Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						DV Fókus

MÁNUDAGUR 1. DESEMBER2003   19

• Leikkonunni Nicole Kid-

man fannst það mikill heið-

ur að fá að leika þernu í

nýjustu mynd sinni, The

Human Stain, þar sem hún

leikur á móti Anthony Hop-

kins. I myndinni þrffur hún

m.a. klósett sem hún segir

frábært og minni

hana á þann

tímaþeg-

arhún

Myndasöguhöfundurinn Neil Gaiman er einn sá virtasti á sínu sviði. Hann er

talinn sá fyrsti sem sameinar heim teiknimyndasagna og fagurbókmennta og sækir

að auki innblástur til íslands.

sem ung

stúlka vann

við þá iðju.

„Þetta er akkúrat

hlutverk sem ég

vildi leika,"

sagði leikkonan í viðtali við

ComingSoon.net. „Það var

mér mikill heiður að fá að

leika þetta hlutverk þar

sem ég vann sem herberg-

isþerna á árum áður í

Sydney."

•  SöngkonanBritneySpe-

ars hefur oft á tíðum leitað

til Madonnu til að fá ráð-

leggingar um poppstjömu-

feril sinn. „Ég lít á hana

sem litíu systur mína. Hún

biður mig oft um ráðlegg-

ingar og reyni ég að hjálpa

henni eins og ég

get," sagði

Madonna í

spjallþætti Jay

Leno. „Ég reyni

að leiða hana   „

inn á rétta

braut og

kem henni

í skilning

um að

hún getur   ¦"

ekki tekið

mark á öllu

sem hún heyr-

ir. Ég skil vel allt sem hún

er að ganga í gegnum og

hjálpa henni af eigin

•reynslu," sagði söng- og

leikkonan að lokum. En til

gamans má geta þess að

þær „systur" fóru í sleik á

MTV-tónlistarverðlauna-

iiátfðinni núna nýverið, því

weltir maður því fyrir sér

hvernig er í fjölskylduboð-

um hjá Madonnu.....

•  Kynlífsmynd með

Strandvarðagellunni Genu

Lee Nolin gengur nú um á

Netinu. Ljósk-

an Gena fækk-

ar fötum í

myndbandinu

fyrir Greg

Fahlmanog

fullnægir hon-

um kynferðislega. Mynd-

bandið var tekið upp af

þeim tveimur á tíunda ára-

tugnum. Myndbandsfram-

leiðandinn Greg og Gena

Lee skildu árið 2001. Hann

hafði þetta að segja: „Ef ég

gerði einhvern tímann

myndband myndi ég aldrei

selja það". Hin 32 ára Gena

hefur ekki enn tjáð sig um

málið. Þessar fréttir minna

óneitanlega á frægt mynd-

band Pamelu Anderson og

Tommy Lee og verður for-

vitnilegt að sjá hvort þetta

myndband nær viðlíka út-

breiðslu.

•  Meira en sex milljónir

manna horfðu á sjónvarps-

þáttinn Top Of The Pops í

Bretlandi á

föstudags-

kvöldið. Þátt-

urinn hafði

verið í pásu

um nokkurt

skeið vegna

dalandi áhorfs en var nú

hleypt aftur af stokkunum

með þessum líka hvelli.

Það voru Kylie Minogue og

Wttl Young sem voru aðal-

númerin í þættinum þetta

kvöld en einnig mátti sjá

BJton John, Robbie WUli-

ams, Victoriu Beckham og

The Darkness.

f   mf

Komst i fokus

f

Gaiman er ef til vill fyrsti höfundurinn til að

sameina heim teiknimyndasagna og fagurbók-

mennta á sannfærandi hátt, og teiknuðu bæk-

urnar um Sandman, sem komu fyrst út árið 1989

hafa höfðað jafnt til bókmenntafræðinga og fag-

urkera sem og unglinga. Jarðvegurinn hafði þó

verið undirbúinn, því árið 1986 hafði maður að

nafni Frank Miller skrifað sögurnar The Dark

Knight Returns, sem fjalla um tilvistarkreppu

Batmans á efri árum. Spumingum um siðferði

manns sem starfar utan laganna er velt upp, og

sógurnar þóttu myrkari og fullorðinslegri en

áður þekktist í myndasöguheimum. Sama ár

komu út sögumar Watchmen eftir Alan Moore,

sem einnig gáfu aðra sýn á hina hefðbundnu

hetjuímynd, og þegar fyrsta Sandman-sagan

birtist voru teiknimyndasögur því í þann mund

að verða viðurkenndar sem lesefni fyrir full-

orðna.

Reynt að handsama dauðann

Sögumar segja frá hóp galdramanna sem

reyna að handsama Dauðann sjálfan, en í stað

þess klófesta þeir bróður hans, Draum. Draumur

er fangi þeirra mestalla 20. öldina, en sleppur

svo og þarf að takast á við þær breytingar sem

hafa orðið í fjarveru hans. Sögumar urðu geysi-

vinsælar og seldust í milljón eintökum á ári,

ásamt því að verða fyrsta myndasagan sem vann

til bókmenntaverðlauna. Eftir sjö ára sigurgöngu

urðu lesendur blaðana fyrir miklu áfalli þegar

tilkynnt var í 75. tölublaði að serían væri hætt að

koma út, þrátt fyrir stöðugar vinsældir.

Neil Gaiman var þó hvergi nærri horfinn.

Hann hélt áfram að gefa út margvíslegar mynda-

sögur og gaf líka út sína fyrstu bamabók, The Day

I Swapped my Dad for Two Goldfish. Eitt stærsta

verkefni hans var BBC þáttaröðin Neverwhere,

sem kom út árið 1996, og varð að bók ári síðar.

Eftir að hafa átt stóran þátt í að gera myndasögur

að virtu listformi var Gaiman nú farinn að undir-

búa jarðveginn fyrir að brjóta sér leið inn í skáld-

sagnaheiminn. Árið 1997 kviknaði hugmynd að

annarri bók, en þó gekk erfiðlega fyrir hann að

koma henni niður á blað.

Lausnin finnst á íslandi

Það var ekki fyrr en að hann kom til íslands

ári síðar sem hann loks náði áttum. Á heimasíðu

sinni segir hann svo frá: „í júlí 1998 hafði ég farið

til Islands, á leiðinni til Noregs og Finnlands.

Kannski var það vegalengdin frá Bandaríkjunum,

eða kannski var það svefnleysið sem tilheyrði

ferðalagi til lands miðnætursólarinnar, en skyndi-

lega, einhvers staðar í Reykjavík komst bókin í

fókus...ég skrifaði útgefanda mínum og stakk upp

Kannski var það vegalengdin

frá Bandaríkjunum, eða

kannski varþað svefnleysið

sem tilheyrði ferðalagi til

lands miðnætursólarinnar,

en skyndilega, einhvers stað-

ar íReykjavík komst hókin í

fókus..."

á að American Gods yrði vinnuheitið."

Bókin American Gods kom svo út árið 2001.

Hún fór á toppinn á New York Times metsölulist-

anum, og vann til fjölda verðlauna. Teiknimynda-

söguhöfundinum hafði tekist að vinna virðingu

bókmenntaheimsins. Norræn goðafræði kemur

við sögu, en bókin fjallar um Shadow sem nýkom-

inn er úr fangelsi aðeins til að komast að því að

kona hans og besti vinur fórust saman í bflslysi,

hún með lim hans í munninum á dánarstundu.

Shadow hefur nú ekkert til að lifa fyrir lengur, en

dularfullur maður að nafni Wednesday býður

honum vinnu. Miðvikudagur er kenndur við Óð-

inn á öllum germönskum málum nema íslensku,

og það kemur á daginn að þetta er enginn annar

en æðsta goðið sjálft sem þarna er á ferð.

Guðimir drekka Jack Daniels

Óðinn er reyndar ekki eina goðsagnapersónan

sem er mætt til leiks, því að í fyrstu köflum bókar-

innar mætir Skuggi einnig írskum búálfi, sem er

ölvaður og ofbeldisfullur eins og þeirra er siður,

og rússrieska vetrarguðinum Czemobog, sem

hann þarf að tefla við upp á líf og dauða. Bókin er

byggð á vangaveltum um hvað verður um þjóð-

sögur þegar þær flytjast á milli landa, og að hvaða

leyti þær verða fyrir áhrifum frá nýja landinu. Goð

Gaimans em orðin heldur ameríkanísemð, til

dæmis drekkur Óðinn Jack Daníels frekar en mjöð

1. Neil Gaiman, sem skrifar bæði myndasögur og

skáldsögur með dulrænum blæ.

2. Sandman, drottinn drauma í samnefndum sögum.

3. Kápan af bókinni Coraline, sem nú er verið að

þýða á íslensku.

og búálfurinn drekkur Southern Comfort og kók

frekar en Guinness. Ein ástæðan þess að þetta

sögusvið höfðaði til Gaimans^r ef til vill sú að

hann er Breti búsettur í Bandaríkjunum, og hefur

vafalaust orðið fyrir talsverðum áhrifum af búsetu

sinni þar.

Gaiman er væntanlegur aftur til íslands og ætl-

unin er að hann haldi fyrirlestur fyrir landsmenn,

en Mál og menning er nú að þýða bamabók háns

Coraline yfir á íslensku og mun hún koma út á

næsta ári. Gaiman aðdáendur þurfa þó ekki að

sitja auðum höndum þangað til, því í ár hafa þrjú

ný verk litið dagsins ljós. Ásamt hinni áðumefndu

Endless Nights hefur komið út ný barnabók, The

Wolves in the Walls og einnig ný Gaiman teikni-

myndasería sem nefnist 1602, og gerist á tímum

Elísabetar Englandsdrottningar. Verður hún gefin

út í átta hlutum, og eru fyrstu fjórir þegar komnir

út. Reynt var að ná tali við Gaiman, en okkur var

tjáð að hann væri upptekinn við skriftir, og myndi

ekki veita nein viðtöl það sem eftir væri árs. Verð-

ur því spennandi að sjá hvað lifnar við á lykla-

borði meistarans næst.

valur@dv.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32