Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 27. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUOARDAGURI

FEBRÚAR2003      H& lQ Ci TÖ lCt ð   TlXST

Hönnun snýst um að hugsa

Hugleiðingar um orð eins og listhönnun, handverk og verkfræði í tilefni hönnunarverðlauna DV

eftir Guðmund Odd Magnússon

Það er heldur betur tímabært

að staldra aðeins við og íhuga

opinberlega merkingu orða og

orðasambanda eins og listhönn-

un, hönnun og handverk, hönn-

un og verkfræði. Þetta er tíma-

bært vegna ofhotkunar, mis-

skilnings og misnotkunar orðs-

ins og orðasambandanna, auk

þess sem sifellt fleiri eru með-

vitaðir um vaxandi þýðingu

hönnunar fyrir samfélagið. All-

ar þjóðir vilja fá það orð á sig að

þær séu skapandi, hafi stíl og

sérkenni en séu ekki eingöngu

notaðar sem framleiðendur hrá-

efnis fyrir skapandi þjóðir.

Þetta hefur okkur tekist að

hluta í bókmenntagreinum og í

popptónlist nú á síðustu árum.

Skilningur almennings og

stjórnvalda á mikilvægi slikra

starfa segir ansi mikið um það

hvoru megin við það strik þjóð-

ir heimsins liggja.

Hönnun er hugmynd

Nágrannaþjóðir okkar hika

ekki við að tengja hönnun við

uppruna sinn, lífsstD og menn-

ingararf; þær selja stíl sinn með

stolti á árangursríkan hátt og

við kyngjum þvi vandræðalaust

sem neytendur. Við þekkjum,

tölum um og notum þýska hönn-

un, breska, ítalska, svissneska

og skandinavíska hönnun án

þess að blikna. En því er ekki

að heilsa þegar kemur að hinni

íslensku. Við virðumst hvorki

þekkja hausinn né sporðinn!

Dettur ekkert annað í hug en

roðið! Þetta er meira að segja

svo vandræðalegt að við virð-

umst ekki einu sinni gera grein-

armun á handverki og hönnun

eins og tilnefningar og úthlutun

Menningarverðlauna DV í þess-

um flokki bera með sér á undan-

förnum árum. Menn virðast

ekki hafa haft hugmynd um í

hvora löppina þeir ættu að stíga

eða þá haft hugmyndina en ekki

hugrekki til að gera það sem

gera þurfti.

Hönnun er hugmynd að hlut

eða grip, forsögn fyrir hvernig

skal framleiða  hann  en  ekki

framleiðsluhluturinn      sjálfur.

Hönnun snýst um að hugsa fyrir

og útfæra áður en farið er að vinna. Skrifa forskrift

fyrir handverksfólk, iðnaðarmenn, vélar og fram-

leiðslutæki. Við tölum oft um góða eða fallega hann-

.aða hluti en hanna þarf hlutinn áður en hann er fram-

leiddur. Oftast er búin til frumgerð og oft eru örfáir

hlutir framleiddir. Þegar vel gengur er hann fjölda-

framleiddur.

Hönnun sem sérstök starfsgrein hangir saman við

þjóðfélagsbreytingar, breytingar á atvinnuháttum,

iðnvæðingu og myndun borga hér sem annars staðar.

Allir vita að fyrir utan iðnvæðingu prentiðnaðarins

var iðnvæðing seinna á ferðinni hér en í fiestum öðr-

um Evrópulöndum - ekki vegna þekkingarleysis held-

ur vegna smæðar.

Módernisminn hugmyndafræðin

Orðið hönnun er ekki gamalt i málinu - jafhgamalt

þessum breytingum hér - rétt rúmlega fertugt. Það

varð fastur liður í íslenskum orðaforða um svipað

leyti og módernisminn festi rætur I íslenskri menn-

ingu í kringum 1960. Módernisminn var hugmynda-

fræði þessara breytinga; hann var hreyfing hugsjóna-

fólks sem sá listina sem almenningseign, að hún ætti

að vera alþjóðlegt tungumál, laus við þjóðernis- og

einstaklingshyggju. Rússar, Þjóðverjar og Hollending-

ar voru þar fremstir í flokki á fyrri hluta 20. aldarinn-

ar. Þessi hreyfing hafði feiknarleg áhrif um allan

heim á millistriðsárunum en sérstaklega þó eftir

seinni heimsstyrjöldina.

Frægasta stofhun þessarar hreyfingar var Bauhaus

sem varð svo fyrirmynd flestra skóla í hinum vest-

ræna heimi sem útskrifuðu myndlistarmenn og hönn-

uði. Þessi afdrifaríka hreyfing var auðvitað stór-

merkileg á sínum tíma en fyrir um það bil fimmtán

árum upplifði hún endalok sín vegna forsjárhyggju,

Huliðshjálmar eftir Kjartan Örn Kjartansson, Hörpu Kristjánsdóttur og Ástþór Helgason, gullsmiði

hjá OR, voru verðlaunagripir í fyrra.

Linda Björg Árnadóttir tók við verðlaunum úr höndum Torfa Jónssonar,

formanns listhönnunarnefndar, árið 2000.

skila öflugum gróðri og fléttum

sem fara víða. Þýðing hennar

hefur aukist til muna á undan-

förnum árum með tilkomu

skjámiðla. Hönnun leikja fyrir

vefinn og vefsvæða vekur

heimsathygli. Samt er varla

hægt að segja að grafískur

hönnuður hafi verið tilnefndur,

hvað þá unnið til Menningar-

verðlaúna DV i listhönnun

þessi 15 ár sem þeim hefur ver-

ið úthlutað. Einn sem flokkast

frekar sem teiknari fékk þau

verðskuldað 1992, það er allt og

sumt.

Greinarmun þarf að

gera

Ég vil taka fram að ég ber

djúpa og óendanlega virðingu

fyrir góðu handverki og góð-

um handverksmönnum. Gott

handverk segir auðvitað heil-

mikið um fólk og virðing fyrir

handverksfólki segir mikið

um menningarstig þjóða. Sem

betur fer með undantekning-

um erum við engin sérstök

handverksþjóð samanborið

við nágrannaþjóðir okkar,

eins og til dæmis Dani. Við

skíttöpum þeim samanburði.

Gera þarf skýran greinarmun

á þessu tvennu, hönnun og

handverki. Það á ekki að verð-

launa handverksmenn fyrir

hönnun, hversu góðir sem

þeir eru, heldur fyrir það sem

þeir eru góðir í, þ.e. hand-

verk!

Ég ber einnig óendanlega

virðingu fyrir klárum tækni-

mönnum og verkfræðingum.

Þeim sem kunna að útfæra og

þróa góðar hugmyndir. Þeim

sem oft leysa að því er virðist

óyfirstíganleg tæknileg vanda-

mál. Þeir eru afar mikilvægir.

En það á ekki að verðlauna þá

fyrir hönnun þótt þeir útfæri

tækniteikningar af mikilli rök-

vísi, hafi gott verksvit og reddi

hlutunum. Það á að gera skýr-

an greinarmun á verkfræði og

hönnun. Það ætti hins vegar að

verðlauna verk- og tæknifræð-

inga fyrir verksnilld þegar þeir

eiga það skilið!

hún leit nánast eingöngu orðið á listir og hönnun sem

rökfræðileg visindi. Kyndill forvigismannanna var

slokknaður, sporgöngumennirnir hættir að horfa í

ljósið, farnir að nöldra, tilfinningarnar kulnaðar og

gerilsneyddar. Þeir skástu orðnir innihaldslausir

stOistar.

Verðlaunum ímyndunaraflið

Vart sér fyrir endann á átökum sem upphaflega

fylgdu stúdentauppreisnunum upp úr '68, situational-

isma, innleiðingu nýbylgjunnar og pönksins, tölvu-

væðingar, sýndarveruleika, afbyggingar og endur-

vinnslu. Algjör endurnýjun hefur átt sér stað og á sér

enn stað — í menntun, hugsunarhætti og starfsum-

hverfi. Litið er á hönnun fyrst og fremst sem hug-

myndavinnu þar sem samþætting margs konar kunn-

áttu kemur til. Að hönnun einstaks hlutar geta marg-

ir komið en þó ræður oftast einn ferðinni. Lýðræði og

hönnun fara illa saman. Afleiðingar þessara átaka

köllum við póst-módernisma.

Ekki kemst hönnuður hjá því að kunna einhver

skil á hugmyndasögu, listasögu og heimspeki, sál-

fræði og félagsfræði, táknfræði og myndmáli. Góöur

hönnuður þarf að geta lesið tísku og tíðaranda. Mark-

aðsfræði og markaðssetning eru framhald starfa

hans. Hönnuður þarf að hafa góða tilfinningu fyrir

forgangsröðun blæbrigða. Allt sem hönnuður gerir

segir eitthvað um hann sem karakter, menninguna

sem hann tilheyrir og tímann sem hann lifir á. En

mestu máli skiptir innsæið og ímyndunaraflið og

galdrarnir sem fólgnir eru í þvi að kveikja andann í

efninu. Fyrir það á að sjálfsögðu að veita verðlaun.

Grafísk hönnun hefur verið helsta hönnunargrein-

in á íslandi undanfarna áratugi. Grafískri hönnun

hefur tekist að mynda frjósaman jarðveg sem er að

Jarðvegsskipti fram undan

Um tíma leit út fyrir að úthlutunarnefnd DV í list-

hönnun væri aö átta sig á þessum mun og að minnsta

kosti einu sinni á þessum fimmtán árum hefur nefnd-

in hitt naglann á höfuðið og oft verið ansi nálægt því

á seinni árum. Þó keyrði um þverbak við síðustu út-

hlutun og var eins og menn færðu sig að minnsta

kosti fimm ár aftur í tímann.

„Skilin milli handverks og hönnunar eru dálítið

óljós á íslandi," sagði Baldur J. Baldursson innan-

hússarkitekt sem átti sæti í síðustu verðlaunanefnd

DV í hönnun og lætur eins og þar sé eitthvert nátt-

úrulögmál á ferðinni. Hann virðist þó í samtali við

DV fyrir síðustu úthlutun hafa staðgóðan skilning á

eðli hönnunar, og nefndin hafði tækifæri því í hópi

tilnefndra voru alvöru hönnuðir. Þeim sem til þekkja

brá heldur betur í brún þegar fréttir bárust af niður-

stöðunni: Félagskapurinn Handverk og hönnun fékk

verðlaunin. Ekkert vafamál er að frábær starfsemi fer

þar fram en sú stofnun væri flokkuð sem dæmigerð

handverksmiðstöð af hvaöa upplýstri menningarþjóð

sem er - nema hér!

Ruglinu er viðhaldið og það virðist því miður ekki

vera sökum þekkingarleysis. Úthlutun Menningar-

verðlauna DV í flokki listhönnunar hefur ekki þjónað

hinum sívaxandi hönnunariðnaði á íslandi. Hún virð-

ist þjóna handverkshagsmunum fyrst og fremst.

Margt bendir þó til að jarðvegsskipti séu fram undan.

Það sér í hönnunarmiðstöð. Hönnunar- og arkitektúr-

deild Listaháskóla íslands hefur tekið á þessum mál-

um. Hönnunarsafn er að verða til. Línurnar eru að

skýrast og breytast og munu breytast hratt á næstu

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
34-35
34-35
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72