Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 14
14
Menning
Wagner á veislufati
Tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands í gærkvöldi voru helg-
aöir tónlist eftir eitt tónskáld -
hinn umdeilda snilling Richard
Wagner. Umdeildur var hann
mest í sínum eigin samtíma. í
dag reyna fáir að mótmæla því
að þar fór maður með afar fágæta
hæfileika sem hann nýtti til að
lýsa í tónlist hreinni fegurð og
heitum tilfinningum. Margir
hafa reynt þetta en hann er einn
af örfáum sem tókst það og það
oftar og betur en margir þora að
viðurkenna.
Wagner var fyrst og fremst óp-
erusmiður og því eðlilegt að for-
leikir ættu stóran hlut í efnis-
skránni í gær, en þeir voru fjór-
ir. Auk þess söng Magnea Tómas-
dóttir eftir tónskáldið vel valda
kafla sem kalla má aríur þó þeir
séu ekki allir afmarkaðir með
heföbundnum hætti. Aríur þess-
ar komu úr óperunum
Lohengrin, Tannhauser og Trist-
an og Isolde - og hljóta nú allir
Wagner-aðdáendur að vera famir
að lygna aftur augum.
Tónleikarnir hófust hins vegar
með flutningi á Wesendonck
Lieder, undurfagurri tónsmíð við
ljóð eftir Mathilde Wesendonck
sem var ástkona Wagners á sjötta
áratug nítjándu aldar. Verkið er
sem sagt ekki óperusmíð en tengist órjúfan-
lega því sem mátti heyra síðast á efnis-
skránni, þ.e. óperunni um Tristan og ísolde
og tónleikarnir þannig vel rammaðir inn
hvað varðaði efhisval.
Það er ákveöin blóðtaka þegar margir af
fremstu hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar eru fjarverandi en ástæða þess
nú er Rússlandsferð Kammersveitar Reykja-
Tannháuser. Þar hreinlega héldu
fiðlur ekki viðkvæmum tóni í
lokin í réttri tónhæð heldur seig
tónninn þegar styrkur var
minnkaður. Þetta þætti léleg lat-
ína hjá t.d. söngvurum og er auð-
vitað óviðunandi. Hins vegar
mátti heyra fagra tóna úr ástaró-
bói í höndum Kristjáns Stephen-
sen og svo bassaklarínettunni hjá
Kjartani Óskarssyni í forleiknum
að Tristan, svo eitthvað sé nefnt.
Sellóin fengu margt fallegt að
spila úr og gerðu oft vel en bass-
ar voru stundum óhreinir. Eftir
hlé var almennt sem menn hefðu
spýtt í lófana og voru allir hestu
sprettimir í hljóðfæraleik teknir
þá.
Magnea Tómasdóttir hefur sér-
stæða og stóra, svolítið þunga en
oft um leið mjög bjarta rödd.
Beiting hennar er ekki alveg
nógu markviss og rennsli upp og
inn í tónana ótrúlega hljómljótt
og fráhrindandi. Þetta gerist þó
miklu sjaldnar en svo að það nái
að skyggja á þær stundir þegar
hljómfegurð og styrkur tónn
samhliða mjög vel unninni túlk-
un einkenna flutning hennar. Ar-
ían úr Lohengrin var fallega
sungin, gleði Elísabetar vel túlk-
dv-mynd e.ól. uð og síðast en kannski fremst
var flutningurinn á Liebestod
hrífandi. Magnea hefur alla burði
til að vera mjög vaxandi söng-
kona og næsta víst að Richards Wagner verð-
ur oftar getið á efnisskrám hennar en
margra annarra.
Sigfríður Bjömsdóttir
Sinfóníuhljómsveit íslands lék verk eftir Richard
Wagner í Háskólabíói 22.05.03. Einsöngvari: Magnea
Tómasdóttir. Stjórnandi: Gregor Buhl.
Magnea Tómasdóttir á æflngu
Á tónleikunum var Wagnersöngkonan í grænum glitrandi síökjól
víkur. Ekki er þó víst að sú staða hafi valdið
almennu óstuði í leik hljómsveitarinnar fyr-
ir hlé. Flöt túlkun skrifast að mestu leyti á
hljómsveitarstjórann Gregor Búhl en falskar
nótur og feilslegnar gera það ekki. Mörg
neyðarleg augnablik tengdust fiðluleiknum
sem var oft vandræðalega óhreinn, svo sem í
lok fyrri forleiksins úr Lohengrin og aftur í
lok forleiks og Bakkusarhátiðar úr
Söngvaselóur bestur
Guörún Jónsdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir í
hlutverkum Maríu og abbadísarinnar.
Söngvaseiður
Nú er uppselt á þrjár sýningar á Söngva-
seiði sem Isfirðingar sýna í Þjóðleikhúsinu í
tilefni af því að uppsetningin var valin
áhugaleiksýning ársins. Sú fyrsta verður á
sunnudagskvöldið. Tólf leikfélög sóttu um að
koma til greina við valið með alls þrettán
sýningar og þótti dómnefnd mikið til um það
kraftmikla og mikilvæga starf sem áhugaleik-
félögin standa fyrir um land allt.
Alls koma um sjötíu manns að sýningu
Litla leikklúbbsins og Tónlistarskólans á ísa-
firði á Söngvaseiði, og er þetta viöamesta
áhugasýningin sem valin hefur verið til sýn-
ingar í Þjóðleikhúsinu til þessa. Leikstjóri
sýningarinnar er Þórhildur Þorleifsdóttir,
sem einnig samdi dansa. Höfundur leikmynd-
ar er Messíana Tómasdóttir og lýsingu hann-
aöi Sveinbjörn Bjömsson. Tónlistar- og kór-
stjóri er Beáta Joó. Um tónlistarflutning sér
hljómsveit Tónlistarskóla Ísaíjarðar og hljóm-
sveitarstjóri er Janusz Frach.
í umsögn dómnefndar segir að sýningin sé
einstaklega metnaöarfull og í raun þrekvirki
hjá þessum aðilum aö setja upp söngleik af
þessari stærðargráöu meö þessum árangri.
Leikarar eru á öllum aldri og var sérstaklega
ánægjulegt að sjá hvað barnahópurinn stóö
sig vel, enda dyggilega studdur af sterkum
hópi eldri leikara. Allt yfirbragð sýningar-
innar var tilgerðarlaust og agað, og tókst að-
standendum og leikurum með einlægni og
húmor að sneiða hjá þeirri tilfinningasemi
sem óneitanlega býr í verkinu. í Söngvaseiði
sameinar tónlistarfólk og leikhúsfólk krafta
sína í óvenjulega heiisteyptri sýningu sem
allt bæjarfélagið má vera stolt af.
Konur gera
Anna Rósa Sigurðardóttir í Plómum
Öguö líkamleg tækni er eitt helsta aöalsmerki hennar.
Á fimmtudagskvöldiö
frumsýndi nýr sviðslista-
hópur, íslenska samband-
ið ehf., leikritið Plómur
eftir Önnu Rósu Sigurð-
ardóttur í Tjarnarbíói.
Uppsetningin er „debútt“
í margföldum skilningi
því um er að ræða
frumraun Önnu Rósu
sem höfundar og leikara
hérlendis en hún stund-
aði leiklistarnám í
Bandaríkjunum. Leik-
stjórinn Hera Ólafsdóttir
er sömuleiðis að stýra
sinni fyrstu uppfærslu og
Rósa Guðmundsdóttir,
höfundur og flytjandi tón-
listar, hefur ekki starfað
við leikhús fyrr. Þau Eg-
ill Ingibergsson og Móeið-
ur Helgadóttir, sem eru
hönnuðir leikmyndar,
lýsingar og búninga, eru
mun sjóaðri og þá sér-
staklega Egill sem hefur
verið helsti ljósahönnuð-
ur Nemendaleikhússins um langt skeið.
í Plómum segir frá Guðrúnu sem á sér þá
ósk heitasta að verða rithöfúndur. Hennar
helsta átrúnaðargoð er August Strindberg
og sagan sem Guðrún deilir með áhorfend-
um á ýmislegt sameiginlegt með þekktum
verkum sænska skáldjöfursins. Skil
draums og veruleika eru óljós og þótt frá-
sögnin sé römmuð inn með stuttum eintöl-
um er atburðarásin án eiginlegs upphafs og
endis. Framvindan er lýsing á draum-
kenndu ástandi sem á stundum verður æöi
martraðarkennt enda tekur andi Strind-
bergs sér bólfestu í líkama Guðrúnar.
Leiklist
Eðlilega er nokkur byrjendabragur á
Plómum en þar eru líka prýðilegar og vel
útfærðar hugmyndir. Að ósekju hefði mátt
stytta verkið og þétta auk þess sem tempó
sýningarinnar var dálítið einsleitt. Anna
Rósa, sem eðli málsins samkvæmt er á
sviðinu allan tímann, sveiflar sér fimlega
milli hlutverka og tilfinninga. Öguð líkam-
leg tækni er eitt helsta aðalsmerki Önnu og
það nýtir leikstjórinn á afar áhrifaríkan
hátt. Hreyfanlegu klippimyndirnar, sem
gegna hlutverki leikmyndar, eru einstak-
lega skemmtilegar og gæða sýninguna létt-
leika og húmor. Tónlist Rósu Guðmunds-
dóttur fellur vel að efninu og gefur tilefni
til heilmikilla væntinga. Aðstandendur
uppfærslunnar mega vel við una og eiga
hrós skfiið fyrir þá djörfung að skapa sér
verkefni í stað þess að bíða eftir að tæki-
færin komi upp í hendurnar á þeim.
Halldóra Friðjónsdóttir
islenska sambandlö ehf. sýnir Plómur eftir Önnu Rósu
Siguröardóttur í Tjarnarbíói. Mynd- og hijóðstjórn: Guð-
rún Magnúsdóttir. Danshöfundur: Ástrós Gunnarsdótt-
ir. Tónllst: Rósa Guömundsdóttir. Lelkmynd, Ijós og
búningar: Egill Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir.
Leikstjóri: Hera Ólafsdóttir.
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
T>V
Umsjón: Sílja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is
Söngfélagiö sunnan heiöa
Á sunnudaginn kl. 17
heldur Söngfélagið sunnan
heiða tónleika í Salnum í
Kópavogi ásamt Ólafi Kjart-
ani Sigurðarsyni baríton,
Helgu Bryndisi Magnúsdótt-
ur píanóleikara og Pétri
Bjömssyni kvæðamanni.
Stjórnandi er Kári Gestsson.
Á efnisskrá er aðallega íslensk tónlist,
þar á meðal verk sem Gunnsteinn Ólafs-
son tónskáld samdi fyrir kórinn. Að sögn
Gunnsteins átti það að byggjast á kvæða-
lögum sem Kvæðamannafélagið Iðunn hef-
ur kveðið frá því á fjórða áratug 20. aldar.
„Ég átti í pússi mínu níu stemmur sem
Steindór Ándersen hafði eitt sinn kveðið
fyrir mig. Ég tók fram uppskrift mína á
lögunum og samdi kórverkið svo til í ein-
um áfanga. Lögin féllu hvert að öðru eins
og þau hefðu alltaf átt að sameinast í einni
tónsmið."
Graduale og Eivör
Vortónleikar Gradu-
alekórs Langholtskirkju
verða í Langholtskirkju á
sunnudaginn kl. 20. Ein-
söngvari með kómum verð-
ur Eivör Pálsdóttir og hljóð-
færaleikararnir Guðmund-
ur Sigurðsson, Gunnar
Hrafnsson, Kjartan Valdemarsson, Pétur
Grétarsson og Sigurður Flosason leika
með. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Á efnisskrá verða m.a. þjóðlagaútsetn-
ingar eftir Jón Ásgeirsson, verk eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur, Jakob Hallgríms-
son o.fl. Aðalverk tónleikanna er Háb
(Von) eftir danska tónskáldið John Hoybye
í tilefni af ráðstefnu samtaka norrænna
tónlistaruppalenda, kórstjóra og tónlistar-
kennara. Tónskáldið verður aðalgestur
ráðstefnunnar ásamt finnska kórstjóranum
Erki Pohjola, stofnanda hins heimsþekkta
Tapiolakórs.
I sumar fer Gradualekórinn í tónleika-
ferð til Finnlands og verður gestur á
Sympatti-kórahátíðinni. Sex bamakórar
frá fiórum heimsálfum em boðnir á hátíð-
ina sem felst í sameiginlegum tónleikum
gestakóranna í upphafi og við lok hátíðar-
innar en auk þess er skipulögð viku tón-
leikaferð fyrir hvem kór um Finnland.
Álfasagan mikla
Á sunnudaginn var hófst
á Rás 1 þáttaröðin Tveggja
heima sýn í umsjá Maríu
Önnu Þorsteinsdóttur um
álfasöguna miklu, Sögu
Ólafs Þórhallasonar eftir
Eirík Laxdal, sem talin er
rituð um aldamótin 1800. í
þáttunum býður hún hlust-
endum að kynnast fram-
andi heimi þessarar sögu sem kölluð hefur
verið fyrsta íslenska skáldsagan. Heimi
þar sém álfar eru aðalpersónur og aðrar
kunnuglegar verur úr þjóðsagnaarfinum,
svo sem útilegumenn og sæbúar, auk
venjulegra íslendinga sem ofanjarðar búa.
í næsta þætti kl. 10.15 á sunnudaginn
verða íslenskar þjóðsögur til umfiöllunar
og verður Baldur Hafstað prófessor gestur
þáttarins. Þættimir eru endurfluttir á
mánudögum kl. 15.
Stórsveitartónleikar
Á morgun kl.15 heldur Stórsveit Reykja-
víkur útgáfutónleika í Ráðhúsi Reykjavík-
ur í tilefni þess aö hljómsveitin var að
gefa út geislaplötu þar sem eingöngu eru
flutt lög sem tengjast Reykjavíkurborg.
Einvalaliö söngvara er lika á plötunni;
Andrea Gylfadóttir, Björgvin Halldórsson,
Egill Ólafsson, Kristjana Stefánsdóttir, Páll
Óskar Hjálmtýsson, Páll Rósinkranz og
Ragnar Bjamason.
Stjómandi á tónleikunum verður Sæ-
bjöm Jónsson en Skífan gefur diskinn út.
Thorvald Steen
Nýr rithöfundur var búinn til í frétt í
blaðinu í fyrradag um árbókina Nordisk
litteratur. Var nafnið sett saman úr höf-
undamafninu, Thorvald Steen, og nafninu
á ljósmyndara hans, Helene Andersen! Það
er sem sagt Thorvald Steen sem skrifar
skáldsöguna Den lille hesten með Snorra
Sturluson sem aðalpersónu. Þorleifur
Hauksson fiallar um hana og fleiri nýjar
norrænar skáldsögur um Sturlungaöldina í
ritinu.