Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 27. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						Helcjczrblctcf j^*<<yr LAUO

ARDACUR  I. FEBRUAR  2003

Endaspretturinn eftir

Heimsmeistaramótinu í handknattleik lýkur um þessa

helgi og er ljóst aö islenska liðiö kemst ekki hærra en í

fimmta sæti og ekki neöar en í áttunda sæti. Við mætum

Rússum í dag og sigurvegarinn í þeirri viðureign leikur

gegn sigurvegaranum í leik Júgóslava og Ungverja um

fimmta sætið í mótinu en tapliðin í þessum leikjum spila

um sjöunda og áttunda sætið.

Efstu sjö sætin á mótinu gefa þátttökurétt á Ólympíu-

leikunum í Aþenu að ári og því gríðarlega mikið í húfi

fyrir íslenska liðið um helgina. Liðið setti sér það tak-

mark fyrir mótið að ná inn á Ólympíuleikana og mögu-

leikarnir eru vissulega enn fyrir hendi en ekki má mik-

ið út af bregða svo við missum af takmarki okkar.

Til þess að spá í framhaldið hjá íslenska liðinu þá

fengum við þrjá valinkunna kappa til þess að segja álit

sitt.

Rússarnir reynst okkur erfiðir

„Rússarnir hafa alltaf reynst okkur rosalega erfiðir á

stórmótum og yfirleitt farið illa með okkur. Þeir hafa

verið frekar brokkgengir í mótinu en hafa verið að ná

sér á strik undanfarið og þetta verður mjög erfiður leik-

ur," segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka. En hverja

telur hann möguleika okkar vera í leiknum gegn Rúss-

um i dag?

„Við erum með það gott lið að við eigum alveg helm-

ingsmöguleika. Við áttum góða möguleika á að leggja

Spánverjana en það var svolítið óðagot á mönnum á mik-

ilvægum augnablikum og við vorum alltaf á eftir þeim.

Það kostaði mikla orku að vera alltaf að vinna upp for-

skot þeirra. Þrátt fyrir það að strákarnir séu kannski

svolítið þreyttir þá tel ég samt að við eigum góða mögu-

leika í leiknum," sagði Viggó og hann hefur trú á því að

Júgóslavarnir leggi Ungverja og því munum við mæta

Júgóslövunum í leiknum um fimmta sætið. Viggó sagð-

ist enn fremur vera sáttur við gengi liðsins á mótinu og

telur það frábæran árangur hjá liðinu ef það nær fimmta

sæti á mótinu.

Verðum að gleyma Spánarleiknum

Július Jónasson, þjálfari ÍR, lék í mörg ár með ís-

lenska landsliðinu og þekkir það vel hvernig er að

standa í baráttunni á slikum stórmótum. Hann segir það

mikilvægt að leikmenn islenska liðsins ýti leiknum gegn

Spánverjum frá sér ef þeir ætli sér að ná árangri gegn

Rússunum.

„Menn verða að gleyma þessum leik og þeim vonbrigð-

um sem fylgdu honum. Það skiptir verulega máli að

þurrka það út og gíra sig upp í það aö ná sigri gegn Rúss-

unum í dag. Nú hefur maður reyndar ekkert séð til Rúss-

anna á mótinu en miðað við þau úrslit sem hafa verið þá

eru þeir greinilega ekki jafn sterkir og þeir hafa verið

undanfarin ár. Samt sem áður hafa þeir verið að vaxa

eftir því sem liðið hefur á mótið og það er alltaf erfitt að

eiga við Rússana," sagði Júlíus. En hver er hans tilfinn-

ing fyrir leiknum?

„Ef ég fer aðeins inn á leikinn gegn Spánverjum, og

það sem ég sá þar, þá fannst mér margt jákvæðara sem

var að gerast þar heldur en í leikjunum á undan. Það var

virkilega skemmtilegt að horfa á leikinn, það var spilað-

ur skemmtilegur bolti og betri en þeir hafa verið að spila

til þessa. Að því leyti líst mér betur á Rússaleikinn held-

ur en ella. Ég held að það sé samt alveg ljóst að við verð-

um að spila betur en gegn Spánverjunum og við þurfum

að fá fleiri menn inn í þetta því að nú er þreyta komin í

leikmenn, sem og einhver meiðsl hjá einhverjum ein-

íslenskir handboltaáhugamenn eiga vafalítið eftir að

reynir að ná Ólyrapíusætinu sem stefnt var að.

staklingum. Þá reynir virkilega á þá sem hafa ekki skil-

að því sem þeir geta," sagði Júlíus. Það mátti sjá á strák-

unum að það var þeim mikið áfall að tapa fyrir Spánverj-

unum og hefur Júlíus ekki áhyggjur af því að sá leikur

komi til með að sitja í strákunum?

„Vissulega var tapiö áfall en þeir verða og eiga að vera

þjálfaðir í því að geta ýtt þessum hlutum til hliðar og

halda áfram. Þeir geta ekki verið að draga þetta með sér

í næsta leik á eftir vegna þess að markmiðið hjá þeim

var að komast á Ólympíuleikana. Þeir eru ekki búnir að

ná því enn þá og þeir þurfa að sigra í þessum leik til þess

að ná því takmarki. Það verður mun erfiðara að þurfa að

fara í hreinan úrslitaleik um Ólympíusætið ef við töpum

gegn Rússunum," sagði Július og bætti við að takmarkið

ætti að nást ef leikmönnum tekst að sýna sitt rétta and-

lit og leika af eðlilegri getu þvi honum finnst liðið enn

eiga nokkuð inni.

Getur farið á hvorn veginn

Steinar Birgisson hefur marga fjöruna sopið í boltan-

um enda landsliðs- og atvinnumaður um árabil. Steinar

segir að erfitt sé að spá í leikinn gegn Rússum en mögu-

leikar íslands verði þó að teljast nokkuð góðir.

„Það getur farið hvemig sem er. Ég þekki ekki lið

Rússana mjög vel en miðað við árangur þeirra á mótinu

get ég sagt að það er þaö miklar sveiflur í þessum leikj-

um að þetta getur farið á hvorn veginn sem er. Þetta er

rosalega mikil spurning um það hvað þjálfarinn er að

gera og hvernig hann bregst við aðstæðum því leikmenn

eru mjög háðir því hvað hann ákveður," segir Steinar.

En hefur hann trú á því að strákarnir nái Ólympíusæt-

inu?

„Við eigum alla möguleika á því. Við erum ofan á þar.

Við erum ekki búnir að tapa fyrir Rússum og okkur hef-

Endaspretturinn hjá strákunum okkar er um helgina og

að komast á Ólympíuleikana að ári á að nást.

menn verða að bíta á jaxlinn og taka sig á ef takmarkið

DV-mynd Hilmar Þór

naga á sér neglurnar um helgina þegar landsliðið okkar

DV-mynd Hilmar Þór

ur gengið vel gegn Júgóslavíu og Ungverjalandi þannig

að það eru meiri en 50% likur á að við náum því," segir

Steinar.

Hann sagðist ekki hafa fylgst mikið með mótinu í

heild sinni en hefur þó séð helstu leiki Islands og þeir

hlutir sem ekki hafa gengið þar upp, eins og vörnin og

hvernig okkar mönnum hefur gengið að vera einum til

tveimur manni fleiri, vill hann meina að séu á sök þjálf-

arans, Guðmundar Guðmundssonar, sem Steinar segir

að hafi ekki brugðist rétt viö ákveðnum aðstæðum.

Guðmundur bregst ekki rétt við

„Leikirnir gegn Þýskalandi, Portúgölum og Spánverj-

um hafa verið mjög hraðir en þó hver með sínum stíl út

af andstæðingnum þá finnst mér frekar erfitt að meta ís-

lenska liðið. Vörnin er ekki nógu góð og það er sök Guð-

mundar að vörnin er ekki betri en raun ber vitni. Þetta

snýst að honum og það að vörnin sé ekki komin lengra

en þetta set ég alveg á hans reikning. Strákarnir eiga að

læra sitt í gegnum tíðina er þeir fá reynslu en Guðmund-

ur ber ábyrgðina. Hann er búinn að spila nógu marga æf-

ingaleiki til þess að sjá það að þegar kemur skytta upp

miðjuna þá stekkurðu ekki upp á móti henni á 8 til 9

metrum í sömu mund og hann er að sleppa skotinu. Þá

gengur ekki að setja hendurnar á bringuna á honum -

markið er opið þá. Það er búið að gerast of oft til að

ásættanlegt teljist. Það er svo mikill hraði og hamagang-

ur í sumum sóknum. Það er bara keyrt upp en ekki stillt

upp í sókn. Hvernig leysa aðrir þjálfarar þetta vanda-

mál? Svarið er. Af hverju getur Guðmundur ekki gert

það? Þeir sem eru að gera það best spretta aftur og klára

þaö mál. Ég er ekki að segja að ég sjálfur sé með lausn á

því en maður er að sjálfsógðu rosalega góður heima í

stofu," sagði Steinar og hló. Hann er ekki heldur par

sáttur með sóknarleik íslenska liðsins í keppninni.

„Sóknarlega séð virðist enginn þjálfari reikna með

því að það þurfi að æfa það að vera einum eða tveimur

fleiri. Menn segja frekar að við séum sex á móti fjórum

og hljótum að klára það. Við kláruðum það ekki gegn

Spáni en kláruðum samt þegar við vorum tveimur færri.

Þaö var gaman að horfa á það. Svo eru menn þreyttir og

of mikið er af feilsendingum. Svo er þetta spurning um

staðsetningar þegar andstæðingarnir klippa menn út og

það er leikkerfi í gangi. Hinir kunna leikkerfið eins vel

og við því þeir eru búnir að „stúdera" okkur eins og við

erum búnir að stúdera þá. Leikmenn kunna ekki að

bregðast við þegar eitthvað óvænt gerist og Spánverjarn-

ir komust 2-3 inn i sendingar hjá okkur þegar leikkerfi

var í gangi. Það er sóknarmanninum sem á að fá boltann

svolítið að kenna líka rétt eins og manninum sem er með

boltann," segir Steinar en honum finnst þó ekki allt

ómögulegt.

„Mér finnst margt gott að gerast hjá liðinu. Strákarn-

ir standa sig vel og sýna þá baráttu sem þarf til að ná ár-

angri. Ég set þetta samt meira á þjálfarann því mér

finnst strákarnir vera að gefa sitt í þetta. Guðmundur

stjórnar þessu ekki eins og aðrir þjálfarar bregðast við.

Þá meina ég hvað þeir gera þegar þessi og hin staða kem-

ur upp. Þess ber þó að geta að eflaust myndi ég ekkert

standa mig mikið betur sem þjálfari sjálfur. En svona

horfir þetta við mér að minnsta kosti," sagði Steinar aö

lokum.

Leikurinn við Rússa hefst á hádegi í dag og er í beinni

útsendingu hjá RÚV.                                        -HBG

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
34-35
34-35
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72