Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						6     MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003

Fréttir DV

Forseti íslands spyr í aöventuávarpi í Dómkirkjunni hvort mikil umræða um fá-

tækt hafi engu skilað. Heit hafi verið gefin en ástandið batni ekki. Enn bíði fólk í

röðum eftir mat og aðstoð. Við viljum ekki að íslensk jól séu tími ótta og örvænt-

ingar, þrautargöngu og erfiðleika.

Kristnin

aldrei

gamaldags

Spyrja má, hvort sam-

tíminn mótist af því að

menn telji kraftaverkin fel-

ast í takmarkalausum tæki-

færum til að afla sér fjár og

ekki þurfi að taka tillit til

neins annars en eigin hags.

Þetta sagði Björn Bjarnason

kirkjumálaráðherra á að-

ventusamkomu í Grensás-

kirkju í gærkvöldi. Ekki

þurfi að huga að neinu

öðru en leiðum til að ná til

sín sem mestu af veraldleg-

um gæðum. „Hinn sígildi

kristni boðskapur er aldrei

gamaldags, nema menn

hafni inntaki hans, leggi allt

að jöfnu í ímyndaðri ver-

öld, geri lítið úr hversdags-

verkunum og þyki engu

skipta að vera trúir yfir því,

sem þeim er falið, gæta

þess og rækta," sagði ráð-

herrann í ræðu sinni.

Skýrt og

einfalt

Jafnframt ræddi ráð-

herrann um tengsl trúar og

stjórnmála. Sagði bæði

presta og stjómmálamenn

eiga töluvert undir því

hvernig þeim tækist að ná

til fólks með málfutningi

sínum. Sá væri hins vegar

munurinn að stjórnmála-

menn störfuðu á þeim for-

sendum að semja til að ná

markmiðum sínum en

prestar boðuðu kenningu,

hreina og tæra. „Markmið í

stjómmálum þurfa að vera

skýr og einföld," sagði

Björn.

Trúá

tungu töm

Stjómmálamenn eru

vinsælir sem aldrei fyrr á

þessum tíma

árs og fjöl-

margir þeirra

eru kvaddir

til að flytja

áyörp í kirkj-

um landsins.

Auk Björns

var Guðni

Ágústsson

ræðumaður á samkomu í

Grafarvogskirkju og Þórólf-

ur Árnason

borgarstjóri

talaði í Bú-

staðakirkju.

Trúarlegar

tilvitnanir

hafa aukin-

heldur verið

stjórnmála-

mönnum á

tungu tamar undanfarin

dægur. Má þar minna á

Júdasariðrun sem Davíð

Oddsson nefndi í umræð-

Kaupþing og'

á Alþingi fyr-

ir helgi vitn-

aði Stein-

grímur J. Sig-

fússon í Lúk-

asarguðs-

spjall.

ÖOPP

eymdarinnar

„Hefur umræðan sem varð í fyrra engu þokað?

Það eru senn aftur jól og við virðumst föst í sama

fari, biðraðir eftir mat og aðstoð, mæður með

börn, fjöldi fólks sem ber stolt í brjósti og vill

bjarga sér sjálft en getur ekki." Þetta sagði Ólafur

Ragnar Grímsson, forseti Islands, í ávarpi á að-

ventukvöldi í Dómkírkjunni í gærkvöldi. Hann

segir að mitt í allsnægtum okkar tíma sé þetta

skuggaveröld þúsunda hér á landi.

„Það vom heit gefin í upphafi ársins, samtök

launafólks tóku höndum saman, lögðu mikla'

vinnu í að greina vandann, fræðimenn sendu frá

sér viðamiklar rannsóknir á vanda í velferð, kjörn-

ir fulltrúar tóku til máls, bæði á Alþingi og í sveita-

stjómum, umræðan brýn í öllum miðlum," segir

forsetinn og spyr:

„Höfum við ekki lýðræðiskraft til að gera bet-

ur? Hvaða hindranir standa í vegi? Hvers vegna

tekst okkur ekki að ryðja þeim burt? Við viljum

ekki að íslensk jól séu tími ótta og örvæntingar,

þrautargöngu og erfiðleika."

Þannig hefur forsetinn aftur umræðu um fá-

tækt á íslandi og efast um að umræðan í fyrra hafi

nokkru skilað. Hann segir íslendinga hafa verið

gæfusama þjóð sem njóti nú meiri velsældar en

flestir aðrir og að jólin séu hátíð gjafa sem áður

vom aðeins til í draumum og að öryggi og farsæld

séu svipmót byggða um allt land. „Samt eru of

margir á meðal okkar sem eiga um sárt að binda,

berjast í bökkum, hafa ekki fjármuni til að gleðja

börn sín á jólum eða til að kaupa föt og var

þó löngum hefðin sú að klæðast nýju þeg-

ar jólin ganga í garð; hafa jafnvel ekki ráð

á mat sem hæfir hátíðum, þurfa að

leita á náðir þeirra sem aðstoð

veita."

Hann sagði að Hjálp-

arstofnun kirkjunnar,

Rauði           krossinn,

Dómkirkjan Forsetinn

flutti aðventuávarp í

gærkvóldi þar sem hann

lýsti áhyggjum affátækt í

landinu.

Ungar mæður standa í biðröð til

að geta fengið poka með matar-

gjöfum, karlmenn á góðum aldri

leita bónbjarga, aldraðir í ein-

yeru, umkomulausir, sjúklingar

sem eiga ekki fyrir lyfjum.

Hjálpræðisherinn, Mæðrastyrksnefnd og aðrir í

lfknarstarfi þurfi sífellt að sinna fleirum, nú þús-

undum á ári hverju. „Ungar mæður standa í

biðröð til að geta fengið poka með matar

gjöfum, karlmenn á góðum aldri leita bón-

bjarga, aldraðir í einveru, umkomulausir,

sjúklingar sem eiga ekki fyrir lyfjum."

Hann segir umsvif hjálparstarfsins aukast

ár frá ári. „Reykjavfk er orðin borg eymd-

arinnar hjá ærið mörgum. Ekki vegna

þess að þau hafi brotið af sér, gerst sek

um glæpi, heldur bara vegna atvinnu-

leysis, veikinda, andlegs álags, barna-

fjölda, örorku eða lágra launa sem duga

ekki   fyrir  framfærslu   fjölskyldunnar

þótt enginn munaður sé þar á borð-

um."

.  „Viljum við að ísland sé svona á

okkar tímum? Auðvitað ekki. Samt er

þetta veruleikinn. Og umfangið virð-

ist meira nú en áður, fleiri leita ásjár,

biðja um hjálp og kirkjan verður sí-

fellt umsvifameiri á þessu sviði. Fyrr-

um töldum við að matargjafir til fólks í

neyð tíðkuðust bara í fjarlægum lönd-

um, nú em þær fastur liður hér á jóla

föstu."

Ólafur  vitnaði   í  Lúkasarguðspjallið   og

sagði að samhjálpin hefði ætíð verið kjaminn

kristinni trú, lögmálið um fórnina og hina útréttu

hönd.

kgb@dv.i's

Lögmaður undrast ummæli Davíðs Þórs Björgvinssonar um gagnagrunnsdóm

Prófessorinn trúnaðarmaður ^m

ÍE og ríkisstjórnar

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður

stúlku sem vann mál gegn ríkinu í

Hæstarétti um að upplýsingar um

föður hennar, Guðmund Ingólfsson

píanóleikara, fæm ekki í gagna-

grunn á heilbrigðissviði, undrast að

Davíð Þór Björgvinsson, prófessor

við Háskólann í Reykjavfk, skuli tjá

sig um málið eins og hver annar sér-

fræðingur. „Mér þykir það sérkenni-

legt að fjölmiðlar tali við prófessor-

inn eins og hann sé óháður háskóla-

maður en geti þess ekki að hann var

ráðgjafi íslenskrar erfðagreiningar

þegar verið var að setja lögin og

skrifaði 100 síðna álit með öðrum

prófessorum sem rfkið lagði fram í

málinu."

Ragnar segir að Davíð Þór hafi

lfka verið trúnaðarmaður ríkis-

stjórnarinnar og ráðgjafi hennar

sem formaður starfrækslunefndar

um gagnagrunninn. „Fjölmiðlar

gæta þess ekki að prófessorinn var

þátttakandi og ráðgjafi sem er að

verja eigin niðurstöður og skoðanir.

Þess vegna reynir hann að gera sem

minnst úr dómi Hæstaréttar," segir

Ragnar.

Hann segir að nú þurfi að opna

málið upp á nýtt á Alþingi og þá

komi upp á yfirborðið ýmislegt, svo

sem   eins   og   samskipti   ís

lenskrar erfðagreiningar og

Persónuverndar.     Ragnar

segir einnig að það verði

áhugavert að fylgjast með

því hvernig Decode Genet-

ics eigi eftir að láta banda-

ríska fjármálaeftirlitið vita af

þessari niðurstöðu Hæstaréttar

íslands.

Ragnar Aðalsteinsson

Gagnrýnir lagaprófessor.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32