Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 4
 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 DV Fréttir Tvítugur dæmdur: Reyndi að stela tímariti Rúmlega tvítugur piltur hefur ver- ið dæmdur í tveggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir umferðar- lagabrot, fíkniefnabrot og tiiraun til þjófnaðar. Hann reyndi að stela tíma- riti í Select-verslun en var gómaður þegar öryggishlið verslunarinnar gaf frá sér hljóðmerki. Hann var fjórum sinnum stöðvaður í bíl sínum og fannst á honum svolítið af fíkniefn- um og þá var hann tvisvar sinnum tekinn fyrir of hraðan akstur. Hann játaði brot sín fyrir dómi en með þessum brotum rauf hann skilorö frá árinu 2001. Hann sagöist hafa hætt fíkniefnaneyslu og vera í sambúð. Hann kvaðst hafa fasta vinnu og stefndi á skóla í haust. Með vísan til ungs aldurs hans og sakarferils þótti dómara rétt að skilorðsbinda refsing- una á ný. -EKÁ Skilorð fyrir þjófnað: Stálu púllubagga- vél og flaghefli Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo menn, á fertugs- og fimm- tugsaldri, í fjögurra mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið rúllubaggavél og flaghefli í nóvember 2002. Við ákvörðun refs- ingar leit dómarinn til þess að menn- imir játuðu brot sitt greiðlega og sakarferill þeirra var enginn sem máli skipti. Hins vegar tók dómarinn fram að um veruleg verðmæti hefði verið að ræða og hefði mönnunum mátt vera það ljóst. Þeim var einnig gert að greiða skipuðum verjanda sinum 50.000 krónur í málsvamar- þóknun. -EKÁ Nokkuð um að ungir ökumenn séu í kappakstri: og þá er voöinn vís DV-MYND GVA Ný tækni í bankaviöskiptum Einar Einarsson, stjórnarformaður Allbank ísland, við nýja þjónustuskjá- standinn, Albankann. Allbank ísland: Mannleg sam- skipti í nafnæn- um viðskiptum Danski bankinn Andelskassen hef- ur tekiö í gagnið nýja byltingar- kennda gerð þjónustuskjástanda eða rafrænna bankaútibúa, Albanka, sem byggjast á íslensku hugviti og tækni- lausnum frá íslensk/amerískufyrir- tæki, Allbank Intemational á íslandi. Þessi rafrænu bankaútibú vom af- hent formlega í bænum Grindsted í vikunni á dansk-íslenskum blaða- mannafundi. Albanki er gagnvirkur þjón- ustustandur eða sjálfsafgreiðslutæki sem er nettengdur og gerir fólki kleift að stunda sín viðskipti á ein- faldan en ömggan hátt. Albankinn er nettengdur, búinn snertiskjá, mynd- síma, posa, prentara og öðrum bún- aði sem nota má til upplýsingaleitar og rafrænna viðskipta við ýmis gagn- virk þjónustufyrirtæki, eins og banka og sparisjóði, tryggingafélög og ferða- skrifstofúr. Hægt er að ná sambandi við þjónustufulltrúa og tala við hann og ganga frá viðskiptum um mynd- síma. Gunnlaugur Jósefsson, tæknilegur framkvæmdastjóri, sagði að við auk- in rafræn viðskipti hefðu mannleg samskipti í bankaviðskiptum minnk- að en þessi tækni bætti úr því. í bí- gerð er að setja Albanka upp í Land- spítala - háskólasjúkrahúsi, íslenskri erfðagreiningu og Vöruhóteli Eim- skips í Sundahöfn. ____________ -hlh Stöðugt birtast fréttir af því að lög- reglan sé að taka unga stráka og stundum stelpur sem era að keyra langt yfir leyfílegum hámarkshraða og því miður em dæmi þess aö illa hafi farið. Nýjar tölur sýna að á með- an nokkuð hefur dregið úr ölvun- arakstri hefur hraðakstur aukist að sama skapi. í síðasta mánuði vom tveir piltar, sem enn voru með bráðabirgðaskír- teini, teknir í Ártúnsbrekkunni, en þeir höfðu verið þar í kappakstri klukkan hálfellefu um kvöldið á 190 kílómetra hraða. Þá voru tveir piltar teknir úti á Granda aðfaranótt laug- ardags, en þeir höfðu verið í spymu og vom komnir upp í 130 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarks- hraði er 50 kílómetrar. Þeir höfðu heppnina með sér að þessu sinni en ekki er að spyrja að því hvemig hefði farið ef eitthvað hefði borið út af. Þá er einnig talið að slysið sem varð í Vestmannaeyjum fyrir skömmu, þar sem ung stúlka lést og önnur liggur lífshættulega slösuð á spítala, hafi orðið vegna einhvers konar kappaksturs þeirra og annars bíls. Einnig varð mjög harður árekst- ur í fyrra á ofanverðri Hverfisgötu, á móts við Hlemm, þegar tveir bílar voru í kappakstri upp Hverfisgötuna á ofsahraða, en á móts við Hlemm missti annar bílstjórinn stjómina og DV-MYND JAK Haröur árekstur í kjölfar kappaksturs Þrír bílar gjöreyöilögðust þegar ökumaöur sem keyröi á ofsahraða upp Hverf- isgötuna missti stjórn á bílnum sínum. lenti á jeppa sem lenti síðan á þriðja bílnum. Ekki urðu þó slys á fólki í það skiptið. Kunna ekki nógu vel á bílana Samkvænit upplýsingum DV kem- ur það alltaf upp öðru hverju að krakkar séu að fara í spymur.. Al- gengt er að 17 ára krakkar fái öku- skírteinin sín og hoppi beint upp í bíla með 200 hestafla vélum sem þeir ráða alls ekki við. Lögreglan segir að krakkarnir átti sig ekki alltaf á því að þótt þeir séu komnir með bílpróf öðlist þeir ekki nauðsynlega fæmi fyrr en eftir margra ára akstur og þá hafi þeir yfirleitt aðeins öðlast akst- ursfæmi á þeim stöðum þar sem þeir em vanir að keyra. Til að mynda hafi fæstir þeirra reynslu af akstri á vegum utan borgarmarkanna. Þeir þekki bílana heldur ekki nægilega vel þannig að þegar þeir nái ákveðn- um hraða sé voðinn vís. Að sögn lög- reglunnar felst vandamálið einna helst í því að krakkamir beri ekki nægilega mikla virðingu fyrir öku- skírteininu. í vetur var ungur öku- þór á landsbyggðinni stöðvaður þar sem hann hafði keyrt of greitt og spurði lögreglan hvort hann áttaði sig ekki á því að bíllinn væri ekki leikfang. Brást hann illa við og sagði að bíllinn væri víst leikfang. Þetta segir lögreglan aö sé því miður ríkj- andi hugsunarháttur hjá mörgum krökkum, að bílamir séu bara stór leikföng sem enginn skaði geti hlot- ist af. Þeir átti sig ekki á hættunni og beri enga virðingu fyrir bílunum. Flestir krakkarnir skynsamir . Menn hafa bent á að tryggingafé- lögin gætu veriö öflugri í að fara í skólana og sýna krökkunum sem séu að fá bílpróf hversu illa geti farið þegar bílamir, sem jafnvel em ekki á meiri hraða en 50 kílómetrum, lendi í árekstri. Menn telja að nauð- synlegt sé að krakkamir sjái þetta með berum augum því ef þeir sjái þetta aðeins í sjónvarpi sé það ekki eins raunverulegt. Lögreglan segir að hraðakstur hafi alltaf og muni alltaf vera til staðar en segir þó að flestir krakkar séu sem betur fer til- tölulega skynsamir þegar kemur að akstri þótt alltaf séu undantekningar á því. -EKÁ DV-MYND HARt Sýningu hans í Matthew Barney setur upp myndllstarsýnlngu í Nýlistasafninu Sambýlismaöur Bjarkar Guðmundsdóttur hefur undanfarna mánuöi sýnt í glæsilegustu myndlistarhúsum heims í New York, París og London. Guggenheim lauk fýrir rúmri viku. Nú kemur hann verkum sínum fyrir í naumu rými Nýlistasafnsins viö Vatnsstíg í Reykjavík. Valda ekki hraðanum Niðurskurður fll lögregkmnar ekki boðaður Vegna umræðu um fjármál lög- reglunnar í Reykjavík hefur dóms- málaráðuneytið sent frá sér til- kynningu þess efnis að enginn nið- urskurður á framlögum til lögregl- unnar í Reykjavík hafi verið boðað- ur. Segir að sérstakar fjárveitingar vegna rannsóknar umfangsmikilla fíkniefnamála og vopnaeftirlits á flugvöllum í fjárlögum þessa árs hafi þegar að stærstu leyti runnið til lögreglustjórans í Reykjavík. Fyrir liggi að embættið hafi verið rekið með um 40 m.kr. halla á síð- asta ári og til að snúa þeirri þróun við hafi verið ákveðið að grípa til ákveðinna aðgerða. Dómsmálaráðuneytið hefur ít- rekað bent á í að staða löggæslunn- ar sé sterk og traust og fyrir liggi í opinberum gögnum að frá árinu 1997 hafi orðið um 30% raunhækk- un á framlögum til löggæslunnar. Lögreglumönnum hafi á sama tíma fjölgað umtalsvert. Einnig sýni töl- ur að afbrotatíðni hér á landi sé með því lægsta sem gerist í heimin- um. Áberandi hefur verið í opin- berri umræðu að vöxtur hafi hlaupiö í embætti ríkislögreglu- stjóra á kostnað löggæslu í landinu og segir í tilkynningunni að slíkt sé fjarri sanni. Raunhækkanir sem orðið hafi á undanförnum árum á framlögum til löggæslu hafi ein- ungis að litlu leyti runnið til emb- ættis ríkislögreglustjóra. Þær raun- hækkanir hafi fariö í fjölgun lög- reglumanna, t.d. við fíkniefriarann- sóknir. -EKÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.