20 /""/ 6 i Cj G t~C> I Ct <J DV LAUOARDACUR I. FEBRÚAR * Lífið fyrir utan gluggann á húsinu mínu Kristlaug María Sigurðardóttir er um þess- ar mundir, ásamt félögum sínum ílsMedia, að kunna kvikmyndina Didda og dauði kötturinn sem gerð er eftir samnefndri bók sem kom út fyrir síðustu jól. Krist- laug, eða Kikka eins og hún er gjarnan kólluð, skrifar handritið og er aðalfram- leiðandi mundarinnar. Leikstjóri er Helgi Sverrisson en Kristján Kristjánsson og Sævar Guðmundsson sjá um klippingu og Ludvig Kári Forberg semur tónlist. Þess má geta að Kikka og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson eru höfundar Söngleiksins Avaxtakarfan sem naut mikilla vinsælda þegar hann varsýndur ííslensku Operunni árið 1998. Kristlaug er menntuð sem leikskólakennari en er heimavinnandi og býr í Keflavík. En hvernig stendur á því aö húsmóöir í Keflavík skrifar söngleiki, bækur og kvikmyndahandrit, fyrir utan það að framleiða bíó- myndir? Húsmóðurhlutverkið er greinilega auðveldara núna en í gamla daga," segir Kikka og hlær, mamma ól upp sex börn án þess svo mikið sem hafa séð þvotta- vél en í dag eru heimilin vélknúin, eða þeim stungið í samband, og þá hafa húsmæðurnar meiri tíma til að sinna sjálfum sér og sínum áhugamálum. Eftir því sem börnin hafa stækkað hef ég fengið meiri tíma fyrir sjálfa mig og í fyrra ákvað ég að skrifa bók um lífið fyrir utan gluggann á húsinu mínu frekar en að leita mér að vinnu. Bókarskrifin leiddu síðan af sér kvik- myndahandrit og loks bíómynd sem verður frumsýnd á fimmtudaginn." Er að þróa sjónvarpsþáttaröð Þegar Kikka er beðin að útskýra þetta nánar brosir hún út í annað. Já, allt í lagi, án alls gríns þá hef ég verið að skrifa í mörg ár. Fyrir Ávaxtakörfuna skrif- aði ég nokkur útvarpshandrit og eitt sjónvarpshandrit en eftir að ég lauk við Ávaxtakörfuna einbeitti ég mér að þvi að þróa og skrifa framhaldsþætti fyrir sjónvarp, bæði handritin og viðskiptahugmyndir til að fara með á sjónvarpsstöðvar og kynna þeim sem vinna í þeim bransa. Á íslandi eru framleiöendur sannfærðir um að það sé ekki hægt að framleiða sjónvarpsþáttaraðir vegna smæðar markaðarins en það er auðvitað alger firra. Ég hefði til dæmis gaman af því að vita hvað RÚV og Stöð 2 eyða miklu í íþróttaviðburði af öllum stærðum og gerðum. Það væri sjálfsagt hægt að taka nokkur prósent af þeim kostnaöi og framleiða tvær sjónvarpsþáttaraðir, eina fyrir börn og aðra fyrir full- orðna, og ég er viss um að það gæfi meiri tekjur fyrir stöðvarnar en þýska knattspyrnan í beinni." Að sögn Kikku er Didda og dauði kötturinn í raun hliðarafurð af þessari vinnu. Ég sé fyrir mér að Didda væri kjörin persóna í sjónvarpsþáttaröð og þegar búið er að frumsýna myndina og ég ætla að finna fólk sem er á sama máli og fara að vinna að því af fullum krafti." Gott að búa í Keflavík Mér finnst, satt best að segja, hálffurðulegt og stór- undarlegt þegar fólk spyr mig, hvað eftir annað, hvers vegna ég búi í Keflavik, eins og það sé eitthvað annars flokks að búa þar en fyrsta flokks að búa í Reykjavík. Keflavík er einfaldlega yndislegur staður og hér er gott að vera með börn og hunda. Það er stutt í alla þjónustu og ég eyði ekki tveimur til þremur klukkutímum á dag i bíl að þeysast á milli staða. Kostirnir við að búa hérna eru miklir fyrir fjölskyldufólk, góðir leikskólar og góðir skólar og heilmikið tómstundastarf fyrir fólk á öllum aldri. Ég sendi því þessar skringilegu spurn- ingar um búsetu mína aftur til föðurhúsanna og vona að ég þurfi aldrei að heyra þær oftar." Kikka segist vilja veg Keflavíkur sem mestan og að hún hafi í hyggju ásamt fleiri að koma á fót einhvers konar verksmiðju sem einbeitir sér að framleiðslu barnaefnis í formi bóka, leikrita, sjónvarpsþátta og bíómynda. Húsmóðir í Keflavík, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður Kristlaug María Sigurðardóttir er þessa dagana að kynna kvikmyndina Didda og dauði kötturinn sem gerð er eftir samnefndri bók sem kom út fyrir síðustu jól. Bókin og myndin um Diddu og dauða kött- inn er fyrsta skrefið í þá átt. Ég veit að það eru fleiri en ég sem hafa áhuga á nákvæmlega þessu og það er orðið löngu tímabært að ís- lendingar sýni einhverja viðleitni í því að byggja upp barnamenningu sem stendur undir nafni eins og nágrannaþjóðirnar hafa gert. ís- lensk börn vilja sjá íslenskt efni í sjónvarpi og bíóhúsum og það er okkar, fullorðna fólksins, að sjá til þess að þau fái tækifæri til að spegla sig í eigin samfélagi og menningu." Kostar mikið að gera bíómynd Þegar Kikka er spurð um fjárhagslega hlið þess að búa til bíómynd lyftir hún sér upp í stólnum, fær rauðan lit í kinnarnar og verður æst í máli. Þó að myndin sé tekin stafrænt og verði varpað á tjaldið er ekki þar með sagt að hún kosti ekki neitt. Leikarar, leikmynd, matur og annað kostar það sama og í myndum sem kosta hundrað milljónir, en við erum reyndar með færra fólk á bak við myndavélina. Didda og dauði kötturinn var fjármögnuð með styrkj- um frá Reykjanesbæ, Barnamenningarsjóði og ýmsum fyrirtækjum sem við leituðum til. Við höfum ekki enn fengið svar frá Kvikmynda- sjóði, nú Kvikmyndamiðstöð íslands, því þar er allt í óvissu og beöið eftir reglugerð með nýjum lögum um Kvikmyndamiðstöð og auð- vitað er líka beðið eftir því hver fær stöðu for- stöðumanns. Það væri auðvitað gaman ef ís- lenski sjóðurinn gerði eins og sjóðirnir í ná- grannalöndum okkar og legði áherslu á að styrkja barnaefni," sagði þessi önnum kafna húsmóðir í Keflavík að lokum. -Kip Röntgenaugun Kristín Ósk Gísladóttir leikur Diddu sem sér gegnum holt og hæðir eftir að hún datt ofan í lýsistunnu. Setið fyrir bankaræningja Ómar Ólafsson og Kjartan Guðjónsson leika rannsóknarlögreglu- menn, Kjartan er einnig pabbi Diddu í myndinni. f