Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2003, Blaðsíða 2
16 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2003 Sport___________________________________ dv Stjarnan íslandsmeistari í blaki í (yrsta sinn Karlaliö Stjörnunnar í blaki varð íslandsmeistari í fyrsta skipti þegar liðið sigraði ÍS, 3-2, í hreinum úrslitaleik liðanna í Garðabæ. ÍS byrjaði betur með því að vinna fyrstu lotuna, 15-25, en Stjörnumenn unnu næstu tvær, 25-22, og 25-15. ÍS rétti úr kútnum á ný með því að vinna fjórðu lotuna, 15-25, en Stjarnan sigraði í oddalotunni, 15-11. Stjaman er vel að þessum titli komin en ÍS hafði áður orðið íslandsmeistari þrjú sl. ár. -JKS Helgi Jonas og Hildur leikmenn ársins Þriðjudagurinn 22. april 2003 Efni DV- Sports í dag Fréttir © Deildarbikarinn Enski boltinn laugardag 0 Enski boltinn Enski boltinn mánudag © Evrópuboltinn Snjókross 0 Unglingasport 0 Fréttir © Formúla Beinn sími: .............. 550 5880 Ljósmyndir: .............. 550 5845 Fax:...................... 550 5020 Netfang:............dvsport@dv.is Fastir starfsmenn: Henry Birgir Gunnarsson (henry@dv.is) Jón Kristján Sigurösson (jkssport@dv.is) Óskar 0. Jónsson (ooj.sport@dv.is) Óskar Hrafii Þorvaldsson (oskar@dv.is) Pjetur Sigurösson (pjetur@dv.is) Vignir Guöjónsson (vignir@dv.is) Úrslitakeppnin í bandaríska körfuboltanum hófst um pásk- ana og urðu úrslit í leikjunum sem hér segir. Dallas-Portland ..........96-86 Nowitzki 46, Finley 13, Nash 10 - Wallace 26, Stoudamire 16, Wells 13. Sacramento-Utah Jazz .... 96-90 Webber 27, Jackson 15, B. Jackson 13 - Malone 25, Ostertag 18, Harping 15. San Antonio-Phoenix.......95-96 Jackson 23, Robinson 18, Duncan 17 - Marbury 26, Marion 24, Stoudemire 24. Indiana-Boston...........100-103 Artest 26, Jermaine 24, Tinlsey 14 - Pierce 40, Walker 22, Williams 18. New Jersey-Millwaukee . . 109-96 Martin 21, Kittles 18, Harris 17 - Thomas 25, Cassell 16, Mason 14. Detroit-Orlando............94-99 Hamilton 28, Chauncey 21, Robinson 19 - Mcgrady 43, Gooden 18. LA Lakers-Minnesota .... 117-89 Bryant 39, O’Neal 32, Fisher 17 - Gar- nett 23, Hudson 17, Szczerbiak 15. Philadelphia-New Orleans . 98-90 Iverson 55, Snow 15, McKie 12 - Mas- hburn 28, Augmon 11, Davis 10. Allen Iverson setti félagsmet hjá Philadelphia í úrslitakeppni NBA þegar hann skoraði 55 stig í leiknum á móti New Orlenas. Ekki er víst aö Shaquille O’Neal geti leikið alla leiki með LA Lakers í úr- slitakeppninni því að afi hans er al- varlega veikur og kona hans á von á barni í lok mánaðarins. -JKS í lokahófi körfuknattleiksmanna voru Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík, og Hildur Sigurðardótt- ir, KR, valin leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki. Það voru þjálfarar og leikmenn í úrvalsdeild- inni og í 1. deild kvenna sem stóðu að kosningunni sem fer fram fyrir Keflvíkingurinn Damon Johnson hefur samið við lið á Spáni það sem eftir er af þessari leiktíð. Félagið heitir CB Aracena og leikur i þriðju deiid þar í landi og á góða mögu- leika á aö vinna sig upp um deild. Damon er ekki ókunnugur á úrslitakeppnina. Þetta er í annað sinn sem Helgi Jónas fær þessa út- nefningu en Hildur var hins vegar að fá hana í fyrsta sinn. Við sama tækifæri var lið ársins í úrvalsdeild karla valið. Það skipa þeir Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík, Eiríkur Önundarson, ÍR, Spáni en þar lék hann tæp tvö ár áður en hann kom aftur til Keflavík- ur. Þaö er ekki komið á hreint hvað kappinn gerir næsta vetur en mörg félög hafa sýnt honum áhuga eftir að hann fékk íslenskt ríkisfang um áramótin. Damon Johnson, Keflavík, Páll Axel Vilbergsson, Grindavík, Páll Krist- insson, Njarðvík, og Hlynur Bær- ingsson, Snæfelli. Sex manna lið kemur af því að tveir leikmenn voru jafnir í kosningunni. Þetta var í þriðja sinn sem Helgi Jónas er val- inn í lið ársins. Besti erlendi leik- maðurinn í úrvalsdeildinni var val- inn Stevie Johnson úr Haukum. Besti ungi leikmaðurinn var valinn Sævar Haraldsson. Lið ársins í 1. deild kvenna er skipað þeim Hildi Siguröardóttur, KR, Helgu Þorvaldsdóttur, KR, Bimu Valgarðsdóttur, Keflavik, Erlu Þorsteinsdóttur, Keflavík, og Svandísi Sigurðardóttir, ÍS. Denise Shelton úr Grindavík var valin besti erlendi leikmaðurinn og Hel- ena Sverrisdóttir besti ungi leik- maðurinn. Sverrir Þór Sverrisson og Bima Valgarðsdóttir voru valin bestu vamarmennimir. Sverrir var einnig valinn prúðasti leikmaður- inn ásamt öldu Leif Jónsdóttur úr ÍS. Alda Leif og Eiríkur Önundar- son voru með bestu vítanýtinguna. Gunnar Einarsson, Keflavík, og Svava Ósk Stefánsdóttir, Keflavik, voru með bestu nýtinguna í 3 stiga skotum. Jessica Stomski, KR, og Darrell Flake hirtu að meðaltali flest frá- köstin. Sonja Ortega, Keflavík, og Lárus Jónsson, Haukum, voru með flestar stoðsendingar að meðaltali. Leifur Garðarsson var valinn besti dómarinn í í sjöunda sinn, þar af fimmta árið í röð. -JKS Hann mun væntanlega leika með íslenska landsliðinu á smáþjóðaleik- unum í byrjun júní og þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur hann verður fyrir landsliðið. -Ben Garciatl Göppingen Jaliesky Garcia, sem leikið hefur undanfarin ár með HK í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildarliðið Göpp- ingen. Garcia öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt fyrir nokkru og lék fyrsta leik sinn með íslenska landsliðinu gegn Þjóðverjum í síðasta mánuði. íslenski ríkisborgararétturinn gerir Garcia kleift að leika á Evrópska efnahagssvæðinu en hann er 28 ár og fæddur á Kúbu. -JKS Strákarnir sátu eftir íslenska landsliðinu í hand- knattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, tókst ekki að tryggja sér sæti í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í þessum aldursflokki. Það var Úkraína sem vann riöilinn, sem fram fór í Búlgaríu, á betra markahlut- falli en íslenska liðið. íslenska liðið sigraði Búlgara í fyrsta leiknum, 31-26, en liðið leiddi allan leikinn en í hálfleik var staðan 14-9. Einar Hólm- geirsson úr ÍR var markahæstur í leiknum og skoraði sex mörk. Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hörð- ur Fannar Sigþórsson og Ólafur Víðir Ólafsson skoruðu fimm mörk hver. ísland vann síðan Moldaviu, 31-30, þar sem Einar Hólmgeirs- son var markahæstur meö sex mörk. í lokaleiknum gegn Úkra- ínu skildu þjóðimar jafnar, 30-30, og það nægði Úkraínu til að komast áfram. Einar Hólm- geirsson var markahæstur með sex mörk og var síðan útnefndur besti leikmaðurinn í þessum riðli. -JKS Töpuðu öllum 20 ára kvennalandsliðið í handknattleik tapaði öllum leikj- um sínum í undankeppni heims- meistaramótsins sem fram fór í Serbíu og Svartfjallalandi um páskana. íslensku stúlkumar töpuðu fyrsta leiknum fyrir Júgóslövum, 31-16 Síöan lágu stúlkumar fyrir Frökkum, 27-22, og í lokaleikn- um fyrir Dönum, 30-19. Danir og Júgóslavar urðu efstir og jafnir með fimm stig hvor þjóð en danska liðið komst áfram á betra markahlutfalli. -JKS íslendingar drjúgir að skora Patrekur Jóhannesson var markahæstur liðsmanna Essen og skoraði sex mörk þegar liöiö gerði jafntefli, 26-26, við Hamburg á útivelli í þýsku Bundesligunni í handknattieik á páskadag. Guðjón Valur Sig- urðsson skoraði þrjú mörk fyrir Essen. Róbert Duranona skoraði sex mörk fyrir Wetzlar sem vann góðan útisigur á Eisenach, 29-33. Róbert Sighvatsson skor- aði fjögur mörk fyrir Wetzlar í leiknum. Magdeburg sigraði Gummers- bach, 31-34, í Köln Arena höll- inni að viðstöddum 14 þúsund áhorfendum. Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Magde- burg og Sigfús Sigurðsson eitt mark. Lemgo, sem leiðir deild- ina sem fyrr, sigraði Schutt- erwald, 30-33, og hefur 52 stig. Flensburg er í öðru sæti með 46 stig, Magdeburg hefur 43 stig. -JKS Hilldur Siguröardóttir og Helgi Jonas Guðfinnsson meö viöurkenningar sínar á lokahófi körfuknattleiksmanna f Stapanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.