Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 29
29 r ÞRIÐJUDAGUR 27. MAl 2003 Larsson hættur með Svíum Svíinn Henrik Larsson hefur ákveö- iö að gefa ekki kost á sér framar í sænska landsliðið í knattspyrnu. Hann lék sinn siðasta leik með liðinu gegn Ungverjum í síðasta mánuði en til- kynnti síðan þjálfara sænska landsliðs- ins, Tommy Söderberg, að hann væri hættur. Larsson, sem leikur með Celtic, er 31 árs aö aldri og einn mesti marka- skorari sem uppi er í knattspymunni. Hann lék 72 leiki með Svium og skor- aði í þeim 24 mörk. -JKS i¥¥¥ ■■m w>i. Kristján Valdimarsson, hinn ungi hægri bakvörður Fylkismanna, athugar hér hvort það sé ekki allt í lagi með skotfót Gunnar Þórs Péturssonar eftir að hinn siðarnefndi hafði skorað stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu. Haukur Ingi Guðnason og Ólafur Páll Snorrason voru einnig ánægðir með Gunnar Þór en á innfelldu myndinni sést Haukur Ingi skora seinna mark Fylkis. DV- myndir E. Ól. Wolves í efstu deikl Wolverhampton Wanderers tryggði sér sæti I ensku úrvals- deildinni í gær þegar að liðið sigr- aði Sheffield United, 3-0, um laust sæti á ÞúsaldarveUinum í Cardiff. Langþráðu takmarki hjá þessu sögufræga félagi er náð en liðið hefur ekki leikið í efstu deUd í 19 ár. Sigur Úffanna var sanngjam en liðið skoraði öU mörkin í fyrri hálfleik. Mark Kennedy, Nathan Blake og Kenny MiUer skoruðu mörk liðsins i leiknum. ívar Ingi- marsson er á mála hjá Wolves og var ekki í leikmannahópnum fremur en oft áður á tímabUinu. Sheffield United fékk aUa mögu- leika tU að koma sér inn I leikinn í upphafi síðari háUleiks en Mich- ael Brown brást bogalistin þegar hann klúðraði vítaspymu. NeU Warnock, knattspyrnustjóra Sheffield United, var sýnt rauða spjaldiö og stjórnaði liðinu ekkert í síðari hálfleik. Griðarlegur fögnuöur braust út á ÞúsaldarveUinum þegar sætið í úrvalsdeUdinni var tryggt en Úff- amir fylgja Portsmouth og Leicester upp í úrvalsdeUdina. Enginn var samt kátari en Jack Hayward, forseti Wolves, en hann verður 80 ára i næsta mánuði. „GamaU draumur er orðinn að veruleika og ég veit eiginlega ekki hvernig ég að vera,“ sagði Hayward eftir leikinn. -JKS amameipa Fylkis, um byrjunina á íslandsmótinu kominn með tvö mörk í jafnmörg- um leikjum. En hann á helling inni samt finnst mér og það á eftir að sjást þegar líður á sumarið. Björn Viðar (Ásbjörnsson) er hefur staðið sig vel líka og ég er með funm sóknarmenn sem allir gera tUkall til stöðu í liðinu. Þetta er þægilegur höfuðverkur sem ég þarf að kljást við,“ sagði 'Aðal- steinn að lokum. -vig Viktor a heimleið? Viktor B. Arnarsson, sem verið hefur á mála hjá hoUenska úrvals- deUdarliðinu FC Utrecht síðustu ár, ætlar ekki að endumýja samning sinn við félagið, en hann rennur út nú í sumar. Tækifæri Viktors með Utrecht hafa verið af skornum skammti aUt frá því að hann gekk tU liðs við félagið aðeins 16 ára gamaU og hef- ur þessi tvítugi pUtur nánast ein- göngu leikið með unglinga- og síðan varaliði félagsins. Hann var lánaður tU 1. deUdar liðsins TOP Oss um mitt núverandi tímabU og þar hefur Viktor náð að festa sig í sessi og spUað regulega með aðalliðinu. Fé- lagið hefur lýst yflr miklum áhuga á að gera samning við Viktor eftir að samningur hans við Utrect rennur út en mikU fjárhagsvandræði félags- ins gætu staðið í vegi fyrir því. Vill vera áfram úti „Þaö er alveg ljóst að þeir vUja halda mér og eins að ég fer ekki aft- Viktor Bjarki Arnarsson. ur tU Utrecht. En liðið er alveg á kúpunni og það skýrist í vikunni hvort félagið nær að bjarga sér frá gjaldþroti. Það er auðvitað leiðin- legt og pirrandi að vita ekki hvað verður en svona er bara boltinn í dag,“ sagði Viktor í samtali við DV- Sport í gær og lýsti yfir eindregnum vUja á að halda áfram í atvinnu- mennskunni. Samt sem áður bætti hann við að ef færi svo að samning- ar næðust ekki við TOP Oss væri aUt eins liklegt að hann spUaði á ís- landi í sumar. Þá væri það úrvals- deUdin sem að sjáffsögðu heUlaði mest, en þess má geta að Viktor er uppalinn hjá Víkingi sem leikur nú í 1. deUdinni. Nokkur liö sýna áhuga Ólafur Garðarsson er umboðs- maður Viktors og staðfesti hann það við DV-Sport í gær að nokkur lið hér heima hefðu verið að spyrj- ast fyrir um leikmanninn. Hann vUdi þó ekki gefa upp um hvaða lið væri að ræða en sagði að þau væru bæði úr 1. deUd og úrvalsdeUd. Sam- kvæmt heimUdum DV-Sports eru KA og ÍBV meðal þeirra félaga sem borið hafa víurnar í Viktor þótt þær viðræður séu enn á algjöru byrjun- arstigi. -vig Prófa þá yngri og óreyndari - segir Guömundur Guömundsson um landsleikina gegn Dönum íslenska landsliðið í handknatt- leik mætir Dönum í tveimur landsleikjum, 30. og 31. maí, og veröur sá fyrri í Austurbergi og sá síðari í Smáranum. Guðmundur Guðmundsson landsliösþjáffari valdi í gær þá leikmenn sem taka þátt í leikjunum. Markverðir eru Guðmundur Hrafnkelsson, Kronau/Osteringen, Roland Eradze, Val, og Birkir ívar Guðmundsson, Haukum. Aðrir leikmenn eru Guðjón Valur Sig- urðsson, Essen, Logi Geirsson, FH, Bjarni Fritzson, ÍR, Einar örn Jónsson, Wallau Massenheim, Ró- bert Sighvatsson, Wetzlar, Róbert Gunnarsson, Árhus, Vignir Svav- arsson, Haukum, Dagur Sigurðs- son, Wakunaga, Jaliesky Garcia, Göppingen, Snorri Steinn Guðjóns- son, Grosswaldstadt, Markús Máni Maute, Val, Rúnar Sigtryggsson, Ciudad Real, Einar Hólmgeirsson, ÍR, Patrekur Jóhannesson, Essen, Ólafur Stefánsson, Magdeburg, Ar- on Kristjánsson, Haukum, Ásgeir Öm Hallgrimsson, Hauk- um. Sigfús Sigurðsson hjá þýska liðinu Magdeburg gaf ekki kost á sér í þessa leiki en gömul meiðsli í öxl tóku sig upp á dögunum og verður hann að taka sér frí í allt að átta vikur. Það er því ljóst að hann leikur ekki með landsliðinu gegn úrvalsliði Katalóníu og eins á íjögurra landa mótinu í Belgíu. Heiðmar Felixson, leikur með Bidasoa á Spáni, á einnig við meiðsli að stríða og verður heldur ekki meö í næstu Guömundur Guömundsson. sem verkefnum landsliðsins. Þorkell Magnússon úr Haukum, sem æfði með liðinu fyrir Danaleikina, var aftur á móti ekki valinn. „Það kemur vonandi bara mað- ur í manns staö. Núna gefst mér tækifæri til að prófa yngri og óreyndari leikmenn," sagði Guð- mundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í gær eft- ir að hann tilkynnti liðiö. Danir koma hingaö til lands með nokkuð breytt lið frá því í heimsmeist- arakeppninni í Portúgal i vetur. Noklcrir lykilmenn gáfu ekki kost á sér í ís- landsferðina þannig aö Danir mæta með nokkuð breytt lið. -JKS 1 C * i, „Hlýt að vera valtur í sessi" Bjarni Jóhannesson, þjáffari Grindavíkur, var ekki kátur á svip þegar DV-Sport náði tali af honum eftir leikinn. „Þetta byrjar ekki vel og það sjá það ailir að það er lítið sem fellur með okkur þessa dagana. Auðvitað er þetta ekki ásættanlegt en staðan er samt svona og við verðum bara að taka á því. Sóknarleikur okkur er lít- ið skapandi en vömin er ágæt. Ég get fært leikmenn til á vellinum og við finnum eflaust lausnir á einhverju.“ - Teluröu þig valtan í sessi sem þjálfari Grindavíkur? „Alveg ömgglega. Það hlýtrn- að vera fyrst við erum búnir að tapa tveimur leikjum í röð. En það kemur í Ijós á föstudaginn hvort ég næ að rífa liðið upp úr öldudalnum," sagði Bjami. Þurfum á sigri aö halda „Það vantar náttúrlega Grétar (Hjartarson). Það er sóknarmaður- inn sem við höfum verið að spila á síöustu þrjú árin. Við erum að breyta og það kemur ekkert á einni viku. Úrslitin vora okkur ekki hag- stæð í kvöld en þetta var samt sem áður miklu betra en i síðasta leik,“ sagði Ólafur örn Bjamason, fyrirhði Grindavíkur eftir leikinn. „Auðvitað er þetta ekki nógu gott en það hefur áður gerst að við byrj- um illa þegar við ætlum okkur stóra hluti. Við vitum að við eigum svolít- ið inni og það sem við þurfum að gera er að gleyma þessu og ná sigri á fostudaginn. Það era sex stig í topp- inn og einn sigur setur okkur á allt annan stað. Við þurfum sigur,“ sagði Ólafur Örn. Nýt þess aö spila Lee Sharpe átti ágætis leik með Grindavík í gær en hann sagði við DV-Sport að þetta væri ekki byrjun- in sem hann hefði vonast eftir. „Mér fannst við spila nokkuð vel á köflum í dag en vorum sigraðir á frá- bærri aukaspymu og frábærri skyndisókn. Við getum gert miklu betur - þetta er spuming um að hitta á góðan dag. Ég er að komast í betra og betra form en hefði viljað þrjú stig,“ sagði Sharpe og bætti við að knattspyman á íslandi hefði komið honum lítiö á óvart það sem af er. „Öll liðin eru í góðu formi og leik- imir era mjög hraðir pg fast spilaðir. Ég nýt þess i botn og þetta er skemmtilegt. Ég hlakka bara til þeg- ar ég og liðið fóram að spila betur. Ég næ vonandi að skora einhver mörk með batnandi formi og ég er bara bjartsýnn á framhaldið." -vig Svemr á fæö- , ingardeildinni Sverrir Sverr- isson lék ekki með Fylkis- mönnum gegn Grindvíkingum í gærkvöld. Sverrir var á fæðingardeild- inni þar sem konan hans ól honum barn þegar háfftími var liðinn af leiknum. Þau tiðindi bárust upp í Árbæ á meðan á leiknum stóð að Sverr- ir hefði eignast son og er foreldrunum óskað til hamingju. -JKS f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.