu lauginni. Mér

er til dæmis hræðilega illa við myndavélar og það

reyndist erfitt að finna mynd af mér til að senda með

umsókninni! Þetta voru kannski ófgarnar í að reyna

að sigrast á óttanum - að vera svona hrædd við

myndavélarnar og það að vinna fyrir framan þær. Ég

átti heldur aldrei von á aö hringt yrði í mig. En það

var rosalega gaman og frábært að fá tækifæri til að

breyta algerlega til."

Virkaði þessi þerapía?

„Já. Mér er ekki lengur illa við sjónvarpsmynda-

vélarnar. Mér er þó enn illa við þessar venjulegu

myndavélar sem ná andartakinu."

Aldurinn er afstæður

Þú átt tvö börn. Hvað eru þau gömul?

„Prinsessan mín, Theódóra, varð sex ára i október

og litla dúllan, Arnór

þ-              m           Blær,  verður  fjögurra

/~\ Jk"Jk'~%          ára * februar: við eiguni

O L Ll      ™   ^^dag,   ég

fekk hann i afmæhsgjof.

*+ m                        Og það var æðisleg af-

I ^ -^\                  mælisgjöf."

Þú virðist yngri.

„Margir halda að ég

sé yngri. í haust var ég

stoppuð     á     tveimur

skemmtistöðum     sama

kvöldið  og  spurð  um

skilríki.   Hvaða   konu

fmnst það ekki frábært!

Ég er kannski að yngj-

ast upp núna, hætt með

perlueyrnalokkana og komin í hermannafötin. En svo

eru aðrir sem halda að ég sé eldri. Annars flnnst mér

sjálfri ofboðslega erfitt að átta mig á aldri fólks. Ætli

aldurinn sé ekki bara afstæður eftir allt saman!"

Allt að vinna

Af hverju sóttirðu um starf í Djúpu lauginni? Varla

bara til að sigrast á feimni:

„Mig langaði líka til að vinna við fjölmiðla. Ég hef

alltaf horft mest á Skjá Einn frá því hann byrjaði og

að sjálfsógðu líka Djúpu laugina. Alltaf í sófanum á

fóstudagskvöldum kl. 22, með popp og kók! Oft hvarfl-

aði aö mér hvað það hlyti að vera gaman að taka þátt

í þessu en að sjálfsögðu hvarflaði það aldrei að mér

að ég yrði í þessari stöðu. Svo var alltaf verið að aug-

lýsa eftir þáttarstjórnendum. Ég hugsaði með mér að

ég hefði engu að tapa en allt að vinna. Ég sagði eng-

um frá umsókninni fyrr en hringt var í mig og ég beð-

in um að koma í prufu. Þetta er einn af þeim hlutum

sem maður gerir bara."

Svona þáttur hefði veriö óhugsandi fyrir fáum

árum:

„Já."

Hvað heldurðu að hafi breyst? Hefðir þú farið í

svona þátt fyrir fimm árum?

„Ég veit það ekki ... örugglega ekki því ég er svo

hrikalega feimin. Ég fór samt í hann í vor en það var

vegna þess að ég hafði sótt um starfið og þótti lélegt

að vilja ekki fara í þáttinn sem ég vildi stjórna. Þá

komst ég aö því hvað þetta var rosalega gaman.

En ef ég hugsa nokkur ár aftur í tímann hefði ég

aldrei trúað því að ég yrði árið 2003 tveggja barna

móðir og stjórnandi stefnumótaþáttar. Ég hefði hleg-

ið ef einhver hefði sagt mér það. Þetta sýnir að mað-

ur veit ekkert um framtíðina."

Pikköpp í beinni

Hvernig gengur að fá fólk í þáttinn?

„Mjög misjafnlega. Yfirleitt mjög vel samt. Ég held

að stærsta hluta fólks langi í þáttinn en vanti oft af-

sökun til þess. Flestir hafa spáð í það hvernig væri að

sitja þarna og væru til í að prófa. Stundum þarf að

eyða miklum tíma í að fá fólk til að vera með og aör-

ir vilja alls ekki koma. En ég hef tekið eftir því að

margir sem vilja koma í þáttinn hjá okkur núna eru

tengdir fólki sem kom í þáttinn hjá okkur í haust.

Það er jákvæð upplifun að vera í Djúpu lauginni og

það spyrst út. Þeir sem prófa gera sér grein fyrir þvl

að það er ekkert stórmál. Það er bara spurning um að

gera eitthvað öðruvísi en vaninn er á föstudags-

kvöldi: stíga út fyrir þægindahringinn sinn."

... og fyrir framan aðeins fleiri!

„Já, bara fyrir framan sjötíu þúsund manns. Það er

ekkert agalegt."

Boðið í brúðkaup?

Hvert er viðhorf þitt til ástarinnar? Tengist ástin

þessum þætti, Djúpu lauginni?

„Hún getur gert það. En ég segi fólki alltaf að koma

í þáttinn með jákvæðu hugarfari og ef það lendi á

stefnumóti eigi það að fara með því hugarfari að það

sé að fara að skemmta sér og kynnast nýjum einstak-

lingi og kannski eignast vin. Ef það er meira er það

frábært en fólk ætti ekki að búast við neinu og skilja

allar væntingar eftir heima. Ef fólk kemur með því

hugarfari að finna draumaprinsinn eða -prinsessuna

þá verður það í flestum tilfellum fyrir vonbrigðum.

Þá getur þetta orðið vandræðalegt. Það hefur komið

fyrir að fólk verður yfir sig ástfangið eftir að hafa

hist í Djúpu lauginni. Annað parið er farið að búa en

hitt býr enn í foreldrahúsum."

Þannig að þér gæti verið boðið í brúðkaup?

„Já, ég er viss um það."

f Survivor

Má ekki halda því fram að Djúpa laugin sé eina ís-

lenska raunveruleikasjónvarpið?

„Ég held að Djúpa laugin komist næst því. Þetta er

i rauninni raunveruleikinn því við styðjumst ekki

við neitt handrit heldur slengjum saman tveimur

ókunnugum manneskjum."

Horfirðu á Batchelor og Temptation Island?

„Já, ég er forfallinn aðdáandi Bathcelor, Tempta-

tion Island og Survivor. Mig dreymdi í nótt að ég

væri að keppa í Survivor. Það var gaman."

Hvernig gekk, varstu komin í úrslit?

„Þetta var reyndar fyrsta daginn. Allir voru með

gsm-síma og ég hékk í símanum og spjallaði við vini

mína. Svo dimmdi og byrjaði að rigna og við uppgötv-

uðum að við vorum ekki búin að ná í vatn, kveikja

eld og byggja kofa: týpískur Survivor-þáttur."

Hverjir voru með þér í þættinum?

„Það var misjafnt hvort ég þekkti fólkið eða ekki

en flestir sem voru með mér í liði tengdust mér:

pabbi minn, dóttir mín og vinir minir. Þetta var mjög

skrýtinn draumur - en ég var þó í Survivor."

Athyglin erfið

Eru einhverjir sem ofsækja ykkur í Djúpu lauginni

og vilja komast I þáttinn?

„Nei, við höfum fengið jákvæð viðbrögð, sem betur

fer. Ég hef heyrt af fólki sem er í sjónvarpi og lendir

í hálfgerðu umsátri. Ég hef verið heppin með það að

fólk er mjög elskulegt við mig. Að sjálfsögðu hef ég

fengiö mikið af tölvupósti en það hefur allt verið á

kurteislegum nótum. Eftir að þættirnir byrjuðu í

haust hætti ég á tímabili að fara út að skemmta mér.

Mér þótti athyglin erfið, enda mjög óvön henni. Eg

kann betur við mig núna og er farin að slaka betur á

og finnst þaö meiri háttar þegar fólk kemur og spjall-

ar. Það er frábært hvað allir eru jákvæðir og yndis-

legir sem er gott því fólk veltir sér oft frekar upp úr

neikvæðari hliðum lífsins."

En hvernig hafa foreldrar þínir og afi og amma tek-

ið því að þú stjórnir Djúpu lauginni?

„Afskaplega vel. Ég held bara að þau séu mjög stolt

af mér. Það er svo mikið að gera hjá mér og ættingj-

arnir eru ánægðir með að sjá mig allavega einu sinni

í viku - í sjónvarpinu."

Þið voruð í haust með eldri borgara í þættinum,

hvernig kom það til?

„Við erum með vikulega þætti og þeir geta orðið

mjög líkir. Til að fá tilbreytingu höfum við haft mis-

munandi aldurshópa og einnig þætti með samkyn-

hneigðu fólki. í staðinn fyrir að hafa fólk um miðjan

aldur ákváðum við að bjóða eldra fólki í þáttinn.

Eldra fólk hefur mikiö að segja en í dag gera margir

ráð fyrir að þetta fólk viti ekki neitt og stundum er

talaö niður til þess. Ég tel að þessu sé einmitt öfugt

farið - eldri borgarar hafa reynt margt og mun meira

en við sem yngri erum og við gætum lært heilmikið

af þeim með því að hlusta. Það kom svo í ljós aö þetta

er einn vinsælasti þátturinn okkar. Það eru tveir

þættir sem við erum spurð sérstaklega út i af fólki og

það er þessi þáttur og síðan einn þar sem ein stúlka

hagaði sér á mjög sérstakan hátt.

Ég veit ekki hvort við gerum annan þátt með eldra

fólki. Það væri erfitt að gera hann betri."

Það stendur ekki til að leiða saman ólíka aldurs-

hópa, til dæmis ungan mann og miðaldra konur?

„Það er spurning, það væri nýr flötur. Það er bara

spurning hvort annar aðilinn yrði ósáttur við það.

Við viljum að allir fari brosandi frá þættinum og

hann sé jákvæð lífsreynsla. Það er besta auglýsingin.

Sú versta er sá sem er óánægður og fmnst hann hafa

gert sig að fífli."

Hvernig leið ykkur í þessum „umdeilda" þætti?

„Það var í fyrsta skipti sem við Hálfdán urðum

bæði kjaftstopp. Þetta voru óþægilegar sekúndur sem

mér fannst vera nokkrar mínútur. Þetta er það erfið-

asta við beinar útsendingar en spennan er líka það

skemmtilegasta: það getur í rauninni allt gerst. Ein-

hver gæti hrópað Heil Hitler! eða sagt eitthvað leiðin-

legt um forsetann og ekkert væri hægt að gera. í því

felst ákveðið adrenalínkikk."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
34-35
34-35
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72