J LAUGARDACUR I. FEBRUAR 2003 h/elgarbloö H>V Páll Sveinsson fyrrv. starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavíkur Páll Sveinsson, fyrrv. starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavík, til heimilis að Lönguhlíð 3, Reykjavík, varð níutíu og fimm ára í gær. Starfsferill Páll fæddist í Vík í Mýrdal og ólst þar upp í foreldra- húsum til 1913. Þá fór hann í fóstur að Ketilsstöðum og Neðradal í Mýrdal til Kristínar Þórarinsdóttur og Þórði i Neðradal. Hann tók barnaskólapróf í Vík 1922 og tók fyrsta vélskólanámið sem haldið var hér á landi 1936. Páll var sjómaður á vertiðum frá 1924, var fjórar vertíðar í Vestmannaeyjum, átta ár á Akranesi og var þá einnig vinnumaður hjá séra Sigurjóni Guðjónssyni í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og fjögur ár á Patreks- firði. Páll starfaði hjá Ullarverksmiðjunni Framtíðinni frá 1944 en hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1953 og starfaði þar til 1980. Fjölskylda Giftingardagur 31. des 1944. Maki Bjarnheiður Sigur- rínsdóttir húsmóðir, f. 14 sept. 1906, d. 2. febr. 1988. Foreldrar: Sigurrin Einarsson, bóndi í Reyðarfirði, og Snjólaug K. Þorsteinsdóttir, vinnukona í Fljótsdal. Dóttir Páls og Bjarnheiðar er Steinunn Pálsdóttir f. 19. okt. 1945, vefnaðarkennari, Valhúsabraut 33, Sel- tjarnarnesi, gift Sturlu Má Jónssyni innanhússarki- tekt, eiga þau tvær dætur. Dóttir Bjarnheiðar er Ásta Ólafsdóttir, f. 25. maí 1934, skrifstofustúlka, búsett á Vopnafirði, gift Guðna Valdimarssyni, fyrrv. verkstjóra, eiga þau fjögur börn. Systkini Páls voru fimmtán talsins en ellefu þeirra náðu fullorðinsaldri. Systkini hans: Þorlákur, f. 2.10. 1899, d. 13.6.1983, bóndi á Laugabökkum og á Sandhóli í Ölfusi, var kvæntur Ragnheiði Runólfsdóttur og eru börn þeirra sex; Ólafur Jón, f. 2.8. 1904, d. 1991, loft- skeytamaður, lengst af búsettur í Reykjavík, var kvæntur Sigurbjörgu Steindórsdóttur og eru börn þeirra tvö; Anna, f. 9.12. 1905, d. 1991, verkstjóri í kex- verksmiðjunni Frón, búsett í Reykjavík; Guðmundur, f. 6.1. 1907, nú látinn, deildarstjóri hjá SKÝRR, var bú- Rósinkrans Kristjánsson leigubílstjóri í Reykjavík varð 70 ára í gær Rósinkrans Kristjánsson leigubílstjóri, Grýtubakka 26, Reykjavík, varð sjötugur í gær. StarfsferiU Rósinkrans fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Auk þess var hann í sveit á sumrin sem barn og á unglingsárum að Syðra-Langholti í Hrunamanna- hreppi. Hann stundaði síðar nám við íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar i Haukadal. Rósinkrans stundaði sjómennsku á togurum um skeið og starfaði síðan hjá Vegagerð rikisins í nokk- ur ár. Hann hóf siðan akstur leigubíla og var siðan leigubílistjóri um árabil. Fjölskylda Rósinkrans kvæntist 31.1. 1962 Sigurlín Ester Magnúsdóttur, f. 4.6. 1934, verkakonu. Hún er dóttir Magnúsar Péturssonar leigubílstjóra og Jóhönnu M. Sigurðardóttur verkakonu sem bæði eru látin. Sonur Rósinkrans frá þvi áður er Örn Sævar, f. 28.11. 1958, raffræðingur, búsettur í Reykjavík, kvæntur Helgu Gunnarsdóttur og eru börn þeirra Huginn og Hugrún. Synir Sigurlínar og fóstursynir Rósinkrans eru Magnús Sverrisson, f. 9.12. 1954, kjötiðnaðarmaður á Sauðákróki, kvæntur Ástu Pálínu Ragnarsdóttur og eru synir þeirra Ragnar tölvufræðingur, Sverrir Bergmann söngvari og Tryggi nemi; Ómar Sverris- son, f. 25.11. 1955, d. 20.1. 1985, verkamaður í Reykja- vík, var kvæntur Aðalbjörgu Ólafsdóttur og eignuð- ust þau tvö börn sem bæði eru látin, Ólaf Bergmann og Söru Dögg; JÓhann Magni Sverrisson, f. 20.5.1957, leigubílstjóri í Reykjavík, kvæntur Karen Steinsdótt- ur og eru börn þeirra Sverrir Jóhann, Svavar Halldór og Kristjana. Börn Rósinkrans og Sigurlínar eru Unnur Rut Rós- inkransdóttir, f. 4.8. 1961, starfsmannastjóri hjá Hag- kaupum, búsett 1 Reykjavík, en maöur hennar er Andrés Guðbjörtsson strætisvagnastjóri og eru börn þeirra Rósinkrans Már, Arna María, Sigurlín Edda, Guðbjartur Gestur og Kristján Birgir; Kristján Frið- rik Rósinkransson, f. 17.11. 1963, starfamaður hjá Éssó, búsettur i Kópavogi, en kona hans er Birgitta Þórey Pétursdóttir og eru synir þeirra Samúel, Danl- el, Jóel og Axel; Linda Dís Rósinkransdóttir, f. 1.10. 1969, leigubílstjóri, búsett í Reykjavík, en sonur henn- ar er Brynjólfur Örn. Hálfsystur Rósinkrans, sammæðra, eru Guðfinna Lárusdóttir, húsmóðir í Reykjavík; Helga Lárusdótt- ir, húsmóðir í Reykjavik; Unnur Lárusdóttir, hús- móðir í Kópavogi. Alsystkini Rósinkrans eru Birgir Kristjánsson sölumaður, búsettur í Reykjavík; Klara Sjöfn Krist- jánsdóttir, húsmóöir í Reykjavík; Bessý Kristjáns- dóttir, nú látin, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Rósinkrans voru Kristján Kristjánsson, nú látinn, sölumaður hjá Kristjánsson hf., búsettur í Reykjavík, og Unnur Helgadóttir, nú látin, húsmóðir. Rósinkrans tekur á móti ættingjum og vinum hjá syni sínum að Fjallalind 29, Kópavogi, laugardaginn 1.2. eftir kl. 15.00. Smáauglýsingar allt fyrir heimilið 550 5000 settur í Reykjavík og kvæntur Kristbjörgu Bjarnadótt- ur og eru börn þeirra tvö; Sigurður, f. 15.6.1909, látinn, bóndi í Ytra-Hrauni í Landbroti, var kvæntur Þórdísi Ágústsdóttur og eru börn þeirra fjögur; Ingigerður, f. 28.8. 1910, d. 1935; Kjartan, f. 22.7. 1912, símaverkstjóri um árabil, búsettur í Kópavogi, var kvæntur Þórhildi Jónsdóttur sem er látin og eru börn þeirra fimm; Sig- ríður, f. 20.6.1914, látin, húsmóðir í Reykjavík, var gift Jóni Guðjónssyni og eru börn þeirra fjögur; Helga, f. 10.3.1916, búsett í Vík í Mýrdal, fyrrv. simstöðvarstjóri i Vík, var gift Guðna Loftssyni og eiga þau eitt barn; Guðný, f. 28.7. 1920, húsmóðir í Kópavogi, var gift Fel- ix Tryggvasyni sem er látinn og eiga þau fimm börn; Þorbjörg, f. 30. Í0. 1923, húsmóðir í Reykjavík var gift Ara Þorgilssyni sem er látinn og eiga þau fimm börn. Foreldrar Páls voru Sveinn Þorláksson, f. 9.8. 1872, d. 22.12. 1963, simstöðvarstjóri í Vík í Mýrdal, og k.h., Eyrún Guðmundsdóttir, f. 5.3. 1876, d. 25.4. 1964, hús- móðir. Ætt Sveinn fæddist i Þykkvabæ i Landbroti, sonur hjón- anna Þorláks Sveinssonar og Steinunnar Þorsteins- dóttur. Eyrún fæddist í Skurðbæ, dóttir Guðmundar Jóns- sonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Höfuðstafir nr. 64 Þátturinn er að þessu sinni tileinkaður Birni heitn- um Þórleifssyni skólastjóra. Björn var afar liðtækur hagyrðingur eins og þetta brot úr kveðskap hans sýnir. Einhvern tíma sem oftar söng Björn í kirkjukór við messu og að líkindum hefur aðsókn verið dræm eins og stundum gerist. Þá orti Björn: Þyljum lofog þökk til hans sem þolir okkur synd og bresti ogfr til starfa fjórtán manns fyrir átta kirkjugesti. Þegar sá frægi hvalur Keikó settist að í Klettsvík varð það Birni að yrkisefni: Norpandi í sjó viö noröurpól nú fr hann einn aö sprikla. Komiö er heim á kvíaból kjótbolluefnió mikla. Þegar Björn sótti um inngöngu á póstlista þann sem kenndur er við leir og alloft hefur verið vitnað til hér í þessum þáttum sendi hann inn langt kvæði sem end- ar á þessari vísu: Þó ég sé verktaki og vísnatrúður veitist mér létt aó sýnast prúður er bið ég þess bljúgur og meyr aó skáldin vilji vísur mér sýna og veiti mér gegnum tölvuna mína áskrift aö íslenskum leir. Á hagyrðingamótum grípa snjallir menn stundum til þess að syngja kveðskap sinn eða kveða hann undir rímnalögum. Einhverju sinni var Björn á hagyrðinga- móti ásamt Stefáni Vilhjálmssyni, en þeir félagar höfðu marga hildi háð á þessum samkomum. Björn átti að yrkja um Stefán og gerði þá þessa vísu og söng síðustu linuna undir þekktu júróvisjón-lagi: Ég skal kveða um perra og plebba, presta, róna og glpamenn, en á ég að fara að yrkja um Stebba einu sinni, einu sinni enn". Eins og margir hagyrðingar hafa gert orti Björn líka um sínar eigin yrkingar: Sögu ég saman má spinna um samningu vísnanna minna. Þessi stöðuga glíma við að stuðla og ríma er sem hver önnur verktakavinna. Ég vil kveðja Björn með vísu sem barst inn á leirlistann daginn sem útför hans var gerð. Höf- undur er Björn Ingólfsson á Grenivík: Kallað úr himnaveldi var, vatt hann sér þangað hvergi tregur. Þá vantaði einhvern uppi þar að yrkja og vera skemmtilegur. Umsjón : m 1