Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2003, Blaðsíða 43
- LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 H g / c) cj rb / o c) 13 V 47 Lausir endar í Geirfinns- máli Sktjrsla Láru V. Júlíusdóttur um rannsókn hennar á tildrögum þess að Magnús Leó- poldsson var á sínum tíma bendlaður við hvarf Geirfinns Einarssonar íKeflavík hefur verið birt. Sú niðurstaða að Magnús sé sak- laus telst varla fréttnæm en ískgrslunni er bent á lausa enda sem tengjast gátunni um hvarf Geirfinns. Lára V. Júlíusdóttir var skipaður sérstakur sak- sóknari og átti að kanna tildrög þess að Magnús Leó- poldsson var á sínum tíma bendlaður við hvarf Geir- finns Einarssonar í Keflavík. Magnús var einn fjög- urra manna sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði meðan rannsökuð var meint hlut- deild þeirra i hvarfi Geirfinns. Þeir voru að lokum látnir lausir, hreinsaöir af öllum sakargiftum og greiddar bætur fyrir. Rannsókn Láru mun hafa beinst að að kanna hvort rannsókn lögreglunnar í Keflavík væri með einhverj- um hætti áfátt og það hefðu verið samantekin ráð þeirra að beina grun að Magnúsi. Stytta af manni sem talið var aö átt hefði stefnumót við Geirfinn aö kvöldi 19. nóvember 1974 var talin líkjast Magnúsi og því hefur verið haldið fram opinberlega að notaðar hafi verið myndir af honum við gerð hennar. Niðurstaða Láru er i stuttu máli sú að ekkert í störfum lögreglunnar bendi til þess að grun hafi vís- vitandi verið beint að Magnúsi. í skýrslu hennar koma hins vegar fram ákveðnar upplýsingar sem dómsmálaráðherra hefur sent áfram til ríkissaksókn- ara og tengjast hvarfl Geirfinns Einarssonar. Sak- sóknari skal meta hvort ástæða sé til frekari rann- sóknar á þessum upplýsingum sem teljast verða nýj- ar og það eru þessir lausu endar i þessu dularfyllsta sakamáli 20. aldar sem rétt er að skoða aðeins betur. Sprengt við Djúpavatn? Þessar nýju upplýsingar eru reifaðar á bls 58 i skýrslu Láru. Þar kemur fram að í nóvember 2001 setti Ómar Sigtryggsson sig í samband við rannsókn- araðila en Láru til aðstoðar við rannsóknina var Baldvin Einarsson lögreglufulltrúi. Ómar tjáöi þeim að hann væri mágur Kristófers Reykdal Magnússon- ar sem á þessum tíma rak fyrirtæki sem ýmist er nefnt KR-verktakar eða Vélaleiga Kristófers Reykdal. Hjá fyrirtækinu vann einnig Pálmi Steingrímsson sem einnig var mágur Ómars. Pálmi mun hafa skýrt Ómari frá ýmsu varðandi ætluð tengsl Kristófers og þriggja annarra starfsmanna KR-verktaka við hvarf Geirfinns. Auk Kristófers voru nefndir Guömundur Jónsson, Ragnar Valdimarsson en nafn þriðja manns- ins mundi Ómar ekki. Þvi er haldið fram að þessir fjórmenningar hafi hitt Geirfinn í Dráttarbrautinni í Keflavík þann 19. nóvember 1974 í tengslum við spira sem verið var að smygla til landsins með farskipum. Geirfinnur á að hafa látist i átökum við mennina og þeir komið líkinu fyrir viö Djúpavatn og notað við það sprengiefni. Þegar björgunarsveitir fóru síðan að leita á þeim staö að Geirflnni voru þeir stöðvaðir þar sem þeir voru orðnir „of heitir“. Samkvæmt þessari kenningu Ómars hafi rannsóknin á hvarfl Geirfinns verið afvegaleidd viljandi af Hauki Guðmundssyni, lögreglumanni í Keflavík, sem var umbunað með gröfu sem Kristófer átti að hafa gefið honum rétt áður en KR-verktakar urðu gjaldþrota. Til er skýrsla frá rannsóknarlögreglu i Keflavík þar sem björgunarsveitarmenn kvarta undan því að jarðrask eða ummerki sem þeir fundu eftir spreng- ingu viö Djúpavatnsleið hafi ekki verið kannað nægi- lega. Pálmi Steingrimsson mun hafa upplýst Sigur- stein Másson og félaga hans, sem gerðu heimilda- mynd um Geirfinnsmálið, um þetta mál og þeir fóru og grófu við Djúpavatn án árangurs. Barinn við yfirheyrslur í skýrslunni segir enn fremur að meðal nafna sem sannarlega virðast tengjast KR-verktökum en jafn- framt Geirfinnsmáli sé Jón Waltersson en hann var Geirfinnur Einarsson hefur verið horfinn frá því í nóvember 1974 en hvarf hans telst enn vera ráðgáta þótt dæmdir morðingjar hans hafi löngu afplánað dóm. Sérstakur saksóknari hefur nú skilað skýrslu sem bendir á lausa enda við rannsókn málsins. eigandi Mercedes-bifreiðar sem lögreglan taldi að hinir dæmdu í Geirfinnsmáli hefðu ætlað að nota til að flytja smyglað áfengi frá Keflavík. Það er ekki skýrt nánar í skýrslunni hvernig Jón á að tengja þessi mál saman. DV hringdi í Jón Waltersson sem sagði að á þess- um tíma hefði hann gert út fimm bfla og oft flutt hljómsveitir í Klúbbinn og suður á Völl. Meðal bíl- stjóra sinna hefði verið Sigurður Óttar Hreinsson sem mikið var yfirheyrður i tengslum við Geirfmns- málið. „Ég lenti í mjög harkalegum yfirheyrslum á þess- um tíma þar sem ég var barinn af rannsóknarmönn- um, beittur ótrúlegustu þvingunum og hundeltur með símahlerunum. Sími minn var hleraður og gengið ótrúlega langt. Ég hafði góða fjarvistarsönnun svo ég var aldrei kærður eða settur i varðhald en þetta var óbærflegur tími fyrir mig, hrikalegt álag á fjölskyld- una og hefur loðað við mig afltaf síðan,“ sagði Jón í samtali við DV. Hann sagðist ekkert vita um KR-verk- taka, þar hefði hann aldrei unniö, og kannaðist ekki við neitt þeirra nafna sem nefnt væri í skýrslunni og skýrsluhöfundar hefðu aldrei haft samband við sig. Hef engum mútað með gröfu DV hringdi í höfuðpaurinn bak við þessa sögu, Kristófer Reykdal Magnússon sem er búsettur í Frederiksstad í Noregi og hefur átt þar heima síðustu 24 árin. „Ég man að ég var yfirheyrður vegna þessa máls því menn héldu að einn af mínum bOum hefði sést í Keflavík. Ég var samt fljótlega tekinn af lista yfir grunaða því ég gat sannað hvar ég var kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Ég hef aldrei heyrt sögur af þessu tagi nema í gríni og ég man að þegar ég var heima á íslandi fyrir 10 árum var Pálmi Steingrímsson að segja mér sögur af Geirfinnsmálinu og virtist vita heOmikið um það. Ég þekki Hauk Guðmundsson ekki neitt, þótt nafn- ið hljómi kunnuglega, og hef aldrei gefið nokkrum manni gröfu tO þess að hylma yfir eitt eða neitt. Ég held að þetta hljóti að vera eitthvert rugl,“ sagði Kristófer. Annað sem tengir Kristófer óbeint við Geir- finnsmálið er að á þessum tíma var hann skráður eig- andi jarðarinnar Gljúfurárholts í Ölfusi þar sem sak- borningar í málinu höfðust stundum við á þessum tíma en þar var svokölluð hippakommúna tO húsa. Hef ekkert að fela Sá sem átti að hafa tekið við mútunum í formi gröfu eða vinnuvélar er Haukur Guðmundsson, fyrr- verandi lögreglumaður í Keflavík. Haukur er staddur á íslandi en hann vinnur annars í Noregi um þessar mundir en hann er sá sem keypti hið sokkna loðnu- skip, Guðrúnu Gísladóttur, á strandstað í Noregi. „Ég hef ekkert að fela í þessu Geirfínnsmáli og kannast ekkert við þessa sögu um KR-verktaka. Ég man þó að nokkrir starfsmenn þar voru yfirheyrðir og ég man eftir Ómari Sigtryggssyni. Ég man ekki eft- ir neinni Djúpavatnsleit og mér hefur aldrei verið mútað og mér finnst þaö satt að segja frekar langsótt kenning," sagði Haukur í samtali við DV. Ómar Sigtryggsson og Pálmi Steingrímsson eru báðir látnir, Pálmi árið 2000 og Ómar 2002. M Guðmundur vildi eldd tala og Vil- hjálmur fannst ekki í skýrslu Láru kemur fram að gögn Geirfinnsmáls- ins rúmuðust í 13 pappakössum. í aUan þann skjala- bunka vantar þó 222 blaðsiður sem hvorki finnast í frumriti né afriti. Með því að bera saman skjölin við tölvuútskriftir má hugsanlega fækka hinum týndu blaðsíðum niður í 184. TO lausra enda annarra, sem tengjast Geirfinns- máli og fjallaö er um í skýrslu Láru, má nefna vitnis- burð Guðmundar nokkurs Agnarssonar sem hélt því fram við meðlimi úr fjölskyldu sinni að hann hefði verið þátttakandi í sjóferð þar sem Geirfmnur EinarsY" son hefði drukknað við að kafa eftir smygluðum spíra í Keflavík. Guðmundur bar við seinni rannsóknir að hann hefði verið að slá sig til riddara í ölæði með þessari frásögn og kvað hana tilhæfulausa. Guðmund- ur var sjómaður, rammur að afli og stóð mörgum stuggur af honum enda ekki alltaf reglusamur. Guðmundur neitaði aö tala við skýrsluhöfunda og lést í júlí 2002. Guðmundur bjó með fyrrum sambýlis- konu Sigurbjarnar Eiríkssonar veitingamanns þegar Geirfinnur hvarf og er frásögn hans í október 1975 fyrsta skráða heimild um aðild Sigurbjarnar og Magnúsar Leópoldssonar að Geirfinnsmáli en Sigur- björn var einn fjórmenninganna sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi. Enn má nefna og telja til lausra enda að þótt tekn- ar væru skýrslur af 27 manns og rætt við 13 til við- bótar í síma og sumir bæru við algeru minnisleysi hafðist ekki upp á manni að nafni Vilhjálmur Svan- berg Helgason sem átti í ástarsambandi við eiginkonu Geirfinns þegar hann hvarf. Vilhjálmur hefur dvalið i Þýskalandi undanfarin ár og er óljóst um dvalarstað hans. -PÁÁ^g L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.