Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						8     MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2003

Fréttír DV

Vísað f rá

Kærunefnd jafnréttis-

mála segist ekki geta úr-

skurðað hvort auglýsingar

Icelandair brjóti í bága við

jafnréttislög. Jafnréttisstofa

kærði auglýsingarnar, þar

sem þær gæfu í skyn að ís-

lenskar konur væru lauslát-

ar og auðfengnar í kynlíf. Yf-

irskrift nokkurra auglýsinga

var „Fancy a dirty week-

end", „One night stand in

Reykjavik" og „Tvær í tak-

inu". Kærunefnd jafnréttis-

mála segir það ekki hlutverk

sitt að taka afstöðu til þess

hvort auglýsingar sem birt-

ast erlendis séu í samræmi

við íslenskjafnréttislög, og

vísaði kærunni frá.

Réðust á pilt

Þrír karlmenn réðust inn

á heimili í Grafarvogi að-

faranótt sunnudags og

veittust að rúmlega tvítug-

um pilti. Hann kallaði til

lögreglu en mennimir áttu

einhverjar óuppgerðar sak-

ir. Pilturinn ætlar ekki að

leggja fram kæru.

Bíl stolið úr

bílskúr

Brotist var inn í íbúðar-

hús við Baugholt í Keflavík

og stolið þaðan tveimur

sjónvörpum, myndbands-

tæki, skartgripum og

áfengi, svo eitthvað sé

nefnt. Húsráðendur eru er-

lendis, en sonur þeirra til-

kynnti lögreglu um atburð-

inn. Innbrotsþjófurinn stal

einnig bifreið úr bílskúrn-

um sem hann kann að hafa

notað til að flytja ránsfeng-

inn á brott. Bíllinn er brúnn

og af gerðinni Chrysler

Town & Country. Númerið

á bílnum er EP-711. Einn

maður er í haldi vegna

málsins.

Stephen

King með

lungnabólgu

Hryllingssöguhöfundur-

inn Stephen King hefur verið

lagður inn á spítala til með-

ferðar við lungnabólgu. Rit-

höfundurinn var greindur

með lungnabólgu í hægra

lunga áður en hann fór til

New York að veita verðlaun-

um viðtöku. Ástand

hans versnaði á

heimleiðinni til

Maine og var hann

að lokum lagður inn

á sjúkrahús þar sem

hann fór í aðgerð.

Læknar hans segja

hann vera á batavegi. King

er 56 ára gamall og hefur

skrifað bækur á borð við

„Carrie" og „The Shining."

Hann hefur verið veill heilsu

undanfarin ár en hann varð

fyrir bíl árið 1999 og slasaðist

illa. Þrátt fyrir öll veikindi er

hann enn að skrifa og heitir

næsta verkefni hans merki-

legt nokk „Stephen King's

Hospital"

Jólasöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar er að hefjast og verður fénu varið í

Úganda. Alnæmisvandinn er mikill og hefur gert fjölda barna munaðarlaus

Munaðarlausu

bormn fai ioIm

W-H'' ^ ¦'<• '¦'.<¦

Peningum sem safnast í hinni

árlegu jólasöfnun Hjálparstarfs

kirkjunnar verður að þessu sinni

varið til þess að styrkja munaðar-

laus börn í Úganda. Alnæmis-

vandinn er óvíða meiri en þar í

landi og í Rakai-héraði, þar sem

kirkjan er að störfum, er áætlað að

séu 500 heimili þar sem báðir for-

eldrar hafi dáið úr þessum sjúk-

dómi - og 2.000 börn búi ein.

Neyðin í landinu mikil

Hið íslenska hjálparstarf er

unnið í samvinnu og í gegnum

Lútherska heimssambandið. Anna

M.Þ. Ólafsdóttir fræðslufulltrúi

Hjálparstarfs kirkjunnar er nýlega

komin úr kynnisferð frá Úganda.

Hún segir neyð barnanna í landinu

mikla. Hinsvegar skili það hjálpar-

starf sem Lútherska heimssam-

bandið sér, í samvinnu við heima-

fólk í landinu.

Aðstoðin getur bæði falist í því að

útvega börnunum, sem búa ein og

foreldralaus, fæði, klæði, húsnæði

og ekki síst ráðgjöf fullorðins sjálf-

boðaliða. En einnig felst aðstoðin

félagslegum   stuðningi   af ýmsum.

toga. Skiljum börnin ekki ein eftir, er

raunar yfirskift  söfnunarinnar  að

þesu sinni. Anna M.Þ. Ólafsdóttir

kveðst vænta þess að hjálparstarfið í ár fái góðar

undirtektir og ef vel takist til megi auka umsvif

hjálparstarfsins í Úganga til muna. Allar aðstæður

séu enda til þess; svo sem viljugt og fært starfsfólk

sem og öflugir sjálfboðaliðar.

„Sífellt eru að finnast fleiri börn sem búa ein og

eru hjálpar þurfi. Því er hægt að auka þetta starf til

mikilla muna, takist söfnunin vel. Mér finnst

raunar alveg ótrúlegt hvað hægt er að gera mikið

fyrir litla peninga. Fyrir 2.500 kr. framlag má veita

aðstoð sem skiptir börnin miklu máli, og getur í

raun valdið straumhvörfum í þeirra lífl."

Hluti af jólahaldinu

Söfnunarsími jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkj-

unnar er 907 2002 - og einnig má leggja framlög

inn á reikningsnúmerið 1150 - 26 - 50886. Und-

irtektir hafa verið mjög góðar, að sögn Önnu, en

söfnunarbaukar og gíróseðlar hafa þegar verið

sendir inn á hvert heimili í landinu. Er baukur-

inn góði og það að leggja nokkra upphæð til

hjálparstarfsins raunar orðinn hluti af jólaund-

irbúningi margra íslendinga.

sigbogi@dv.is

Brynjólfur Bjarnason fór frá Granda til Símans

Fékkjeppa ístarfslok

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri

Símans, fékk gefins jeppa frá

Granda þegar hann fór frá fyrirtæk-

inu í fyrra. Jeppin var að gerðinni

Nissan Pajero, metinn á þrjár millj-

önir króna. Brynjólfur ákvað að

selja jeppann því hann fékk annan

forstjórabíl til umráða hjá Síman-

um.

„Hjá mér var enginn starfsloka-

samningur og það var enginn upp-

sagnartími, því ég fór úr vinnu í

Granda í Símann. Ég fékk að halda

jeppanum sem var metinn á um

þrjár milljónir á bílasölu. Hann var

færður sem launatekjur og ég borg-

aði af honum skatta sem voru ná-

lægt einni og hálfri milljón," segir

Brynjólfur.

Ragnar Marteinsson, þáverandi

starfsmaður Opinna kerfa group,

segir fyrirtækið hafa keypt jepp-

ann, sem er svartur af árgerð 2000,

af bflasölu Heklu f fyrra. Bflakaupin

voru að hans sögn fjármögnuð

Glitni. Ragnar er nágranni

Brynjólfs í Garðabæ og leist vel

á jeppann. „Ég hringdi í hann

og spurði hvort honum þætti

óþægilegt að sjá gamla bílinn

sinn í götunni. Litla landið

okkar er nú þannig. Þetta er

afar vel meðfarinn bfll," seg'ir

Ragnar.

Brynjólfur ekur nú um á gullituð-

um Nissan Pajero árgerð 2002 sem

Síminn útvegaði honum fyrir for-

stjóravinnuna.

Mitsubishi Pajero Brynjólfur Bjarna-

son fékkþriggja milljóna krónajeppa í

kveðjugjóffrá Granda þegar hann tók

við forstjórastólnum hjá Símanum.

Enginn starfslokasamningur var

gerður, enjeppinn var færður sem

laun.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32