Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Dagblağiğ Vísir - DV


og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 .



Skoğa síğu í nıjum glugga  Skoğa texta í nıjum glugga  Skoğa hágæğaútgáfu í nıjum glugga  Beinn tengill á şessa síğu
Innskráğir notendur geta bætt einstaka síğum viğ vinnusvæği sitt:
Bæta síğu viğ bókamerki



Styrktarağili:
365 miğlar ehf





şú şarft ağ vera meğ Adobe Reader Plugin til ağ skoğa şessa síğu


get Adobe Reader



Dagblağiğ Vísir - DV

					leiminu

Þegar McDonald's var opnaður á Íslandi í fyrsta sinn borðaði Davíð

Oddsson fyrsta hamborgarann. McDonalds hefur átt undir högg að sækja

að undanförnu og var rekið með tapi í fyrsta sinn í sögunni á síðasta árs-

fjórðungi.

Lokað á verkalyðsfélög

Margt í starfsháttum McDonald's

hefur orðið tilefhi málaferla og baráttu

en hörðust hefur barátta þeirra verið

gegn þvi að starfsmenn þeirra i Banda-

ríkjunum gangi í verkalýðsfélög. Sú

barátta varð hvað hörðust snemma á

áttunda áratugnum en var jafnan kveð-

in niður. Starfsmenn McDonald's voru

þá neyddir í lygamælispróf og hótað

brottrekstri ef svör þeirra um afstöðu

til verkalýðsfélaga þóttu grunsamleg.

Svo virtist sem baráttunni væri að

ljúka 1997 þegar hópur starfsmanna

McDonald's í Montreal í Kanada ákvað

að ganga í verkalýðsfélag staðarins.

McDonalds' réð 15 lögfræðinga til að

berjast gegn þessari fyrirætlan starfs-

mannanna. Málaferlin stóðu í heilt ár

og lauk með því að réttur starfsmanna

til að ganga í verkalýðsfélag var viður-

kenndur. Þegar það var ljóst lét McDon-

ald's loka veitingastaðnum fyrir fullt og

allt. Þetta hafði áður gerst í kringum

1970 í Lansing í Michigan þar sem

McDonald's var lokað af sömu ástæðu

og nýr veitingastaður reistur neðar við

götuna.

McDouald's er með rúmlega 30 þúsund veitiugastaði á sín um

snærum í heiminum. Þessir staðir eru almennt taldir

merkisberar bandarískra lífshátta og hafa sem slíkir oft orðið

skotspónn manna af pólitískum ástæðum.

Davíð fyrstur

McDonald's hefur verið á íslandi í allmörg ár og vakti

mikla athygli þegar fyrsti staðurinn var opnaður og Dav-

íð Oddsson beit í fyrsta hamborgarann í sviðsljósi fjöl-

miðlanna. Mörgum fannst að loksins væri ísland orðið

reglulega „cosmopolitan". McDonald's er í sérbyggðu húsi

við Faxafen en nýlega var veitingastaðnum í Austur-

stræti lokað eftir nokkurra ára rekstur en enn er opið í

Smárahverfinu í Kópavogi.

Faraldur fitunnar

Þau málaferli sem eru í pípunum gegn McDonald's og

varða of feita viðskiptavini er athyglisverður í Ijósi þró-

unar holdafars amerísku þjóðarinnar og þeirra þjóða sem

aðhyllast skyndibitaát að amerískum hætti. Offita er nú

skilgreind í Bandaríkjunum sem faraldur og vex hröðum

skrefum í öllum aldurshópum, burtséð frá kyni, aldri eða

menntun. í dag eru um 44 milljónir Bandaríkjamanna of

feitar og 6 mihjónir i viðbót eru ofurfeitar sem þýðir

meira en 100 pundum yfir kjörþyngd. í 37 ríkjum

Bandaríkjanna eru meira en 15% íbúanna of feit. Eftir þvi

sem bandarískir skyndibitastaðir hafa breiðst út um

heiminn i keðjuformi hefur þyngd íbúa hvers lands hækk-

að í kjólfarið. Á árunum milli 1983 og 1993 tvöfaldaðist

fjöldi skyndibitastaða í Bretlandi en fjöldi þeirra sem töld-

ust of feitir tvöfaldaðist einnig á sama árabili.

Það stríð sem er að hefjast með málaferlum fyrir

bandarískum dómstólum gæti því boðað upphaf endaloka

þessarar þróunar. Kannski er tími hamborgara og

franskra að líða undir lok.                                 -PÁÁ

(Byggt á: salon.com, Herald Tribune og Fast Food Nation

eftir Eric Schlosser)

null